Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1991, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 6. APRÍL 1991.
Bflar
29
Af þessari mynd má ráða hve hátt er til lofts í þessum bíl en tiltölulega lágt
frá götu. Þetta ásamt því hve vel hurðirnar opnast þýðir að mjög auðvelt
er að athafna sig við flutningshúsið.
SAF
- axlar byröina
®] Stilling
ALLAR STÆRÐIR OG GERÐIR
AF E33 ÖXLUM
í VÖRUBÍLA
VAGNA
SKEIFUNNI 11
SÍMI 679797 OG 679799
auðveldlega niður á götu við aftur-
hjólin. Það auðveldar mjög að bakka.
bílnum, sem krefst nokkurrar æfing-
ar þegar svona lokaðir bílar eiga í
hlut og verður best gert með hjálp
góðra spegla.
Fiat Fiorino á að bera hálfs tonns
hlass í flutningskassanum og gerir
það ugglaust með sóma, þó ekki væri
prófaður nema með svo sem fimmt-
ung þess í þetta sinn. Dýpt flutnings-
kassa, frá hurðum fram að húsi, er
143 sm en breidd og hæð er rétt um
130 sm. Að því viðbættu að vængja-
hurðirnar aftan i opnast nógu vel til
aö nýta þessa breidd og hæð, og
hleðsluhæðin (frá jörð upp á gólf) er
ekki nema hálfur metri, verður þessi
vörukassi ljómandi haganlegur fyrir
þann flutning sem hann á annað borð
ræður við.
Sendiferðabíll
og ekkert annað
Fiat Fiorino er sendiferðabíll og
þykist ekki vera neitt annað. Hann
er þægilegur og lipur í umgengni og
vandræðalaust að fara á honum
lengri leiðir ef með þarf. Hann býður
ekki af sér eins góðan þokka og hinir
ítölsku bræður hans eins og Uno og
Tipo, svo dæmi sé tekið af góðum
bílum sem yðar einlægur þekkir. Fi-
orino er ódýr í innkaupi, sparneytinn
og áreiðanlega hagkvæmur í rekstri
en óþarflega sparlega búinn, til að
mynda hvað snertir hljóðeinangrum
og mælaborð. En ágætur til síns
brúks.
S.H.H.
Nokkrar
tæknitölur:
Vél: 4 strokkai', 1300 cc, 49/67
kW/ha. Snúningsvægi 103 Nm
v/2300 sn. mín.
Aætluð meðaleyðsla: frá 6,5 1 á
100 km.
Gírkassi: 5 gíra, handskiptur.
Drif á framhjólum.
Fjöðrun: MacPherson framan,
blaðfjaðrir aftan.
Burðargeta: 500 kg.
Utanmál bíls, 1-b-h i mm: 3949-
1555-1886.
Nýtanleg innanmál í farangurs-
rými, 1-b-h í mm: 1430-1334-1300.
Eigin þyngd: 910 kg.
Hleðsludyr opnast út á hlið,
tveir hlerar sem lokast saman.
Stærð hleðsludyra, b-h i mm:
1200-1300.
Hleðsluhæð (frá götu upp i
hleðslurými): 50 sm.
Hjólastærð: 165R13/70.
Verð án vsk. (mars): kr. 595.000.
Umboð: Fíat, ítalska verslunar-
félagið hf.
FAVORIT FRÁ KR.
Hvers vegna að kaupa gamlan notaðan bfl, þegar hægt er að fá
splunkunýjan Favorit fyrir svo lítið sem 479.900 kr? Það fylgir því
óneitanlega mikið öryggi að vera á nýjum bfl, svo ekki sé nú talað um
hversu hagkvæmari nýjir bílar eru í rekstri.
Favorit gefur ekkert eftir í samkeppni við aðra fjölskyldubfla. Fallega
hannaður fimm dyra og fimm gíra bfll, framhjóladrifinn, rúmgóður, léttur
í stýri og eyðslugrannur.
Favorit hefur hlotið lof bflagagnrýnenda víða um heim, og verið
tilnefndur sem hagkvæmasti bíllinn, „bestu kaupin“ o.sv.fr.
„Kemd' og prófaí'ann"
JÖFUR HF.
NÝBÝLAVEGI 2 SÍMI 42600
1