Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1991, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1991, Blaðsíða 6
22 FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1991. BtÓBORGIN AJdreí án dóttur rninnnr ... **‘/i Hvort sera þetta er allur sannleikurinn eða ekki þá er þetta gott söguethi og Sally Field er trábær. -GE Svarti regnboginn **/j Slök spennumynd meö yflmáttúrulegu ivafi. Verður ae ótrúlegri og óskUjan- le«ri eftir því sem á liður. -GE Hvað með Bob? ** Vi Ansi skemmtUeg gamanmynd. Sál- fræðingurinn Dreyftiss fer yflr um á taugahrúgunni Murray (frábær). Ein fyndnasta á árinu þótt hún gangi of langt (eins og við mátti búast). -GE Zandalee ** 'A Óvenju vitræn ástarsaga með góöum persónum. Efriiö er ekki rismikið en meðferðin er seiöandi. -GE BÍÓHÖLLIN Frumskógarhiti *** 'A Skeramtílegasta mynd Spike Lee Ul þessa leíftrar af litríkri sköpunargleöi. Persónur og leikendur eru framúrskar- andi. -GE Svarti engiilinn ** ‘/j Góöur tryllir f sálfræðUegri kantinum um flugmann sem fer yfirum og stelur atómbombu. Réttlætinu fullnægt ★ /i Mauksoðnu soguefní er rétt bjargað fyrir hom af hasaratriðum og kolrugl- uðum William Forsyth. -GE Þrumugnýr *** 'A Kathryn Bigelow er kraftmikiU kven- ieikstjóri og knýr myndina áfram á karlhormónum og adrenalini. Tæknileg fagmennska kaffærir sögu- gallana. -GE HÁSKÓLABÍÓ Hvíti víkingurinn ** Það skortir nokkuð á að þær vonir sem bundnar vora við Hvíta vflúngin ræt- ist. Þrátt fyrir mörg ágæt atriði og góð- an leik er sagan illa sögð og myndin flrcmur óspennandí. -HK The Commitments **** Tónlistarmynd Alans Parker er ógleymanleg skemmtun. Söguþráöur- inn er stórskemmtUegur og soul-tón- Ustin frábær. Ein af betri myndum Al- ans Parker. -ÍS Drengirnir frá Sankt Petri *** Hugljúf og spennandi mynd um unga menn sem halda uppi andófi gegn hemámi nasista í Danmörku. -IS Ókunn dufl ** Vi Stuttmynd sem kemur á óvart. Sagan af Ustamanninum og lögfræðingnum er skondin kómedía um leið og ádeUu- broddur er í henni. Það er vel varinn háiftími að sjá myndina. -HK Beint á ská 2‘/i **'/j Beint framhald af fyrri myndinni, nær sér stundum á strik en sumir brandar- amir era orðnir þreyttir. -ÍS LAUGARÁSBÍÓ Hringurinn *** Vel skrifuð saga um samheldna fjöl- skyldu og aðkomumann sem umtumar henni, óvUjandi. Sögð með góðri blöndu af gamansemi og alvöru. Dreyfuss er góður, AieUo betri og Hunter langbest. -GE Brot — ** Söguþráöurinn er fiókinn og uppgjöriö i myndinni í lokín er of ótrúlegt tíl að hægt sé að sætta sig við málalok. -Is • Dnuðnkossmn ** SpennuþriUer í anda Hitchcocks gamla, góðir sprettir en brotalamir í lokin koma i veg fyrir aö myndin heppnist að fiUlu. Dearden er betri handrítshöf- undur en leikstjóri. -HK REGNBOGINN Ungir hnröjaxlar *★★ Góðum leikstjóra tekst vel að byggja upp spennu í þessari mynd. -IS Fugiastríði i Lumbruskógi ** Hugij úf teiknimynd fyrir böm. Það sem gerir hana þó eftirsóknarverða er ís- lensk talsetning sem hefur heppnast sérlega vel. -HK Of faileg fyrir þig *★’/j Skemmtíleg gamanmynd þar sem klassiskum söguþræði er snúið við. HeimUisfaðir heldur iram hjá glæsi- legri konu sinni með óásjálegum einka- ritara. -HK Niður meö páfann ** Svartur húmor og fíflagangur i bland. Ófrumleg deUa en á nokkra góða punkta. GE Henry *** Óhugnanleg (ekki ógeðsleg) og grát- brosleg saga um dreggjar stórborgar- innar. EftirminnUegar persónur. -GE Hrói höttur, prins þjófanna ** Kevin Costner er daufur. Sagan er ójöfh en bardagaatriðin eru afbragð. -GE Dansar við úlfa *** Löng og falleg kvikmynd um náttúru- vemd og útrýmingu indiána. GlæsUeg frumraun Kevins Costner. -PÁ STJÖRNUBÍÓ Banvænir þankar ** 'A Vel leikin spennumynd, sögð á óvenju- legan hátt, enda ekki annars að vænta af leikstjóranum Alan Rudolph. Tortimandinn *** Áhættuatriðin ero frábær og tæknib- reUumar ðtrúlega góðar. Bara aðsagan og persónurnar hefðu verið betur skrif- aðar. -GE Börn náttúrunnar *** Enginn ætti að verða fyrir vonbrigðum með nýjustu islensku kvikmyndina. Friðrik