Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1991, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1991, Síða 3
FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 1991. 19 Dans- staðir Ártún Vagnhöfða 11, sími 685090 Hljómsveit Jóns Sigurðssonar ásamt Hjördísi Geirsdóttur söng- konu leikur föstudags- og laugar- dagskvöld. Bjórhöllin Gerðubergi 1, sími 74420 Lifandi tónlist öll kvöld vikunn- ar. Blúsbarinn Laugavegi 73 Lifandi tónlist öll kvöld. Casabianca Diskótek föstudagskvöld. Dans-barinn Grensásvegi 7, sími 688311 Dansleikur á föstudagskvöld. Danshúsiö Glæsibæ Álfheimum, s. 686220 Hljómsveitin Smellir ásamt Ragnari Bjarnasyni leikur á föstudagskvöld. Fjörðurinn Strandgötu, Hafnarfirði Sjöund frá Vestmannaeyjum leikur fyrir dansi um helgina. Furstinn Skipholti 37, sími 39570 Lifandi tónlist í kvöld, föstudags- og laugardagskvöld. Gikkurinn Ármúla 7, sími 681661 Lifandi tónlist um helgina. L.A. Café Laugavegi 45, s. 626120 Diskótek föstudagskvöld. Hátt aldurstakmark. Lídó Lækjargötu 2 Boðið upp á kokkteil. Lifandi tónlist í Café Rosenberg, tískusýning. Sportklúbburinn Borgartúni 32, s. 29670 Opiö fóstudags- og laugardags- kvöld á Stönginni. Aögangur ókeypis. Hótel Borg Dansleikur föstudagskvöld. Hótel ísland Ármúla 9, sími 687111 Rokk, trúður og trylltar meyjar flutt í kvöld. Anna og flækingarnir í Ás- byrgi, Blúsmenn Andreu í Café ís- landi og diskótek í norðursal. Naustkráin Vesturgötu 6-8 Opið um helgina. Nillabar Strandgötu, Hafnarfirði Tríóið Óli blaðasali leikur fóstu- dagskvöld. Tveir vinir og annar í fríi Loðin rotta leikur fyrir dansi föstudgskvöld. RAUTT' UÓS RAUTT Síðan skein sól norðan og sunnan heiða Síðan skein sól ætlar að hella geislum sínum víða þessa helgi og er hér aðeins byrjunin á hljóm- leikaferð hijómsveitarinnar í sum- ar. Á fóstudagskvöld verður hijóm- sveitin á skemmtistaðnum 1929 á Akureyri. Verða þeir tónleikar teknir upp í máli og myndum og munu nokkur laganna koma út á plötu. Aðfaranótt annars í hvítasunnu mun Síðan skein sól verða í Njáls- búð og hefst sú skemmtun klukkan 12 á miðnætti og stendur til fjögur að morgni. Siðan skein sól norðan og sunnan heiða um þessa helgi. Púlsinn: Sálarháski, Megas og glæpakvendið Stella Helgin verður fjörug á Púlsinum og verður stöðug dagskrá frá föstu- degi til mánudags. A föstudeginum veröur mikil djass- og blúshátíð þar sem fram koma KK-band og Sálar- háski. Ellen Kristjánsdóttir verður gestur beggja hljómsveitanna en KK sjálfur ætlar að reyna sig við nokkra djassstandarda með Sálar- háskanum. Vonir standa til að fleiri gestir komi fram með Sálar- háskanum og þá einkum þeir sem tekið hafa þátt í háskalegu tónhst- arröðinni í vetur. Á laugardag ætlar Gísli Þráins- son trúbador að vera með tónleika í Púlsinum. Gísli er frá Akranesi en hefur gen það gott í Reykjavík síðustu vikur og sungið á ýmsum stöðum við góðar undirtektir. Megas kemur síðan með hættu- lega hljómsveit og glæpakvendið Stellu á mánudagskvöld, annan í hvítasunnu. Sérstakur gestur þessa fríða föruneytis verður söng: konan Björk Guðmundsdóttir. Smellir og Raggi Bjarna verða í Keflavik i kvöld. Raggi Bjama í Keflavík Ragnar Bjamason og hljómsveit- in Smellir ætla að heimsækja Rána í Keflavík og skemmta gestum þar í kvöld, föstudag. Ragnar er víð- frægur söngvari hérlendis en í hljómsveitinni em þekktir hljóð- færaleikarar og söng\'arar og má þar fyrstan nefna Kr. Brink sem syngur og leikur á bassa. Sigurð Hafsteinsson sem leikur á gítar og raddar. Rafn Erlendsson sem betur er þekktur undir nafninu „Sammi úr Gautum" leikur á trommur og syngur og að síðustu er það kon- ungur hljómborðanna, Carl Möller. Hljómsveitin ætlar að leika í nýja salnum og byrjar ballið kl. 23 og stendur fram á nótt. Bjarni R. Jónsson meó lax úr Ell- ióaanum sem hann veiddi á flug- una. Þaö styttist í aó Eiliðaárnar opni, þann 10. júni. DV-mynd G.Bender Á laugardaginn: Hreinsunar- dagurí Elliðaánum „Það styttist í að Elliðaárnar opni fyrir veiðimenn og laxinn fari aö koma í árnar, oft kemur hann upp úr miðjum maí," sagði Garðar Þór- hallsson formaður Elliðaárnefnd- arinnar í vikunni. En lún árlegi hreinsunardagur verður í ánni á laugardaginn. „Vatnið veröur minnkaö svo betra sé að hreinsa ána og veiði- menn geti kíkt á veiöistaðina fyrir sumarið. Við vonum aö sem flestir mæti og hjálpi okkur aö hreinsa," sagði Garðar ennfremur. -G.Bender Loðin rotta á Tveimur vinum Föstudagskvöld verður aöal- kvöld helgarinhár hjá Tveimur vinum því ekki má spila danstón- list laugardag fyrir hvítasunnu. Það verður hljómsveitin Loðin rotta sem skemmtir gestum Vin- anna og verður haldið áfram fram undir morgun. Fyrir stuttu tók Jó- hannes Eiðsson við söngvarastöð- unni í hljómsveitinni af Richard Scobie og hefur honum tekist vel til, enda sjóaður rokksöngvari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.