Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1991, Blaðsíða 6
22
FÖSTUDAGUR 12. APRlL 1991.
George C. Scott í hlutverki Kindermans lögregluforingja i kvikmyndinni Exorcist III.
Bíóborgin:
Haldin illum anda
Bíóhöllin:
Rándýrið snýr aftur
Þessi sem er framhald af annarri
um sama rándýr, Predator, gerist
áriö 1997 í Los Angeles. Mike Harr-
igan lögreglumaður og menn hans
eiga í stríöi viö eiturlyfjakónga og
ílokka þeirra i glæpafrumskógi
borgarinnar. Skyndilega bætist
þeim liösauki þegar eiturlyijabar-
ónar taka aö falla í valinn einn af
öðrum án þess aö upplýst veröi
hver er þar að verki.
Harrigan ákveður að hafa hendur
í hári þess sem morðin fremur en
áttar sig fljótlega á því aö lögreglu-
menn er alls ekki óhlutir fyrir
þessu rándýri sem er á veiöum í
steinsteypufrumskóginum.
Það er Danny Clover sem leikur
Mike Harrigan. Gary Busey er viö
hlið hans í stóru hlutverki. Leik-
stjóri er Stephen Hopkins. Sá er
ástralskur og læröi sitt fag í gerð
tónlistarmyndbanda. Hann hefur
þegar gert kvikmyndina Dangero-
us game og eina af raömyndunum
um Freddy og martröðina á Álm-
stræti.
mm
Danny Clover í hlutverki Harrigans.
Margir muna eflaust eftir kvik-
myndinni Exorcist, eöa Haldin ill-
um anda sem gerö var 1973 undir
stjóm meistara William Friedkin
og gat af sér ótaldar eftirlíkingar.
1977 settist John Boorman viö
stjórnvölinn og geröi Exorcist II
sem skartaði Richard Burton í að-
alhlutverki ásamt Lindu Blair sem
var í fyrstu myndinni. Þessi fram-
haldsmynd fékk slakar undirtektir.
Þrátt fyrir það er nú komin Exor-
cist III The Legion sem Bíóborgin
frumsýnir í dag. Nú er það William
Peter Blatty sem skrifar handrit og
leikstýrir en fyrsta myndin var ein-
mitt gerð eftir metsölubók hans.
Blatty skrifaði sjálfur handrit
fyrstu myndarinnar og fékk
óskarsverðlaun fyrir. Hann viður-
kennir ekki kvikmynd númer 2 en
telur þessa vera hið eiginlega fram-
hald fyrstu myndarinnar.
Þaö er enginn annar en gamli
jaxlinn George C. Scott sem leikur
aðalhlutverkið sem að þessu sinni
er lögregluforinginn Kinderman.
Honum er falið að rannsaka röö
dularfullra moröa i New York. Öll
eiga þau það sameiginlegt að morð-
inginn ristir stjörnumerki á fórn-
arlambið, merki Tvíburans og
merkir sér þannig bráðina.
Fimmtán árum áöur haföi sams
konar morðingi leikið lausum hala
en ekki er vitað annað en hann sitji
bakvið lás og slá á geðveikrahæli.
Kinderman fer að rannsaka málið
og kemst að því að ekki er allt sem
sýnist. Bráðlega óttast hann mjög
mikið um líf konu sinnar og ungrar
dóttur þegar honum veröur ljóst
að andstæðingur hans er varla af
þessum heimi.
Laugarásbíó:
Dansað við Regitze
Laugarásbíó frumsýnir í dag kvikmyndina Dansað við Regitze eftir
danska leikstjórann Kaspar Rostrup sem er einn helsti Ieikstjóri Dana
um þessar mundir. Kvikmynd þessi er byggð á metsölubók Mörtu Christ-
iansen sem kom út í Danmörku árið 1987 og var gefin út hérlendis 1990.
Myndin hefur víða hlotið mikið lof og var tilnefnd til óskarsverðlauna
sem besta erlenda kvikmyndin síðastliðið ár.
