Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1992, Page 26
34
FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1992.
Afmæli
Sighvatur Björgvinsson heil-
brigöisráöherra, Ljárskógum 19,
Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Sighvatur fæddist á ísafiröi og ólst
þar upp. Hann varð stúdent frá MA
1961 og stundaði nám við viðskipta-
fræðideild HÍ.
Sighvatur var fulltrúi á skrifstofu
Iðnfræðsluráðs 1964-67 ogritstjóri
Alþýðublaðsins 1968-74. Hann var
alþingismaður Vestfjarðakjördæm-
is 1974-83 og frá 1987. Sighvatur var
framkvæmdastjóri Norræna félags-
ins 1984-87. Hann var fjármálaráð-
herra 1979-80 og hefur verið heil-
brigðisráðherra frá 1991.
Sighvatur var ritari SUJ1969-72,
hefur setið í miðstjórn Alþýðu-
flokksins frá 1967 og var formaður
þingflokks Alþýðuflokksins 1978-83.
Hann var formaður stjómar Fram-
kvæmdastofnunar 1978-79 og for-
maður fjárveitinganefndar 1987-91.
Sighvatur hefur setið í Norður-
landaráði 1978-79 og frá 1989, í Al-
þjóðaþingmannasambandinu UPI
frá 1988 og í þingmannasamtökum
NATO1979-83. Þá hefur hann setið
í stórn endurbótasjóðs menningar-
bygginga frá ársbyrjun 1990 auk
þess sem hann hefur átt sæti í fjölda
opinberra nefnda og ráða.
Fjölskylda
Kona Sighvats er Björk Melax, f.
19.8.1941. Foreldrar hennar: Stanley
Melax, prestur á Breiðabólstað í
yesturhópi, og kona hans, Guðrún
Ólafsdóttir.
Fósturdóttir Sighvats er Bryndís,
f. 10.3.1963, gift Nicolas Marvos,
veitingahúseiganda á Kýpur.
Böm Sighvats og Bjarkar eru Ehn
Kristjana, f. 1.10.1966, nemi í tölvu-
fræði við HÍ; Björgvin Sturla, f. 6.5.
1968, nemi hagfræði við HÍ; Rúnar
Stanley, f. 19.9.1972, nemi í flug-
virkjun.
Foreldrar Sighvats em Björgvin
Sighvatsson, f. 25.4.1917, fyrrv.
skólastjóri á ísafirði, f. að Vatneyri
við Patreksfjörð, og kona hans, Jó-
hanna Oddný Margrét Sæmunds-
dóttir, f. 28.8.1919, húsmóðir.
Ætt
Faðir Björgvins var Sighvatur,
múrari á Patreksfirði, Árnason, tré-
smiðs í Reykjavík, Magnússonar.
Móðir Sighvats var Elín Sighvats-
dóttir frá Suðurbæ undir Eyjaijöll-
um, Einarssonar, bróður Sveins,
langafa Sjafnar, móður Magnúsar
Jóhannessonar siglingamálastjóra.
Móðir Björgvins var Kristjana, dótt-
ir Einars, b. á Smyrlabjörgum í Suð-
ursveit, bróður Álfheiðar, móður
Gunnars Benediktssonar rithöfund-
ar. Bróðir Einars var Stefán, afi
Stefáns Benediktssonar, þjóðgarðs-
varðar í Skaftafelli. Systir Einars
var Guöný, amma Einars Braga rit-
höfundar. Einar var sonur Sigurðar,
b. á Lambleiksstöðum, bróður
Guðnýjar, ömmu Þórbergs Þórðar-
sonar rithöfundar. Sigurður var
sonur Einars, b. á Brunnum, Eiríks-
sonar, b. á Brunnum, Einarssonar.
Móðir Eiríks var Þórdís, systir Jóns
Eiríkssonar konferensráðs. Móðir
Kristjönu var Hólmfríður Bjama-
dóttir, b. á Hæðargarði í Landbroti,
Gíslasonar.
