Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1991, Side 5
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991. 43 Bflar Enn fjögur ár í nýjan Range Rover - endurbætt útgáfa af núverandi Range Rover á næsta ári Þrátt fyrir að almennt hefði verið talið að nýr Range Rover, sem gengið hefur undir heitinu „Pegasus" en kallast 38A hjá Land Rover, myndi koma á markað á árinu 1993 er nú tahð að í það minnsta fjögur ár muni líða þar tíl þessi nýi böl muni koma á almennan markað. Að því er erlend bílablöð hafa eftir heimildum innan verksmiðjanna hafa tilraunir með þennan nýja bO tekið mun lengri tíma en reiknað var með, einkum á nýrri loftfjöðrun sem ætlunin var að setja í þennan nýja bíl. Að því er þessar heimildir herma hafa ýmis vandamál varðandi þessa fjöðrun ekki verið leyst enn. Gamli bíllinn endur- bættur á næsta ári Á næsta ári er von á endurbættri gerð af núverandi Range Rover. Þessi endurbót felst aðallega í nýrri inn- réttingu en einnig var ætlunin að þá kæmi „sá gamli“ með nýju loftfjöðr- unina. Vegna vandamálanna, sem nú hafa komið upp við reynsluakstur á „Pegasus", er reiknað með því að Range Rover verði áfram með „gömlu góðu fjöðrunina" á næsta ári! Ný vél í burðarliðnum Þá hefur heyrst að ný vél í Range Rover sé á leiðinni, ekki eins „þyrst“ og núverandi V8 er. í nýja bílnum, 38A, lifir V8-vélin enn góðu lífi, rúmtakið aukið úr 3,9 upp í 4,2 lítra og búið að skipta um toppstykki til að mæta tveimur yfir- hggjandi knastásum og 32 ventlum. Afhð er sagt vera á mhh 200 og 235 hestöfl og mun meira togafl, einkum á hægari snúningi. í nýja bílnum verður einnig völ á sex strokka túrbódísh sem keypt verður frá BMW. Fleiri breytingar Önnur breyting, sem að mati margra hefði átt að vera komin fyrir löngu, er ný stýrisvél sem kemur í 38A. í stað stýrisvélar með ormi og krossás (worm and roher) kemur tannstangarstýri með hjálparafh. Gamla stýrisvéhn áttí sinn þátt í því að Range Rover á það tíl að „slaga“ í akstri. Fjögurra þrepa ZF-sjálfskiptingin, sem nú er í „þeim garnla", flyst yfir í þann nýja, svo og millikassi og hemlalæsivöm. LíkurDiscovery Á þeim myndum sem birst hafa af 38A er hann mun likari Discovery, htla bróður Range Rover, en þeim gamla. Með hönnun nýja bOsins er það ætlun Land Rover aö losa sig við aha þá samkeppni sem við þeim hefur blasað undanfarið. BOar eins og Land Cruiser frá Toyota og Pajero frá Mitsubishi hafa tekið tíl sín æ stærri part af kökunni. Með nýja bOnum ætla þeir að stíga enn stærra skref í átt að lúxus og betri búnaði en áður hefur sést í jeppa, svo stórt að um enga keppi- nauta verði að ræða. TO að mæta óskum þeirra sem vOja vel búinn jeppa en vOja ekki stíga skrefið til fuhs með þessum nýja 38A verður Discovery sendur á markað í Vogue-útgáfu sem í búnaöi á htt aö standa núverandi Range Rover Vogue að baki. Betri innrétting Nýi bhhnn verður með miklu vandaðri innréttingu en við þekkjum í dag úr Range Rover. Betri plastefni veröa notuð, auk leðurs, uhar og við- ar. Forsmekkinn af þessu getur að hta í Range Rover á næsta ári ef marka má fregnir í Bretiandi, en þessi breyting á bOnum er meðal annars gerð tíl aö mæta 32 prósenta sam- drætti í sölu Range Rover á Bretiandi þaðs em af er þessu ári. Minni bOl- inn, Discovery, hefur hins vegar átt mikihi velgengni að fagna og er sölu- aukningin á honum 39 af hundraði það sem af er þessu ári. -JR Þrátt fyrir dularklæðin má sjá að í útliti er hann ekki svo frábrugöinn Discovery, „iitla bróður" Range Rover. BIFREIÐAEIGENDUR HEMLAHLUTIR I ALLAR GERÐIR FOLKSBILA verslun okkar, Skeifunni 11, fœröu hemlahluti í allar geröir ökutcekja. Viö seljum eingöngu hemlahluti sem uppfylla ströngustu kröfur um öryggi og eru samkvœmt EES staöli. Meö því að flytja inn beint frá framleiöendum getum viö boðið mun lœgri verö. 30 ára reynsla og sérhœft af- greiðslufólk okkar veitir þér trausta og góöa þjónustu. Veriö velkomin - Nœg bílastœði. SKEIFUNNI 11, SIMI 679797 . \ >

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.