Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1991, Blaðsíða 28
52
MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1991.
>
Menning
Ó Carmela ★★★
Kabarett og borgarastyrjöld
Spánski leikstjórinn Carlos Saura hefur nánast átt
kvikmynd á öllum kvikmyndahátíðum sem haldnar
hafa verið á vegum Listahátíðar og hafa myndir hans
allar verið meðal hest sóttu myndunum. Svo ætti einn-
ig að vera um nýjustu kvikmynd hans Ó Carmela (Ay
Carmela) enda sérlega skemmtileg og ljúf kvikmynd
sem slær á marga strengi mannlífsins.
Myndin gerist 1938 þegar borgarastyrjöld geisaði á
Spáni. Aðalpersónurnar eru hjónin Carmela og Paol-
ino sem ferðast um styrjaldarsvæðin með kabarettatr-
iði ásamt mállausum aðstoðarmanni. Ekki er nú mik-
ið púður í sýningaratriðum þeirra en stríðshijáðir
lýðveldissinnar sem eiga samúð hjónanna taka þeim
samt vel. Þau ferðast um á bílskrjóði og eitt sinn í
þoku villast þau af leið og lenda hjá hermönnum
Francos sem setja þau í fangelsi. Listelskur ítalskur
herforingi tekur þau upp á arma sína og skipar þeim
að útbúa skemmtun þar sem lítið er gert úr lýðveldis-
hemum. Þetta snertir samvisku Paolino lítið en Car-
mela á erfitt með að sætta sig við áróðurinn og gerir
sitt ýtrasta til að koma skoðunum sínum á framfæri
í löngu atriði á'skemmtun þeirra.
Ó Carmela ej gerð eftir gömlum söngleik og er sögu-
þráðurinn sjálfur frekar ómerkilegur en Saura veit
nákvæmlega hvernig á að lífga við flatneskjuna og
nýtur til þess góörar aðstoðar hinnar frábæru Carmen
Maura sem svo sannarlega á skilið Felix-verðlaunin
sem hún fékk í fyrra fyrir leik sinn í þessari mynd. Ó
Carmela er fyrst og fremst gamanmynd en sterkur
undirtónn myndarinnar þar sem örlar á beinskeyttri
Kabaretthjónin stíga dansinn á sviðinu, Carmen
Maura og Andres Pajeres í hlutverkum sínum.
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
ádeilu gerir myndina eftirmimúlega.
Ö CARMELA (AY CARMELA)
Leikstjóri: Carlos Saura.
Kvikmyndun: Jose Luis Aleaine.
Aðalleikarar: Carmen Maura, Andres Pajeros og Cabino Di-
ego.
Gluggagægirinn: ★★★
Hárnákvæm og spennandi
Afbragðsmynd frá Fransmönnum gerð í nákvæmum
stíl sem unun er að horfa á.
Herra Hire býr á móti Alice og fær mikið út úr því
að fylgjast með henni óséður út um gluggann. Herra
Hire er elegant en fámáll og einfórull og hleypir engum
að sínum innra manni. Þegar Alice tekur hnýsni hans
furðuvel neyðist hann til að endurskoða hegðun sína.
Sagan er runnin undan rifjum konungs franskra
glæpasagna, Georges Simenon og er þetta í annað sinn
sem hún er kvikmynduð. Fyrst var þaö árið 1946 und-
ir heitinu Panique.
Leikstjórinn Leconte er sjóaður í auglýsingum og
það sést á sparsömum og hárnákvæmum tökunum og
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
lýsingunni en það er meðferð hans á sögunni sem
gerir útslagið. Hr. Hire er einkennileg persóna, þjakað-
ur og einrænn. Hann er náhvítur í framan og alltaf í
svörtum jakkafótum. Michel Blanc leikur hann snilld-
arlega og samleikur hans og Sandrine Bonnaire er
einstaklega sterkur. Samband Hr. Hire og Alice þróast
á óvæntan og spennandi hátt og senurnar með þeim
eru rafmagnaðar, hlaðnar erótík og áhættu. Ekki sak-
ar seiðandi tónlist Michael Nymans. Það eina sem
heldur myndinni niðri er að hún þarf að reiða sig á
nokkrar úreltar krimmaformúlur sem allir áhorfend-
Samband Hr Hire og Alice þróast á óvæntan og
spennandi hátt.
ur gjörþekkja og skemma aðeins fyrir lokakaflanum.