Jóhanna er dóttir Sæmundar, b. á
Egilsstöðum í Vopnafirði, Gríms-
sonar, bróður Vigdísar, móður
Gríms M. Helgasonar, forstöðu-
manns handritadeildar Landsbóka-
safnsins, fóður Vigdísar rithöfund-
ar. Móðir Sæmundar var Margrét
Sæmundsdóttir, b. á Miðgrund í
Skagafirði, bróður Margrétar,
ömmu Elínborgar Lárasdóttur rit-
höfundar, móður Jóns Ingimarsson-
ar, skrifstofustjóra í heilbrigðis-
ráðuneytinu. Sæmundur var sonur
Áma, b. í Stokkhólma, Sigurðsson-
ar, og konu hans, Margrétar Magn-
úsdóttur, systur Pálma, langafa
Helga Hálfdánarsonar skálds og
Péturs, fóður Hannesar skálds.
Móðir Jóhönnu var Jóhanna, dóttir
Þorsteins, b. í Hestgerði í Suður-
sveit, Þorsteinssonar, b. og hrepp-
stjóra á Reynivöllum í Suðursveit,
Gíslasonar. Móðir Þorsteins í Hest-
Sighvatur Björgvinsson.
gerði var Þórunn Þorsteinsdóttir,
b. og skipasmiðs á Steig í Mýrdal,
Sigurðssonar. Móðir Þorsteins var
Þórunn Þorsteinsdóttir, b. og smiðs
á Vatnsskarðshólum í Mýrdal, Eyj-
ólfssonar. Móðir Þórunnar frá Steig
var Guðný, dóttir Einars, b. og stúd-
ents í Ytri-Skógum undir Eyjafjöll-
um, Högnasonar, og konu hans,
Ragnhildar Sigurðardóttur, prests á
Heiði í Mýrdal, Jónssonar. Móðir
Ragnhildar var Sigríður Jónsdóttir
„eldprests" Steingrímssonar.
Sighvatur er að heiman á afmælis-
daginn.
Valgeir Guðjónsson
Valgeir Guðjónsson tónhstarmað-
ur, Þingholtsstræti 28, Reykjavík,
erfertugurídag.
Starfsferill
Valgeir fæddist í Reykjavík, lauk
stúdentsprófi frá MH1972, stundaði
nám í ensku og landafræði við HÍ
1973-74, nam hljóðfræði við Tónlist-
arskólann í Reykjavík 1974-75 og
lauk prófi í félagsráðgjöf frá Social-
högskolen í Þrándheimi 1981.
Hann var kennari í Lækjarskóla í
Hafnarfirði, Ármúlaskóla og Réttar-
holtsskólanum 1973-75 og var for-
stöðumaður Félagsmiðstöðvarinnar
Ársels í Árbæjarhverfi 1981-83.
Hann lék með Stuðmönnum
1975-76 og 1980-87 og Spilverki þjóð-
anna 1976-79. Valgeir samdi tónhst-
ina fyrir kvikmyndirnar Punktur,
punktur, komma, strik 1980, Stella
í orlofi 1987 og mieð Stuðmönnum,
Með aht á hreinu 1982 og Hvítir
mávar 1984. Hann samdi tónhst í
sjónvarpsmyndina Ást í kjörbúð
1987 og tónhst og leiktexta í Síldin
kemur, sfidin fer, sýnt hjá LR1988,
tónhst við kvikmyndina Pappírs-
Pési 1989 og tónlist við sjónvarps-
myndina Gamla brúðan 1991. Val-
geir fór tónhstarferð til Kína með
Strax 1986 og var gerö um þá ferð
kvikmyndin Strax í Kína 1986. Hann
er höfundur að samnorrænu tónhst-
arverkefni vegna sighngar víkinga-
skipsins Gaia tfi Bandaríkjanná en
sú tónhst var gefin út á plötu sl.
haust. Valgeir var höfundur og um-
sjónarmaður sjónvarpsþáttanna
Ungmennafélagið, sýnt í ríkissjón-
varpinu 1991. Hann er formaður
Samtaka um byggingu tónhstarhúss
og hefur starfað að ýmsum verkefn-
um fyrir samtökin að undanfómu.
Valgeir hefur gefið út mikinn
fjölda hljómplatna með Stuömönn-
um, Spilverki þjóðanna og á eigin
vegum. Hann sigraði í sönglaga-
keppni evrópskra sjónvarpsstöðva á
íslandi með lagi sínu Hægt og hljótt,
1987, og laginu Það sem enginn sér,
1989.
