Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1991, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1991, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1991. 37 Bílar Citroén ZX „bíll ársins 1992" í Danmörku: Stærðin og verðið ásamt fjölhæfni skipti mestu máli Hér er Ellen Nörregaard, blaöafulltrúi Citroén í Danmörku, kampakát eftir sigurinn í síðustu viku, en þetta er i fyrsta sinn sem Citroén nær þessum titli í Danmörku. Það kom nokkuð á óvart hvernig þeir ellefu bílar sem voru með í valinu á „bíl ársins 1992“ í Dan- mörku röðuðust þegar dönsku blaöamennirnir 31 voru búnir að greiða atkvæðin. Við greindum frá úrslitunum- í DV-bílum um síðustu helgi en þetta varð útkoman: 1. Citroe...nZX..............235 2. Opel Astra...............174 3. Peugeot 106..............146 4. VW Golf...................81 5. Volvo 850.................46 6. RenaultClio..............„29 7. Mazda 121.................25 8. Audi 100..................11 8. ToyotaCamry...............11 10. Nissan Sunny..............5 11. Mazda MX-3................1 Það sem vó þyngst á vogarskálum. dönsku blaðamannanna var verð, stærð og alhliða notagildi viðkom- andi bíls. Citroen ZX náði sér í flest stig á þessum grunni. Danir eru með heldur þýngri álögur á bíla en við hér heima og því eru bílar þar heldur dýrari en hér hjá okkur. Sem dæmi um verð kosta ZX, fimm hurða og fimm gíra með 1,4 lítra vél, 130.000 danskar krónur eða sem svarar 1.196.000 íslenskum krónum. Allir dönsku blaðamann- anna voru sammála um að bílar á borð við Volvo 850, Audi 100 og Toyota Camry væru framúrskar- andi bílar en há gjöld til danska ríkisins senda þessa bíla í svo háan verðflokk, eða sem svarar 3.680.000 ísl. krónum fyrir Volvoinn og um 2.760.000 fyrir Camry, að þessir bíl- ar fengu ekki náð fyrir augum. döiisku blaðamannanna. Þeir við- urkenndu að „venjulegir" fjöl- skyldubílar ættu frekar upp á pall- borðiö hjá þeim í þessu vali. Opel Astra, sem lenti í öðru sæti, fékk sérstaka viðurkenningu fyrir sjálfstrekkjandi öryggisbelti sem er talin mikil framfór í öryggismál- um. Volvo 850 sem komst í 5. sæti hlaut að þessu sinni sérstök heið- ursverðlaun sem dönsku blaða- mennirnir veita árlega fyrir tækni- legar nýjungar sem þykja skara framúr. Volvo fékk verðlaunin að þessu sinni fyrir sérstakt öryggis- kerfi sem verndar ökumann og far- þega í hliðarárekstri. Nýjar reglur í vali á „bíl ársins“ urðu til þess að nýir bílar eins og Astra, Golf og Peugeot 106 ásamt Toyota Camry, sem ekki eru enn komnir í sölu í Danmörku, gátu keppt við bíla eins og Nissan Sunny og Mazda 121 sem voru búnir aö vera þar á markaði í marga mán- uði. Þetta er einkum talin vera ástæðan til þess að Nissan Sunny fékk ekki fleiri stig en raun bar ýitni. Dönsku blaðamennirnir 31 greiddu bílnum ellefu atkvæði sín eftir um 7.500 kílómetra akstur um Jótland og á „Jyllands-Ringen" á þriðjudag og miðvikudag í síðustu viku. Hver blaðamaður hafði 25 stig til umráða. Valið á bíl ársins í Danmörku þykir oft vera vísbending um það hvernig valið á „bfl ársins í Evr- ópu“ fer hverju sinni því oftar en ekki hefur þetta farið saman. Hvort það verður uppi á teningunum nú skal ósagt látið. Bíll ársins - sigurveg- arar fyrri ára: Ár...........Danmörk / Evrópa 1982 ........VW Polo / Renault 9 1983 ........Ford Sierra / Audi 100 1984 ........Fiat Uno / Fiat Uno 1985 ....Opel Kadett / Opel Kadett 1986 ..Ford Scorpio / Ford Scorpio 1987 ....Peugeot 309 / Opel Omega 1988 ....Peugeot 405 / Peugeot 405 1989 ........Fiat Tipo / Fiat Tipo 1990 ....Renault 19 / Citroen XM 1991 ..NissanPrimera/RenauItClio Svona lítur listi síðustu ára út. Ný er búið að velja Citroén ZX sem bíl ársins í Danmörku, en við verðum að bíða fram til 1. desember til að sjá hvaða bíll fær náð fyrir augum 57 bílablaðamanna hvaðanæva úr Evrópu og hlýtur sæmdarheitið „bíll ársins 1992 í Evrópu". -JR(BT Bilen) Opið alla virka daga kl. 10.00 -19.00 og laugardaga kl. 13.00 -17.00 TILBOÐ VIKUNNAR! Mazda 626 1600, árg. 1983, góður blll. Verð 330 þús., tilboðsverð 240 þús. Okkur vantar notaða Renault og BMW á söluskrá , _. _ Saab 99GLÍ, árg. 1981. Ford Fairmoint, 6 cyl., BMW 316, árg. 1982. Verð Toyota Corolla liftback, Chevrolet Monza, árg. BllaUmbOOIO nf Verö 270 þúsund. Góður sjállskiptur, ekinn aðeins 290 þús. Góður bill. árg. 1984, 5 dyra, 5 gira. 1987, sjálfskiptur, ekinn Krókhálsi 1,110 Reykjavík bilL 76 þ. km. Verð 180 þús. Verð 370 þús. 25 þús km. Verð 570 þús. Sími 686633 og 676833 ö 0 Tökum notaða bíla upp í notaða Greiðslukjör til allt að 24 mánaða Allir BMW og Renault bílar eru yfirfarnir fyrir veturinn otaðir bílar i miklu úrvali! Mazda E-2200, sendibill, Nissan Sunny 1500 SLX, Renault Express með árg. 1987. Verð 850 þús- árg. 1987, 3ja dyra. Verð gluggum, árg. 1987. Verð und. Góður bill. 570 þús. Fallegur bill. 570 þús. Góður bill. BMW 318i, árg. 1984, 2 BMW 316, árg. 1987, 4 Skoda 105S, árg. 1986. Chevrolet Celebrity, árg. Chevrolet Blazer 4,3, árg. dyra. Verð 680 þús. 'V dyra. Verð 890 þúsund. Verð 120 þús. 1986, hraðastillir, vökva- 1988, sportútgáfa með Toppeintak. stýri o.fl. Verð 850 þús. öllu. Verð 2,2 mill.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.