Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1991, Síða 5
FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1991.
21
Fundir
Heimsstjórnmálin og
andstaðan gegn stríðsrekstri
Bandaríkjanna
Bandarískur blökkumaöur og fyrrum
hermaöur veröur á opinberum fundi
laugardaginn 13. apríl kl. 17 í Hlaðvarp-
anum, Vesturgötu 3 b. Hann mun fjaila
um heimsstjórnmálin og andstöðuna
gegn stríðsrekstri Bandaríkjanna.
Ráðsfundir III. ráðs
ITC á íslandi
27. og 28. ráösfundir III. ráðs ITC á ís-
landi verða haldnir í Grundarfirði helg-
ina 13. og 14. apríl. Dagskrá fundanna
verður öölbreytt og má þar nefna undan-
úrslit í ræðukeppni einstaklinga, ýmsa
fræðslu, t.d. um hæfnismat og ræðu-
mennsku. Á laugardeginum flytur Gunn-
ar Kristjánsson skólastjóri hádegisverð-
arerindi. Bjölbreytt skemmtidagskrá
verður á laugardagskvöldið. Upplýsingar
veita: Jóhanna Halldórsdóttir, s. 93-86802,
Salbjörg Nóadóttir, s. 93-86701, Guðrún
Bergmann, s. 91-672806.
Aðalfundur Kattavina-
félags íslands
verður haldinn sunnudaginn 14. apríl kl.
14 í húsi félagsins, Kattholti, að Stangar-
hyl 2, Reykjavík.
Aðalfundur UMF Fjölnis
fer fram í íþróttahúsi félagsins að Viðar-
höfða 4 þriðjudaginn 16. apríl og hefst kl.
20. Venjuleg aðalfundarstörf.
Vinstri vængurinn,
nýstofnað félag
Vinstri vængurinn er nýstofnað félag
einstaklinga sem hafa sameinast um að
vinna róttækri vinstristefnu fylgis. Fé-
lagið hefur þegar haldið nokkra opinbera
fundi. Mánudaginn 15. apríl gengst félag-
ið fyrir fundi í Hlaðvarpanum um Evr-
ópubandalagið og launamenn. Fram-
sögumenn verða tveir, Ari Skúlason,
hagfræðingur ASÍ, og Birgir Bjöm Sigur-
jónsson, framkvæmdastjóri BHMR. Þeir
hafa báðir tjáð sig um þetta mál opin-
berlega. Þeir gera grein fyrir skoðunum
sínum. Síðan veröa almennar umræður
og sjálfsagt svara frummælendur fyrir-
spumum. Fundurinn hefst kl. 20.30 í
Hlaðvarpanum.
Ferðalög
Ferðafélag íslands
Helgarferð í Tindfjöll 12.-14. apríl.
Skíðagönguferð í Tindíjöll - spennandi
ferð í stórbrotnu landslagi. Ekið eins
langt og unnt er í átt að skála Alpaklúbbs-
ins en þar verður gist. Takmarkaður
flöldi - tryggiö ykkur pláss tímanlega.
Fararstjóri: Ami Tryggvason. Farmiðar
og upplýsingar á skrifstofu Ferðafélags-
ins, Óldugötu 3.
Raðgangan 1991
Gönguferð um gosbeltið
(Atlantshafshrygginn)
sunnudaginn 14. april kl. 13
Verið með frá byrjun í þessari skemmti-
legu raðgöngu í 12 áfóngum um Reykja-
nes-Langjökulsgosbeltið frá Reykjanesi
að Skjaldbreið. Kynningarverð aðeins kr.
800., frítt f. böm m. fullorðnum. Brottfór
frá Umferðamiðstöðinni austanmegin.
Hægt að taka rútuna á Kópavogshálsi og
v/kirkjugarðinn í Hafnarfirði. Suður-
nesjamenn og aðrir, sem það kjósa, geta
komið á eigin bílum að Reykjanesvita.