Aðalhlutverkin leika þau Ghita Nörby, sem leikur Regitze, og Fritz
Helmuth sem leikur Karl Áka, eiginmann hennar. Karl og Regitze dansa
saman og meðan þau stíga dans rifjar Karl Áki upp samverustundir
þeirra allt frá árinu 1940 þegar hann, dauöfeiminn unglingur, herti upp
hugann og bauð henni upp i dans i fyrsta skipti.
Tilkyimingar
Tvær bækur um tölvumál
bókasafna
Rannsóknastöð í bókasafna- og upplýs-
ingamálum við Félagsvísindadeild Há-
skóla íslands hefur geflð út tvær bækur
um tölvur í bókasöfnum. Önnur fjallar
um tölvuvæðingu átta bókasafna og
stofnana á Reykjavíkursvæðinu: Kenn-
araháskólans, Landspítalans, Borgar-
bókasafns Reykjavikur, Borgarspítalans,
Rannsóknastofnunar landbúnaðarins,
Námsgagnastofnunar, Ameríska bóka-
safnsins og einn kaflinn úallar um
greinasafn Morgunblaðsins. Er bókin að
stofni til nemendaverkefni sem unnin
voru á námskeiði um Töltmr í bókasöfn-
um. í ritinu er einnig skrá yfir greinar
um tölvmmál bókasafna sem birst hafa í
íslenskum ritum. Hin bókin er alþjóöleg
heimildaskrá sem tekur með greinar og
bækur um tölvunotkun í bókasöfnum.
Heitir skráin Bibliography: Computers
in Libraries and Information Agencies
og er unnin af dr. Laurel Anne Clyde,
gistiprófessor í bókasafnsfræði við Há-
skóla íslands, Alls er skráin 20 síður.
ARBÖK
Árbók Listasafns Sigurjóns
Ólafssonar
Út er komin Árbók Listasafns Sigurjóns
Ólafssonar 1989-90, og er hún sú þriðja i
röðinni, en allt frá árinu 1986 hefur safn-
ið sent frá sér veglega árbók á tveggja
ára fresti. Meginefni Árbókarinnar er
helgað tilurð listaverka og nær það sviö
jafnt yftr myndlist sem aðrar listgreinar.
Ágrip á ensku fylgir öllum megingrein-
um. Bókin, sem er 100 bls. að stærð og
ríkulega myndskreytt, fæst í Listasafni
Sigutjóns Olafssonar og hjá helstu bók-
sölum í Reykjavík.
Vinningshöfum afhent tækin
Eitthundrað og sjö skilvísir greiðendur
afnotagjalda Ríkisútvarpsins duttu í
lukkupottinn á dögunum er þeir fengu
sjónvarpstæki, myndbandstæki eða út-
varpstæki að gjöf þegar dregið var úr
nöfnum allra þeirra er gerðu fuli skil á
réttum tíma. Við útsendingu giróseðla
fyrir afnotagjaldiö í febrúar var auglýst
að dregið yrði úr nöfnum þeirra sem
greiddu eigi síðar en á eindaga 16. mars
og fengu 100 manns útvarpstæki, auk
fimm sem fengu myndbandstæki og tveir
sjónvarpstæki frá Japis. Varð þetta til
þess að skil afnotagjalda jukust mjög.
Vinningarnir dreifðust um allt land. Á
myndinni t.v. eru Birgir Skaptason,
framkvæmdastjóri Japis, Theodór Ge-
orgsson, yfirmaður innheimtudeildar
RUV, Hörður Vilhjálmsson, fjármála-
stjóri RÚV sem afhenti tækin fyrir hönd
Ríkisútvarpsins og fulltrúa þeirra sem
komust ekki.
Húnvetningafélagið
Félagsvist á laugardag kl. 14 í Húnabúð,
Skeifunni 17. Allir velkomnir.
Alþýðubandalagið í
Kópavogi -félagsvist
Þriggja kvölda keppni hefst mánudaginn
15. apríl kl. 20.30 í Þinghól, Hamraborg
11. Allir velkomnir.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað
frá Fannborg 4 kl. 10. Athugiö nýjan stað
á móti félagsheimilinu. Nú er náttúran
að lifna og vorið er komið. Markmið
göngunnar er samvera, súrefni og hreyf-
ing. Nýlagað molakaffi.
