Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1991, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1991, Síða 3
FÖSTUDAGUR: 4. OKTÓBER ,1991. Dansstaðir Ártún Vagnhöfða 11, sími 685090 Hljómsveit Jóns Sigurðssonar ásamt Hjördísi Geirsdóttur söng- konu leikur fyrir dansi föstu- dags-, laugardags- og sunnudags- kvöld. Þorvaldur Halldórsson skemmtir á fostudagskvöld og Örvar Kristjánsson á sunnudags- kvöld. Blúsbarinn Laugavegi 73 Lifandi tónlist öll kvöld nema mánudags- og þriðjudagskvöld. Casablanca Diskótek föstudags- og laugar- dagskvöld. Dans-barinn Grensásvegi 7, sími 688311 Lifandi músík föstudags- og laugar- dagskvöld. Danshúsið Glæsibæ Álfheimum, s. 686220 Dansleikur föstudags- og laugar- dagskvöld. Fimman, Hafnarstræti, Dansleikur föstudags- og laugar- dagskvöld. Fjörðurinn Strandgötu, Hafnarfirði Loðnu rottumar leika fyrir dansi í kvöld og Sniglabandið á laugardags- kvöld. Fógetinn Sönghópurinn Snæfríður og stubbarnir skemmtir gestum Fógetans föstudags- og laugar- dagskvöld. Furstinn Skipholti 37, sími 39570 Lifandi tónlist föstudags- og laug- ardagskvöld. Gikkurinn Ármúla 7, sími 681661 Hljómsveitin Red House leikur föstu- dags- og laugardagskvöld. Draft happy hour kl. 18-21 alla daga. L.A. Café Laugavegi 45, s. 626120 Diskótek föstudags- og laugar- dagskvöld. Hátt aldurstakmark. Klúbburinn _. Borgartúni 32, s. 624588 og 624533. Fjólublái fillinn í kjallara er örðu- vísi krá með bíói þar sem sýndar eru gamlar kvikmyndir. Lifandi tónlist um helgar. Hótel ísland Ármúla 9, sími 687111 Aftur til fortíðar - íslenskir tónar í 30 ár“ nefnist ný söngskemmtun sem frumsýnd verður í kvöld. 2. sýning á laugardagskvöld. Að skemmtuninni lokinni leikur hljómsveitin Upplyft- ing fyrir dansi. Hótel Saga Hljómsveitin Smellir og Ragnar Bjarnason skemmta laugardags- kvöld. Moulin Rouge Diskótek á föstudags- og laugar- dagskvöld. Naustkráin Vesturgötu 6-8 Opið um helgina. Nillabar Strandgötu, Hafnarfirði Guðmundur Rúnar skemmtir föstudags- og laugardagskvöld. Tveir vinir og annar í fríi Laugavegi 45 Hljómsveitin G.C.D. heldur tónleika í kvöld. Á laugardagskvöld skemmtir Loðin rotta. Ölkjallarinn Pósthússtræti 17 BB bandið leikur föstudagskvöld og verður Anna Vilhjálms í farar- broddi. Á laugardagskvöld leikur hljómsveitin „Tvennir tímar“ Trúbadorinn Ingvar skemmtir á sunnudags- á mánudagskvöld. Ölver í Glæsibæ Karaoke-kráin opin öll kvöld og alla daga í hádeginu. Ráin Keflavík Rúnar Þór og Feðgabandið leika fyrir dansi föstudags- og laugardagskvöld. Eldfuglinn, nýstofnuð hljómsveit, leikur I fyrsta skipti opinberlega um helgina. Eldfuglinn Hin nýstofnaða hljómsveit, Eldfuglinn, leikur í fyrsta skipti opinberlega í veitingahúsinu K-17 í Keflavík í kvöld, föstudagskvöld. Eldfuglinn skipa þeir Karl Örvars- son söngvari, Hafþór Guðmunds- son trommuleikari, Sigurgeir Sig- mundsson gítarleikari, Grétar Örv- arsson hljómborðsleikari og söngv- ari og Þóröur Guðmundsson bassa- leikari. Á efnisskrá sveitarinnar eru lög af væntanlegri sólóplötu Karls sem kemur út um miðjan október, ásamt eldri smellum Kalla í bland við þekkt erlend stuðlög. Á laugardagskvöldið ætlar Eld- fuglinn að kynna sig fyrir Skaga- mönnum og spUa í Hótel Akranesi. G.C.D. Feðginin Hjálmfríður Þöll og Friðrik Guðni leika fyrir gesti Gullna hanans á sunnudagskvöld- um. Hjálmfríður Þöll syngur við undirleik Friðriks Guöna sígild dægurlög, djass, blús og rokk. Hljómsveitin G.C.D. heldur tón- leika á Tveimur vinum og öðrum í fríi í