Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1991, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1991, Blaðsíða 3
19 mo' oa / t r u: 1 ”\ a n’ T'T'pnu FOSTUDAGUR 8. MARS 1991. Dans- staðir Bjórhöllin Gerðubergi 1, sími 74420 Lifandi tónlist öll kvöld vikunn- ar. Blúsbarinn Laugavegi 73 Lifandi tónlist öll kvöld. Breiðvangur í Mjódd, sími 77500 Söng- og skemmtidagskráin Við eigum samleið flutt á laugar- dagskvöld. Dagskráin er byggð á söngferli Vilhjálms heitins Vilhjálmssonar. Danshöllin Fjölbreytt skemmtun með fyr- irtaks skemmtikröftum fóstu- dags- og laugardagskvöld. Casablanca Diskótek föstudags- og laugar- dagskvöld. Dans-barinn Grensásvegi 7, sími 688311 Dansleikur á föstudags- og laugardagskvöld. Blár sunnu- dagur. Danshúsið Glæsibæ Álfheimum, s. 686220 Hljómsveit Finns Eydal ásamt Helenu Eyjólfsdóttur skemmtir fóstudags- og laugardagskvöld. Fjörðurinn og Nillabar Strandgötu, Hafnarfirði 2 ára afmæli Fjarðarins um helg- ina. Hljómsveitin Atlantis leikur föstudags- og laugardagskvöld. Miðnæturspaug með Ómari Ragn- arssyni á laugardagskvöld. Tríó Óla blaðasala leikur á Nillabar. Gikkurinn Ármúla 7, sími 681661 Opið öll kvöld vikunnar. Húsvíkingurinn Johnny King „sál- ugi“ mun skemmta gestum með hljómborðsleik og söng næstu kvöld. L.A. Café Laugavegi 45, s. 626120 Diskótek fóstudags- og laugardags- kvöld. Hátt aldurstakmark. Lídó Lækjargötu 2 Ball föstudags- og laugardagskvöld. Sportklúbburinn Borgartúni 32, s. 29670 Opið fóstudags- og laugardags- kvöld á Stönginni. Aðgangur ókeypis. Hótel ísland Ármúla 9, sími 687111 Rokkað á himnum, glettin saga um sálina hans Jóns og gullna hliðið á fostudags- og laugar- dagskvöld. Anna og flæking- arnir í Ásbyrgi, Blúsmenn Andreu í Café ísland og diskó- tek í norðursal. Hótel Saga Sýning á Næturvaktinni, skemmtun, á laugardagskvöld. Hljómsveitin Einsdæmi leikur fyrir dansi. Keisarinn Laugavegi 116 Ball fostudags- og laugardagskvöld. Tveir vinir og annar í fríi Finnska rokksveitin 22 Pistepirkko heldur tónleika á laugardagskvöld. Einnig skemmta Langi Seli og skuggarnir. 22 Pistepirkko verða einnig með tónleika á sunnudags- kvöld. La Bohéme - á hátíðarkvikmyndasýningu José Carreras syngur annað aðal- hlutverkið í óperunni La Bohéme eftir Puccini sem sýnd verður á hátíðarsýningu í Háskólabíói á laugardag. Lionsklúbburinn Eir gengst fyrir hátíðarsýningu á kvikmynduðu óperunni La Bohéme eftir Puccini í Háskólabíói á laugardag kl. 17.00. Aðalhlutverkin syngja Barbara Hendricks og José Carreras. Kvik- myndagagnrýnendur í Danmörku hafa gefið myndinni fimm stjörnur og líkja þeir söng Barböru við himneskar hæðir og segja hann listviðburð sem vert sé að hlýða á. Hátíðarsýning þessi er haldin fyrir styrktaraðila og velunnara Lionsklúbbsins Eir sem undanfar- in ár hefur unnið undir merkjum alþjóðahreyfmgarinnar aö mann- úðarmálum. Forvarnarstarf í þágu vímuefnavarna hefur jafnan verið efst á baugi hjá klúbbnum. Lions- klúbburinn Eir hefur auk þessa stutt og aðstoðað