Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1991, Blaðsíða 6
32
IPOt ('.:•'/ i :»• PT|: ./ tlfrAOITA 1
LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 1991.
Bflar
Betri sjálfskipting
fyrir smábílana
- ný fjögurra þrepa skipting frá Nissan
Sjálfskiptingar voru hér áöur fyrr
einkenni stórra lúxusbíla. Á síöari
árum hefur markaöurinn kallaö eftir
sjálfskiptingum í millistóra bíla en í
smábílunum hefur þróunin orðið
mun hægari. Ýmsar tilraunir hafa
verið gerðar undanfarin ár með sjálf-
skiptingar í smábíla og þá einkum
stiglausar skiptingar, svokallaðar
CVT-skiptingar, sem þegar eru
komnar í Ford Fiesta og Fiat Uno í
Evrópu og Subaru Justy í Japan svo
að dæmi séu tekin.
Ein helsta ástæðan fyrir minni
notkun sjálfskiptinga í smábílum er
aö þær verða hlutfallslega of dýrar
miðað við heildarverð bílsins svo að
ekki sé talað um þá staðreynd að
sjálfskiptingar nýta eldsneytið mun
verr en bílar með venjulega girkassa
gera.
Síðasta áratug hefur sú breyting
orðið á að bílar hafa almennt minnk-
að og það hefur breytt öllu hugarfari
manna hvað það varðar að setja sjálf-
skiptingar í minni bíla. Þá hefur sú
Nýja sjálfskiptingin frá Nissan - F03A - sem er bæði léttari, liprari og spar-
neytnari en eldri og stærri gerðir.
Hér sést vel hver munurinn er á milli gömlu og nýju skiptinganna. Stóra
tromlan er úr F02A og sú minni er úr nýju skiptingunni - F03A. Þessi stærð-
armunur gefur hugmynd um aðra hluta skiptingarinnar.
breyting einnig orðið á að vélar í
„smábílunum“ eru orðnar stærri.
(t
BODDI-VARAHLUTIR
BílavörubúÓin Skeifunni 2
FJÖÐRIN 82944
r URVALS NOTAÐIR
Jafnframt hefur það gerst að ekki er
lengur litið á þessar vélar, sem yfir-
ieitt eru á bilinu 1,5 til 2,0 lítrar, sem
sparneytnar heldur öllu heldur hag-
kvæmar. En samtímis þessariþróun
kalla ökumenn í síauknum mæli eft-
ir sjálfskiptingum.
Sjálfskiptinagr aðeins í helm-
ing smábíla
Fram að þessu hafa sjálfskiptingar
aðeins verið settar í 50 til 60% smá-
bíla á móti því að þær er þegar að
finna í meira en 80 af hundraði stærri
bíla.
Ein helsta ástæðan til þessa er sú
að fyrri sjálfskiptingar í smábílum
voru einfaldlega minnkaðar útgáfur
af stóru skiptingunum ætluðum í
stærri bíla. Svo dæmi sé tekið var
sjálfskipting sem kallast F02A frá
Nissan og notuð er í dag í bílum með
vélar á bihnu 1,5 upp í 3,0 lítra var
í upphafi hönnuð fyrir þriggja lítra
vél. Aö sjálfsögðu er þessi skipting
mun þyngri en ef hún hefði verið
hönnuð strax í upphafi fyrir minni
vél.
Vegna aukinna krafna um sjálf-
skiptingar í smábíla hafa þeir hjá
Nissan nýlega lokið við hönnun fjög-
urra þrepa sjálfskiptingar sem hent-
ar sérlega vel í minni bíla með minni
vélar. Hönnun þessarar nýju skipt-
ingar sem þeir kalla F03A beindist
einkum að því að skiptingin hentaði
vel fyrir bíla með tveggja lítra vélar
en sérstök útgáfa af henni er þó
hönnuð með 1,6 lítra vélar í huga.
En hver var þessi mikla breyting í
hönnun sjálfskiptinga sem þeir hjá
Nissan duttu niður á við gerð þessar-
ar skiptingar. í raun var hér ekki um
neina stórbyltingu að ræða heldur
var í F03A sameinaðar margar
smærri breytingar og lagfæringar.
Stærsta sjáanlega breytingin er að
tromlan í skiptingunni er • 15%
þynnri. Til að halda skiptihæfninni
var innri blöðkunum í skiptingunni
breytt á þann veg að þau eru betur
smíðuð. Þessi minnkun á tromlunni
gerir það að verkum að átakið frá
efsta gír er flutt beint inn í drifrásina
án nokkurs auka- eða hliðarátaks
sem aftur leiðir af sér mun minna
slit á legum. Þessi hönnun gerir það
að verkum að ending ætti að verða
meiri og eins mun hljóðlátari.
Gírhjólin í skiptingunni voru smíð-
uð úr sérstökum málmi og yfirborð
þeirra einnig sérslípað til að auka
endinguna miðað við þyngd. Meiri
gaumur hefur veriö gefinn að halla
tanna gírhjólanna og meiri gæðum í
smíðinni til að minnka hávaða frá
þeim. Til að minnka efnismassa í
öðrum hlutum en aðaltromlunni var
beitt nýjum aðferðum í smíðinni og
allir hlutar gerðir þynnri en jafn-
framt sterkari. Með því að nota vélar
til samsetningar tókst enn að minnka
þyngdina. Þetta allt varð til þess að
draga úr mótstöðu inni í skipting-
unni sem nemur um níu af hundraði.
