Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1990, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1990, Síða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1990. Meiming Sól, ást og blómstrið frítt í Breiðholtinu Nú er dagur farinn að styttast og myrkur og kuldi sverfur að. Jólakapphlaupið er framundan með öllu sínu amstri og fjárhagsáhyggjum. Hvað er betra viö þessu en að bregða sér á ljóðatónleika og gægjast inn í gjörólíkan heim þar sem elskendur lesa ávexti af suðrænum trjám í glampandi sólskini og golan er ná- kvæmlega mátuleg til þess að manni verði ekki of heitt og til þess aö vagga blómunum svo fegurð þeirra njóti sín sem best. í þessum heimi gerist ekkert verra en að maður missir af elskunni sinni og það er svo ljúfsárt að við liggur að menn taki slíkri sorg fagn- andi. Þegar við þetta allt bætist aö ljóðin eru sungin af ungri konu sem ekki aðeins lítur út eins og þar sé sjálf Lorelei komin heldur syngur að minnsta kosti eins vel ef ekki betur, þá er ekki nema von þótt frost- börðum íslendingum, sem daglangt beijast við víxla, vexti og vondar ríkisstjómir, hlaupi kökkur í háls. Það verður jafnvel skiljanlegt að þrautvönum píanistum, þótt ýmsu séu vanir þegar tónleikar.eru annars veg- ar, hlýni svo um hjartarætur, að minnstu munar að falli ofan af sviðinu í ákafa sínum að faðma söng- konuna í tónleikaiok. Þetta var það andrúmsloft sem Sólrún Bragadóttir sópransöngkona skapaði á ljóðatónleikum Gerðubergs í gærkvöldi þar sem hún söng lög eftir Franz Schu- bert, Gabriel Fauré, Richard Strauss og Charles Ives Tónlist Finnur Torfi Stefánsson við ágætan píanóundirleik Jónasar Ingimundarsonar. Sólrún starfar svo sem kunnugt er um þessar mundir í Þýskalandi og virðist eiga þar bjarta framtíð fyrir sér. Það er vel skiljanlegt aö þýskum líki vel við kon- una. Hún hefur gullfallega og vel þjálfaða rödd sem heldur gæðum sínum yfir allt tónsviðið hvort heldur sungið er veikt eða sterkt. Þessa rödd notar hún á mjög blæbrigðaríkan og tónelskan hátt. Það er gamall draumur meðal íslendinga að sigra útlendar stór- þjóðir með söng og á ef til vill rætur að rekja til þess tíma er íslensk skáld fluttu konungum drápur til foma. Þessi draumur virðist vera að rætast hjá Sólrúnu og landar hennar sýndu áhuga sinn með því að troðfylla salinn í Gerðubergi og urðu ýmsir frá að hverfa. Það er staðarhöldurum í Breiðholti til ábendingar að loft- ræsting í Gerðubergi er ekki í stakk búinn til að taka á móti svo vinsælu listafólki eins og var á þessum tónleikum. Er um tvennt að velja, að setja markið lægra um aðsókn eða kaupa nýja loftræstingu. Andlát Hannesína Kristín Einarsdóttir frá Reynifelli lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, Kópavogi, fóstudaginn 16. nóvember. Gísli Guðmundsson bifreiðastjóri, Teigaseli 3, lést á Landakotsspítala laugardaginn 17. nóvember. Sigríður Árnadóttir, Fjólugötu 21, Reykjavík, lést á Landspítalanum 16. nóvember sl. Sólveig Þórðardóttir, Furugerði 1, Reykjavík, lést í Borgarspítalanum sunnudaginn 18. nóvember. Jarðárfarir Kristín G. J. Sigurðardóttir, Austur- brún 2, Reykjavík, lést á Vífilsstaða- spítala hinn 4. nóvember sl. Jarðar- fórin hefur fariö fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Anna V. Eiríkss, Æsufelh 4, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mið- vikudaginn 