Tombóla
Nýlega héldu þessir tveir piltar sem heita
Kristján Geir Björnsson og Trausti
Magnússon tombólu til styrktar Rauða
krossi íslands. Þeir söfnuðu 850 krónum.
Stóðhestastöðin og
Kirkjubær
Félagar í Fáki fara sunnudaginn 14. apríl
í fræðsluferð til Stóöhestastöðvarinnar í
Gunnarsholti og hrossaræktarbúsins í
Kirkjubæ á Rangárvöllum. Farið verður
í rútu frá félagsheimili Fáks ki. 13.30. í
Gunnarsholtinu munu tamningamenn-
irnir Rúna Einarsdóttir og Eiríkur Guö-
mundsson sýna stóðhestana. Stóðhesta-
stöðin verður skoðuð og ennfremur fræ-
verkunarstöð landgræðslunnar. Sveinn
Runólfsson landgræðslustjóri segir frá
landgræðslunni. Veitingar verða á staðn-
um. Eftir heimsóknina í Gunnarsholt
verður farið til Kirkjubæjar, þar sem Sig-
urður Haraldsson sýnir rauðblésótta
hrossastofninn sinn og segir frá honum.
Þátttakendur verða að skrá sig á skrif-
stofu Fáks ekki síðar en miðvikudaginn
10. apríl, sími 672166. Rútugjald verður
1.000 krónur fyrir fullorðna og 500 krónur
fyrir börn. Utanfélagsmenn greiöa 1.500
krónur.
Sýningar
Art-Hún
Stangarhyl 7
Art-Hún-hópurinn sýnir skúlptúrverk,
graflk og myndir, unnar i kol, pastel og
olíu, í sýningarsal sínum að Stangarhyl
7. Opið virka daga kl. 12-18 og um helgar
kl. 14-18.
Árbæjarsafn
sími 84412
Safnið er opið eftir samkomulagi fyrir
hópa frá því i október og fram í maí.
Safnkennari tekur á móti skólabömum.
Upplýsingar í síma 84412.
Ásgrímssafn
Bergstaðastræti 74
í safni Ásgríms Jónssonar eru nú sýnd
26 verk. Mörg verkanna, sem bæði eru
unnin í olíu og með vatnslitum, eru frá
árunum 1905-1930 og eru þau einkum frá
Suðurlandi.
Ásmundarsalur
v/Freyjugötu
Anna Þóra Karlsdóttir sýnir verk sin í
Ásmundarsal. Á sýningunni eru mynd-
verk úr ull, gerð með þæfingu og vaxi
(batik). Þetta er önnur einkasýning Önnu
Þóm en hún hefur tekið þátt í mörgum
samsýningum heima og annars staðar á
Norðurlöndunum. Sýningin er opin dag-
lega kl. 15-18 og lýkur henni 14. apríl.
FÍM-salurinn
Garðastræti
Sýningu Söm Vilbergsdóttur í FÍM-saln-
um lýkur nú um helgina. Hún sýnir 12
olíumálverk sem máluð em á tveimur
síðustu árum. Sýningin er opin frá kl.
14-18 alla daga.
Gallerí Borg
Pósthússtræti 9
Jón Steingrímsson sýnir verk sín í Gall-
erí Borg. A sýningu Jóns em nýleg olíu-
málverk og kolateikningar. Allar mynd-
irnar em til sölu. Sýningin er opin virka
daga kl. 10-18 og um helgar kl. 14-18.
Sýningunni lýkur þriðjudaginn 16. apríl.
Gallerí List
Skipholti
í Gallerí List er komið nýtt, skemmtilegt
og nýstárlegt úrval af listaverkum: hand-
unnið keramik, rakúkeramik, postulín
og gler í glugga, skartgripir, grafik, ein-
þrykk og vatnslitamyndir eftir íslenska
listamenn. Opið kl. 10.:i0 18.