Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1990, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1990.
27
dv Afmæli
Sigurður Pálsson
Sigurður
Pálsson
Sigurður Pálsson, bílstjóri og
aðstoðarverkstjóri hjá Ölgerð Eg-
ils Skallagrímssonar hf., er fimm-
tugurídag.
Sigurður er fæddur á Starrastöð-
um í Lýtingsstaðahreppi og ólst
þarupp.
Starfsferill
Sigurður vann öll almenn
sveitastörf og var sjómaður. Hann
var verkstjóri í byggingaflokki hjá
Rafmagnsveitum ríkisins og vann
á löggildingastofu ríkisins um ára-
bil. Sigurður var starfsmaður í
Bílanausti hf. og er nú bílstjóri og
aðstoðarverkstjóri hjá Ölgerð Eg-
ils Skallagímssonar hf.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 25. ágúst 1968
Sigurbjörgu Stefánsdóttur, f. 22.
maí 1937. Foreldrar Sigurbjargar
eru Stefán Þ. Sigurðsson, b. á
Steiná í Svartárdal, og kona hans,
Ragnheiður Jónsdóttir. Börn Sig-
urðar og Sigurbjargar eru Guðrún
Margrét, f. 5. júní 1968, nemi í
dýralækningum í Danmörku; Una
iMdís, f. 8. júní 1970, skrifstofu-
maður á Sauðárkróki, sambýlis-
maður hennar er Stefán Guð-
mundsson, og Stefán Þórarinn, f.
18. apríl 1972, nemi í MK.
Bræður Sigurðar eru Ólafur
Sigmar, f. 25. maí 1938, rafvirki á
Sauðárkróki, kvæntur Hjörtínu
Dóru Vagnsdóttur og eiga þau tvö
börn; Jóhann Reynir, f. 8. júlí 1945,
smiður í Varmahlíö í Skagaflrði,
kvæntur Soffíu Kristjánsdóttur og
eiga þau tvö börn; Ingimar, f. 22.
júní 1946, framkvæmdastjóri á
Sauðárkróki, kvæntur Halldóru
Helgadóttur og eiga þau þrjú börn,
og Eyjólfur Svanur, f. 23. nóvemb-
er 1952, b. á Starrastöðum, kvænt-
ur Maríu Reykdal og eiga þau
fimm böm.
Ætt
Foreldrar Sigurðar: Páll Ólafs-
son, f. 15. maí 1910, d. 12. janúar
1990, b. á Starrastöðum, og kona
hans, Guðrún Kristjánsdóttir, f.
11. júlí 1913. Páll var sonur Ólafs,
b. á Starrastöðum, Sveinssonar,
b. í Bjarnastaðahlíð, Guðmunds-
sonar. Móðir Ólafs varÞorbjörg
Ólafsdóttir, b. í Litluhlíð, Ólafs-
sonar, b. í Litluhlíð, Guðmunds-
sonar, b. á Barkarstöðum, Eyjólfs-
• sonar, b. á Eiríksstöðum, Jónsson-
ar, b. á Skeggstöðum, Jónssonar,
ættföður Skeggstaðaættarinnar.
Móðir Páls var Margrét Björns-
dóttir Schram, b. á Róðhóh. Móðir
Margrétar var Herdís Eiríksdóttir,
b. og hreppstjóra í Djúpadal, Ei-
ríkssonar. Móðir Herdísar var Sig-
urbjörg Skúladóttir, skálds á Ög-
mundarstööum, Þorbergssonar.
Guðrún er dóttir Kristjáns, b. á
Krithóh, Árnasonar, og konu
hans, Ingibjargar Jóhannsdóttur,
b. í Saurbæ í Neðribyggð, Jó-
hannssonar.
LífsstHI
Afgreiðslutími verslana:
Lokað á Þor-
láksmessu
Þorláksmessu í ár ber upp á sunnu-
dag. Samkvæmt reglum er bannað
að hafa verslanir opnar á sunnudög-
um og þess vegna verður fólk, sem
er seint á ferðinni, aö gera sín jóla-
innkaup laugardaginn 22. desember
eða í síðasta lagi fyrir hádegi á að-
fangadag. Nýsamþykktar breytingar
á afgreiðslutíma verslana öðlast ekki
gildi fyrr en um áramótin.
Fjórir laugardagar fyrir jól
Til þess að fræðast nánar um af-
greiðslutíma verslana í desember-
mánuði hafði blaðamaður DV sam-
band við Guðmund B. Ólafsson, lög-
Neytendur
fræðing Verslunarmannafélags
Reykjavíkur. „Samkvæmt þeirri
samþykkt, sem enn er í gildi, má
hafa verslanir opnar til kl. 18.30
mánudaga til fimmtudaga og til kl.
21.00 á fóstudögum. Til viðbótar
mega verslanir vera opnar á laugar-
dögum til kl. 16.00 en sumarmánuð-
ina júní, júh og ágúst skal vera lokað
á laugardögum. Sérákvæði ghda um
desembermánúð. Annan laugardag í
desembermánuði er leyfllegt að vera
með opnar verslanir til kl. 18.00 og
þriðja laugardag desembermánaðar
til kl. 22.00.