Dregið var úr heildarþyngd með
því að nota ál til smíði sumra hluta
skiptingarinnar. Mesta athygli vekur
nýtt lok á olíudælunni en það kostar
þrefalt meira að smíða það en fyrir-
rennarann sem var úr venjulegu
steypustáli.
í heild er nýja F03A17 kílóum létt-
ari en fyrirrennarinn F02A. Þetta
leiðir ekki aðeins til meiri sparneytni
heldur jafnar einnig betur þyngd á
milli fram- og afturenda, nokkuð sem
kemur framdrifnum bílum vel.
Meira afl og sparneytni
En hvernig kemur nýja skiptingin
út miðað við fyrri skiptingar? Fyrir
utan að vera mýkri í akstri og skipta
sér betur er hún mun hljóðlátari.
Nýja skiptingin gefur 6% meiri hröð-
un úr kyrrstöðu og 16% betra við-
bragð í almennum akstri. í spar-
neytniprófun, sem náði yfir tíu mis-
munandi aksturstig, gaf F03A á bil-
inu 6 til 8% betri eldsneytisnýtingu.
Það verður fróðlegt að fylgjast með
þróuninni hjá Nissan og öðrum bíla-
framleiðendum hvað varðar sjálf-
skiptingar í minni bílum. Hvort það
verða skiptingar á borð við F03Á sem
taka við eða nýju stiglausu skipt-
ingarnar á borð við þær sem Subaru
hefur þróað í Justy og Ford í Fiestu
verður tíminn einn að leiða í ljós.
Bryan Harrell
BILAR
TEGUND ÁRG. EKINN VERÐ
Toyota Corolla XL, 5 d., sjálfsk. 1988 28.000 750.000
Lada Samara, 5d. 1989 16.000 450.000
Ch. Monza Classic, sjálfsk. 1988 11.000 950.000
Ch. Monza SLE, sjálfsk. 1988 48.000 750.000
MMC Pajerodísil m/kúlutopp 1987 90.000 1.650.000
IsuzuTrooperbensín 1986 86.000 1.100.000
LadaSamara 1986 70.000 180.000
IsuzuTrooperdísil 1982 nývél 650.000
GMC Jimmy S15 m/öllu 1988 28.000 m. 1.950.000
Ch. Monza SLE, beinsk. 1988 6.000 750.000
Cherokee Laredo 4,0 m/öllu 1987 40.000 1.800.000
Isuzu Gemini, 4ra d., 1300 1989 10.000 790.000
Isuzu Trooper DLX, 5 d. 1988 60.000 1.600.000
Opel Corsa Swing 1988 38.000 495.000
Volvo 740 GL, sjálfsk. 1987 107.000 1.150.000
IsuzuTrooperdísil/turbo, 5d. 1986 114.000 1.250.000
Ch. pickup C20 1988 27.000 950.000
Seat Ibiza, 3ja d. 1985 56.000 260.000
Subaru turbo st. 1800 1987 46.000 1.070.000;
Ch. pickup 4x4 1982 56.000 m. 750.000
Nissan Patrol pickup 4x4 1987 58.000 1.100.000
Opið laugardag frá kl. 13-17.
Bein lína, sími 674300
h/f
Höfðabakka 9, sími 670000
Volvo hefur sett stefnuna austur á bóginn.
Volvo til Sovét
Með samningum við sovéska fyr-
irtækið „Logovaz" hefur sænski
bílaframleiðandinn Volvo rutt
brautina inn á sovéska bílamark-
aðinn.
í byrjun opnar Logovaz söluum-
boð fyrir Volvo í Moskvu, Len-
ingrad og Tiblisi og er reiknað með
að alls seljist um eitt þúsund
Volvo-bílar á þessu ári.
Áður var fyrir söluumboð í
Moskvu sem sá um sölu til útlend-
inga, einkum sendiráðsstarfs-
manna, og einnig um eftirlit og við-
hald á þeim 5.000 Volvobílum sem
í dag aka um stræti Moskvuborgar.
Þessi aðili stefnir einnig aö sölu
þúsund bíla á þessu ári.
Ralph Johansson hjá Volvo, sem
sér um söluna til Austur-Evrópu,
segir að þessi samvinnusamningur
við Logovaz snúist eingöngu um
sölu. „Framleiöslusamningar eru
alls ekki á döfinni,“ segir hann.
Sportbíllinn Honda NS-X vinsæll:
Notaður á tvöföldu verði nýs
Japanski sportbíllinn Honda NS-X,
sem valinn var sportbíll ársins í
nokkrum löndum, hefur náð þvílík-.
um vinsældum á Bandaríkjamarkaði
að verðið á honum er tvisvar og hálfu
sinni hærra en hið opinbera verð
sem er 60.000 dollarar eða 3.360.000
kr.
í Japan eru vinsældirnar álíka mikl-
ar því nýlega seldfst einn slíkur sem
tvívegis hafði skipt um eigendur áð-
ur á tvöföldu verði nýs bíls. Það má
með sanni segja að með þessum
sportbíl hafi Honda svo sannarlega
hdtt naglann á höfuðið.