Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1992, Side 4
20
FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1992.
Sýningar
Art-Hún
Stangarhyl 7. sími 673577
Art-Hún-hópurinn sýnir skúlptúrverk,
grafík og myndir. Opið virka daga kl.
12-18. Aðrir tímar eftir samkomulagi.
Ásgrímssafn
Bergstaðastræti 74, simi 13644
Safn Ásgríms Jónssonar verður lokað í
desember og janúar en frá 1. febrúar 1992
verður opið á laugardögum og sunnudög-
um kl. 13.30-16.00. Hópar og einstakling-
ar, sem vilja koma á öðrum tímum, geta
haft samband við safnvörð.
I vetur er sýning á ævintýra- og þjóð-
sagnamyndum eftir Ásgríms Jónsson í
safni hans að Bergstaðastræti 741 Reykja-
vik. Við val verka á sýninguna var meðal
annars haft i huga að börn gætu haft gagn
og gaman af henni. Enn sem fyrr geta
hópar pantað leiðsögn um safnið með
safnakennara.
Nánari upplýsingar veitir Þorgeir Ólafsson
í síma 13644/621000.
Ásmundarsafn
Sigtúni, sími 32155
Þar stendur yfir sýning sem ber yfirskriftina
Bókmenntirnar í list Ásmundar Sveinsson-
ar. Jafnframt hefur verið tekin í notkun
ný viðbygging við Ásmundarsafn. Safnið
er opið frá kl. 10-16 alla daga.
FÍM-salurinn,
Garðastræti 6
Mikið úrval olíumálverka, vatnslita-
og graflkmynda eftir félagsmenn í
FIM er nú til sýnis og sölu í FÍM-
salnum. Flest verkin eru ný en einn-
ig er að frnna eldri verk. Opið er kl.
14-18 virka daga en lokað um helgar.
Gallerí Borg
Pósthússtræti 9, sími 24211
Opið daglega kl. 14-18.
Gallerí 11
Þóra Sigurðardóttir sýnir skúlptúra og
teikningar til 30, janúar.
Gallerí List
Skipholti. simi 814020
Sýning á listaverkum eftir ýmsa listamenn.
Opið daglega kl. 10.30-18.
Gallerí Port
Kolaportinu
Opið laugardaga kl. 10-16. I febrúar ein-
ungis á sunnudögum verk eftir frístunda-
málara.
Gallerí Sævars Karls
Bankastræti 9, simi 13470
Svala Sigurleifs sýnir portret af listamönn-
um. Opið á verslunartíma frá kl. 9-18.
Gallerí Úmbra
Amtmannsstig 1. sími 28889
Leirlistarkonurnar Bryndís Jónsdóttir og
Guðný Magnúsdóttir eru með sýningu á
verkum sinum í Gallerí Úmbru. Sýningin
er sölusýning. Galleríið er opið þriðjudaga
til föstud. kl. 12-18 og laugard. kl. 10—14.
Gunnarssalur
Þernunesi 4, Arnarnesi, Garðabæ
Sýning á verkum Gunnars S. Magnússon-
ar stendur yfir í Gunnarssal. Sýningin er
opin á laugard. og sunnud. kl. 14-20.
Hafnarborg
Strandgötu 34. simi 50080
Sveinn Björnsson listmálari opnar mál-
verkasýningu laugardaginn 1. febrúar kl.
14. Opið er frá klukkan 12-18 alla daga
nema þriðjudaga.
Hótel Lind
Rauðarárstíg 18
Arnþór Hreinsson sýnir málverk I veitinga-
sal Lindarinnar.
J. Hinriksson
Maritime Museum
Súðarvogi 4, sími 814677
Sjóminja- og vélsmiðjumunasafnið er opið
frá kl. 13-17 þriðjudaga, miðvikudaga,
fimmtudaga, föstudaga og laugardaga.
Norræna húsið
Til sýnis er norsk vefjarlist. Sýningin stend-
ur til 23. feþrúar og verður opinn daglega
kl. 14-19.
Katel
Laugavegi 20b. simi 18610
(Klapparstígsmegin)
Til sölu eru verk eftir innlenda og erlenda
listamenn, málverk, grafík og leirmunir.
Kjarvalsstaðir
v/Miklatún, sfmi 26131
í vestursal er sýning á verkum í eigu
Reykjavíkurborgar eftir eldri meist-
arana. Þeir eru m.a. Jón Engilberts,
Jón Stefánsson, Ásgrímur Jónsson,
Gunnlaugur Blöndal, Kristín Jóns-
dóttir, Júlíana Sveinsdóttir, Jóhann
Briem og Gunnlaugur Scheving. Sýn-
ingin stendur til 16. febrúar. Kjarv-
alsstaðir eru opnir daglega frá kl.
