Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1991, Síða 5
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1991.
35
Bílar
smíöa á Astra.
Meö þessum sjö verksmiðjum verð-
ur framleiðslugetan orðin í kringum
800.000 bílar á ári og þar með verður
Astra orðinn sá bíll sem framleiddur
verður í mestu magni innan Evrónu-
deildar GM, Vauxhall/Opel, vel á
undan Vectra, sem þó er framleiddur
í miklu magni í mörgum verksmiðj-
um.
Breytingarnar
frá Kadett
Þótt Astra sé ætlað að vera arftaki
Kadett eru breytingamar það miklar
á milli bílanna að Astra er í raun
alveg af nýrri kynslóð. Til að skýra
þetta nánar er helstu breytinganna
getiö hér á eftir.
Betri öryggisbelti. Sjálfvirk strekk-
ing á beltum í framsætum, stillanleg
hæð á öryggisbeltum bæði í fram- og
aftursætum. Sterkari sætasleðar.
Aukið öryggi vegna stálstyrkinga í
hurðum sem eiga að minnka hættu
á áverkum vegna hliðarárekstra.
Nýr, öflugri lofthreinsibúnaður
kemur í veg fyrir að frjókom og
smáagnir komist inn í bíhnn og betri
hringrás lofts inni í bílnum getur
lokað úti reyk og aðra mengun ef á
þarf að halda.
Hvarfakútar, nú einnig á dísilvél-
um, gera bílana „vistvænni" ef svo
má að orði komast (þetta er víst
„bannorð" um bíla) þessa dagana.
Mikil áhersla lögð á endumýtanleg
efni til smíði Astra.
Fjölupplýsingaskjár sem gefur
upplýsingar um útvarp á nýjan hátt
ásamt upplýsingum um ástand bíls-
ins, klukku og aksturstölvu. Þessi
skjár gefur á fljótari hátt upplýsingar
um bílinn og aksturinn auk þess sem
hann minnkar möguleika á því aö
útvarpinu sé stolið úr bílnum þvi
búið er að skilja skjáinn frá útvarp-
inu sjálfu.
Rafeindastýrð spyrnustýring í GSi
16V-bílnum sem kemur í veg fyrir
spól framhjóla og gefur auk þess
betri vegfestu.
Endurbætt hemlakerfi
Yfirbygging mikið styrkt eða sem
nemur 34% frá Kadett. Þetta gefur
farþegum meira öryggi í akstri auk
meiri þæginda.
Nýr framás með nýjum og endur-
bættum burðarbitum sem gefur
minna veghljóð og betri askturseig-
inleika.
Rúður falla slétt við yfirborð yfir-
byggingar. Þetta gefur minna vind-
gnauð í akstri.
Stærri gluggar og minni póstar gefa
mun betra útsýni.
Hærri og breiðari „káeta“ sem gef-
ur t.d. 50 mm meira hnjárými fyrir
aftursætisfarþega.
Meiri sporvídd, 30 mm að framan
og 23 að aftan, gefur betri aksturseig-
inleika.
Aflstýri fáanlegt með öllum vélar-
stærðum, nokkuð sem gefur léttari
stýringu og þar með aukið öryggi í
akstri.
Innbyggður vindkljúfur í þaki sem
gefur allt að fimmtíu af hundraði
minni lyftikraft að aftan sem gefur
meiri stöðugleika í beinum akstri.
Þessi nýi Astra er árangur langrar
og strangrar hönnunar frá Opel. Bíll-
inn á til dæmis meira en tvö þúsund
stundir að baki í vindgöngum sem
gefið hefur minni loftmótstöðu (0,32)
og minna vindgnauð.
Áerindihingað
Eftir að hafa skoðað Astra á bíla-
sýningunni í Frankfurt á dögunum
er ég þess fúllviss að þessi bíll á er-
indi á markað hér á landi. Undan-
farið hefur verið hljótt um Opel á
íslenska bílamarkaðnum ólíkt því
sem var fyrir einhverjum árum þeg-
ar Opel átti sinn fasta hluta markað-
arins. Hátt gengi þýska marksins og
krossferð japanskra bílaframleiö-
enda á Evrópumarkaö hefur rutt
Opel af stalli síðustu ár en nú gæti
vel farið svo að Astra gæti endur-
heimt sinn „skammf' ef þeim hjá
Jötni semdist um viðráðanlegt verð.
Eitt er víst að bíllinn er vel sam-
keppnisfær á okkar harða markaði
hvað útlit, hönnun og stærð viðkem-
ur. -JR
Mikið var lagt upp úr því við hönnun Astra að sameina það besta sem hönnuðir Opel höfðu þegar komið með fram í öðrum gerðum og að bæta við
nýjum atriðum eins og styrkingu í hliðum og sjálfstrekkjandi öryggisbeltum.
Mælaborðið í Astra GSi 16V er meðal annars með „Multi Information .
Display" sem staðalbúnað en þessi tölvubúnaður gefur ma upp hve langa
leið hægt er að aka á því bensini sem eftir er i tanknum.
Nýting farangursrýmisins er mjög góð og það mátt heyra þær raddir í
Frankfurt að nú væri möguleiki að endurheimta þær miklu vinsældir sem
Opel Caravan naut fyrir rúmum tveimur áratugum.
El HEKLA HF. KYNNIR
stórsýningu á notuðum bílum
á landsbyggðinni.
Tugir uppítökubíla til sýnis þessa helgi
hjá eftirtöldum umboðsaðilum:
Bílanesi Bílasölu
Njarðvik Selfoss
s. 92-15944 s. 98-21655
Opið laugardag 10-18 og sunnudag 10-16
Góðir bílar á góðu verði, greiðslukjör við allra hæfi
GRÍPTU GÆSINA MEÐAN HÚN GEFST!