21. nóvember kl. 13.30. Jakob V. Emilsson prentari, Dal- braut 18, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 21. nóvember kl. 10.30. Njáll Þórðarson skipstjóri, Móabarði 34, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfj arðarkirkj u miðvikudag- inn 21. nóvember kl. 15. Kristján Gíslason frá Ytra-Skógar- nesi verður jarðsunginn frá Stykkis- hólmskirkju fimmtudaginn 22. nóv- ember kl. 14. Guðrún Lilja Sigfúsdóttir, Mjósundi 2, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfj arðarkirkj u fimmtudaginn 22. nóvember kl. 15. Tilkyrmingar Rás níu komið út Bylgjan, félag farstöðvaeigenda, gefur út blaðið Rás níu og er fyrsta tölublað 1990 komið út. Jólakort Svalanna eru komin út Ein félagskvenna, Sigríður Gyða Sigurð- ardóttir, hefur hannað kortin. Svölurnar eru félag núverandi og fyrrverandi flug- freyja. Markmið félagsins er að afla fjár til styrktar þeim sem minna mega sín í þjóðfélaginu. Að þessu sinni munu sam- tökin halda áfram stuðningi sínum við Kópavogshælið og veita námsstyrki til framhaldsnáms í kennslu og þjálfun fjöl- fatlaðra bama. Dagana 7. og 8. desember munu félagskonur selja jólakort í Kringl- unni. Umsjón með dreifmgu kortanna hafa Þuríður ísólfsdóttir, sími 75824, og Kolbrún Þórhallsdóttir, sími 613252. Svöl- urnar þakka velunnumm sínum veitta aöstoð á liðnum ámm og treysta á stuðn- ing þeirra nú sem fyrr. Taflfélag Kópavogs Nóvember-hraðskákmót taflfélags Kópa- vogs verður haldið í Hjallaskóla sunnu- daginn 25. nóvember kl. 14. Glæsileg verðlaun. Myndlistarsýning í Nýlistasafninu 16. nóvember sl. opnaði Helga Egilsdóttir myndlistarsýningu í Nýlistasafninu við Vatnsstíg í Reykjavík. Þar sýnir Helga 7 verk, öll unnin á þessu ári í olíu á striga. Þetta er þriðja einkasýning Helgu hér á landi en Helga hefur einnig tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima og erlendis. Félag eldri borgara Haldin verður skáldakynning í dag að Hveríisgötu 105 og hefst hún kl. 15. Ath: Húsið opnað kl. 14. Þar munu nokkur skáld lesa úr verkum sínum sem koma út fyrir jólin. Leiðrétting Vegna fréttar í DV í gær þess efnis að PC-tölvan á Akranesi væri um það bil að tryggja sér umboð á íslandi fyrir Tos- hiba, Grundig og Otis-lyftur er nauðsyn- legt að eftirfarandi komi fram. PC-Tölvan á Akranesi fær aðeins umboð fyrir Tat- ung-fyrirtækiö í Tævan. Þetta fyrirtæki framleiðir m.a. fyrir Gmndig og Toshiba á Tævanmarkað. Einnig framleiðir fyrir- tækiö, að sögn Sigurðar Péturs Hauks- sonar, eigenda PC-tölvunnar, lyftur fyrir Otis. Onákvæmni í frásögn Sigurðar Pét- urs við blaðamann olli þeim misskilningi að Tatung-umboðinu fylgdu fyrrgreind vömmerki. Toshiba-umboðið er áfram í höndum Einars Farestveit, Gmndig hjá Frístund, rafeinatækni sf. og lyfturnar áfram hjá Otis-lyftum. S.Sv. Akranesi Gunnar Sverrir Ragnars tilnefndur riddari Hans hátign Ólafur V. Noregskonungur hefur tilnefnt Gunnar Sverri Ragnars, ræðismann Noregs á Akureyri, til ridd- ara af hæsta flokki hinnar konunglegu norsku þjónustuorðu fyrir langt og ár- angursríkt starf í þágu norskra hags- muna og Noregs. Othar Ellingsen, aðal- ræðismaður Noregs og stórriddari af sömu orðu, afhenti Gunnari S. Ragnars heiðursmerkið og viðurkenningarskjal við athöfh í norska sendiráðinu í Reykja- vik að viðstöddum sendiherra Noregs, Per Aasen. Námskeid Námskeið í