10-18 og er veitingabúðin opin á sama
tima.
Nýhöfn
Hafnarstræti 18. sími 12230
Sýning á ollumálverkum eftir Ingibjörgu
Eyþórsdóttur. Sýningin stendur til 12. fe-
brúar.
Ljóó
Á morgun, laugardaginn 1. febrú-
ar, er opnuð að Kjarvalsstöðum sýn-
ing á ljóðum eftir Hannes Sigfússon.
í vestursal stendur yfir sýning á
verkum eftir átján eldri meistara og
í austursal er sýning á verkum í eigu
borgarinnar eftir Jóhannes Sveins-
son Kjarval.
Hannes Sigfússon (f.1922) var í hópi
hinna ungu atómskálda sem ruddu
Kjarvalsstaðir:
i
Hannesar
nýjum ljóðstíl braut um miðja öld-
ina. Fyrsta ljóðabók Hannesar,
Dymbilvaka, var einstætt verk er
hún kom út 1949 og vakti mikla at-
hygh ljóðaunnenda. Ljóðin eru byggð
úr sérkennilegum og torræðum
myndum, stíUinn einkennist af nýst-
árlegri skynjun en í hinu ytra formi
eru gjarnan eigindir hefðbundins
kveðskapar.
í nýjustu ljóðabók Hannesar, Jarð-
munum 1991, er náttúran honum
hugstæð, verndun hennar og gildi.
Skáldskapurinn sjálfur, vandi hans
og hlutverk, er honum enn sem fyrr
áleitið yrkisefni. Ljóðabækur Hann-
esar eru orðnar sjö að tölu en hann
er einnig mikilvirkur þýðandi ljóða
og smásagna.
Á sýningu Mattheu í SPRON getur að líta 14 málverk, öll máluð á striga.
Matthea Jóns-
dóttir sýnir
Á sunnudag kl. 14 verður opnuð
sýning í útibúi SPRON við Álfabakka
14 á verkum eftir Mattheu Jónsdótt-
ur myndlistarkonu. Matthea stund-
aði nám viö Myndlista- og handlða-
skólann 1953-55 og Myndlistarskól-
ann í Reykjavik 1960-1961. Hún hefur
haldið 13 einkasýningar og verið
þátttakandi í íjölmörgum samsýn-
ingum hér heima og erlendis.
Matthea hefur nokkrum sinnum
hlotið viðurkenningu fyrir verk sín
á alþjóðasýningum, meðal annars í
Frakklandi og Belgíu. Sýningin mun
standa til 30. apríl.
Sveinn
Bjömsson
í Hafnar-
borg
Sveinn Bjömsson listmálari opnar
málverkasýningu í Hafnarbprg á
morgun, laugardag, kl. 14.00. Á sýn-
ingunni verða 65 málverk við ljóð
Matthíasar Johannessens, Sálmar á
atómöld. Þessi ljóðaflokkur Matt-
híasar birtist fyrst í bókinni Fagur
er dalur árið 1966 og var endurútgef-
inn á síðasta ári.
Sveinn Björnsson hefur unnið
mynd við hvert hinna 65 ljóða í
flokknum og leitast við að túlka þær
myndhverfu líkingar sem koma fyrir
í þeim. Myndimar eru unnar í pastel
og olíupastel og eru allar málaðar á
árinu 1990.
Sveinn er þjóðkunnur málari.
Hann hefur haldið fjölda einkasýn-
inga, bæði hér heima og erlendis, og
tekið þátt í samsýningum.
Kjarvalsstaðir:
Safnaleiðsögn
Nú er hafin sérstök safnaleiðsögn
fyrir sýningargesti að Kjarvalsstöð-
um. Sérfræðingur safnsins tekur á
móti gestum í anddyri Kjarvalsstaða
og fara með þá í gegnum sýningarnar
Kjarval og eldri meistarar úr Lista-
safni Reykjavíkur.
Safnaleiðsögn þessi verður fram-
vegis á laugardögum og sunnudög-
um kl. 16.
Skólafólk hefur nýtt sé vel leið-
sögnina og vilja forsvarsmenn Kjar-
valsstaða beina þeim tilmælum til
kennara að pánta sérstaka tíma í
síma 26188.
Kjarvalsstaðir eru opnir daglega
frá kl. 10 til 18 og er veitingabúðin
opin á sama tíma.
