Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Síða 4
38 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991. $ SUZUKI • .----' Notaðir úrvalsbílar Tegund Árg. Ekinn Stgr. verð Suzuki Swift GL1.0, S d.. '89 41 þ. 530 þ. sjálfsk., Suzuki Swift GL1.0,3 d„ '88 58 þ. 440 þ. Suzuki Fox410 '88 58 þ. 590 þ. Suzuki Vitara JLX, 3 d.. '90 44þ.1180þ. Daih. Charade turbo 3 U.. '87 73 þ. 450 þ. Subaru st. 1.8,4WD, 5 d. '87 75 þ. 680 þ. Ford Escort GL1.3.5 d.. '87 65 þ. 440 þ. Daihatsu Charade CS, S d„ '88 63 þ. 430 þ. Ford Escort LX1.3.5 d.. '84 84 þ. 270 þ. VW Jetta 4 d.. '82128 þ. 145 þ. Lada sport '87 30 þ. 370 þ. Suzuki Aitosendib. '84 120 þ. Mazda 626 3 d.. '85 490 þ. Opel Corsa4d„ '84 75 þ. 170 þ. Bílasalan er opin virka daga frá 9-18 laugardaga frá 13-16 $ SUZUKI ■ - ...... SUZUKIBÍLAR HF. SKEIFUNNI 17 • SÍMI 685100 á næsta silustað > Askriftarsimi 62-60-10 BRar Hér má sjá hluta af stærsta „dekkjakirkjugarði" í heimi við bæinn Modesto i Kaliforníu en talið er að þar séu um 40 milljónir dekkja. Nú er þeim breytt í raforku við bruna í stórum brennsluofni sem sést ofan við færibandið hægra megin á myndinni. ILADA UMB0ÐIÐ VETRARSK0ÐUN 1. Athuga ástand ökutækis. 2. Athuga olíu á vél, stýrisvél og vökva á rafgeymi, kælikerfi, rúðusprautum, bremsum og kúplingu. 3. Mæla frostlög og bæta á efþarf. 4. Mæla rafgeymi og hleðslu og hreinsa geymasambönd. 5. Hreinsa síur í bensíndælu og blöndungi. 6. AthuQ' og skipta um, efþarf, þétti, platínur, kveikjih ^mar, kveikjulok, kertaþræði, kerti, loti 'íu og viftureim. 7. Athuga ve itlalokspakkningu. 8. Strekkja tímakeðju og tímareim efþarf. 9. Stilla kveikju og blöndung. 10. Athuga sviss, startara, mæla, kveikjana, þurrkur og miðstöð. 11. Athuga öll Ijós. 12. Stilla Ijós. 13. Athuga hurðir og smyrja læsingar. 14. Stilla kúplingu og herða á handbremsu. 15. Stilla slag í stýrisgangi og hjólalegu efþarf. 16. Hemlaprófa. Varahlutir sem notaðireru við almenna vetrarskoðun eru seldirmeð 10% afslætti. Verð á vetrarskoðun Lada Samara 8.183 kr. Aðrir Lada bflar 9.443 kr. ofangreint verð miðast við vetrarskoðun án efniskostnaðar. Einnig tökum við Lada bíla í reglulegar 10.000 km. skoðanir BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HF. Suðurlandsbraut 14108 Reykjavík Símar 6812 00 & 312 36 Beinn sími á verkstæði 3 97 60 Bandaríkjamenn slá tvær flugur í einu höggi: Notuðum dekkjum breytt í rafmagn - af nógu að taka því árlega henda þeir 270 milljónum dekkja Einn stærsti umhverfisvandi í Bandaríkjunum í dag er hvað gera á við miRjónir og aftur miUjónir af notuðum hjólbörðum. Talið er aö nú séu um þrír milljarðar notaðra dekkja í „dekkjafjöllum" víðs vegar í Bandaríkjunum og árlega bætast um 270 milljónir notaðra dekkja við. Enginn virtist vita hvað ætti að gera við öll þessi dekk. Ekki vildu menn fá þau á venjulega sorphauga vegna eldhættunnar. Ef þau brenna menga þau andrúmsloftið og það tæki náttúruna aldir að eyða þeim á eðlilegan hátt. Fyrir nokkrum árum voru uppi áætlanir um að breyta þessum dekkj- um í malbik en það reyndist ekki svara kostnaöi. Sem dæmi um hvaða augum Bandaríkjamenn lita þennan vanda má nefna að ef keypt eru ný dekk í Flórída verður að greiða sérstakt eyðingargjald sem á að standa undir þeim kostnaði sem hlýst af því að eyða þeim þegar þau hafa runnið sitt skeið á enda. Stærsti dekkjakirkju- garður í heimi Stærsti „dekkjakirkjugarður“ í heimi er í miðju Kalifomíuríki, ná- lægt Modesto. Þar er talið að séu um 40 milljónir dekkja. Nú hafa menn ákveðið að slá tvær flugur í einu höggi og bæöi losna við dekkin og nýta þau á umhverfisvæn- an hátt. Til þess hefur Oxford Energy Company komið fyrir risastórum brennsluofni við dekkjahauginn til brennslu á dekkjunum. Hitinn, sem myndast við brennsluna, er notaður til framleiðslu á raforku og orkan, sem myndast, er svo mikil aö 15.000 heimili í nágrenninu fá raforku frá þessu sérstæða orkuveri. Að sögn Roberts Graulich, eins framkvæmdastjóra Oxford Energy, hefur tekist að brenna dekkjunum á þann hátt að andrúmsloftið mengast ekki við brunann. Brennslan á dekkjunum er ekki aöeins góð „umhverfislausn“ heldur skapar hún líka verðmæti. „Bíldekk gefa frá sér mjög mikla orku er þau hrenna," segir Graulich, „meiri orku en kol, og þar sem notuð dekk eru úrkast sem brennslustöðv- ar okkar fá í raun borgað fyrir að brenna þurfum við ekki að kosta neinu til hvað varðar eldsneyti. Þetta gerir vinnslu okkar sérlega arð- bæra.“ Þýsk tækni Notuö er nýjasta hátækni við brennslu dekkjanna, þróuö í Þýska- landi, en þar hefur bíldekkjum verið eytt með svipuðum hætti í 15 ár. Bíldekk brenna við sérstaklega hátt hitastig sem eyðir hluta af hættulegum aukaefnum sem ella myndu falla til við brunann og því sem eftir er af hættulegum loftteg- undum er eytt með sérhönnuðum og háþróuðum síubúnaði. Við brunann verða til nokkur „af- gangsefni" sem endurvinna má til frekari nota. „Það eru eitt eða tvö afgangsefni sem ekki er hægt að nota að brennslu lokinni," segir Graulich. Oxford Energy opnaði nýlega aöra brennslustöð á austurströnd Banda- ríkjanna, í Sterling í Connecticut- ríki. Þar er ætlunin að framleiða á sama hátt raforku fyrir 30.000 heim- ili. Á hverjum degi er hent 740.000 ónýtum bíldekkjum í Bandaríkjunum. Áður voru þau grafin í jörðu en nú er þeim breytt i raforku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.