Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1991, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1991, Blaðsíða 5
LAUGARDÁGUR 26. -JÁNÚAR 199Í. 31 Bílar Bílasýningin í Detroit: Chrysler með tvígengisvél Chrysler hefur ákveðið að halda áfram þróun tvigengisvélar. Á dögun- um var sýnd ný 1,1 lítra tvígengisvél á alþjóðlegu bílasýningunni í De- troit. Á myndinni má sjá Francois Castaing, stjórnanda tæknideildar Chrysler, við Dodge Neon, tilraunabílinn sem sýndur var með þessari nýju vél i Detroit. Gert er ráð fyrir að það taki fimm ár að þróa vélina nægilega til þess að hægt verði að fjöldaframleiða hana. Margar á leiðinni Það er ekki aðeins Chrysler sem reynir fyrir sér með tvigengisvélar þessa dagana. Flestir bílaframleiðendur hafa leitað fyrir sér á þessum markaði, bæði bandarísku „risarnir“ og eins japönsku bílaframlei'ðend- urnir. Fyrir nokkru sögðum við frá áströlsku fyrirtæki sem er komið langt í þróun tvígengisvélar þannig að þess verður kannski ekki langt að biða að tvígengisvélar ryðji sér til rúms. Þá er næsta víst að þessar vélar segja ekki nafnið sitt sjálfar eins og Trabantvélin gerði. Tékkneskir gírkassar í Opel Þýski bílaframleiðandinn Opel, sem er í eigu General Motors, hefur hafið samvinnu við tékknesku gír- kassaverksmiðjuna BAZ í Brat- islava. Búið er að gera samning um smíði 250.000 gírkassa í Opel Kadett. Síðar meir kann svo að fara að sam- ið verði einnig um samsetningu á einhverju magni á Kadett í Tékkó. 30 kíló- metraá einum lítra eldsneytis Innan fimm ára verður unnt að aka 30 kílómetra á einum lítra eldsneytis á dísilbílum. Þetta er skoðun ytir- manns rafeindadeildar Audi-verk- smiðjanna, dr. Ernst Olav Pagel. Það er mat dr. Pagel að ný rafeinda- tækni muni stjórna brennslu og nýt- ingu eldsneytisins það mikið betur að mun meira afl og nýting náist út úr hverjum lítra eldsneytis. Jafnframt þessu verður unnt að draga að miklum mun úr hættuleg- um efnum í útblæstri vélanna. Með þessum samningi er GM (Op- el) nánast búið að skjóta bæði VW og Renault ref fyrir rass hvað varðar að vera fyrstir inn í Tékkó með ann- an fótinn þótt þeir hjá VW séu þegar búnir að kaupa sig inn í Skoda þá verður ekki um beina framleiðslu á vegum VW þar strax að ræða. Bíll ársins 1991: Viðurkenningin afhent í Róm Porsche 968 ánturbo Við sögðum á dögunum frá fyrir- ætlan Porsche að senda frá sér arf- taka Porsche 944 í haust. Þessi nýi sportfákur hefur fengið „númerið“ 968 og mun birtast á IAA, bílasýning- unni í Frankfurt, í september. 968 mun verða framleiddur bæði sem coupé og sem blæjubíll en kemur hins vegar aðeins með einni vélar- stærð, fjögurra strokka, 16 ventla, sem gefa á 240 hestöfl. Samkvæmt þessu eru engar áætlanir uppi um turbo í þennan nýja Porsche. Renault Clio var á dögunum valinn „bill ársins 1991“. Það voru 58 bila- blaðamenn hvaðanæva ur Evrópu sem völdu þann bíl sem hlýtur þenn- an eftirsótta titil, en að verðlaunaveitingunni standa sjö útgáfufyrirtæki í Evrópu. Á dögunum tók stjórnarformaður Renault, Raymond H. Levy (til hægri á myndinni) við styttu sem tákni fyrir þennan heiður sem Clio hlaut úr hendi formanns dómnefndarinnar, Edouard Seidler. Afhendingin fór fram við hátíðlega athöfn í Róm. MITSUBISHI BÁÐIR GÓÐIR — HVOR Á SINN HÁTT HLAÐBAKUR STALLBAKUR 1 Framdrif B Handskiptur / Sjálfskiptur □ Aflstýri, Veltistýrishjól ■ Rafdrifnar rúðuvindur og útispeglar Verð frá kr. 895.680.- ED HEKLA LAUGAVEGI174 SÍMI 695500 □ Framdrif / Aldrif 1 Handskiptur / Sjálfskiptur □ Aflstýri, Veltistýrishjól □ Rafdrifnar rúðuvindur og útispeglar Verð frá kr. 922.560.- A MITSUBISHI MOTORS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.