Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1991, Qupperneq 6
22
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1991.
Bíóhöllin:
Fnimskógarhiti
... ■
Flipper (Wesley Snipes) og Angie (Annabelia Sciorra) verða ást-
fangin og eru þar með útskúfuð af fjölskyldum sínum.
Frumskógarhiti (Jungle Fev-
er) er nýjasta kvikmynd Spike
200000Lee og hefur mynd þessi
vakið mikla athygli þar sem hún
hefur 3verið sýnd enda tekið á
máli sem koma bæði svörtum
og hvítum við. Fjallar myndin
um svartan arkitekt sem heldur
við ítalskættaðan einkaritara og
eru þau nánast útskúfuð hjá
fjölskyldum sínum og öllum sem
þeim þykir vænt um.
Aðalhlutverkin tvö leika Wes-
ley Snipes, er leikur arktitekt-
inn, og Annabella Sciorra sem
leikur ástkonu hans. Auk þeirra
kemur fram frítt hð leikara, má
þar nefna Spike Lee sjálfan sem
eins og í fyrri myndum sínum
leikur stórt hlutverk, John
Turturro, Anthony Quinn, Lo-
nette McKee, Ossie Davis og
Ruby Dee. Tónhstin er ekki eftir
ómerkari mann en Stevie Wond-
er.
Spike Lee er á góðri leið með
að skapa sér nafn sem einn allra
besti leikstjórinn í bandarískri
kvikmyndagerð. Þeir fersku
straumar sem nú liggja frá ung-
um svörtum leikstjórum eru
honum beint að þakka.
Ævintýrið hófst með Do the
Right Thing sem var tilnefnd til
nokkurra óskarsverðlauna en
fékk engin verðlaun. Urðu
margir hissa og töluðu um kyn-
þáttahatur og íleira í þeim dúr.
Síðan kom óður Spike Lee til
bandarískrar djasstónlistar,
Mo’ Better Blues, sem þótti
standa Do the Right Thing nokk-
uð að baki. Með Jungle Fever
hefur hann endurheimt þá trú
sem samlandar hans í röðum
svartra höfðu á honum eftir að
Do the Right Thing kom fyrir
sjónir almennings.
Spike Lee fæddist í Atlanta en
flutti barn að aldri til Brooklyn
þar sem hann heldur heimili
enn þann dag í dag. Eftir að
skólanámi lauk fékk hann
vinnu hjá Columbia í smátíma
áður en hann innritaðist í New
York University Film School.
Lee vakti strax athygli með
sinni fyrstu kvikmynd er hann
gerði sem nemendaverkefni.
Með honum við gerð þeirrar
myndar sem hét Joe’s Bed-Study
Barbershop: We Cut Heads voru
kvikmyndatökumaðurinn Ern-
est Dickerson og Monty Ross
sem hafa síðan unnið við allar
kvikmyndirhans. -HK
Bíóborgin:
Aldrei án dóttur minnar
Aldrei án dóttur minnar (Not
with My Daughter) er byggð á
sannsögulegum atburðum og
fjallar um bandarísku konuna
Betty Mahmoody sem gift er
írönskum lækni. Hann vill fara
með alla fjölskylduna í frí á
heimaslóðir sínar og lætur Betty
undan þótt hún sé ekki hrifin
af ætlun hans. Þegar til írans
kemur lætur læknirinn undan
þrýstingi frá fjölskyldu sinni og
vill verða eftir og neitar Betty
og dóttur þeirra um fararleyfi
heim. Betty verður í raun fangi
á heimili eiginmanns síns og
hún gerir sér grein fyrir því að
eina lausnin er flótti.
Aðalhlutverkið leikur Sally
Field en eiginmann hennar leik-
ur breski leikarinn Alfred Mo-
lina.
Brian Gilbert, sem leikstýrir
kvikmyndinni, er breskur að
uppruna og byrjaði listaferil
sinn sem leikari en ætlun hans
var alltaf að verða rithöfundur.
Leikferill hans varð ekki langur.
hann lék smáhlutverk í Voyage
of the Damned og the Explorers
áður en hann settist á skólabekk
í National Film Scool í London.
