Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1991, Page 4
34
. t; ' Í : .....
MANUDAGUR 25. MARS 1991.
Ferðir
*
Stórkostleg sólarströnd
og sögufrægir staðir
Rimini á Ítalíu - vinningur í áskriftargetraun DV:
Fegurstu strendur ítaliu eru við Adríahafið.
Rimini er einn elsti sumarleyfls-
staðurinn við Adríahafið. Strand-
lengjan er geysivíðfeðm og áfanga-
staðir Samvinnuferða-Landsýnar
eru við Riccione og Portoverde en
vegalengdin milli þessara tveggja
staða er 5 km. Frá Riccione er að-
eins 10 km til Rimini og strætó er
innan seilingar. Ströndin er marg-
ar mílur að lengd og sums staðar
rúmir 300 metrar að breidd. Hreinn
sjórinn og aflíðandi strendumar
gera þennan sumarleyfisstað kjör-
inn fyrir barnaljölskyldur.
Kynslóð eftir kynslóð hefur eytt
sumarleyfi sínu á þessum veður-
sæla stað. Þess vegna er allt við
höndina sem þarf - góðir veitinga-
staðir, tryllingsleg diskótek og lítil,
hugguieg útikafFihús.
Fiskur, minnis-
merki og tíska
Rimini má eiginlega skipta í
tvennt, strönd meö hótelklösum og
bæ sem á sér langa sögu. Gamli
bæjarhlutinn er auðveldur yfir-
ferðar, einkanlega vegna þess að
.sumir hlutar eru lokaðir bílaum-
ferð vegna þrengsla. Verið samt á
verði - hjólreiðamenn geta valdið
usla. Rimini er líka fiskimannabær
og á hverjum degi má sjá iðandi
mannlíf á bryggjunum þegar sjó-
mennirnir landa úr bátunum.
Á dögum Rómverja var Rimini
kölluð Ariminium. Þetta var hern-
aðarlega og póhtískt mikilvægur
staður en lá hann í alfaraleið til
Rómar. Stórkostlegasta minnis-
merki uppgangstíma rómverska
heimsveldisins er Sigurboginn sem
gerður er úr hvítum steini og reist-
ur til heiðurs Ágústusi keisara árið
27 e. kr.
Rimini á sér 2000 ára sögu að
baki og hefur átt veigamiklu hlut-
verki að gegna í framþróun Ítalíu.
Borgin varð illa úti í loftárásum í
síðari heimsstyrjöldinni og var síð-
an hertekin af bandamönnum áriö
1944.
Margir sögurfrægir staðir eru í
bænum innan um fjölfarnar versl-
unargötur. Aðalverslunargatan er
Corso Di Augusto sem tengist
gömlu torgi frá tímum Rómverja.
Italir hafa löngum verið þekktir
fyrir afar góða fatahönnun auk
arkitektúrs og húsgagnagerðar.
Áhugafólk um falleg, góð fót og
glæsilega muni kemst hér í feitt því
urmull er af góðum verslunum sem
selja fatnað og fylgihluti eftir
meista Armani, Versaca, Gucci,
Missoni og Enrico Coveri.
Skemmtigaróar
og Páfagarður
Nálægt strandsvæðinu eru tveir
stórir skemmtigarðar sem börnum
þykir sérstaklega gaman af. Annar
er Viserba en hann er smækkuð
mynd af Ítalíu og frægustu minnis-
merkjunum. Hinn er Fiabilandia
við Rivazzurra sem er nokkurs
konar Disney-iand með öllu sem
tilheyrir.
Eins og kom fram hér að ofan
liggur Rimini í alfaraleið. Stutt er
því til sögufrægustu staöa Ítalíu og
í nálægð eru helstu menningarset-
ur heims.
í boði er þriggja daga ferö til Róm-
ar. Ferðalangar skoða Páfagarðinn,
SixtínskU kapelluna, Péturstorgið,
Panthenonhofiö, Forum Romanum
og Colosseumleikhúsið.
Önnur sögufræg borg sem hægt
er að heimsækja er Feneyjar en í
hugum margra eru Feneyjar sveip-
aðar töfraljóma þar sem skiptast á
öngstræti, síki og sökkvandi hús.
Farið er í gondólasiglingu um síkin,
Markúsarkirkja og -torg er skoðað
og farið í glerverksmiðju þar sem
hinn heimsfrægi Feneyjarkristall
er framleiddur.
List og útsýni
Flórens er fræg fyrir listir og
menningu. Hér liföu og störfuðu
Michelangelo og Galileo Gahlei.
Dvergríkið San Marino er í fjöll-
unum fyrir ofan Riministrönd.
Þetta er elsta en jafnframt minnsta
lýðveldi í heimi. Hátt uppi í hlíðun-
um opnast stórkostlegt útsýni yfir
nærliggjandi héruö og Adríahafs-
ströndina.
Af öllu framansögðu má vera
ljóst að hinn heppni áskrifandi sem
fær Riminiferð frá Samvinnuferð-
um-Landsýn á fyrir höndum ævin-
týralegar vikur á Ítalíu. Þann 17.
maí verður dregið um Riminiferð-
ina með Samvinnuferðum-Land-
sýn óg þeir sem þá eru áskrifendur
eiga möguleika á þessum stórkost-
lega vinningi.
-JJ
Benidorm — páskaferð
27. mars - 2 vikur Kr 49.900
Barnaafsláttur 2ja-12 ára
kr. 15.600
Sjáumst!
a mann
2 í íbúð
Verðið iækkar ef fleiri eru saman í íbúð
FERÐASKRIFSTOFA
REYKIAVÍKUR
m
AÐALSTRÆTI16
SlMI 91-621490