Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1992, Blaðsíða 28
36
FIMMTUDAGUR 23. JÁNÚÁR 190(2.
Merming____________
Loksins f rjáls
Félag eldri borgara starfar sem kunnugt er af miklum
krafti og þess vegna var kannski bara tímaspursmál
hvenær hópur úr þeirra röðum tæki sig saman og
setti upp leiksýningu.
Og nú hefur það gerst. Nokkrir áhugasamir einstakl-
ingar hafa af miklum krafti drifið upp sýningu á nýju
íslensku leikriti eftir þær Iðunni og Kristínu Steins-
dætur. Þetta framtak er sérstaklega skemmtilegt og
yfir sýningunni allri er einlægur og aðlaðandi blær
þó að leikendumir séu ekki sviðsvanir fyrir.
Fugl í búri er óneitanlega eins og klæðskerasaumað
verkefni fyrir hópinn og auðheyrt var af viðbrögðum
áhorfenda á sýningunni, sem ég sá, að margt af því
sem þar var sagt hitti beint í mark enda flestir af kyn-
slóð þeirra sem fjallað var um í verkinu.
En sýningin er ekkert einskorðuð við einhvern sér-
stakan aldur, heldur geta allir haft af henni gaman
um leið og hún opnar kannski augu einhverra fyrir
algengum khsjum og misskilningi á milli þeirra sem
yngri eru og hinna eldri.
Það er auðséð að Sigríður Eyþórsdóttir hefur lagt
mikla alúð við leikstjómina og varast að ofgera sínu
fólki. í verkinu er glettinn tónn, sem skilar sér vel,
og leikendur skemmta sér líka ágætlega sjálfir.
Fugl í búri er lítil fjölskyldumynd sem hefst á því
að ekkjan Geirþrúður á afmæli og böm hennar og
tengdabörn ætla að gleðja hana á sinn hátt með veg-
legri afmælisveislu. Allt er þetta rígfullorðið fólk og
hefur fastmótaðar hugmyndir um sitt eigið hlutverk
og annarra í fjölskyldunni.
En afmæhsveislan fer svohtið úr böndum og menn
gerast óþarflega hreinskilnir, af því að inni í ísskáp
leyndist brennivínslögg í flösku.
Sigurbjörg Sverrisdóttir og Guðvarður Sigurðsson i
hlutverkum sínum í Fugl í búri.
„Börnin“ hennar Geirþrúðar sjá aðeins það sem þau
vilja sjá og í huga þeirra flestra var faðir þeirra hátt
yfir alla gagnrýni hafinn enda mikilsmetinn borgari.
Eftir að hann dó vilja þau ráðskast með móðurina,
rétt eins og eiginmaður hennar hafði ahtaf gert.
En hún hefur, án þess að þau hafi tekið eftir því,
fundið frelsi og lífsfylhngu innan um nýja kunningja
á Sólsetri, og leiðist frekar afskiptasemin, þó að hún
vilji ekki svekkja þau með því að segja það upphátt.
Hún hefur líka áratuga reynslu í því að hlýða öðrum.
Litli fughnn, sem Geirþrúður sleppir úr búrinu og
gefur þannig frelsi, verður tákn um hana sjálfa og líf
hennar. Henni finnst það skipta meginmáli að hann
fékk að upplifa frelsið þó að það væri kannski aðeins
stutta stund. „Ég hefði aldrei haft minn fugl í búri,“
segir hún og vísar um leið til sinnar eigin ævi. Verkið
er einfalt og ágætlega upp byggt, persónumar skýrar
og mikilvægum skhaboðum komið á framfæri án þess
að prédika.
Það sem einkenndi leik hópsins öðru fremur var
eins og fyrr sagði einlægni sem gerði þaö að verkum
að auðvelt var að loka augunum fyrir því að hér var
ekki sviðsvant fólk á ferðinni. Þessi kynslóð íslendinga
á ekki í neinum erfiðleikum með að tala skýrt og skil-
Leildist
Auður Eydal
merkhega og þó að hljómburöur sé ekki sem bestur í
Risinu komst textinn ágætlega til skha.
