Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1991, Blaðsíða 8
’ I t i 1Ms / 1 V ' K . i i. ' '
24 FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1991.
Veðurhorfur næstu viku:
Vorið kemur um helgina en
hverfur um miðja næstu viku
- samkvæmt spá Accu-Weather
Farfuglarnir hafa útbúiö hreiörin
sín og þaö styttist óðum í sumardag-
inn fyrsta. Vorveður verður um nær
allt land þessa helgi en einhver aftur-
kippur kemur í það í næstu viku
samkvæmt spá bandarísku einka-
veðurstofunnar Accu-Weather.
í Evrópu er vorið komið til að vera
en þó fá Evrópubúar þennan aftur-
kipp líka í næstu viku. Sums staðar
í Evrópu mun hitinn komast í 20
gráður um helgina og má nefna staði
eins og Frakfurt og Róm.
í Bandaríkjunum hefur líka hlýnaö
síðustu vikur. Það verður til dæmis
17 gráða hiti á laugardag í New York
og hitastig eykst þar þegar líður á
vikuna.
Hlýr sunnudagur
Helgin verður nokkuð góð á höfuð-
borgarsvæðinu hvað hitastig varðar.
Á laugardag verður 10 gráða hiti,
smáskúrir en milt og örlar á sólskini.
Á sunnudag verður 11 gráða hiti,
hvasst en milt. Aðfaranótt mánudags
snarkólnar sunnanlands og í kom-
andi viku má jafnvel búast við tals-
verðu næturfrosti. Hitastig fer alveg
mður að frostmarki á miðvikudag.
Á Suðurnesjum verður svipað veð-
ur og í Reykjavík en 1 gráðu hlýrra
báða dagana. Það kólnar líka í vik-
unni, þó ekki eins mikið en búast
má við næturfrosti þegar líður á vik-
una.
í Vestmannaeyjum verður veðrið
svipað og annars staðar sunnan-
lands. Þar verður súld og hálfskýjað
komandi viku.
Ágætt fyrir austan
Austur á Kirkjubæjarklaustri má
búast við allsæmilegum hita fram á
þriðjudag. Mánudagurinn verður
þokkalegur svo og helgin. Súld eða
hálfskýjað verður þar um slóðir.
Á Egilsstöðum verður 9 gráða hiti
á laugardag og fer upp í 11 gráður á
sunnudag. Þar má búast við rigningu
á mánudag og jafnvel slyddu á
þriðjudag þegar kólnar. Næturfrost
verður töluvert um miðja vikuna.
Kólnar þegar norðar dregur
Norðar á landinu er og verður heldur
kaldara en um landið sunnanvert. Á
Raufarhöfn verður 6-8 gráða hiti um
helgina. Síðan kólnar smátt og smátt
þar til á miðvikudag en þá verður
hiti kominn að frostmarki. Sami
næturkuldinn verður á þessum slóð-
um svo sem annars staðar.
Á Akureyri verður aðeins hlýrra
en á Raufarhöfn en ekki munar nema
einni gráðu. Á Akureyri verður hins
vegar 2 gráða frost á miðvikudag en
það er eini staðurinn í þessum hring
sem svo illa verður úti að sinni.
Gott á Galtarvita
Næsti bær við Akureyri er Sauðár-
krókur og þar verður töluvert kald-
ara en annars staðar á Norðurlandi.
Sauðkrækingar eiga von á 5 gráðum
á laugardag en 7 á sunnudag.
Fyrir vestan, nánar tiltekið á Galt-
arvita, verður sæmilega hlýtt um
helgina eða 8 gráður báða dagana.
Þar kólnar líka eftir helgi og má jafn-
vel búast við snjókomu eða slyddu á
þriðjudag. Á miðvikudag verður
væntanlega úrkomulaust en hálf-
skýjað. -JJ
LAUGARDAGUR SUNNUDAGUR MÁNUDAGUR ÞRIÐJ UDAGUR MIÐVIKUDAGUR
Veðurhorfur í Reykjavík næstu 5 daga
Skúrir, miltveður, Gplaenmilt Enn miltveðurog Stinningskaldi Kalsaveðuren
sólskinafogtil veður skúraleiðingar ogkólnandi sólskinafogtil
hiti mestur 10° hiti mestur 11 ° hiti mestur 8° hiti mestur 3° hiti mestur 2°
minnstur 6° minnstur 3° minnstur 2° minnstur -5° minnstur -6°
Veðurhorfur á íslandi næstu 5 daga
Um helgina er gert ráð fyrir
hlýnandi veðri á höfuðborgar-
svæðinu. Á laugardaginn verður
súld en á sunnudag léttir siðan til
með sólskini á köflum. Á mánu-
daginn verður enn sæmilega hlýtt
en upp úr þvi fer hann ört
kólnandi og á miðvikudag er
reiknað með svölu veðri en
sólskini af og til.
