Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Qupperneq 2
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991.
Bílar
Eitt helsta sérkenni Daihatsu Applause er að sameina á snilldarlegan hátt kosti venjulegs fólksbíls með skotti og hlaðbaks.
Kynning á bíl desembermánaöar í áskriftargetraun DV:
Daihatsu Applause
Bíllinn, sem DV býður einhveijum
heppnum áskrifanda núna strax í
desember í hinni veglegu áskriftar-
getraun, er enginn nýgræðingur á
markaði hér á landi. Þetta er Dai-
hatsu Applause sem raunar var
frumsýndur almenningi fyrst hér á
landi í september 1989 undir þessu
nafni í Evrópu en fyrir meginlandið
var látið duga að frumsýna bílinn á
bDasýningunni í Frankfurt sem hófst
nokkrum dögum síðar.
Hagkvæm blanda
Eitt helsta einkenni Applause er
aö í útliti er hann eins og venjulegur
„þriggja boxa bíll“ eða venjulegúr
fólksbíll með skotti. Þegar hins vegar
farangursrýmið að aftan er opnað
kemur munurinn á þessum bíl og
venjulegum fólksbíl í ljós því aftur-
hlerinn opnast upp á þak, líkt og á
hlaðbak. Með þessu fæst mjög hag-
kvæm blanda fyrir þá sem vilja sam-
eina kosti venjulegs fólksbíls og hlað-
baks. Góður aðgangur er að farm-
rýminu því hlerinn opnast á milli
afturljósanna niður að stuðara. Hægt
er að stækka farmrýmið með því að
leggja fram bak aftursætis sem er
tvískipt.
Stórgóö fjöðrun og
aksturseiginleikar
í grein undirritaðs eftir reynslu-
akstur þann 23. 11. 1991 var komist
að eftirfarandi: „Ég gerði mér ekki
miklar hugmyndir um íjöðrun App-
lause fyrirfram. Fjöðrun minni bíl-
anna frá Daihatsu hefur verið heldur
slagstutt og hörð fyrir okkar aðstæð-
ur en nú hefur orðið veruleg breyting
til batnaðar því fjöðrun Applause,
sem er sjálfstæð á hveiju hjóh, er
stórgóð og fer þennan gullna meðal-
veg sem við þurfum á að halda í
akstri á malarvegum og bundnu sht-
lagi til skiptis.
Aksturseiginleikar Applause eru
ágætir, bíhinn er vel rásfastur og sit-
ur vel í akstri á malarvegi. Vökva-
stýri er staöalbúnaður og er
skemmtilega nákvæmt og svarar vel
óskum ökumanns.
Innréttingar I Applause eru látlausar en þægilegar.
Farangursrýmið nýtist vel og hægt er að auka nýtinguna enn frekar með
þvi að leggja fram aftursætisbakið sem er tvískipt.
Líkt og aðrir japanskir framleið-
endur kunna þeir hjá Daihatsu að
hanna gírskiptingar, hér eru þær
stuttar og nákvæmar. Gírhlutfahið
er hins vegar þannig að það er neðri
hluti gíranna sem notast innanbæj-
ar, efstu gíramir koma hins vegar
vel að notum á lengri leiðum.
Fjögurra strokka Ijölventlavéhn
gefur skemmtilegt viðbragð og 91
hestafl vélarinnar er fyllilega nægi-
leg vélarorka fyrir þennan bíl sem
er um 950 kíló að þyngd.
Niðurstaða reynsluaksturs á Dai-
hatsu Applause er sú að hér sé á ferð-
inni dæmigerður fjölskyldubíh, bú-
inn ýmsum kostum sem nýtast vel.
Þar ber hæst góða opnun afturhler-
ans og góða nýtingu farangursrýmis-
ins.“
Við þessa umsögn er htlu að bæta.
Síöan þetta var skrifað hefur komið
fram fjórhjóladrifm útgáfa af App-
lause með enn betri aksturseigin-
leika en að öðru leyti alveg eins.
Daihatsu Applause L, sem bíður
einhvers heppins áskrifanda nú í
desember, kostar kr. 979.000 stgr.
Umboð er Brimborg hf.
-JR