Því miður fékk ég ekki í hendur neina leikskrá, eöa
blað með nöfnum leikenda, og verð því að láta nægja
að segja að öhum tókst að bæta nokkrum penshdrátt-
um og persónueinkennum við þá mynd sem textinn
lagði th. Hópurinn hennar Geirþrúðar var þarna ljós-
lifandi kominn. Systkinin, ólík innbyrðis eins og geng-
ur, og tengdabörnin á sínum afmarkaða bás, rétt eins
og í þúsundum annarra fjölskyldna.
Miðað við aðstæður í Risinu var allri ytri umgjörð
sýningarinnar ágætlega fyrirkomið og ekki spihti
söngur Móeiöar Júníusdóttur sem hljómaði engilfagur
á mhli atriða.
Snúður og Snælda - Leikfélag eldri borgara sýnir í Risinu,
Hverfisgötu 105:
FUGL í BÚRI
Höfundar: Iðunn og Kristín Steinsdætur.
Leikstjóri: Sigriður Eyþórsdóttir.
Ráögjöf viö leikmynd: Elín Edda Árnadóttir.
Tónlistarumsjón: Eyþór Arnalds.
Söngur: Móeiður Júníusdóttir.
Ljós: Egill Inglbergsson.
Andlát
Dómhildur Skúladóttir frá ísafirði
lést á Hrafnistu í Reykjavík 14. jan-
úar. Útfórin hefur farið fram.
Jarðarfarir
Ásta Guðrún Karlsdóttir, Hamrahlíð
1, verður jarðsungin frá Dómkirkj-
unni fostudaginn 24. janúar kl. 13.30.
Steingrímur Jónsson frá Höfðakoti,
Skagaströnd, verðiu- jarðsunginn frá
Hólaneskirkju á Skagaströnd laugar-
daginn 25. janúar kl. 14.
Minningarathöfn um Hjört Ár-
mannsson, Norðurgötu 1, Siglufirði,
fer fram í Siglufjarðarkirkju laugar-
daginn 25. janúar kl. 16.
Tilkyrmiiigar
„Uppgangan“ sýnd í bíósal
MÍR
Fræg sovésk verðlaunamynd frá árinu
1977 verður sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg,
10, nk. sunnudag 26. janúar kl. 16. Þetta
er myndin „Uppgangan“ sem gerð var
undir stjóm Larissu Shepitko. Kvik-
myndin lýsir atburðum sem gerðust í
skóglendi Hvíta-Rússlands fyrir réttum
50 árum veturinn 1942. Rússneskt tal,
enskur texti. Aðgangur ókeypis og öllum
heimill.
Teiknimyndin Litla hafmeyjan
Sunnudaginn 26. janúar kl. 14 verður
kvikmyndasýning fyrir böm og unglinga
í fundarsal Norræna húsinu. A dagskrá
verður teiknimyndin Litla hafmeyjan,
gerð eftir hinu vinsæla ævintýri H. C.
Andersens. Danskt tal er í myndinni og
em þekktir danskir leikarar sem fara
með hlutverkin. Myndin er gerö 1989 og
er sýningartíminn 1 klst. og 20 minútur.
Aðgangur er ókeypis og bömin fá ávaxta-
safa í hléi.
Fréttir
Leiguverö á hjónagörðum
Athugasemd
Vegna fréttar í DV sl. þriðjudag
óskar Félagsstofnun stúdenta eftir
því að eftirfarandi konh fram:
Það er og hefur verið markmið
Félagsstofnunar stúdenta að sjá
stúdentum við Háskóla íslands fyrir
sem ódýrustu leiguhúsnæði.