Svipuðu máli gegnir um lands-
byggðina. Gert er ráð fyrir að
frost verði á Norður- og Norð-
austurlandi þegar liða tekur á
vikuna en annars staðar verður
frostlaust að deginum og vægt
næturfrost. Búast má við élja-
veðri á Norður- og Norðaustur-
landi um miðja vikuna ogfremur
þungbúnu veðri um allt iand.
STAÐIR LAU. SUN. MÁN. ÞRI. MIÐ.
Akureyri 7/3as 8/3hs 5/-2sú 3/-5sn -2/-7hs
Egilsstaðir 9/5sú 11/2hs 5/0ri 2/-6sn 0/-9as
Galtarviti 8/4sú 8/5sú 6/2sú 4/-5sn 2/-5hs
Hjarðarnes 10/5hs 10/4as 7/3sú 3/-3hs 2/-4hs
Keflavflv. 11/6sú 12/5hs 9/2ri 4/-2as 3/-4hs
Kirkjubkl. 9/5sú 10/4as 7/1 sú 3/-5as 2/-6hs
Raufarhöfn 6/3hs 8/2 hs 5/-2as 2/-4sn 0/-7sn
Reykjavík 10/6sú 11 /3hs 8/2ri 3/-5hs 2/-6hs
Sauðárkrókur 5/2as 7/2hs 4/-2sn 2/-5sn 0/-7sn
Vestmannaey. 11/7sú 12/5hs 9/3sú 4/-3as 2/-4hs
Skýringar á táknum
he - heiðskírt
0 ls - léttskýjað
(Þ hs - hálfskýjað
sk - skýjað
as - alskýjað
ri - rigning
# sn - snjókoma
^ sú - súld
/ s - skúrir
0O m i - mistur
ZZ þo - þoka
I*
þr - þrumuveður
Veðurhorfur í útlöndum næstu 5 daga
BORGIR LAU. SUN. MÁN. ÞRI. MIÐ. BORGIR LAU. SUN. MÁN. ÞRI. MIÐ.
Algarve 20/1 Osú 19/10sú 18/10sú 18/11sú 19/13as Malaga 20/1 Osú 19/8sú 18/9sú 18/9as 20/1 Oas
Amsterdam 16/7sú 12/5as 12/6as 12/6as 14/4sú Mallorca 18/11 as 16/9ri 12/9sú 14/8as 16/9as
Barcelona 18/9as 16/9ri 14/8sú 15/8as 15/9as Miami 29/26hs 29/24hs 29/21þr 28/19hs 29/21hs
Bergen 10/5sú 8/4as 7/3as 8/4sú 7/3as Montreal 11/4sk 13/3ri 13/1as 9/3as 12/4he
Berlín 18/9sk 17/7as 16/7as 15/6sú 15/8ri Moskva 10/4is 9/3hs 7/2sú 8/3hs 9/1 hs
j Chicago 17/4t 11/-1SÚ 7/3hs 10/4he 11/6hs New York 14/9sk 19/11sú ,17/6as 19/7hs 17/10hs
Dublin 14/6hs 14/6hs 14/8hs 12/7as 14/5he Nuuk -4/-8hs -2/-7hs 0/-5sn 2/-3as -1/-8he
Feneyjar 20/7hs 18/7hs 17/6sú 20/1 Ohs 19/11sú Orlando 30/21hs 28/19hs 27/16þr 27/18hs 28/19hs
Frankfurt 2i/8sú 17/7as 14/6hs 14/8sú 15/8ri Osló 9/4ri 8/3as 7/2as 8/3as 6/2as
Glasgow 13/6hs 9/4as 11/3hs 10/5as 13/6hs París 14/4sú 10/4as 11-/4as 14/7sú 13/8sú
Hamborg 11/4sú 7/3as 8/4as 10/6sú 8/5ri Reykjavík 10/6su 11/3hs 8/2ri 3/-5hs 2/-6hs
Helsinki 10/3hs 9/0hs 7/2as 7/3as 6/3sú Róm 21/9he 21/9he 19/10as 20/11 hs 18/10sú
Kaupmannah. 10/4sk 8/3as 9/3as 8/4sú 7/4sú Stokkhólmur 10/4sú 7/1 as 8/2as 8/2as 8/3as
London 11/5as 10/5as 11/5hs 12/6as 14/5hs Vín 15/8hs 11/6as 12/6as 12/5hs 11/4sú
Los Angeles 22/11he 21/11he 22/12he 21/9he 19/9he Winnipeg 6/-3sn 7/-2as 10/-1 he 8/2as 9/3hs
Lúxemborg 18/7sú 14/4as 12/6as 12/7as 13/6as Þórshöfn 7/4sú 6/3as 7/2 hs 7/4as 8/4sú
Madríd 15/8ri 14/8sú 14/7sú 12/6ri 15/7hs Þrándheimur 10/6as 9/4hs 9/3as 8/3sú 7/4sú