Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1991, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1991, Side 1
 Þjóðleikhúsið: Fmmsýning M. Butterfly Verðlaunaleikritið M. Butterfly var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í gær. í leikritinu er fjallað um kon- una sem hugarfóstur karlmanna, afstöðu Vesturlanda til Asíulanda og heimsveldanna til nýlendnanna. Leikritið er byggt á frétt úr heims- pressunni sem vakti mikla furðu almennings fyrir örfáum árum, en þar sagði af miðaldra frönskum diplómat sem átti vingott við kín- verska dansmey um tuttugu ára skeið og eignaðist með henni barn. Franska leyniþjónustan komst á snoðir um að kínverska stúlkan var njósnari en þegar farið var að rannsaka málið kom jafnframt á daginn að stúlkan sú var reyndar karlmaður í dularklæðum. Það er Arnar Jónsson sem leikur diplómatinn en Þór Tulinius sem leikur „kínversku dansmeyna". Aðrir leikarar eru Bríet Héðins- dóttir, Erla Ruth Harðardóttir, Gísli Rúnar Jónsson, Rúrik Har- aldsson og Tinna Gunnlaugsdóttir. M. Butterfly var frumsýnt i Þjóðleikhúsinu í gær en leikritið fjallar um ást í meinum, njósnir, blekkingar og svik. DV-mynd Hanna Kjarvalsstaöir: Borghildur Óskars- dóttir sýnir skúlptúra Borghildur Óskarsdóttir opnar á morgun, laugardaginn 23. nóvemb- er, 5. einkasýningu sína að Kjarv- alsstöðum. Borghildur sýnir 25 skúlptúra úr brenndum leir og steyptu gleri. Borghildur hóf listnám 17 ára gömul við Myndlista- og handíða- skóla íslands og síðar við listaskól- ann í Edinborg. Seinna tók hún próf úr kennaradeild Myndlista- og handíðaskólans og kenndi börnum og fullorðnum myndlist í 10 ár við Myndlistaskólann í Reykjavík. Síðustu ár hefur Borghildur unn- ið eingöngu að frjálsri myndhst og tekið þátt í fjölda sýninga víða um heim. Borghildur Óskarsdóttir sýnir 25 skúlptúra á sinni 5. einkasýningu að Kjarvalsstöðum. Sýningin verð- ur opnuð á morgun, laugardag. Tónlistarskólinn í Reykjavík: Fyrstu tónleikamir á starfsárinu Fyrstu tónleikar Hljómsveitar Tónlistarskólans í Reykjavík á þessu starfsári verða haldnir í Langholts- kirkju á morgun, laugardaginn 23. nóvember, og hefjast þeir klukkan 17.00. Fluttur veröur Forleikur að Brott- náminu úr kvennabúrinu eftir W.A. Mozart og einnig aríur og dúett úr sömu óperu. Einsöngvarar eru Hlín Pétursdóttir sópran, Laufey Helga Geirsdóttir sópran og Tómas Tómas- son bassi en þau eru öll nemendur í skólanum. Jafnframt verður flutt Sinfónía nr. 7 í A-dúr eftir L. van Beethoven. Stjómandi er Örn Ósk- arsson. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn. Vinsérfræðingarnir Sigmar B. Hauksson, Einar Thoroddsen og Helgi Sigurðsson smökkuðu framleiðslu ársins frá Frakklandi i Perlunni. Vínið, sem á boðstólum verður, er frá Patriarche, Chaberley Noveau, og voru þeir félagar sammála um að vínið væri hreint ágætt. Með þeim á myndinni er Bjarni Ingvarsson, veitingamaður í Perlunni. í tilefni frönsku veislunnar, sem þar mun standa næstu daga, bjuggu matreiðslumeistarar hússins til Eiffelturninn úr súkkulaði. DV-mynd Brynjar Gauti ^Perlan, Ódinsvé og Háskólabíó: Frönsk veisla Það verður frönsk veisla haldin í Perlunni, Óðinsvéum og í Háskóla- bíói næstu daga. Veislan hófst' í gær og stendur til 30. nóvember en í Há- skólabíói stendur veislan aðeins lengur, eða til 2. desember. Háskólabíó mun sýna franskar kvikmyndir og veitingahúsin