Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1991, Side 5
LAUGARDAGUR 6. APRÍL 1991.
35
Bílar
km á 7,9 sek. Hámarkshraði 225 km/klst.
merin
t
íi
bílinn BMW Z-l. Þetta er snaggaraleg-
ur tveggja sæta sportbíll sem oröinn
er stöðutákn víða um heiminn; með
2,5 lítra 170 hestaíla vél og viðbragði
0-100 km á 7,9 sekúndum. Fjöðrunin
í Z-1 bílnum þykir í algjörum sér-
flokki og var höfð til fyrirmyndar við
gerð nýju 3-línunnar frá BMW.
Annar fágætur sportbíll, sem verð-
ur á afmælissýningunni hér, er BMW
M635 CSi. Þetta er aflmikill' sport-
coupé-bíll sem ekki var framleiddur í
miklu upplagi en var fyrirrennari
þess fræga bíls BMW 850. Það er stór
fjögurra manna „supersportcoupé"
og býður sennilega upp á flestar tækn-
inýjungar þeirra bíla sem nú eru í
boði. Kannski er ineira að segja of-
mælt að þessi bíll sé ,,í boði“ því eftir-
spurnin eftir honum er svo mikil að
biðlistinn nær tvö ár fram í tímann.
Þegar BMW 850 kom í sölu árið 1990
gengu lág númer í biðröðinni eftir
honum kaupum og sölum á liáu verði.
BMW 850 er með V12 vél, 5 lítra, 300
hestafla og er ekki nema 6,8 sekúndur
að komast úr kyrrstöðu í 100 km
hraða.
Sýningarbílarnir, sem við fáum að
njóta hér á 75 ára afmælissýningu
BMW, eru nú á leiðinni til landsins.
Auk þeirra glansnúmera, sem að
framan hefur verið lýst, má nefna
bíla eins og BMW M 3 Cabrio, sport-
blæjubíi, byggðan á þrjúlínunni, og'
loks lengri gerðina af BMW 735 limou-
sine.
S.H.H.
50 milljónir
ökutækja
í sameinuðu
Þýskalandi
Berlín: í sameinuðu Þýskalandi er
talið að nú séu um fímmtíu milljónir
ökutækja. Við áramótin var tala öku-
tækja komin vel yfir 49 milljónir og
þar af voru fólksbílar um 36 milljón-
ir.
Fólksflutningabílar og vörubílar
voru um 4,6 milljónir og 2,7 milljónir
mótorhjóla voru til í landinu um ára-
mótin.
Bílasalan í Þýskalandi hefur gengið
vel í vetur.-þrátt fyrir samdrátt víöa
annars staöar, þannig að næsta víst
er að fimmtíu milljón bíla markinu
hefur þegar veriö náð.
Fiat með umboð
fyrir Lancia
ítalska verslunarfélagið hf., sem
stofnað var til að taka að sér umboð
fyrir ítalska bílarisann Fiat, hefur
nú bætt við sig öðru spili af sömu
hendi: umboðinu fyrir Lancia.
Það er einmitt Fiatsamsteypan
ítalska sem á og framleiðir Lancia.
Lanciaeigendur á íslandi hafa
verið í lausu lofti síðan Bílaborg
hf. lagði upp laupana en nú geta
þeir horft fram til betri tíðar. ít-
alska verslunarfélagið hf., Fíat á
íslandi, mun fyrst um sinn einbeita
sér að því að koma varahlutalager
og þjónustu við Lanciaeigendur í
lag og fyrsta kastið er ekki fyrir-
hugað að stefna að innflutningi og
sölu Lanciabíla.
S.H.H.
Lancia Y10 er án efa þekktasti Lanciabíllinn hériendis og sá sem mest
er af. Nú horfa eigendur hans fram til betri tiðar eftir nokkurn harðinda-
kafla hvað snertir þjónustu og varahluti.
NISSAN og SUBARU
STÓRBILASÝNINGAR UM LANDIÐ
LAUGARDAG OG SUNNUDAG 1400-1700
Subaru Legacy 1,8 Gl 4WD skutbíll kr. 1.397.000.- stgr.
Nissan Primera 2,0 SLX stallbakur kr. 1.275.000.- stgr.
• AKUREYRI: Bifr.verkst. Siguröar Valdimarss, Óseyri 5
• ÍSAFIRÐI: ísafjarðarflugvelli
• KEFLAVÍK: B.G. Bílasalan, Grófinni 7-8
• REYÐARFIRÐI: Lykill, Búöareyri 25
• REYKJAVÍK: Ingvar Helgason hf., Sævarhöfða 2
Ingvar
Helgason hff.
Sævarhöfða 2
sími 91-674000