Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1991, Blaðsíða 8
24
FÖáfUDÁGUR: 23! Á'étíé'TíÉi.
Veðurhorfur næstu daga:
Skýjað en sæmilega
hlýtt um allt land
- samkvæmt spá Accu-Weather
Veðriö næstu daga, eða fram á mið-
vikudag, ætti að verða sæmilegt þrátt
fyrir rigningarsudda einhveria daga.
Það verður svipað veður um allt land
og hitinn þetta á bilinu 11-17 stig. Það
er nokkuð gott miðað við það að sum-
arið er á flótta undan kalsa hausts-
ins. Haustið er þegar farið að láta á
sér kræla, ekki bara með veðrinu
heldur skólabókum og öðru skóladóti
í verslunum, svo ekki sé minnst á
útitekin krakkakríh, nýkomin úr
sveit.
Fyrirtaks golfveður
á morgun
Það verður alveg fyrirtaks golf- og
berjatínsluveður á morgun, laugar-
dag. Það verður hálfskýjað með 16-17
stiga hita, nema á Galtarvita, en þar
verður súld. Beriatíminn er í há-
marki núna þannig að þeir sem ætla
að sulta og safta ættu að drífa sig á
berjaslóðir ef þeir eru ekki þegar
búnir að því. Og golfarar landsins
geta glaðst yfir veðrinu líka og nú
fara að verða síðustu forvöð að slá
hvítar kúlur á grænu grasi.
Suddi og súld á sunnudag
Menn ættu hins vegar að halda sig
inni á sunnudaginn því þá er ekki
spáð skemmtilegu útiveðri. Hitinn
verður á bilinu 11-15 stig og alls stað-
ar verður súld eða 1 igning. Það verð-
ur sem sagt dumbungsveður seinni
part helgarinnar og fram á mánudag
og þriðjudag. Vikan byrjar því ekki
sérlega skemmtilega. Á mánudag
verður hitinn um 12 stig á öllu land-
inu og á hverium einasta veðurat-
hugunarstað er spáð súld.
Þriðjudagurinn býður upp á allt frá
hálfskýjuðu upp í súld. Austurlandið
fær, eins og svo oft áður, besta veðr-
ið eða 17 stiga hita með einhverium
skýjadulum. Kaldast og blautast
verður aftur á móti á Norður- og
Norðvesturlandi og á Galtarvita er
spáð 11 stiga hita og súld. Sama er
að segja um Sauðárkrók og Akur-
eyri.
Sumar og sól á Austurlandi
Það verður hreinasta sumarveður
á Austurlandi á miðvikudag - ekki
einn einasti skýjahnoðri heldur al-
veg heiðskírt og 17 stiga hiti. Það er
ekki haustinu fyrir að fara þar á þeim
degi. Aðrir staðir á landinu verða
ekki eins heppnir því einhverjir
hnoörar verða að þvælast fyrir víð-
ast annars staðar en austanlands.
Það er þó bót í máli að hvergi er spáð
rigningu né hinni dæmigerðu súld.
Heiðskírt í London
Það verður um 25 stiga hiti og sól
í London næstu daga og hitastigið er
svipað í öörum borgum Evrópu en
mun meira af skýjum. Eins og stend-
ur geta Moskvubúar bæði glaðst yfir
misheppnuðu valdaráni og góðu
veðri. Þar er nú 27 stiga hiti og sól
en þegar líða tekur á vikuna fer að
kólna og rigna.
í Bandaríkjunum er sama veður
og verið hefur undanfamar vikur,
eða um 30 stiga hiti og sól. Það er
mun skýjaðra á austurströndinni þar
vestra því í Seattle er 22 stiga hiti og
alskýjað og í Los Angeles er 31 stiga
hiti og hálfskýjað.
Veðurhorfur á Islandi næstu 5 daga
Spáin gerir ráð fyrir indælu
veðri út næstu viku og þrátt
fyrir að langt sé llðlð á ág-
ústmánuð er það ekki enn
að sjá á hitatölunum. Segja
má í grófum dráttum að
sama spáin glldi um land
allt.
íbúar höfuðborgarsvæðis-
ins mega búast við skúra-
lelðlngum og jafnvel rign-
ingu á sunnudag en síðdeg-
is á mánudag fer að létta
aftur tll.
Norðlendlngar verða að
sætta slg vlð súld fram á
þriðjudag en þá glaðnar
hann heldur betur tll með
sól og helðrfkju. Hvergl er
gert ráð fyrlr næturkulda.
STAÐIR LAU. SUN. MÁN. ÞRI. MIÐ.
