Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1991, Page 1
Heimsborgin Hamborg:
Þar sem nóttin
endar á fiskmarkaði
Sumar göturnar eru yfirbyggðar og þar er að finna fjölmargar verslanir og veitingastaði undir einu þaki.
Jóharaia S. Sigþórsdóttir, Þýskalandi:
Heimsborgin Hamborg hefur til að
bera það þrennt sem flestir ferða-
menn eru á höttunum eftir: góðar
verslanir, góðan mat og fjölbreytt
skemmtanalíf. Ekki spillir það held-
ur fyrir að borgin er hreinleg og að
hún er laus við þennan yfirþyrmandi
eril sem einkerinir svo margar stór-
borgir.
Það er sagt að Hamborg sé græn
borg. Ekki heföi hún nú staðið undir
því nafni þegar DV-maður var þar á
ferð á dögunum, enda hávetur og
hvergi stingandi strá að sjá. En hún
er sögð grænasta borg Þýskalands
og þarf töluvert til. Þar er enda að
fmna 25 lystigarða og göngustígarnir
nema samtals um 900 kílómetrum.
Bara í borginni sjálfri eru um fimm
milljónir tijáa og nú ætti ekki að
þurfa frekar vitnanna við.
Af grænu svæðunum er þó fræg-
astur garðurinn Planten und Blomen
í Hamborg miðri, 151 ha. að stærð.
Þar er litaskrúð á sumrin með ólík-
indum og á hveiju kvöldi eru haldn-
ir þar tónleikar, útileikhús bregða á
leik og gríðarmiklar flugeldasýning-
ar gleðja auga gestsins.
Eitt sem Hamborgarbúar eru afar
stoltir af er hið geysistóra Alster-
vatn sem er í miðri borginni. Á sumr-
in er þar iðandi mannlíf, enda hægt
að iðka þar ýmiss konar íþróttir, svo
sem siglingar á bátum, brettum og
brun á vatnaskíðum, svo éitthvað sé
nefnt. Ef menn eru of værukærir til
að standa í svoleiðis nokkru er hægt
að sigla með feijum um vatnið og
nágrenni þess því það er í rauninni
tengt ánni Elbu. Síðustu helgina í
ágúst 'eru mikil hátíöahöld við innra
Alstervatn.
Höfnin er heilt ævintýri út af fyrir
sig. Fyrir tveimur árum var haldið
upp á 800 ára afmæli hennar. Nú
hefur verið ákveðið að halda árlega
upp á það með pomp og prakt 10.-12.
maí og láta menn sig ekki muna um
tveggja sólarhringa samfellda
skemmtun. Hafnarsvæðið er geysi-
stórt og þar losa og ferma um 14.000
skip árlega um það bil 60 milljónum
tonna af hvers kyns varningi.
Enn eitt er það sem vert er að
minnast á í stuttri grein og það er
Hagenbecks-dýragarðurinn í Ham-
borg. Hann er einn sá stærsti í einka-
eign í heiminum, 27 hektarar að
stærð. í honum eru 2100 dýr, 360 teg-
undir. Það veitir ekkert af heilum
degi til þess að skoða allt það sem
fyrir augu ber á þessum stað. Að
kvöldi er hægt að fá sér áð borða á
veitingahúsi á staðnum. Að því búnu
hefst hin æsilega „frumskógamótt"
þar sem limbódansarar, eldgleypar
og fakírar sýna hstir sínar undir
seiðandi hljómhst.
Ekki má skilja við borgina án þess
að reka nefið inn í St. Pauli hverfið.
Það hefur lengi verið eitt frægasta
skemmtihverfi veraldar og er sagt
að þar þekkist ekki nein takmörk.
Þar ægir .öllu saman, spilasölum,
næturklúbbum af öllum gerðum,
vændishúsum, kabarettum, böram,
sjómannakrám og öðru því sem þyk-
ir heyra til æsilegs næturlífs. Þama
munu vera um 450 skemmtistaðir.
sem er dágóður fjöldi í einu einasta
borgarhverfi. Raunar segja nú sumir
að hverfið það ama sé ekki orðið
svipur hjá sjón því borgaryfirvöld
stefna að breytingum'á því þannig
að menning og hstir haldi innreið
sína í það. Er sú uppbygging þegar
hafin og meðal annars er nú þama
myndarlegt leikhús þar sem sýndur
er hinn frægi söngleikur Cats. Engu
að síður má sjá vændiskonurnar
kúra í portum og afkimum og bíða
viðskiptavina. Það má því segja að í
St. Pauli sé að finna sitt af hveiju
tagi og er lærdómsríkt að ganga um
hverfið þótt um hábjartan daginn sé.
Verslað undir þaki
Ótölulegur fjöldi verslana er í
Hamborg. Auk hinna hefðbundnu
stórverslana, svo sem Karstadt, C&A
og fleiri slíkra, era fjöldamargar sér-
verslanir sem selja vörar af öllum
mögulegum tegundum. Á að minnsta
kosti sjö svæðum er hægt að stunda
„búðaráp undir þaki“ því byggt hef-
ur verið yfir hehu göturnar. Þar eru
Royal Cristina er spánnýtt íbúðahótel í hótelkeðj-
unni sem ferðaskrifstofan Atlantik hefur skipt við á
Mallorka í áraraðir. Veija má eftir þörfum milli íbúða
og stúdíóa. Stutt er á góða veitingastaði í nágrenninu
og það tekur ekki langan tíma að fara inn til Palma til
þess að versla eða reika um.
OTCtXVTMC
FERÐASKRIFSTOFA HALLVEIGARSTlG 1 SlMAR 28388 - 28580