Nú vih svo til að fjórir laugardagar
eru fyrir jól í desembermánuði en
ekki eru þó ákvæði í samningnum
um afgreiðslutíma þegar svo ber
undir. Þegar ekki er sérstaklega um
það samið á afgreiðslutimi á laugar-
degi strangt til tekið að miðast við
til kl. 16.00. Þó er ekki ólíklegt að
þennan fjórða laugardag verði opið
til klukkan 23.00. Þetta er dagurinn
fyrir Þorláksmessu og búðir verða
að þessu sinni lokaðar á Þorláks-
messu. Verslanir verða svo aftur
opnar fyrir hádegi' á aðfangadag,
enda er það mánudagur. Önnur
ákvæði gilda fyrir söluturna, þeir
mega vera opnir á Þorláksmessu,"
sagði Guðmundur að síðustu.
Líklega lokað á þriðja I jólum
Jón Ásbergsson, framkvæmda-
stjóri Hagkaups, upplýsti að verslan-
ir Hagkaups yrðu opnar til klukkan
22.00 laugardaginn 22. desember og
hann byggist við að það sama ætti
við um aðrar verslanir í Kringlunni.
„Samkvæmt samningi milh Land-
sambands íslenskra verslunar-
manna og Vinnuveitendasambands-
ins hefur starfsfólk í verslunum rétt
til tveggja launaðra frídaga frá des-
ember til febrúar. Undanfarin 2 ár
hefur annar þessara tveggja daga
verið þriðji í jólum. Því er líklegt að
verslanir verði lokaðar 27. desember
en þó ekki útilokað að opið verði frá
hádegi þann dag. Einnig verða versl-
anir opnar fyrir hádegi á gamlárs-
dag,“ sagði Jón að lokum.
Vegna þess að nú eru löng jól og
Þorláksmessu ber upp á sunnudag
verður lokað þann dag og því vissara
að vera búinn að gera jólainnkaupin
þann 22. desember. Um áramótin
gengur síðan í gildi nýr samningur
sem gerir ráð fyrir frjálsum af-
greiðslutíma verslana.
***■&)!
Það er um að gera að Ijúka jólainnkaupum I tima til að forðast biðraðir,
enda verða verslanir lokaðar á Þorláksmessu. DV-mynd
kjötvörur
Þunglyndir reykingamenn
Þynglyndum reykingamönnum er
mun hættara við krabbameini en
þeim sem eru léttlyndir. Þetta er nið-
urstaða 12 ára rannsóknar á 2.264
einstaklingum í Maryland-fylki í
Bandaríkjúnum.
Þeim sem reykja og eru þunglyndir
er á bilinu 2,6-4,5 sinnum hættara
við aö fá krabbameinstilfelli, en þeim
sem reykja og eru léttlyndir. Sé hins
vegar boriö saman hlutfall þeirra
sem ekki reykja og léttlyndra
reykingamanna kemur í ljós aö síö-
arnefnda hópnum er sáralítiö hætt-
ara við krabbameini. Léttlyndum
reykingamönnum er að meöaltali
1,25-1,6 sinnum hættara við krabba-
meinstilfellum en þeim sem reykja
alls ekki.
Vísindamenn við John Hopkins -
háskólann í Maryland leggja fram
þessar niðurstööur sínar í nóvemb-
erhefti tímaritsins „American Jour-
nal of Epidemiology", sem er fræði-
rit um tengsl hinna ýmsu þátta sem
ákvarða tíðni og dreifmgu sjúkdóma.
Athyglisvert er að rannsóknin leiddi
ekki í ljós aö þunglyndið sjálft hefði
í för með sér aukna hættu á krabba-
meinstilfellum, heldur einungis í
samspili með reykingum.
Möbelfakta
húsgögn
í fréttatilkynningu frá Neyt-
endasamtökunum um „Möbel-
fakta'* og neytendur, sem birt var
nýlega í DV, er því haldiö fram
að ákveðinn innflytjandi, sem
selur húsgögn með „Möbelfakta**
upplýsingum, selji eingöngu hús-
gögn til heimilisnota en ekki á
vinnustaði. Auk þess er sagt í
greininni aö eingöngu sé miðaö
við lágmarksgæði.
Þessi fullyrðing er ekki rétt,
fyrmefndur aöili selur húsgögn
bæöi fyrir heimili og vinnustaði.
í ,JVIöbelfakta“ upplýsingunum
kemur einnig íram hvort um er
að ræða húsgögr. miðað við há-
marksgæði, miðlungsgæði eöa
lágmarksgæöi og eru neytendur
hvattir til að kanna þetta sjálflr
á sölustáð.
Neytendasamtökin biöja hlut-
aðeigendur velvirðingar á þess-
um mistökum.
Ekki er alveg víst að þessum reykingamönnum nægi að vera léttlyndir til aö losna við krabbamein, ef reykingasið-
irnir eru þessir að jafnaði.
I