skyndihjálp verður haldið á vegum Reykjavikurdeild- ar RKI. Það hefst fmuntudaginn 22. nóv- ember kl. 20 að Fákafeni 11, 2. hæð. Kennsludagar: 22., 26., 28. og 29. nóvemb- er. Þetta námskeið telst vera 16 klst. Að því loknu gefst þátttakendum kostur á að bæta við sig tveimur kvöldum sem verða 3. og 6. desember og telst námskeið- ið í heild vera 24 klst. en það á að vera nóg til að hægt sé að fá þaö metiö í fram- haldsskólum. Á þessu námskeiði verður m.a. kennd endurlífgun. Nú nýverið gerðist það að barni var bjargaö með endurlífgun sem fjölmiðlar hafa fjallað mn. En það verður kennt margt meira, svo sem grundvallarmeðhöndlun sára, skyndihjálp við bruna og beinbrotum auk margs annars. Auk þessa námskeiðs verður haldið endurmenntunamámske- ið í skyndiþjálp. Það verður haldið dag- ana 27. nóv. og 4. des. Þetta er námskeiö sem er ætlað fólki sem hefur farið á nám- skeið í skyndihjálp einhvem tíma á síð- ustu 4 ámm. Sérstaklega er þetta nám- skeið hugsað fyrir þá sem hafa lært skyndihjálp, samkvæmt því kerfi sem var tekið upp fyrir tveimur árum, og vilja halda þekkingunni við. Leiðbeinandi á námskeiðunum verður Guðlaugur Leós- son. Skráning á námskeiðin verður í síma 688188. Athygli skal vakin á því að Reykjavíkurdeildin útvegar leiðbeinend- ur til að halda námskeið fyrir skóla, fyrir- tæki og aðra sem þess óska. Stjörnuspeki og heilun leiðsögn - leið til sjálfshjálpar Helgina 24. og 25. nóvember verða haldin í Reykjavík tvö námskeið sem ijalla um málefni sem margir hafa áhuga á um þessar mundir. Fyrra námskeiðið fjallar um stjömuspeki og heilun og það síðara um leiðsögn - leið til sjálfshjálpar (Co- unselling). Fyrirlesari og leiðbeinandi á námskeiðunum verður Marilyn Allen frá Englandi. Hún hefur unnið við stjömu- speki og heilun í mörg ár og er um þess- ar mundir að setja fram nýjar kenningar og þróa sínar eigin aðferðir í stjömu- speki. Gjald fyrir hvort námskeið er kr. 1850. Námskeiðin verða haldin í fundar- herbergi Rósakrossreglunnar að Bolholti 4, 4. hæð, og þátttöku skal tilkynna til Óskars í síma 15015 eða Lóu í s. 52712 en þau veita allar nánari upplýsingar. Túlk- ur verður á námskeiðimum sem fara fram á ensku. Tónleikar Háskólatónleikar Miðvikudaginn 21. nóvember kl. 12.30 mim Öm Magnússon píanóleikari koma fram á háskólatónleikum. Á efhisskránm em verk eftir Nielsen, Ravel og Debussy. Öm Magnússon er fæddur í Ólafsfirði árið 1959 og hlaut þar sína fyrstu tónlist- armenntun. Hann brautskráðist frá Tón- listarskóla Akureyrar 1979 og stundaöi framhaldsnám í Manchester, Berlín og London 1980-1986. Örn hefur haldið fjölda einleikstónleika og komið fram við ýmis tækifæri. Hann er nú nýkominn heim af tónlistarhátíð imgra norrænna tónskálda (UNM) í Helsinki þar sem hann flutti tvö ný íslensk píanóverk. Öm er starfandi kennari við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar í Reykjavík. Tapaðfundið Penni fannst Cenotor penni fannst í Fichersundi. Upp- lýsingar í síma 32842. Fundir Minjar og saga Almennur fræðslufundur verður haldinn í dag kl. 17 í Þjóðminjasafni íslands. Fundarefni: 'Haukur Jóhannesson jarö- fræðingm- flytur erindi um sagnfræði í ljósi jarðfræðirannsókna. Allir velkomn- Fræðslufundur Náttúrulækningafélags Reykjavíkur Dr. Roberto Tapia og Patricia Prince munu halda fyrirlestur á vegum Náttúm- lækningafélags Reykjavíkur