Gengið verður frá vitanum að Reykja-
nestá um Krossvíkurbjarg á Háleyja-
bungu. Einnig verður styttri fjölskyldu-
ganga í boði. Getraun í hverri ferð:
Spurning þessarar 1. ferðar: Hvaða teg-
und eldstöðvar er Háleyjabunga? Viður-
kenning verður veitt þeim sem verða með
í flestum áfanganna.
Útivist um helgina
Sunnudaginn 14. apríl
Heklugangan, 2. áfangi
Gengið verður frá Geithálsi gamla þjóð-
leiðin hjá ElUðakoti um Miðdalsheiði inn
á Dyraveg norðan Lyklafells og áfram
upp í Dyrfjöll. Árdegisgangan fer að stað
kl. 10.30, síðdegisgangan sem sameinast
árdegisgöngimni við LyklafeU, kl. 13.
Brottfór í báðar göngumar frá Umferðar-
miöstöð - bensínsölu, stansað við Árbæj-
arsafn.
Hjólreiðaferð.
Brottfór er kl. 13 frá Árbæjarsafni. Hjól-
aður verður Dyravegur og komið í rút-
unni með Heklugöngunni til baka í bæ-
inn.
Tónleikar
Kirkjuleg sveifla
í Bústaðakirkju
í tilefni orgelárs Bústaöakirkju verður
efnt til nýstárlegra kirkjutónleika sunnu-
daginn 14. apríl kl. 17. Hópur tónlistar-
fólks undir forystu Guðna Þ. Guömunds-
sonar, organista Bústaðakirkju, mun
flytja kirkjulega sveiflu, djass og blús.
Flytjendur verða Sigrún Hjálmtýsdóttir,
Ingveldur Ólafsdóttir, Stefanía Valgeirs-
dóttir, Magnús Kjartansson og hljóm-
sveit, Guðni Þ. Guðmundsson, bamakór
og bjöllukór Bústaðakirkju. Aðgangseyr-
ir rennur til orgelsöfnunar Bústaða-
kirKju. Um leið og flytjendur gefa vinnu
sína og styðja þar með orgelkaupin viD
tónlistarfólkið sýna fram á möguleika
léttrar tónlistar í kirkjulegu starfi.
Fyrirlestrar
Kynning á Nichiren Shoshu
búddisma
Richard Causton heldur almennan kynn-
ingarfyrirlestur um Nichiren Shoshu
búddisma í Háskólabíói laugardaginn 13.
apríl nk. kl. 13.30. Yfirskrift fyrirlestrar-
ins er: Manneskjubylting. Kynning á Nic-
hiren Shoshu Búddlúsma. Richard Caus-
ton er leiðtogi samtaka Nicchiren Shoshu
.búddisma í Bretlandi, varaforseti Evr-
ópusamtaka Nichiren Shoshu og varafor-
seti Soka Gakkai Intemational sem em
samtök leikmanna er iðka Nichiren Shos-
hu búddisma og em jafnframt ein stærstu
friðarsamtök í heiminum. Richard kynn-
ir m.a. í fyrirlestri sínum kenningar og
iðkun Nichiren Shoshu búddisma og út-
skýrir hvemig einstaklingnum veröur
kleift að gera sína manneskjubyltingu
með iðkun hans. Fyrirlesturinn er ölliun
opinn og aðgangur er ókeypis. Fyrirlest-
urinn verður fluttur á ensku.
Fyrirlestur í boði Lífefna-
fræðifélags íslands
Philip Cohen, jprófessor við háskólann í
Dundee, heldur 19. FEBS
Ferdinand Springer fyrirlesturinn í boöi
Lífefnafræðifélags íslands, Samband evr-
ópskra lífefnafræðifélaga (FEBS) og
Springer-Verlag. Þetta er öðm sinni sem
fyrirlestur þessi er haldinn hérlendis.
Fyrirlesturinn verður í stofu 101, Lög-
bergi, mánudaginn 15. aprfl og hefst kl.