Fjölskylda
Eiginkona Valgeirs er Ásta Krist-
rúnRagnarsdóttir, f. 25.8.1952, for-
stöðumaður Námsráðgjafar HÍ. For-
eldrar hennar eru Ragnar Tómas
Árnason, af Reykjahlíðarættinni,
útvarpsþulur, og kona hans, Jónína
Vigdís Schram.
Synir Valgeirs og Ástu eru Árni
Tómas, f. 9.5.1977, og Arnar Tómas,
f. 10.5.1989.
Systur Valgeirs eru Guðrún Arna,
f. 13.6.1957, hjúkrunarfræðingur,
gift Pétri Bjarnasyni, framkvæmda-
stjóra hjá Saga-film, og Sigríður
Anna, f. 2.2.1959, kennari, búsett í
Danmörku, gift Ragnari Marteins-
syni kerfisfræðingi.
Foreldrar Valgeirs eru Guðjón
Valgeirsson, hdl. í Reykjavík, og
kona hans, Margrét Arnadóttir tóm-
stundaleiðbeinandi.
Ætt
Guðjón er sonur Valgeirs, múrara
i Reykjavík, Guðjónssonar, b. á
Svarfhóh í Geiradal, Sigurðssonar.
Móðir Guðjóns var Sigríður Sveins-
dóttir, trésmiðs í Reykjavík, Gísla-
sonar, b. á Þrándarstöðum í Kjós,
Ögmundssonar, b. á Skálpastöðum,
bróður Jóns, afa Sigmundar Guð-
bjarnasonar, fyrrv. háskólarektors.
Annar bróðir Ögmundar var Oddur,
langafi Önnu, móður Flosa Ólafs-
sonar leikara. Oddur var einnig
langafi Arnlaugs, fóður Guðmund-
ar, rektors og skákmeistara. Ög-
mundur var sonur Bjama, ættfóður
Stóra-Vatnshornsættarinnar, Her-
mannssonar.
Móðurbræður Valgeirs eru Tómas
seðlabankastjóri og Vilhjálmur hrl.
Margrét er dóttir Árna, útgerðar-
manns og erindreka Fiskifélags ís-
lands, á Hánefsstöðum 1 Seyðisfirði,
bróður Hjálmars, fyrrv. ráðuneytis-
stjóra. Annar bróðir Áma var Þór-
—TJ-
Valgeir Guðjónsson.
hallur, afi Snorra Sigfúsar Birgis-
sonar tónskálds. Þriðji bróðir Áma
var Hermann, afi Lilju Þórisdóttur
leikkonu. Systir Árna var Sigríður,
móðir Vfihjálms Einarssonar,
skólameistara á Egilsstöðum, fóður
Einars spjótkastara. Ámi var sonur
Vilhjálms, útvegsb. á Hánefsstöð-
um, Árnasonar, b. á Hofi í Mjóa-
firöi, Vilhjálmssonar. Móöir Árna
var Guðrún Konráðsdóttir, systir
Ragnhildar, langömmu Gísla, fóður
Ingvars, ritstjóraTímans. Móðir
Áma var Björg, systir Stefaníu,
móður Vilhjálms Hjálmarssonar,
fyrrv. ráðherra. Björg var dóttir Sig-
urðar, b. á Hánefsstöðum, Stefáns-
sonar, bróður Gunnars, afa Gunn-
ars Gunnarssonar skálds. Móðir
Bjargar var Þorbjörg Þórðardóttir,
b. í Kjarna í Eyjafirði, Pálssonar,
ættfóður Kjamaættarinnar.
Móðir Margrétar var Guðrún Þor-
varðardóttir, útvegsb. í Keílavík,
Þorvarðarsonar, beykis í Keflavík,
Helgasonar, langafa Þorvarðar
Helgasonar leiklistarfræðings.
Móðir Þorvarðar Helgasonar var
Guðrún, systir Jakobs, langafa Vig-
dísarforseta.
Valgeir er staddur í Cannes í
Frakklandi á afmælisdaginn.
Guðrún Loftsdóttir,
Lönguhlíð 3, Reykjavík.
Strandaseh 7, Reykjavík.
HalldórHelgason,
Hjahanesi 1, Landmannahreppi.
Brynja Bjarnadóttir,
Þykkvabæjarklaustri, Skaftár-
hreppi.
Bogdan Charyton,
Starfsmhúsí 9 á Vifilsst., Garðabæ.
Anna Magnúsdóttir,
Skeggjastcíðum, Skagahreppi,
Margrét G. Sveinsdóttir,
Stafnaseh 6, Reykiavík.
