Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1991, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1991, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 1991. 21 :a- ýðu- as úrulífsmyndir sínar, m.a. af Heklu og nágrenni. Sýning Kristins er opin alla daga frá kl. 14 til 21 vikuna 18. til 26. maí. Sólveig sýnir í Gallerí einn einn Sólveig Eggertsdóttir opnar sýn- ingu á myndverkum sínum í Gallerí einn einn við Skólavörðustíg á morg- un. Sólveig útskrifaðist úr myndmót- unardeild Myndlista- og handíða- skóla íslands vorið 1990 og hefur ver- ið gestanemandi við sömu deild núna í vetur. Á sýningunni, sem er fyrsta einka- sýning Sólveigar, eru lágmyndir og þrívíddarverk unnin úr ýmsum efn- um, svo sem ryðjárni, sóti, bývaxi, gleri, Ijósmyndum og íleiru. Sýning- in stendur til 30. maí og er opin alla daga frá kl. 14.00 til 18.00. Sólveig Eggertsdóttir sýnir í Gailerí einn einn. Einleikaraprófstón- leikar í Óperunni Einleikaraprófstónleikar verða haldnir á vegum Tónlistarskólans í Reykjavík í íslensku óperunni í kvöld kl. 20.30. Á tónleikunum flytur Unnur Vilhelmsdóttir píanóleikari Prelúdíu og fúgu nr. 8 í es-moll eftir J.S. Bach, Sónötu í C-dúr op. 2 nr. 3 eftir Beethoven, Estampes eftir De- bussy og Sónötu í g-moll op. 22 eftir Schumann. Tónleikarnir eru hluti einleikara- prófs Unnar frá skólanum og er að- gangur ókeypis. Vortónleikar í Keflavík Kvennakór Suðurnesja og Karlakór Keflavíkur halda vortónleika sína í dag, 17. maí, kl. 20.30 í Félagsbíói, Keflavík. A efnisskrá eru einkum lög eftir íslenska höfunda og kórarnir frumflytja aö þessu sinni 4 íslensk sönglög, þ.á m. lag eftir einn kórfélaga, Bjarna Gislason. Karla- kórinn mun og frumflytja lag eftir stjórn- andann við ljóö Daviðs Stefánssonar, Dimmt á Dökkumiðum. Kórinn mun syngja í Akureyrarkirkju 24. maí kl. 20.30. Stjórnandi kóranna er Sigvaldi Snær Kaldalóns og píanóleikari er Ragn- heiður Skúladóttir. Kynaston með tvenna tón- leika Konsertorganistinn Nicolas Kynaston heldur tvenna orgeltónleika í Reykjavík á Kirkjulistahátíð '91. Fyrri tónleikarnir eru í Bústaðakirkju annan hvítasunnu- dag kl. 20 og hinir síðari í Dómkirkjunni miðvikudaginn 22. mai kl. 20. Nicolas Kynaston er einn örfárra organista í heiminum sem eingöngu hefur haft fram- færi af því að halda konserta. Á annan í hvítasunnu leikur hann á hið nýja orgel Bústaðakirkju. Á efnisskrá eru verk eftir Mozart, F. Bridge, J.S. Bach, M. Dupré og Max Reger. Miðvikudaginn 22. maí leikur hann í Dómkirkjunni verk eftir J. Bull, W. Boyce, J.S. Bach, W.A. Moz- art, M. Dupré og Edward Elgar. Tónleikar á Austurlandi Dagana 17.-19. mai munu þeir Einar Jó- hannesson klarínettuleikari og David Knowles píanóleikari halda þrenna tón- leika á Austurlandi á vegum Félags ís- lenskra tónlistarmanna. Tónleikarnir verða haidnir á Borgarfirði eystra í dag, á Seyðisfirði 18. maí og á Egilsstöðum 19. maí. Þeir félagar hafa leikið saman um árabil hér heima svo og erlendis, nú síð- ast í sjónvarpsþætti í Ósló. Efnisskrá tón- leikanna er flölbreytt, leikin verða frönsk, ítölsk, austurrísk og íslensk lög og verk. Rudolf Firkusny hjá Tónlistarfélaginu Laugardaginn 18. maí mun tékkneski píanóleikarinn Rudolf Firkusny halda tónleika í íslensku óperunni á vegum Tónlistarfélagsins í ReyKjavík og hefjast þeir kl. 14.30. Á efnisskrá eru Bagatellur eftir Beethoven, sónata í a-moll eftir Schubert, sónata I.X. 1905 eftir Janácek, Suite bergamasque eftir Debussy og Fantasía og Tokkata eftir Martinu. Að- göngumiöasala verður við innganginn. Fyrirlestrar Tveir fyrirlestrar um ísienska þjóðarvitund