16 og nefnist „The role of protein phosp-
horylation and dephosphorylation in sig-
nal transmission". Virkrú öölmargra
próteina og ensíma er stjórnað með því
aö bæta á þau fosfathóp eða losa hann
af. Efnabreytingar af þessu tagi eru eink-
um mikflvægar í innra boðkerfi lifandi
fmmna. Aðgangur að fyrirlestrinum er
öllum heimfll.
Leikhús
Sýningar
Nemendaleikhússins
Þann 7. apríl sl. frumsýndi Nemendaleik-
húsið lokaverkefni sitt í ár, Dampskipið
ísland eftir Kjartan Ragnarsson, í sam-
vinnu við Leikfélag ReyKjavíkur á stóra
sviði Borgarleikhússins. Næstu sýningar
verða sunnudag 14. apríl kl. 20, mánudag
15. apríl kl. 20, miðvikudag 17. apríl kl.
20, sunnudag 21. apríl kl. 20 og þriöjudag
22. apríl kl. 20.
Tilkyimingar
Fræg Tsjekhov-mynd sýnd í
MIR
Nk. sunnudag 14. aprfl kl. 16 verður sov-
éska kvikmyndin Ófullgert verk fyrir
sjálfspilandi píanó sýnd í bíósal MÍR,
Vatnsstíg 10. Þessi mynd, sem gerð var á
áttunda áratugnum undir stjórn Nikita
Mikhalkovs, hins kunna kvikmynda-
gerðarmanns og leikara, er byggð á verk-
um rússneska leikskáldsins og smá-
sagnahöfundarins Antons Tsjekhovs,
einkum þó einu af fyrstu leikritum hans,
Platonov. Kvikmyndin hlaut einróma lof
á sínum tíma og þykir ein besta Tsjek-
hov-mynd sem gerð hefur verið. Skýring-
artextar eru á ensku. Aögangur er ókeyp-
is og öllum heimill.
Kvennalistinn í Reykjanesi
heldur kökubasar í Miklagarði,
Garðabæ, á laugardag kl. 11-14 og á kosn-
ingaskrifstofunni Hamraborg 1-3 Kópa-
vogi kl. 11-17. Þar verður einnig boöiö
upp á vöfílukaffi og spjall kl. 15-17.
Sýning á tréskurðarverkum
Sýning á tréskurðarverkum nemenda
Hannesar Flosasonar myndskurðar-
meistara verður í smíðahúsi Hlíðaskóla
við Hamrahlíð í Reykjavík laugardaginn
13. apríl kl. 14-18. Á sýningunni verða
menn að störfum við tréskurð. Skurðlist-
arskóli Hannesar hefur starfað frá árinu
1972.
Átthagafélag Strandamanna
í Reykjavík
heldur vorfagnað í vetrarbrautinni, Þórs-
kaffi, laugardaginn 13. apríl nk. Dagskrá-
in hefst kl. 22 stundvíslega meö söng kórs
frá Hólmavík og átthagafélagi Stranda-
manna. Sambandið leikur fyrir dansi.
Fjölmennið.
Kven réttindafélag íslands
verður með kynningu á kvenframbjóö-
endum allra stjórnmálaflokka í Reykja-
vík og Reykjaneskjördæmi á Hótel Borg
í Reykjavík laugardaginn 13. apríl kl. 11
f.h. Kynningin er öllum opin.
Taflfélag Kópavogs
Aprílhraðskákmót verður haldið sunnu-
daginn 14. apríl kl. 14 að Hamraborg 5,
sal Taflfélags Kópavogs.
Hvernig framtíð? Hvernig atvinnustefnu?
Hvernig landbúnað?
Hvernig sjávarútveg? Hvernig lífskjör?
Hvernig skattheimtu? Hvernig velferðarkerfi?
Hvernig ríkisstjórn?
Reykjavík
Hótel Borg
föstudaginn 12. apríl
kl 20.30
Vestmennaeyjar
Veitingahúsið Höfðinn
Heiðan/egi 1
laugardaginn 13. apríl
kl. 16.00
Össup & Guðmundur Árni; ungir menn í baráttusætum