Þar eyddi hann þremur árum í
lærdóm um kvikmyndir og hef-
ur síðan leikstýrt sjónvarps-
myndum auk þess sem hann
hefur leikstýrt einni kvikmynd
áður, Vice Versa. Þess má geta
að myndin er gerð eftir sam-
nefndri bók sem Betty Mahmo-
ody skrifaði ásamt William
Hoffer. í næstu viku mun bókin
koma út á íslensku frá bókaút-
gáfunni Fiölva og nefnist hún
Aldrei, aldrei.
-HK
Sally Field leikur Betty Mahmoody, bandaríska konu sem verður
að flýja eiginmann sinn I íran ásamt dóttur þeirra sem leikin er
af Sheilu Rosenthal.
I Ungir harðjaxlar leggja hryðjuverkamenn
skóla undir sig.
Regnboginn:
Ungirharðjaxlar
Ungir harðjaxlar (Toy Soldier) er ný spennu-
mynd sem Regnboginn hefur hafið sýningar á.
Gerist myndin á heimavistarskóla fyrir drengi
þar sem fjórir pörupiltar gera allt sem þeir geta
til að fara í taugarnar á skólayfirvöldum. Þeirra
tími kemur þegar þeir lenda í hringiðu óvæntra
atburða. Hryðjuverkamenn hertaka skólann og
hneppa nemendur og kennara í gíshngu. Dreng-
irnir ákveða að taka þátt í þessum atburði með
því að reyna að koma upplýsingum til hersins
um vopnabúnað hryðjuverkamannanna.
Ungir harðjaxlar hefur verið sýnd í Banda-
ríkjunum að undanfórnu við nokkrar vinsæld-
ir. Aðalhlutverkin, strákana, leika óþekktir
leikarar en í stórum hlutverkum eru einnig
hinir þekktu karakterleikarar, Lou Gossett og
Denholm Elliot.
Leikstjórinn, Daniel Petrie jr., er úr kvik-
myndafjölskyldu og var faðir hans, Daniel
Petrie, þekktur kvikmyndaleikstjóri á árum
áður. Móðir hans var kvikmyndaframleiðandi
og eldri bróðir hans, Donald, leikstjóri. Það lá
því beint við að hann færi í kvikmyndabrans-
ann. Petrie jr. byrjaði sem handritshöfundur
og fyrsta handrit eftir hann, sem kvikmyndað
var, er The Beverly Hills Cop. Hann skrifaði
einnig ásamt öðrum handritið að Turner &
Hooch og er einnig framleiðandi þeirrar kvik-
myndar. Hann framleiddi einnig Shoot to KiU.
Toy Soldier er fyrsta kvikmyndin í fullri lengd
semhannleikstýrir. -HK
BÍÓBORGIN
Hvað með Bob? **‘A
Ansi skemmtileg gamanmynd. Sál-
fræðingurinn Ðreyfuss fer yfir um
á taugahrúgunni Murray (frábær).
Ein fyndnasta á árinu þótt hún
gangi of langt (eins og við mátti
búast).
-GE
Komdu með í sœluna **
Góö ástarsaga öl að byrja meö milli
Quaid og hinnar japönsku Tomlita
en dofnar eftir að öllum er hent í
fangelsL Parker veldur vonbrigð-
um.
-GE
Að leiðarlokum **‘A
Átakanleg og fróðleg um samband
krabbameinssjúkhngs við hiúkr-
unarkonu sína. Campeh Scott sýnir
góðan leik.
-ÍS
BÍÓHÖLLIN
Réttlætinu fulhiægt * 'h
Mauksoðnu söguefni er rétt bjarg-
að fyrir horn af hasaratriðum og
kolrugluðum Wilham Forsyth.
-GE
-GE
í sálarfjötrum ★*'/)
Drungalegt ferðalag um hugar-
fylgsni Jacobs. Torskilin (þar til í
bláendann) en heldur athyglinni
alla leið.
-GE
Oscar **'/j
Bráðskemmtilegur leikhúsfarsi
þar sem vöðvabúntið Sylvester
Stallone sýnir á sér nýja hhð.
