Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1991, Síða 12
30
» • * » # • H • # f-
if-ef íISHOT/lO .Öfi íIÚOAQ'J >líVCf 1M
MIÐVIKUÐAGUÍT 30. OKTÓBER 1991-.
Tíska
DV
Stakir
jakkar
í lit
íveturbermikiðá
stökum jökkum, ein-
hnepptum eðatví-
hnepptum, oglitagleðin
er afar skemmtileg.
Karlmenn eiga nú þess
kost að velja á milli hta
og lyfta sér svolítið upp
úr „gráum hversdags-
leikanum" þegar kemur
aðfatavali. Dökku
jakkafötin halda velli í
þeim tilfellum sem
þeirra er krafist en utan
þess geta menn leyft sér
að ganga í stökum og lit-
fallegum jökkum. Gulir,
rauðir, fjólubláir, og
grænir htir eru gjald-
gengir á alla en velja
verður skyrtur og buxur
í stíl svo og hálsbindi ef
það er notað.
sjá má.
Dæmigerður karlmannajakki úr kasmírull frá Thierry Mugler. Þessi jakki
er hárauður sem er ekki klassískasti liturinn er fer vel með svörtu eins og
í KRINGLUNNI S 689811
í HVERAFOLD S 676511
NÝJUNG!
ÞÚ GEFUR UPP NÚMERIÐ
Á KREDITKORTINU OG
VIÐ SENDUM UM HÆL
í PÓSTI, EINNIG PÓSTKRAFA
Þröngt
er í tísku
í haust og vetur ber töluvert á
niðurþröngum karlmannabuxum í
anda bítlatímans. Þó þarf ekki skó-
hom til að klæða sig í buxurnar
eins og í gamla daga. Viddin og fell-
ingarnar eru þó ekki á undanhaldi
en hinn þröngi stíll höföar frekar
til ungu mannanna. Þó buxurnar
minni á bítlatímann er skófatnað-
urinn sem kemur niður undan
skálmunum ekki samkvæmt þeirri
línu heldur afar klassískur og
venjulegur. Buxurnar eru lika í
aðeins styttra lagi eða að minnsta
kosti styttri en við höfum átt að
venjastsíðustu misseri. Brúnirlitir
eru vinsælir og eíhið er ýmist bóm-
ull eða uh.
Ullarbuxur frá Hermés, grófgerðar
og með uppábroti. Fiauelsbuxur
frá Romeo Gigli, engar fellingar
að framan og þröngar neðst.
Herratískan:
Miklir frakkar
í anda milli*
stríðsáranna
Hvað er notalegra en að bregða sér
í þykkan, mjúkan og stóran frakka
þegar frost og snjór er úti. Sam-
kvæmt því sem tískan segir í vetur
eiga frakkarríir að vera víðir og stór-
ir úr fallegri ullarblöndu, kasmír og
angóra eru algengar ullartegundir í
þeim vönduðustu. Síddin getur verið
hvernig sem er; stuttir frakkar eða
þeir sem ná niður á kálfa eru jafn-
gjaldgengir. Andi Humprey Bogarts
og fleiri kvikmyndastjama þess tíma
svífur yfir vötnunum.
Allir jarðlitir eru vinsælir í dag.
Flestir brúnir tónar frá kamellit yfir
í dökk- og ryðbrúnt. Grátt og grænt
gengur líka en minna ber á svarta
litnum.
Algengast ér að frakkarnir í dag
séu tvíhnepptir með áberandi vös-
um, stundum utanáliggjandi og erm-
arnar víðar og gjarnan með uppá-
broti. Kragarnir eru stórir og miklir
ognávelútáaxlir. -JJ
Stór og mikill frakki með utanáliggj-
andi vösum úr biöndu úr ull og
kasmir frá Valentino Couture. Frakk-
inn er dökkbrúnn en fötin innundir
eru svört.
Þessi ullarfrakki er afar klassiskur i
sniði og fer vel við fin föt. Liturinn
er millibrúnn. Frakkinn er frá Joseph
Abboud.