Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1991, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1991, Side 3
FÖSTUÐAQHJR 25, ORTÓBERi 19914 19 Dansstaðir Apríl Hafnarstræti 5 Diskótek um helgar. Ártún Vagnhöfða 11, sími 685090 Hljómsveit Jóns Sigurðssonar ásamt Hjördísi Geirsdóttur söngkonu leikur fyrir dansi fostudags-, laugardags- og sunnudagskvöld. Café Jensen Þönglabakka 6, sími 78060 Lifandi tónlist fimmtudaga til sunnu- daga. Þórarinn Gíslason leikur á píanó. Casablanca Diskótek fostudags- og laugardags- kvöld. Dans-barinn Grensásvegi 7, sími 688311 Vetrarfagnaöur um helgina. Hljóm- sveitin Mannakom leikur fyrir dansi föstudags- og laugardagskvöld. Sér- stakur gestur helgarinnar verður Megas. Danshúsið Glæsibæ Álfheimum, s. 686220 Dansleikur fostudags- og laugardags- kvöld. Fjörðurinn Strandgötu, Hafnarfirði Vetrarfagnaður um helgina. Snigla- bandið skemmtir. Furstinn Skipholti 37, simi 39570 Lifandi tónhst fostudags- og laugar- dagskvöld. Garðakráin Garðatorgi, Garðabæ Lifandi tónlist og dans föstudags- og Iaugardagskvöld. The Rockville Trolls leika kántrírokk í kvöld. Gikkurinn Ármúla 7, sími 681661 Trúbadorinn Haraldur Reynisson skemmtir á föstudags- og laugardags- kvöld. Hótel Borg Pósthússtræti 11, sími 14440 Dansleikur í kvöld, Kiddi Bigfoot í búrinu. Hótel ísland Ármúla 9, sími 687111 Aftur til fortíðar - íslenskir tónar í 30 ár nefnist ný söngskemmtun á Hótel íslandi. Að skemmtuninni lok- inni leikur hljómsveitin Upplyfting fyrir dansi. Hótel Saga Hljómsveitin Einsdæmi leikur fyrir dansi. Skemmtidagskráin Nætur- vaktin á laugardagskvöld. Klúbburinn Borgartúni 32, s. 624588 og 624533 Fjólublái fíllinn í kjallara er öðruvísi krá með bíói þar sem sýndar eru gamlar kvikmyndir. Lifandi tónlist um helgar. L.A. Café Laugavegi 45, s. 626120 Diskótek föstudags- og laugardags- kvöld. Hátt aldurstakmark. Moulin Rouge Diskótek á fóstudags- og laugardags- kvöld. Naustkráin Vesturgötu 6-8 Opiö um helgina. Nillabar Strandgötu, Hafnarfirði Kuba Libra skemmta um helgina. Staðið á öndinni Tryggvagötu Klang og kompaní leika um helgina. Tveir vinir og annar í frii Laugavegi 45 Tónléikar í kvöld með finnsku rokk- sveitinni 22 Pisterpirkko og Risaeðl- unni. Á laugardagskvöld leikur Soul- blómi. Á sunnudagskvöldið verða það 22 Pisterpirkko og Bless sem leika. Ölkjallarinn, Pósthússtræti Hljómsveitin Tvennir tímar leikur á föstudags- og laugardagskvöld. Á sunnudags- og mánudagskvöld verð- tnr þaö trúbadorinn Hilmar Sverris sem skemmtir gestum. Ráin Keflavík Vestmannaeyjagleðk • Niðri á dans- staðnum verða hinir landsfrægu Pap- ar sem sjá um fjörið fóstudags- og laugardagskvöld. Á annari hæð verða á fóstudagskvölduö hljómsveit- in Ágjöf með Jóni Vikingssyni en á laugardagskvöld verður það hljóm- sveitin Léttir frá Vestmannaeyjum. Magga Stína, einn af meðlimum Risaeðlunnar, en sú hljómsveit kemur fram ásamt þremur öðrum á Tveimur vinum um helgina. Tveir vinir og annar í fríi: Fjórar sveitir um helgina Það verða hvorki fleiri né færri en fjórar hljómsveitir sem leika á Tveimur vinum og öðrum í fríi um helgina. í kvöld, fóstudagskvöld. verða stórtónleikar en þá koma fram flnnska rokksveitin 22 Piste- pirkko og Risaeðlan. 