-is
Rakettumaðurinn ★*'//
Ævintýri upp á gamla mátann með
nýtísku tæknibrellum. Hugmyndin
frábær og sagan skemmtileg en
dálítið rýr þegar liður á.
-GE
HÁSKÓLABÍÓ
Hviti vikingurinn **
Það skortir nokkuð á að þær vonir
sem bundnar voru við Hvfta vík-
ingin rætist. Þrátt fyrir mörg ágæt
atriði og góöan leik er sagan hla
sögö og myndin fremur óspenn-
andi.
-HK
Þrumugnýr ***
Kathryn Bigelow er kraftmikill
kvenleikstjóri og knýr myndina
áfram á karlhormónum og adrena-
líni. Tæknileg fagmennska kaffær-
ir sögugallana.
The Commitments
Tónlistarmynd Alans Parker er
ógleymanleg skemmtun. Sögu-
þráöurinn er stórskemmtilegur og
soul-tónlistm frábær. Ein af betri
myndum Alans Parker.
-ÍS
Drengirnir frá Sankt Petri ***
Hugljúf og spennandi mynd um
unga menn sem halda uppi andófl
gegn hernámi nasista í Danmörku.
-ÍS
Ókunn dufl ** 'h
Stuttmynd sem kemur á óvart. Sag-
an af listamannínum og lögfræð-
ingnum er skondin kómedia um
leið og ádeilubroddur er i henni.
Það er vel varinn hálftími að sjá
myndina.
-HK
Beint á ská 214 **%
Beint framhald af fyrri myndinni,
nær sér stundum á strik en sumir
brandaramir eru orðnir þreyttir.
-ÍS
Lömbin þagna ****
Stórgóð sakamálmynd þar sem fer
saman mikil spenna og góður leik-
ur. Anthony Hopkins er ógleyman-
legur.
-HK
LAUGARÁSBÍÓ
Brot **
Söguþráðurinn er flókinn og upp-
gjörið í myndinni í lokin er of ótrú-
legt th að hægt sé að sætta sig við
málalok.
-IS
Dauðakossinn **
Spennuþrhler i anda Hitchcocks
gamla, góðir sprettir en brotalamir
í lokin koma í veg fyrir að myndin
heppnist að fullu. Dearden er betri
handritshöfundur en leikstjóri.
-HK
REGNBOGINN
Fuglastríði í Lumbruskógi **
Hugljúf teiknimynd fyrir börn. Það
sem gerir hana þó eftirsóknarverða
er íslensk talsetning sem hefur
heppnast sérlega vel.
-HK
Of faheg fyrir þig ** 'h
Skemmtileg gamanmynd þar sem
klassískum söguþræði er snúið við.
Heimihsfaðir heldur fram hjá
glæsilegri konu sinni með óásjáleg-
um einkaritara.
HK
Niður með páfann **
Svartur húmor og fíflagangur i
bland. Ófrumleg della en á nokkra
góða punkta.
-GE
Henry: Saga af fjöldamorðingja
**★
Óhugnanleg (ekki ógeðsleg) og
grátbrosleg saga um dreggjar stór-
borgarinnar. Eftirminnhegar per-
sónur,
-GE
Hrói liöttur, prins þjófanna **
Kevin Costner er daufiu. Sagan er
ójöfn en bardagaatriðin eru af-
bragð.
-GE
Dansar við úlfa ***
Löng og falleg kvikmynd um nátt-
úruvernd og útrýmingu indíána.
Glæsileg frumraun Kevins Costn-
er.
-PÁ
STJÖRNUBÍÓ
Tortimandinn **★
Áhættuatriðin eru írábær og
tæknibrellurnar ótrúlega góðar.
Bara að sagan og persónumar
hefðu veríð betur skrifaðar.
-GE
Börn náttúrunnar ***
Enginn ætti að verða fyrir von-
brigðum með nýjustu íslensku
kvikmyndina. Friðrik Þór hefur
gert góða kvikmynd þar sem mikil-
fenglegt landslag og góður leikur
blandast mannlegum söguþræðl
-HK