Leiguverö á Gömlu hjónagörðun-
um fyrir tveggja herbergja íbúð er
nú kr. 19.539,- og það efdr þessa svo-
köhuðu svívirðhegu 10% leiguhækk-
un.
Þess má geta að leiguverði á stúd-
entagörðum er einungis ætlað að
standa undir kostnaði viðkomandi
húsnæðis, enda ekki eðlhegt aö aðrir
viðskiptavinir Félagsstofnunar nið-
urgreiði leigu á hjónagörðum.
Það er ólíklegt að nokkur reyni að
halda því fram að þetta sé há leiga
þar sem hún er langt undir markaðs-
verði og er þá sama hver viðmiðunin
er.
Einnig skal bent á að hið nýja leigu-
verð var thtekið í leigusamningum
sem gerðir voru við íbúa hússins í
haust. Enginn er skyldugur th að
ganga að þeim kjörum sem bjóðast á
stúdentagöröunum og langir biðhst-
ar benda th þess að flestum finnist
leiguverð ásættanlegt.
Félag eldri borgara
Málgagn ogg fréttablað félags Eldri borg-
ara í Rvik og nágrenni er komiö út fjórða
árið í röð, 2. tbl. á árinu 1991. Meðal efnis
í blaðinu er: Æfmgin skapar meistarann
eftir Jón Eyjólf Jónsson. Hollusta á efri
árum, ábendingar um mataræði og holl-
ustu aldraða eftir Laufeyju Steingrims-
dóttur. Grímúlfur smali, lítil saga um
dugnað og skyldurækt úr sagnabrunni
Ásdísar Ólafsdóttui'. Umskipti eftir Hall-
grím Dalberg. Sveigjanleg starfslok eftir
Olaf Ólafsson landlækni o.m.fl.
Landssamtökin ITC á íslandi
Námsstefna verður haldin á vegum n.
ráðs ITC á íslandi í Flensborgarskólan-
um í Hafnaríirði laugardaginn 25. janúar
1992. Fundurinn hefst með skráningu kl.
9. Fundur er settm- kl. 10. Á dagskrá er
ýmislegt sem tengist ræðumennsku,
fundarstjóm og mannlegum samskipt-
um. Allir em velkomnir. Upplýsingar
gefur Margrét Sigurbjömsdóttir, sími
51001.
Sinfóníuhljómsveit íslands
Fimmtudaginn 23. janúar verða tónleikar
í rauðri tónleikaröð í Háskólabíói og hefj-
ast þeir kl. 20. Á þessum tónleikum verð-
ur í fyrsta skipti flutt tónverk eftir Finn
Torfa Stefánsson. Á efnisskránni verða
eförtalin verk: Hljómsveitarverk II eftir
Finn Torfa Stefánsson, Till Eulenspieg-
el eftir Richard Strauss og Píanókon-
sert nr. 2 eftir Béla Bartók. Einleikari
verður Bandaríkjamaðurinn Tzimon
Barto og hljómsveitarstjóri Finninn
Osmo Vánská. ,
Félag eldri borgara
Opið hús í dag, fimmtudag í Risinu kl.
13-17. Bridge og fijáls spilamennska.
Fugl í búri sýnt laugardag og sunnudag
kl. 17.
Fundur
íþróttafélag Reykjavíkur
Framhaldsaðalfundur og í framhaldi af
honum aðalfundur knattspymudeildar
ÍR verður haldinn í safnaðarheimili
Seljasóknar fostudaginn 31. janúar nk.
kl. 20.30. Stjómin.
Myndgáta
W
Myndgátan hér að ofan
lýsir athöfn.