Perlan og Óðinsvé verða með franska rétti á boðstólum. Francois Fons er franskur matreiðslumeistari og hann mun hafa veg og vanda af mat- reiðslunni í Óðinsvéum ásamt mat- reiðslumeisturum hússins .og munu þeir bjóða upp á ýmsa nýstárlega rétti. í Perlunni verður einnig fjölbreytt- ur franskur matseðill úr gamla klassíska eldhúsinu. í tilefni frönsku veislunnar hafa franskir tónlistar- menn ásamt franskri söngkonu verið fengnir til landsins og munu þau koma fram og skemmta gestum Perl- unnar og Óðinsvéa. Þær frönsku myndir, sem Háskóla- bíó mun sýna, eru Tvöfalt líf Veron- iku en henni leikstýrir Krzysztof Kieslowski, Hinir saklausu sem André Téchine leikstýrir, íslandstog- arinn en leikstjóri hennar er Pierre Schoendoerffer, Vertu sæll, Bona- parte, sem Youssef Chahine leikstýr- ir og Segðu honum að ég elski hann en leikstjóri þeirrar myndar er Claude Miller. Þaö var mikil hátíð i Frakklandi í gær en þá var voru vínframleiðendur að kynna uppskeru ársins, „Vin Noveau". í Perlunni og Óðinsvéum verður nýja framleiðslan á boðstól- um og að þessu sinni varð fram- leiðsla Patriarche, Chaberlay Noveau, fyrir valinu. Þrír vínsér- fræðingar, þeir Sigmar B. Hauksson, Einar Thoroddsen og Helgi Sigurðs- son, voru fengnir til að dæma hið nýja vín og voru þeir allir sammála um að gæði þess væru mikil. Margir gullmolar hrundu af vörum þeirra þegar þeir smökkuðu framleiðsluna: „Það er piparbragð að því, eða bragð eins og „lykt af sveittum hesti“ er.“ „Það er mikill ávaxtakeimur af vín- inu, það er milt og ljóst að það er ættað sunnan Lyon.“ „Vínið hefur fætuma á jörðinni, það er eins og góður ávaxtasafi og þetta vín gefur manni innsýn í framtíðina, þ.e.a.s. hvernig vínið kemur til með að verða.“ „Það em meinhollir gerlar í þessu víni, það er örugglega prýðilegt með lýsinu á morgnana." Púlsinn: Galíleó og gestir Hljómsveitin Galíleó leikur á Púlsinum i kvöld, (östudagskvöld, og ann- að kvöld og er tilefnið útkoma hljómplötu Rafns Jónssonar trommuleik- ara hljómsveitarinnar. Allur ágóði af útgáfu plötunnar rennur til Styrktar- félags lamaðra og fatlaðra og til rannsókna á hreyfifrumusjúkdómnum Hljómsveitin Galíleó leikur ásamt gestum sínum á Púlsinum í kvöld, föstudagskvöld, og annað kvöld. Tilefnið er útkoma hljóm- plötu Rafns Jónssonar, trommu- leikara sveitarinnar Andartaks sem þegar hefur náð gulli í sölu. Allur ágóði af útgáfu plötunnar rennur til stofnunar á sjóði til rannsóknar á hreyfifrumusjúk- dómnum M.N.D. og til Styrktarfé- lags lamaðra og fatlaðra. Það er ástæða til að samfagna Rafni eða Rabba, eins og hann er kallaður, með þetta merkilega og jákvæða framtak. Auk Rafns skipa hljóm- sveitina Galíleó þeir Sævar Sverr- isson söngvari, Öm Hjálmarsson gítarleikari, Baldvin Sigurðarson bassaleikari og Jósep Siguröarson hljómborðsleikari. En auk þeirra er von á fjölda góðra gesta sem tóku þátt í gerð hljómplötunnar. Það verða síðan stórtónleikar í þyngri kantinum á sunnudags- kvöld. Þá heldur tónlistarskottu- M.N.D. læknirinn dr. Gunni útgáfutón- leika þar sem hann mun leika lög af nýútkominni plötu sinni, Eins og fólk er flest. Einnig munu koma fram hinir geðþekku ruslarokkar- ar Rotþróin og svo Keldusvínin sem eru algjörlega óþekkt illgresi í íslenskri rokkflóru. Tónleikamir hefjast klukkan 22 og verö að- göngumiða er 500 krónur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.