Eysteinn Jóhannsson,
Kambsvegi 31, Reykjavík.
Salóme Guðjónsdóttir,
Skipholti 30, Reykjavík.
Margrét Róbertsdóttir,
Egilsbraut 9, Þorlákshöfn.
Helgi Þorsteinsson,
Þingaseli 9, Reykjavik.
Elín Þórðardóttir,
Þrastarlundi 12, Garðahæ.
Ingibjðrg Gunnarsdóttir,
40ára
Guðný Þórsdóttir,
Leirubakka 20, Reykjavík.
Eysteinn Sölvi Torfason,
Engihjaha 13, Kópavogi.
Guðmundur I. Pétursson,
Stigahlíð 30, Reykjavik.
Þorbjörg Magnúsdóttir,
Heiðarbrún 7, Bolungarvík.
S veinn BrynjarSveinsson,
. Álfabyggð6,Akureyri.
Þorkell Guðbrandsson,
. Mel, Hraunhreppi.
Ásgeir Einarsson,
Sigtúni 6, Patreksfirði.
Oddur Jónsson,
Háeyri á Bergi, Keflavik.
‘ Borghildur F. Blöndal,
Löngumýri 7, Akureyri.
' BjörkBjarnadóttir,
Marbakka 14, Neskaupstað.
TheódórLúðvíksson,
Stóragerði 29,'Reykjavík.
Bjarni Halldórsson,
Kvistahhð 5, Sauðárkróki.
Barbara María Geirsdóttir,
Akurgerði 3d, Akureyri.
Ingvar Jón Óskarsson,
Einholti 1, Garði.
Már Egilsson
Már Egilsson kaupmaður, Blika-
nesi 28, Garðabæ, er sextugur í dag.
Starfsferill
Már er fæddur í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann gekk í Austurbæjar-
og Laugarnesskóla og lauk stúd-
entsprófi frá MR1952. Már lauk
prófi í viðskiptafræði frá Háskóla
Islands 1964.
Hann var starfsmaður Flugfélags
íslands hf. og síðar Loftleiöa hf.
1953-58 og skrifstofumaður og síðar
framkvæmdastjóri hjá Agh Ama-
syni hf. 1958-86. Már og eiginkona
hans, Guðrún Steingrímsdóttir,
stofnsettu fyrirtækið Kosta Boda
1976.
Fjölskylda
Már kvæntist 17.1.1959 Guðrúnu
Steingrímsdóttur, f. 9.4.1929, flug-
freyju og síðar kaupmanni. Foreldr-
ar hennar vom Steingrímur Magn-
ússon togarasjómaður og Vilborg
Vigfúsdóttir húsfrú en þau bjuggu í
Reykjavík.
Synir Más og Guðrúnar: Egih, f.
13.5.1960, MS í tölvufræði, maki
Þorgerður Hanna Hannesdóttir
húsmóöir, þau eiga þijú börn,
Sveinbjörgu, Egil og Guðrúnu Drífu;
Steingrímur, f. 20.6.1962, við nám í
Englandi, hann á eina dóttur,
Freyju; Már, f. 9.2.1971, nemi í Fjöl-
brautaskólanum í Ármúla.
Systkini Más: Árni, f. 22.5.1939,
hljóðfæraleikari, maki Dorette Eg-
ilsson, leikhstarkennari, þau em
búsett í Bandaríkjunum og eiga tvo
syni; Kristín, f. 20.10.1941, skrif-
stofumaður í Reykjavík, hún á þijú
böm. Hálfsystir Más, samfeðra, er
Erla iðnverkakona, maki Baldvin
Ámasonkennari.
Foreldrar Más voru Egill Arna-
son, f. 14.8.1900, d. 21.8.1973, stór-
kaupmaður, og Ásta Norðmann, f.
26.8.1904, d. 28.11,1985, danskenn-
ari, en þau bjuggu í Reykjavík.
Ætt
Egih var sonur Áma Einarssonar,
kaupmanns í Reykjavík, og Kristín-
ar Sigurðardóttur húsfreyju.
Ásta var dóttir Jóns Norðmanns,
kaupmanns á Akureyri, og Jórunn-
ar Einarsdóttur Norðmanns.
Már er að heiman á afmæhsdag-
inn.
Már Egilsson.