á Hótel Loft- leiðum miðvikudaginn 21. nóvember kl. 20.30. Dr. Tapia og Prince koma frá Ho- listic Medical Center í Mexíkó, sem er heftsuhæli á vegum American Biologics, þar sem þau fást við nýjar leiðir í með- ferð krabbameins, hrömunarsjúkdóma, alsheimer, Parkinson og fl. Auk þess sem þau vinna að meðferð sem stuðlar að lengra lifi og betri heilsu. Meðferð þeirra byggist að miklu leyti á fæðuvali og þá sérstaklega hrámeti. Túlkur verður á fundinum og á eftir munu dr. Tapia og Prince svara spumingum gesta. Allir velkomnir á meðan húsiúm leyfir. Borgaralegar útfarir Aðskilnaður ríkis og kirkju Siðmeimt, félag áhugafólks um borgara- legar athafnir, heldur fund fimmtudag- inn 22. nóvember nk. Á dagskrá fundar- ins verða framsögur og umræður um tvö efni. 1. Borgaralegar útfarir. Stjóm fé- lagsins hefur athugað ýmis atriði varð- andi þetta málefni, enda hafa henni bor- ist margar fyrirspumir vegna þess. Nauðsynlegt er að sem flestir áhugamenn um borgaralegar útfarir mæti á fundinn og taki þátt í umræðum. 2. Aðskilnaður ríkis og kirkju. í stefnuskrá Siðmenntar er tekið fram að trúfrelsi megi aldrei skerða en það er að mati fimdarboðenda skerðing á trúfrelsi að eitt trúfélag hafi forréttindi umfram önnur. Þetta mál verður rætt m.a. í ljósi sögunnar og al- mennra mannréttinda. Fundurinn verð- ur haldinn í húsakynnum Félags bóka- gerðarmanna að Hverfisgötu 21 og hefst hann kl. 20.30. Hann er öllum opinn. Fjölmiðlar Þeim fer óðum fiölgandi sem hafa aðgang að gervihnattasjónvarpi. Það er sérstaklega í fiölbýiishúsum sem komið hefur verið upp gervi- hnattadiskum sem gerir þaö að verkum að hægt er ná inn á lieimili sitt mörgum mismunandi sjón- varpsstöðvum. Þótt engar hald- bærara tölur séu um hve margir hafa not af gervihnattasjónvarpi þá fara þær tölur að skipta tugum þús- unda. Hvað er það svo sem gervihnatta- sjónvarp getur boöið upp á framyfir þær tvær íslensku sjónvarpsstöðvar sem verða að teljast ágætar þegar á heildina er litið. Jú, það er sérhæft sjónvarp. Flestir sem gervihnatta- disk hafa stilla hann á Astra hnött- inn. Þar með er komiö gott samband viö margar stöðvar. Þar af er ein stöð, Sky Ne ws, sem eingöngu sjón- varpar fréttum. Tvær stöðvar sjón- varpa íþróttum allan sólarhringinn og eru þessar stöðvar kannski fyrst og fremst ástæðan fyrir því að margrir fá sér gervihnattadisk. Þótt skoðanakannanir hafi sýnt að það sé ekki mjög stór hópur sem horfir á íþróttir er þctla mikill þrýstihópur sem ekkert lætur stöðva sig þegar íþróttireigaíhlut. Auk almennra stöðva eins og Sky One og RTL plus eru stöðvar sem sjónvarpa eingöngu barnaefni, fræðsluefni eða kvikmyndum. Margir urðu fyrir vonbrigðum fyrir um það bil ári þegar Sky Movies var rugluð. Þar meö hvarf ein sérhæfða stöðin. Og ekki má gleyma MTV som eíngöngu sjónvarparpopptónlist aliansólarhringinn. Afþessu má sjá að eftirsóknin er fyrst og fremst í sérhæfðu stöðvar- anar. Þaö er ekki amalegt aö geta kveikt á sjónvarpi hvenær sem er og fengið nýjustu alheimsfréttimar eða nýjustu íþróttaviðburðina beint heirn í stofu. Kannanirsýnaað sér- hæfðar stöðvar eru á uppleið. Hér á landi bætast viötugirmanna í hverjum mánuði sem hafaaðgang að sh'kum stöðvum. Og hvort sem mönnum líkar betur eða verr er gervihnattasjónvarp komið til að vera. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.