Lausn gátu nr. 235:
liggur
yflrbókum
Pastakvöld og aðalfundur ít-
alíufélagsins
Aðalfundur Ítalíufélagsins verður hald-
inn í Café Mílanó, Faxafeni 11, fostudag-
inn 24. janúar kl. 19. Sama kvöld kl. 20,
gengst félagið fyrir pastakvöldi á sama
stað. Boðið verður upp á nokkrar tegund-
ir pastarétta o.fl. á vægu verði. Auk þess
verður í fyrsta skipti veittur námsstyrk-
ur í nafni félagsins. Pastakvöldið er öÚum
opið, bæði meðlimum félagsins og áhuga-
fólki um ítaliu og ítalska menningu. Þeir
sem hyggjast taka þátt í pastakvöldinu
þurfa að tilkynna þátttöku sína til Jó-
hönnu G. Möller í síma 11097 eða Karis
Steingrímssonar í síma 20160.
Námskeið
Prjónanámskeið
Nýtt pijónanámskeiö byijar miðviku-
daginn 29. janúar. Hvert námskeið stend-
ur í sex vikur. Skráning hafin. Kennari
verður Auður Bjömsdóttir. Allar nánari
upplýsingar í síma 11616.
Leikhús
STÓRA SVIÐIÐ
RÓMEÓ OGJÚLÍA
eftir William Shakespeare
í kvöld kl. 20.00. Uppselt.
Sunnud. 26. jan. kl. 20.00.
Laugard. 1. febr. kl. 20.00.
Laugard. 8. febr. kl. 20.00.
eftir Paul Osborn
Laugard. 25. jan. kl. 20.00.
Sunnud. 2. febr. kl. 20.00.
Föstud. 7. febr. kl. 20.00.
Föstud. 14. febr.kl. 20.00.
SÝNINGUM FER FÆKKANDI
M. BUTTERFLY
eftir David Henry Hwang
Föstud. 24. Jan. kl. 20.00.
Föstud. 31. jan. kl. 20.00.
Fimmtud. 6. febr. kl. 20.00.
Laugard. 13. febr. kl. 20.00.
LITLA SVIÐIÐ
KÆRA JELENA
eftir LJudmilu Razumovskaju
Föstud. 24. Jan. kl. 20.30. Uppselt.
Laugard. 25. Jan. kl. 20.30. Uppselt.
Þriöjud. 28. jan. kl. 20.30. Uppselt.
Flmmtud. 30. Jan. kl. 20.30. Uppselt.
Föstud. 31. jan. kl. 20.30. Uppselt.
UPPSELT ER Á ALLAR SÝNINGAR
Á KÆRU JELENU TIL 9. FEBR.
MIDAR Á KÆRU JELENU SÆKIST
VIKU FYRIR SÝNINGU, ELLA SELD-
IRÖÐRUM.
ATHUGIÐ AÐ EKKIER UNNT AÐ
HLEYPA GESTUM INN í SALINN
EFTIR AÐ SÝNING HEFST.
Kæra Jelena sýnd 11., 12., 14., 15.,
18., 20., 22., 25., 27. og 28. febrúar.
kl. 20.30.
SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ
ÉG HEITIÍSBJÖRG,
ÉG ER LJÓN
eftir Vigdisi Grímsdóttur
Frumsýning föstud. 24. jan.
kl. 20.30. Uppselt.
2. sýn. sunnud. 26. jan. kl. 20.30.
Uppselt.
3. sýn. föstud. 31. jan. kl. 20.30.
4. sýn. laugard. 1. feb. kl. 20.30.
Sýningin er ekki við hæfi barna.
Miðasalan er opin frá kl. 13-18
alla daga nema mánudaga og
fram að sýningum sýnlngar-
dagana. Auk þess er tekið á
móti pöntunum I síma frá kl. 10
alla virkadaga.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA.
GRÆNA LÍNAN 99-6160.
Leikhúskjallarinn er opinn öll
föstudags- og laugardagskvöld.
Leikhúsveisla: Leikhúsmiði og
þriréttuð máltíð öll sýningar-
kvöld á stóra sviðinu.
Borðpantanir í
mlðasölu.
Leikhúskjallarinn.