stofnanir og ein- staklinga sem eiga við sárt að binda. Formaður klúbbsins, Jóna Ólafs- dóttir, mun setja hátíðina og áður en sýning óperunnar hefst mun ung messósópransöngkona, Björk Jónsdóttir, gleöja gesti með söng sínum. Rúnar Þór skemmtir gestum Rauða Ijónsins. Rúnar Þór á Rauöa ljóninu Rúnar Þór og hljómsveit spila á Rauða ljóninu í kvöld og annað kvöld. Rúnar Þór spilar lög af nýj- ustu plötunni sinni, Frostaugu, lög af eldri plötum og önnur lög, gömul og ný. Með Rúnari Þór spila þeir Jón Ólafsson á bassa og Jónas Björnsson á trommur. Afmælis- hátídí Firðinum Nú um helgina eru liöin 2 ár frá því að Hafnfirðingar eignuðust sinn eigin skemmtistað eftir 5 ára biö. En veitingahúsið Fjörðurinn var opnaður fyrstu helgina í mars árið 1989. í tilefni afmælisins verður boðið upp á sérstaka afmælisdagskrá nú um helgina. Hljómsveitin Atlantis mun leika fyrir dansi fóstudags- og laugardagskvöld en hana skipa: Atli Örvarsson, hljómborð, Karl Örvarsson, söngur, Friðrik Sturlu- son, bassi, Sigfús Óttarsson, trommur og Þorvaldur B. Þor- valdsson, gítar. Á laugardagskvöldiö verður boð- ið upp á kampavín við komu gesta og Ómar Ragnarsson verður með miðnæturspaug. Á þriðju hæö er Nillabar og þar mun Hljómsveit Ólá blaðasala skemmta. Finnsk Finnska rokksveitin Pistepirkko heldur tónieika á Tveimur vinum á laug- ardags- og sunnudagskvöld. Tveirvinir: rokksveit Finnska rokksveitin 22 Piste- pirkko verður með tónleika á Tveimur vinum bæði á laugardags- og sunnudagskvöld en á laugar- dagskvöldið munu Langi Seli og Skuggarnir einnig koma fram. Finnska sveitin hefur gefið út þrjár sólóplötur og er sú fjórða í vinnslu. Þær hafa allar fengið mjög góðar viötökur, bæði í heimalandi þeirra og annars staðar Norður- löndunum. Hljómsveitin hefur viðdvöl á ís- landi eftir tónleikaferð til Parísar þar sem henni var mjög vel tekið. Útgáfufyrirtæki hennar stendur einnig í samningum viö þekkt plötufyrirtæki í Bandaríkjunum sem er bjartsýnt á viðtökurnar í Vesturheimi. Þetta er önnur finnska hljóm- sveitin sem Tveir vinir flytja inn á stuttum tíma því seint á síðasta ári kom til landsins fmnska blússveit- in Honey B and the T-bones. Það er stefna Tveggja vina að efna allt- af af og til til slíkra viðburða. Hljómsveitin Blúsbrot verður á Púlsinum á sunnudagskvöld. Blúsbrot á Púlsinum Á sunnudaginn gefst fólki kostur á að hlýöa á hljómsveitina Blúsbrot á Púlsinum en hún var stofnuð fyr- ir þremur árum en endurreist síð- astliðið haust. Hljómsveitin spilar einkum blús en brot og brot af gull- aldarrokki fær að fljóta með, svo sem perlur frá Kinks og Rolling Stones. Hljómsveitina skipa: Björn Árna- son, bassi og orgel, Helgi Víkings- son, trommur, Leo Torfason, gítar, og Vignir Daðason sem syngur og leikur á munnhörpu. Sagt er að það sé sérstök upplifun að sjá Björn Ámason taka sóló á orgelið um leið og hann spilar und- ir á rafmagnsbassa. Gestir Púlsins fá að upplifa það næstkomandi sunnudagskvöld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.