22 Pistepirkko komu hingað til lands í mars síð- astliðnum og héldu nokkra tón- leika á Tveimur vinum sem margir muna eftir. Þeir hafa gefið út 3 LP plötur og platan Bare Bone Nest, sem þeir gáfu út á síðasta ári, var valin besta plata ársins af mörgum virtum tónlistargagnrýnendum. Risaeðlan kemur einnig fram í kvöld og munu margir bíða spennt- ir eftir því þar sem mannabreyting- ar hafa átt sér stað í sveitinni og nýjar stefnur teknar upp. Ein af yngri sveitum borgarinn- ar, Ber að ofan, leikur á laugar- dagskvöld með pomp og prakt. Það verða síðan 22 Pistepirkko og hljómsveitin Bless sem leika á sunnudagskvöld. Bjartmar á Hressó Bjartmar Guðlaugsson heldur tónleika á^Hressó í kvöld, föstu- dagskvöld, og heíjast þeir klukkan 22, stundvíslega. Fjölskyldutón- leikar verða svo á sama stað á sunnudaginn, 27. október, og þeir heijast klukkan 15. Á efnisskrá tónleikanna verður nýtt efni í bland við gamalt en eink- um þó af fyrstu tveimur hljómplöt- um kappans sem eru um þessar mundir að koma út á geisladisk. Þessir tónleikar eru upphaf á landsbyggðareisu Bjartmars sem standa mun yflr i vetur og fram á vor. Þá er væntanleg ný hljómplata úr smiðju hans með vorinu en þá verða liðin tæp þrjú ár frá því plat- an Það er puð að vera strákur var gefin út. Hljómsvertin Mannakorn spilar á Dansbarnum, Grensásvegi, um helgina og sérstakur gestur sveit- arinnar er meistari Megas. Megas hefur spilaó með Mannakornum undanfarnar helgar en sú nýjung verður i vetur að bjóða gesta- söngvurum að leika eða syngja með hljómsveitinni. Todmobile á hring- ferð um landið Á næstu vikum mun hljómsveit- in Todmobile ferðast hringinn í kringum landið og halda tónleika nær daglega. Allt kapp hefur verið lagt á að gera tónleikana sem best úr garði, enda mun þetta vera í fyrsta sinn sem tónleikaferð af þessu tagi og stærðargráðu er farin hér á landi. Ljósa- og hljóökerfi ásamt búningum leikur stórt hlut- verk með tónlistinni. Tónleikar verða haldnir á íjöl- mörgum stööum þar sem Todmo- bile hefur ekki komið fram áður, svo sem í Ólafsvík, á ísafirði, Blönduósi, Sauðárkrók, Ólafsfirði, Húsavík, Neskaupstað, Egilsstöð- .um og Vestmannaeyjum. Þá mun sveitin koma fram á Akranesi, Akureyri, Selfossi og Keflavík. Hljómsveitina Todmobile skipa þau Andrea Gylfadóttir, söngur, Eyþór Arnalds, söngur og selló, Þorvaldur B. Þorvaldsson, gítar og söngur, Eiður Arnarsson, bassi, Kjartan Valdimarsson, hljómborð, Matthías M.D. Hemstock, tromm- ur, og Jóhann Hjörleifsson, slag- verk. Um tæknilegu hliðina sjá þeir Óli 0der Magnússon, ljós, Gunnar Árnason, hljóð, Ingólfur Magnús- son, rót, og Árni Kristjánsson, sviðsstjórn. Búninga hannaði Rós- berg Snædal. Todmobile heldur tónleika í Ól- afsvík í kvöld og á ísaflrði á laugar- dagskvöld og síðan verður strand- lengja íslands þrædd réttsælis næstu 3^ vikurnar. Todmobile verður á tónleikaferðalagi um landið næstu 3-4 vikurnar. Fógetinn: Snæfríður og stubbamir Loksins munu hinir stórvara- sömu gleöigjafar frá Þorlákshöfn, Snæfríður og stubbarnir. gefa reykvískum hljómunnendum tækifæri til aö hlusta á og taka þátt í rammíslenskri tónaveislu sem samanstendur einkum af mik- illi sönggleöi, léttum húmör og skoplegum uppákomum. Þetta ku vera eina hljómsveitin á Fróni sem er með slíka tilhögun á laga- og textavali. Hljóðfæraskipan hjá Snæfriði og stubbunum er ansi frábrugðin hinni stöðluðu reykvísku-pöbba- spilamennsku. Hermann Jónsson leikur á mandólín, púkur, gitar, als oddi, raddbönd og móur. Rúnar Jónsson leikur á bassa, raddbönd og súrur. Sigríöur Kjartansdóttir leikur á þverflautu, tinflautur, soppur og raddbönd. Torfl Áskels- Snæfríður og stubbarnir eru með öðruvísi tónlist, svona eins og nafniö gefur til kynna. Hljómsveitin leikur á Fógetanum um helgina. son leikur á gítar, jentur, radd- bönd, stjórnar skipulögðum leið- indum og áreitni. Þeir félagarnir koma til með að spila á Fógetanum í kvöld og annaö kvöld og flytja þar einkum írsk- íslenska pöbba- og gleðitónlist að