Án þeirra hefði myndin eflaust orðið meistaraverk.
Monsieur Hire (Frönsk - 1989, enskur texti) 80 mín. Handrit:
Patrice Leconte, Patrick Dewolfe, byggt á bók Georges Simen-
on, Les tiancailles de Monsieur Hire. Leikstjórn: Leconte.
Andlát
Gyða Stephensen er látin.
Rannveig Vigfúsdóttir andaðist á
Hrafnistu, Hafnarfirði, mánudaginn
7. október.
Aðalheiður I. Jónsdóttir, Hjarðar-
haga 60, Reykjavík, lést í Landa-
f kotsspítala 7. október.
Guðmunda Guðmundsdóttir andað-
ist á Hrafnistu í Hafnarfirði sunnu-
daginn 6. október.
Jarðarfarir
Svanhvít Sigurjónsdóttir, Sólvalla-
götu 28, Keflavík, andaðist í Sjúkra-
húsinu í Keflavík mánudaginn 7.
október sl. Jarðarförin fer fram frá
Keflavíkurkirkju laugardaginn 12.
október kl. 11 árdegis.
Björg Jónsdóttir frá Ingólfsfirði,
Réttarholti 9, Selfossi, sem lést á,
heimih sínu þann 6. október, verður
jarðsungin frá Selfosskirkju laugar- j
daginn 12. október kl. 13.30.
Brynjólfur Eiríkur Ingólfsson, fyrr-
verandi ráðuneytisstjóri, Miklu-;
braut 18, verður jarðsunginn fráj
Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtu-
daginn 10. október kl.13.30.
Guðjón Halldórsson skipstjóri lést 2.
október. Hann fæddist á Isafirði 18.
ágúst 1917, sonur hjónanna Halldórs
Friðgeirs Sigurðssonar og Svanfríö-
ar Albertsdóttur. Guðjón stundaði
sjóinn lengst af. Hann var tvíkvænt-
ur. Fyrri kona hans var María Re-
bekka Sigfúsdóttir og eignuðust þau
þijú böm. Þau slitu samvistum. Eft-
irhfandi eiginkona hans er Karlotta
Einarsdóttir. Þau eignuðust þijú
börn. Útför Guðjóns verður gerð frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag kl. 15.
Tilkyimingar
Sýning í Menningarstofnun
Bandaríkjanna
í dag, 9. október, verður opnuð sýning í
Menningarstofnun Bandaríkjanna á
bandariskum bókum og tímaritum um
umhverfismál. Á sýningunni verða um
380 titlar frá um 80 útgefendum. Við-
fangsefni þessara rita, sem flest eru gefm
út á árunum 1989-91, er umhverflsmál
séð frá öllum sjónarhomum, en meginá-
herslan er á þau atriði sem helst hafa
verið í brennidepli undanfarin ár: Gróð-
urhúsaáhrif og loftmengun, súrt regn,
offjölgun, orkumál, vatnsmengun, eyðing
skóga og þurrkar. Þá eru nokkur sýnis-
hom bóka sem fjalla um það hvemig
hægt er að hafa áhrif á umhverfið með
breyttum lifnaðarháttum og samfélags-
legum aðgerðum. Sýningin verður opin
á afgreiðslutíma Bandaríska bókasafns-
ins frá kl. 11.30 til 18 alla virka daga til
31. október.
Áttavitanámskeið fyrir
ferðamenn
Eins og undanfarin fimm ár gengst hjálp-
arsveit skáta í Reykjavík fyrir námskeiði
í meðferð áttavita og landabréfa fyrir
ferðamenn. Á námskeiðinu verða einnig
veittar upplýsingar um heppilegan fatn-
að til útiveru að hausti og vetri til. Nám-
skeiðið stendur yfir tvö kvöld í senn og
em fyrirhuguð þjú námskeið á þessu
hausti. Það fyrsta fer fram 9-10. okt.,
annað 16.-17. okt. og síðasta námskeiðið
er fyrhhugað 23.-24. okt. Námskeiöin era
í húsnæði hjálparsveitar skáta í Reykja-
vík að Snorrabraut 60 kl. 20 bæði kvöld-
in. Nánari upplýsingar em veittar í
skátabúðinni i símum 12045 og 624145.
Þessi námskeið em opin öfium og tilvalin
fyrir t.d. ijúpnaskyttur, skíðagöngu-
menn, vélsleðamenn, jeppafólk og aUa
aðra sem ferðast um fjöll og fimindi.