Þór hefur gert góða kvikmynd þar sem mikilfenglegt landslag og góö- ur leikur blandast mannlegum sögu- þræöi. Irene Jacob leikur tvö hlutverk í Tvölöldu lifi Veroniku. Háskólabíó: Tvöfalt líf Veroniku Franska kvikmyndin Tvöfalt líf Veroniku hefur vakið mikla at- hygli undanfama mánuði og verið sýnd á nokkrum kvikmyndahátíð- um og fengið afbragös dóma. í myndinni er sögð sérstök saga um tvær stúlkur. Fyrir tuttugu árum fæddust tvær stúlkur, önnur í Frakklandi og hin í Póllandi, og þrátt fyrir að þær væru alls ekki skyldar og vissu alls ekki hvor af annarri eru þær eins og eineggja tvíburar. Báöar eru örvhentar, vilja helst gangá ber- fættar og báðar hafa góða söngrödd og einstaka hæfileika á tónlistar- sviðinu. Án þess að vita af því hafa þær bein áhrif á líf hvor annarrar - ef önnur slasar sig á einhverjum hlut mun hin ósjálfrátt passa sig á sama hlut. Leikstjóri myndarinnar er Krzysztof Kieslowski sem er einn þekktasti leikstjóri Pólverja í dag. Hann vakti fyrst athygli 1970 þegar hann vann til verðlauna fyrir tvær heimildarmyndir en þekktastur er hann fyrir mynd sína, Stutt mynd um morð, og sjónvarpsmyndir þar sem hann tekur boöoröin fyrir. Stutt mynd um morð fékk aðal- verðlaunin á kvikmyndahátiðinni í Cannes 1988. Aðalhlutverkið, stúlkumar tvær, leikur franska leikkonan Irene Jacob og hefur hún fengið mikið lof fyrir leik sinn í myndinni. -HK Bíóhöllin sýnir þessa dagana nýjustu kvikmynd Spikes Lee, Frumskógar- hita (Jungle Fever), sem tengið hefur afbragðsdóma. Sem fyrr í myndum Lees eru samskipti hvítra og svartra þema myndarinnar. Aðalhlutverkin leika Wesley Snipes og Annabella Sciorra og sjást þau á myndinni. Laugarásbíó: Hringurinn Demi Moore, Bruce Willis og Glenne Headley í hlutverkum sínum í Banvænum þönkum. Hringurinn (Once Around) er fyrsta kvikmynd sænska leikstjór- ans Lasse Hallström vestanhafs en eins og kunnugt er vakti hann mikla athygli með kvikmynd sinni, Líf mitt sem hundur, fyrir nokkr- um árum. í Hringnum fjallar hann um fjölskyldulíf í Boston. Þegar systir Renötu giftir sig ákveöur hún að taka af skarið og giftast vini sínum sem hún hefur lengi veriö meö. Vinurinn neitar aftur móti og fer í burtu. Renata ákveöur því aö breytá til, fer í söluferð til Karíba- hafs og hittir þar viðskiptafrömuð- inn Sam Sharp sem, auk þess að vera miklu eldri en hún, er mjög sérstakur náungi. Renata fer heim til Boston og Sam á eftir henni og hið fastmótaöa fjölskyldulíf sam- hentrar fjölskyldu hennar verður aldrei hið sama eftir að Sam ryðst inn í líf þeirra. Það eru úrvalsleikarar í helstu hlutverkum í myndinni. Richard Stjömubíó: Banvænir þankar Stjörnubíó sýnir um þessar mundir bandarísku spennumynd- ina Banvænir þankar (Mortal Thoughts). Segir myndin frá tveim- ur vinkonum; önnur er vel gift en hin situr uppi meö ónytjung og eit- urlyfjaneytenda, fant og fauta sem á ekkert gott skiliö. Kvöld eitt hverfur hann. Vinkonurnar til- kynna hvarfið. Það kemur í ljós að hann hefur verið myrtur. Finnst líkið á íloti í mýrarfeni og beinist grunurinn að vinkonunum tveim- ur sem báðar segjast saklausar... Demi Moore og Glenne Headley leika vinkonurnar tvær. Önnur stór hlutverk í myndinni eru leikin af Bruce Willis, John Pankow og Harvey Keitel. Alan Rudolph er einn af fáum leikstjórum í Hollywood sem hafa nokkra sérstööu. Hann hefur ávallt farið eigin leiðir og oft komið með skemmtilegar myndir sem eru á skjön við það sem tíðkast en vekja ávallt athygli. -HK Holly Hunter, Richard Dreyfuss og Danny Aiello leika aðalhlutverkin i Hringnum. Dreyfuss leikur Sam Sharp og af Danny Aiello, Gena Rowlands Holly Hunter leikur Renötu. Fjöl- og Laura San Giacomo. skyldumeðlimir hennar eru leiknir -HK Löður (Soapdish) er gamanmynd sem Háskólabíó sýnir um þessar mundir. Er þar gert óspart grtn að svokölluðum sápuóperum sem sjón- varpsstöðvar sýna daglega i Bandarikjunum. Aðalhlutverkin leika Kevin Kline, Sally Field, Robert Downey jr. og Whoopi Goldberg.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.