Akureyri 16/11 hs 12/9sú 12/8SÚ 12/8as 14/7hs
Egilsstaðir 17/12hs 14/11 sú 13/9sú 14/9hs 16/8he
Galtarviti 15/11SÚ 11/8ri 11/8SÚ 11/7SÚ 15/8hs
Hjarðames 17/12hs 14/lOsú 13/9sú 15/1 Ohs 17/11 he
Keflavflv. 16/12hs 14/11 ri 13/IOsú 14/9as 16/11hs
Kirkjubkl. 17/12hs 15/11 13/9sú 14/8hs 17/10he
Raufarböfn 16/9hs 14/10SU 12/8sú 13/9sú 15/8hs
Reykjavík 17/12hs 14/1 Ori 12/9sú 13/8hs 15/10hs
Sauðárkrókur 16/9hs 12/9sú 11/8sú 12/7sú 15/9hs
Vestmannaey. 15/11 hs 13/1 Ori 12/9sú 14/10hs 15/11hs
Skýringar á táknum sk — skýjað
O he — heiðskírt • as — alskýjað
Is — lóttskýjað ri — rigning
3 hs — hálfskýjað * *■ * sn — snjókoma
V
9
00
sú — súld
s — skúrir
m i — mistur
= þo — þoka
þr — þrumuveður
1Þ
* _
LAUGARDAGUR
SUNNUDAGUR
MÁNUDAGUR
ÞRIÐJUDAGUR
MIÐVIKUDAGUR
Veðurhorfur í Reykjavík næstu 5 daga
Sól á köflum, gola
en milt veður
hltl mestur +17°
mlnnstur +12°
Rigning og
stinningskaldi
hitl mestur +14°
minnstur +10°
Stinningskaldi og
skúraleiðingar
hltl mestur +12°
mlnnstur +9°
Sólskin og skýjað
til skiptis
hlti mestur +13°
minnstur +8°
Sólskin á köflum
hlti mestur +15°
mlnnstur +10°
Veðurhorfur í útlöndum næstu 5 daga
BORGIR LAU. SUN. MÁN. ÞRI. MIÐ. BORGIR LAU. SUN. MÁN. ÞRI. MIÐ.
Algarve 33/21 Is 33/21 hs 33/22hs 30/21 hs 29/20þr Malaga 33/24he 33/23he 32/23he 30/22þr 29/21 s ú
Amsterdam 23/13hs 23/13he 24/12he 25/15hs 23/14as Mallorca 30/21 Is 29/23he 32/24he 31/23þr 30/22hs
Barcelona 31/21 he 31/22he 32/21 he 27/20þr 26/19sú Miami 33/25hs 33/25fir 33/25þr 32/23hs 33/22hs
Bergen 17/13hs 19/13hs 17/11 as 17/14hs 16/13as Montreal 25/12hs 25/12he 27/14hs 25/16sú 22/8hs
Beriín 23/11sú 23/1 Ohe 24/1 Ohe 25/12hs 25/14hs Moskva 27/13ls 28/14he 24/13þr 22/13sú 23/14sú
Chicago 30/19is 30/19he 32/20he 30/18fir 28/15he New York 30/20IS 30/21 he 33/22he 31/21 þr 27/16hs
Dublin 19/11 ls 20/11he ,21/12he 20/12hs 22/12he Nuuk 7/3sú 9/2hs 10/4hs 11/4ri 12/6as
Feneyjar 28/17he 28/16he 29/17he 31/18hs 30/19þr Orlando 32/23þr 33/24þr 33/24hs 33/22he 34/23hs
Frankfurt 23/13hs 26/13he 26/13he 26/14hs 25/16hs Osló 17/13SÚ 18/11 hs 18/11 hs 23/13hs 22/14hs
Glasgow 18/111s 19/11 he 19/11he 21/13hs 20/11he París 24/15ls 26/13he 28/14he 23/16as 25/16sú
Hamborg 19/1 Osú 23/1 Ohe 23/1 Ohe 23/12he 23/13hs Reykjavík 17/12hs 14/1 Ori 12/9su 13/8hs 15/10hs
Helsinki 22/12sú 19/12SÚ 19/13as 21/13hs 20/12hs Róm 31/21 he 31/19he 32/20he 31/21 he 30/20hs
Kaupmannah. 18/14SÚ 21/12hs 18/11 sú 22/12hs 21/11hs Stokkhólmur 17/13SÚ 19/10hs 18/11 sú 22/13hs 21/13as
London 23/13he 24/13he 25/13he 23/14hs 21/13as Vín 26/14ls 24/13he 24/11he 25/13he 25/14hs
Los Angeles 31/18hs 29/18hs 27/16hs 30/17he 31/18he Winnipeg 27/15hs 29/14hs 27/14þr 27/16he 29/17hs
Lúxemborg 23/12hs 24/13he 24/13he 23/14hs 23/15as Þórshöfn 17/10hs 17/11 hs 17/10hs 17/13as 18/13hs
Madríd 36/22Is 36/22he 34/21 þr 26/18sú 28/17þr Þrándheimur 17/12hs 17/11 sú 17/9as 18/13hs 16/11sú