Ferðalög
Ferðafélag íslands
Miðvikudagur 9. okt. kl. 20.30
Hornstrandamyndakvöld
Fyrsta myndakvöld vetrarins veröur í
kvöld, 9. október, í Sóknarsalnum Skip-
holti 50a og hefst það stundvíslega kl.
20.30. Homstrandaferðh Ferðafélagsins
nutu óvenjumikiUa vinsælda í sumar en
á annað hundrað manns tóku þátt í ferð-
unum. Ætlunin er að sýna Utskyggnur
frá ferðunum í Homvik-Hlöðuvík 3.-9.
og 10.-19. júU og Hlöðuvík-Hesteyri 8.-16.
ágúst og Homstrandagöngunni 1991. Síð-
ast en ekki síst verður eftir hlé sýnt
myndband sem Hjálmtýr Heiðdal tók í
Myndgáta
einni ferðanna. Góðar kaffiveitingar í daginn og veginn. Upplýsingar veita
hléi. Allh velkomnh, jafnt félagar sem GunnhUd í s. 36444 og Fanney í s. 687204.
aðrir.
Fundurinn er öUum opinn. Mætum
stundvislega.
Fundir
Kvennadeild Flugbjörgunar-
sveitarinnar
heldur fund í kvöld, 9. október, kl. 20.30
í nýja félagsheimilinu við FlugvaUarveg.
Á fundinum verður rætt um vetrarstarf-
ið.
ITC Melkorka
Opinn fundur ITC Melkorku verður
haldinn í dag, 9. október, kl. 20 í Menning-
armiðstöðinni í Gerðubergi í Breiðholti.
Stef fundarins er „AUt er fertugum fært“.
Á dagskrá era m.a. paUborðsumræður,
fræðsla í ræðumennsku og erindi um
Tapað fundið
Tölvuborð af Pioneer tæki
tapaðist í Sportklúbbnum
Aðfaranótt laugardagsins 28. september
glataðist í Sportklúbbnum, Borgartúni,
Utið svart box með tölvuborði framan af
bfitæki, merkt Pioneer DEH 760. Þetta
tæki nýtist engum nema eiganda þess þar
sem bfltækið vantar tfl að hægt sé að
nota það. Þeh sem kynnu að hafa tækið
undh höndum era vinsamlegast beðnir
um að hafa samband við Ágúst Amar í
síma 23030 eftir kl. 16 eða Kristinu í síma
676296 á daginn.
Leikhús
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
DÚFNAVEISLAN
eftir Halldór Laxness.
8. sýning í kvöld. Brún kort
gilda. Uppselt.
9. sýning laugard. 12. okt.
10 sýn. þriðjud. 15. okt.
11. sýn. fimmtud. 17. okt.
ÁÉG HVERGIHEIMA?
eftir Alexander Galín.
Leikstjóri. María Kristjánsdótt-
ir.
Föstud. 11. okt.
Föstud. 18. okt.
Litla svið:
Þétting
eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson
Leikmynd: Jón Þórisson.
Búningar: Jón Þórisson og
Aðalheiður Alfreðsdóttir.
Lýsing: Ögmundur Þór Jóhann-
esson.
Tónlist: Sveinbjörn I. Baldvins-
son og Stefán S. Stefánsson.
Leikstjóri: Hallmar Sigurðsson.
Leikarar: Ása Hlín Svavarsdótt-
ir, Jón Júlíusson, Kristján
Franklín Magnús, Pétur Einars-
son, Sigrún Edda Björnsdóttir,
Sigrún Waage, Soffia Jakobs-
dóttir, Sverrir Örn Arnarson og
Theodór Júlíusson.
Leikhúsgestir, athugiðl
Ekki er hægt að hleypa inn eftir
að sýning er hafin.
Frumsýning fimmtud. 10. októb-
er. Uppselt.
Föstud. 11. okt.
Laugard. 12. okt.
Sunnud. 13. okt.
Kortagestir, ath. að panta þarf
sérstaklega á sýningar á litla
sviðið.
Miðasala opin alla daga frá kl.
14—20 nema mánudaga frá kl.
13-17. Miðapantanir i síma alla
virka daga frá kl. 10-12.
Sími 680680.
Leikkváslínan
Leikhúskortin, skemmtileg nýj-
ung, aðeins kr. 1000.
Gjafakortin okkar,
vinsæl tækifærisgjöf.
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavikur.
Borgarleikhús.