kvöld, föstudaginn 4. októb- er, og spilar á réttardansleik ársins í Njálsbúð á laugardagskvöld. G.C.D. leikur í Njálsbúð og Tveim- ur vinum um helgina. Feðginin leika fyrir gesti Gullna hanans. Feðgin á Gullna hananum Púlsinn: Meiri blús Blúsmenn Andreu og gestir leika á Púlsinum í kvöld og annað kvöld. Þá verður framhald á fjölmiðlabl- úsnum en skorað var á DV að senda sinn fulltrúa sem tók áskoruninni lérttilega og það verður ljósmyndari blaðsins og blúsáhugamaðurinn Ragnar Sigurjónsson sem treður upp með Blúsmönnum Andreu. Ragnar ætlar að skora á Stöð 2 að senda sinn fulltrúa a næstu blús- helgi Púlsins, sem verður 11. og 12. október. Vitað er að það er mikið af músíkölsku starfsfólki á Stöð 2 svo það verða varla vandræði fyrir Stöðina að taka áskoruninni. Að venju verður fiöldi gesta sem stígur á svið og blúsar fyrir mann- skapinn. „Happy draft Hour“ eða Lukkudælustund veröur milh klukkan 22 og 23. Það verður svo írska þjóðlaga- Fulltrúi DV á fjölmiðlablúsnum verður Ragnar Sigurjónsson* og hann syngur með Blúsmönnum Andreu um helgina. hljómsveitin Diarmuid O’Leary & The Bards sem skemmtir á sunnu- dagskvöld. Sveitin er vinsælasta þjóðlagasveit írlands og hefur skemmt víða um heim. Meðlimirn- ir eru miklir húmoristar og ná upp mikilli stemmningu. Þeir leika bæði eigið efni og aðra írska tónl- ist. Þá verður boðið upp á írskar guðaveigar í tilefninu. Þann 10. október næstkomandi á Púlsinn eins árs afmæli og alla næstu viku verður haldið upp á það. Vikan hefst með írsku kvöldi á sunnudag, á mánudaginn verður rólegt kvöld með píanótónlist, þriðjudagskvöld verður þunga- rokkskvöld sem Bootlegs leiða, miðvikudagskvöld verður tileink- að djassinum og á fimmtudags- kvöld koma fram nokkrir af helstu tónlistarmönnum Skífunnar. Sólin í 1929 Nú er tekið að hausta og sóhn er að mestu sest. Um helgina verður í síðasta skipti fyrir langt frí boðið upp á brennandi sólargeisla með sveitinni Síðan skein sól í 1929 á Akureyri. Sóhn er auðvitað klikkuð sveit og nokkuð víst að þeir í sólskins- deildinni taka snarpa syrpu nú rétt fyrir frí. Norðlendingar verða þeirrar gæfu aðnjótandi að kveðja piltana og vissara að mæta snemma til að komast inn fyrir gafl. Sólin spilar í kvöld og annað kvöld í 1929. Blúsbarinn: Djass og blús Á Blúsbarnum, Laugavegi 73, verður fiölbreytt blús- og djasstónl- ist um helgina. í kvöld, föstudags- kvöld, verður þaö blúshljómsveitin Perez sem framleiðir blús meö að- stoð píanós, saxófóns, bassa og tromma. Djasshljómsveitin Kvartett KGB leikur á laugardagskvöld með Kristján Guðmundsson í farar- broddi. Það verður síðan blústríóið The Freshmen sem skemmtir á sunnudagskvöld með kassagítarbl- ús. Heiðurs- mennog Kolbrún Hljómsveitin Heiðursmenn og Kolbrún verða með miðnæturtón- leika og dansleik í Grillskálanum á Hellu á laugardagskvöld. Heiðursmenn og Koibrún skemmta á Hellu á laugardags- kvöld. Grillskálinn á Hellu: Þeir Grettir Björnsson og Örvar Kristjánsson harmónikuleikarar ásamt Jónmundi Hilmarssyni trommuleikara skemmta gestum á Rauða Ijóninu um helgina. Rauða ljónið: Harmóníku- skemmtun Það mun kveða við annan tón á Rauða ljóninu á Eiðistorgi um helg- ina en verið hefur. í kvöld og annað kvöld verða það harmóníkuleikar- ar sem halda uppi fiörinu og óhætt er að gera ráð fyrir góðri stemn- ingu. Það verða þeir Grettir Björns- son og Örvar Kristjánsson sem leika á nikkurnar og þeim til að- stoðar verður Jónmundur Hilm- arsson á trommur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.