Á vegum Norræna sumarháskólans á íslandi verða tveir fyrirlestrar fluttir í Norræna húsinu á laugardaginn kl. 13 og 15. Báðir fyrirlestramir tengjast starfi Norræna sumarháskólans að þemanu Þjóðarvitund á Noröurlöndum - norræn vitund. Kl. 13 flytur Finnur Magnússon, þjóðháttafræðingur í Lundi, fyrirlestur út frá doktorsritgerð sinni um mótun stéttarvitundar í íslensku sjávarþorpi (Eyrarbakka) 1880-1940. Kl. 15 flytur Gestur Guðmundsson félagsfræðingur fyrirlestur um þátt rokktónlistar í mótun nútíma þjóðarvitundar íslendinga. Á eft- ir hvorum fyrirlestri fyrir sigverða um- ræður og kaffihlé á milli þeirra. Fyrir- lestramir verða í fundarherbergi Nor- ræna hússins og er öllum heimill aðgang- ur. Fundir Græn framtíð íslands Mánudaginn 20. maí, annan i hvíta- sunnu, boða samtök græningja til al- menns fundar undir yfirskriftinni Græn framtið fslands. Fundurinn er öllum opinn og er markmiðið að fmna sameig- inlegan starfsgrundvöll fyrir áhugafólk um umhverfismál. Hugmyndin er að mynda þverpólitíska hreyfmgu um um- hverfismál, koma á upplýsingamiðstöð, gefa út málgagn og skipuleggja aðgerðir. Fundarstaður er Kaffi-Garður á Garða- torgi, Garðabæ. Fundurinn hefst kl. 16 og þátttökugjald er kr. 450. Veitingar innifaldar. Nánari upplýsingar í síma 29042. Ferðalög Útivistum helgina Sunnudagur 19. mai Póstgangan, 10. ferð Gengin verður gömul þjóöleið frá Deild- arhálsi um Herdísarvík að Vogsósum ef skilyrði veröa hagstæð til að fara yfir ósinn. Ef svo reynist ekki verður gengið meðfram HUðarvatni að Hlíð. Brottfór kl. 10.30 fyrir þá sem vflja ganga alla leið- ina. Kl. 13 er boðið upp á styttri göngu sem sameinast árdegisgöngunni viö Her- dísarvík. í þeirri ferð stendur einnig til boða stutt og auðveld ganga fyrir fólk með börn. Mánudagur 20. maí Kl. 10.30 Svínaskarð Gengin gömul leið um Svínaskarð sem er í 481 m hæð á mflli Móaskaröshnúka og Skálafells. Kl. 13 Haukafjöll Létt fjaUganga. Gengið verður um Þver- dal og upp á Haukafjöll. Komið niður við Tröllafoss. Ferðaféiagið Dagsferðir um hvítasunnu. 19. mai kl. 13 Kollafjörður - Álfsnes (fjöruferð). í fjörunni á Álfsnesi ber margt fyrir augu og hafa veður og vindar mótaö klettana á sérkennilegan hátt. Til- valin Qölskylduferð. Verð kr. 800. 20. maí kl. 13 Keilir - Hverinn eini. Keil- ir er 379 m.y.s. og þekktur fyrir strýtu- myndaða lögun. Utsýni af Keili er mikiö yfir Reykjanesskagann og víðar. Létt ganga. Verð kr. 1.100. 22. maí kl. 20 Tröllafoss - Stardalur (kvöldganga). Brottfór frá Umferðar- miðstöðinni, austanmegin. Farmiðar við bíl. Helgina 24.-26. mai verður ferð til Vestmannaeyja. Helgarferðir til Þórs- merkur eru farnar hveija helgi. Vorferð Nessafnaðar að Odda og Keldum verður farin á morg- un, laugardag, kl. 13 frá kirkjunni. Skrán- ing hjá kirkjuverði í síma 16783 mflli kl. 16-18. Til sölu Caterpillar 225 B LC árg. '88. Vinnustundir 4800. Allar upplýsingar á Bílasölunni Skeifunni, sími 689555. Til sölu eru lóðir undir sumarhús í nýskipulögðu hverfi á jörðinni SEYÐISHÓLUM í Grímsnesi. Stærð lóðanna er á bilinu 5000 mMO.OOO m2. Lóðirnar liggja í mishæðóttu landi sem er kjarri vaxið að hluta. Á svæðinu er mjög góður útsýnisstaður. Upplýsingar gefnar í síma 91-10600 milli kl. 10 og 12 alla virka daga. Til sýnis laugardag og sunnudag kl. 14-18. SMÁAUGLÝSINGADEILD verdur opin um hvítasunnuhelgina sem hér segir: OPIÐ laugardag 18. maí frá kl. 9-14 mánudag 20. maí frá kl. 18-22 LOKAÐ sunnudag 19. maí, hvítasunnudag kemur út laugardaginn 18. maí og síðan þriðjudaginn 21. mai SÍMINN ER 27022

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.