hætti hússins. Þetta er öðruvísi. Gaukur á Stöng: Nafnlaus hljómsveit Ný hljómsveit, skipuð ungum og óreyndum og gömlum og gamal- reyndum hljóðfæraleikurum, mun skemmta gestum á Gauki á Stöng í kvöld og annað kvöld. Hljómsveit- in er svo ný af nálinni aö ekki hef- ur verið fundið nafn á hana ennþá en víst er að piltarnir eiga eftir að koma skemmtilega á óvart. Það verður því nafnlaus hljómsveit á Gauknum. Á sunnudagskvöldið leikur Rokkabillyband Reykjavíkur sem ætlar að sjá gestum fyrir mikilli stemningu. Tónleikar í Samspili Hljóðfæraverslunin Samspil, Laugavegi 168. heldur tónleika (jam-session) á morgun, laugardag- inn 26. október, frá klukkan 14 til 18 i tilefni þess að ný verslun verð- ur opnuð. Ýmsir þekktir tónlistarmenn koma fram, þar á meðal Loðin rotta, Orgill, Vinir Dóra, Súld, Szymon Kuran og fleiri. Samspil er alhliða hljóðfæra- verslun en sérhæfir sig í slagverks- hljóðfærum. Aðgangur er ókeypis. Eldfuglinn á Inghóli Eldfuglinn leikur fyrir dansi á Inghóli á Selfossi á laugardags- kvöld. Um er að ræða almennan dansleik og eru allir hvattir til að mæta. Eldfuglinn kynnir lög af sólóplötu Karls Örvarssonar, Eld- fuglinn, en leikur að sjálfsögðu önnur lög. Hljómsveitin tekur þátt í Landslaginu ’91 en úrslit í því verða 29. nóvember næstkomandi. Kántrí-tónlistin er í hávegum höfð á kántrikránni i Borgarvirkinu og það er að sjálfsögðu hreinræktuð kántríhljómsveit sem spilar. Kántríkráin í Borgarvirk- inu 1 árs Kántríkráin i Borgarvirkinu heldur nú um helgina upp á eins árs afmæli sitt og býöur við það tækifæri upp á kokkteil í kvöld, milli klukkan 18.30 og 21.00. Frá því í sumar hefur kráin ein- göngu spilað kántrítónlist og fékk til liðs við sig tónlistarmennina Einar Jónsson, gitarleikara og söngvara, Pétur Pétursson hljóm- borðsleikara og Torfa Ólafsson, bassaleikara og söngvara. Einnig hefur Anna Vilhjálms komið fram með hljómsveitinni á fimmtudög- um og sunnudögum og mun halda því áfram. Undanfarnar vikur hef- ur Bjarni Arason sungið sem gesta- söngvari á föstudags- og laugar- dagskvöldum. Þar sem þetta hefur fengið mjög góöar undirtektir hefur kántríkrá- in gengið til liðs við nýstofnaöan kántríklúbb á íslandi sem nú þegar hefur um 170 meðlimi. Klúbburinn hyggst, i samstarfi við kántríkrána, brydda upp á ýmsum nýjungum í framtíðinni, bæði meö erlendum og innlendum kántríuppákomum. Púlsinn: Tregasveitin og Plato Tregasveitin leikur á Púlsinum í kvöld, föstudagskvöld og annað kvöld. Tregasveitina skipa þeir Pétur Tyrfmgsson, sem syngur og spilar á gítar, Guðmundur Péturs- son gítarsnillingur, Sigurður Sig- urðsson, munnhörpuleikari og blússöngvari, Björn Þórarinsson bassaleikari og Guöni Flosason trommuleikari. Von er á ýmsum góðum gestum á sviðið með Tregasveitinni, þar á meðal fulltrúa frá Rás 2 í fjölmiðla- blúsaraeinvíginu en Sjónvarpið skoraði á Rás 2 að senda sinn full- trúa þessa helgi. í tilefni íslensks tónlistardags á laugardag verður hin efnilega hljómsveit Plato, sem leikur gull- aldarrokk í þyngri kantinum, gest- ur kvöldsins. Plato er úr Garða- bænum og sveitina skipa þeir Guð- finnur Karlsson söngvari, Starri Sigurðsson bassaleikari, Jón Örn Arnarsson trommari og Kristbjörn Búason gítarleikari. Plato leikur einnig á Púlsinum á sunnudagskvöld. Rúnar Þór spilar ásamt hljómsveit á Rauða Ijóninu á Eiðistorgi um helgina. Rúnar Þór kynnir lög af nýútkominni plötu sinni, Yfir hæð- ina, og leikur einnig lög af öðrum plötum sinum og önnur óskalög. Með Rúnari spila þeir Jón Ólafs- son á bassa og Jónas Björnsson á trommur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.