Norræna húsið:
Norsk vefj arlist
til sýnis
Á morgun, laugardagixm 1. febrú-
ar, verður opnuð sýning í sýningar-
sölum Norræna hússins á verkum
eftir 15 norskar veflistakonur. Þetta
er farandsýning sem fer héðan til
Norðurlandahússins í Færeyjum og
síðan aftur til Noregs. Sýningin
stendur til 23. febrúar og er opin
daglega kl. 14-19.
Listakonumar, sem sýna verk sín,
eru allar búsettar í Miö-Noregi. Þær
vilja kynna listgrein sína, sem stend-
ur með miklum blóma í heimabyggð-
um þeirra, og er sýningin brot af því
Erindaröð á vegum heimspeki-
nema við háskólann heldur áfram á
morgun. í þetta sinn talar Jón Toríi
Jónasson, dósent í uppeldisfræði, og
áhugaverðasta sem unnið er í veíjar-
list í Noregi í dag. Hún gefur góða
mynd af hversu fjölbreytilegur Ust-
vefnaður er um þessar mundir.
Þessi hstgrein á sér djúpar rætur í
Mi-Noregi, Árið 189 var stofnsettur
vefnaðarskóh og vinnustofur fyrir
vefjarlist. Skólinn var rekinn til 1909.
Síðar komu fram aðrir hstamenn og
má nefna Hönnuh Ryggen en hún
vakti mikla athygli á 4. áratugnum
og varð áhrifavaldur nýrrar kynslóð-
ar veíjarlistamanna sem hófu feril
sinn 1960-1970.
heitir erindi hans Hugur og heili.
Erindið er 45 mínútna langt og eru
allir velkomnir í stofu 101 í Odda kl.
15 á laugardag. Aðgangur er ókeypis.
Norræna húsið:
Saltkrákan
Á sunnudag verður kvikmynda-
sýning fyrir böm og unglinga í fund-
arsal Norræna hússins kl. 14.00.
Sýnd verður myndin Tjorven og
Skrállan sem gerö er eftir sögu
Astrid Lindgren um lífið á Saltkráku.
Myndin er gerð árið 1965. Lífið á
Saltkráku er fjölbreytt og krakkam-
ir, þau Tjorven, Palh og Stína,
skemmta sér vel. Það færist enn
meira fjör í leikinn þegar hin tæplega
tveggja áraSkrállen bætist í hópinn.
Margir ættu að muna eftir þessum
persónum úr sjónvarpsþáttum sem
sýndir vora í Sjónvarpinu fyrir
nokkrum árum. Aðgangur er ókeyp-
is.
Mælskukeppni
Fyrri umferð í mælsku- og rök-
ræðukeppni I. ráðs ITC verður hald-
in á Hótel Esju, 2. hæö, á sunnudag
kl. 13.00. Fjögur Uð keppa um áfram-
haldandi rétt til þátttöku.
Tvær tUlögur liggja fyrir fundin-
um. í annarri er lagt til að utanlands-
ferðir verði bannaðar í eitt ár og í
hinni að framleiösla og sala áfengis
verði gefin frjáls.
Hugur og heili
Sýningar
Listasafn
Einars Jónssonar
Njarðargötu, sími 13797
Opið laugardaga og sunnudaga kl.
13.30—16. Lokað í desember og janúar.
Höggmyndagarðurinn er opinn daglega
kl. 11-16.
Listinn
gallerí - innrömmun
Síöumúla 32, sími 679025
Uppsetningar eftir þekkta, íslenska málara.
Opið vifka daga kl. 9-18, laugardaga kl.
10-18 og sunnudaga kl. 14-18.
Listasafn
Háskóla íslands
í Odda, sími 26806
Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum
verkum í eigu safnsins. Opið er daglega
kl. 14-18. Aðgangur að safninu er ókeypis.
Listasafn íslands
Fríkirkjuvegi 7, sími 621000
Listasafnið er opið alla daga nema mánu-
daga kl. 12-18 og er aðgangur ókeypis.
Listasafn Sigurjóns
Laugarnesi. simi 32906
Farandsvningin Sigurjón Ólafsson - Dan-
mörk - Island 1991 - stendur yfir I lista-
safninu. Hér er um að ræða yfirlitssýn-
ingu. Sýningin er opin um helgar kl.
14- 17.
Listhúsið Snegla
Grettisgötu 7. sími 620426
Þar eru listmunir til sýnis og sölu, unnir
af 15 listakonum sem vinna í textíl, keramik
og skúlptúr. Opið mánudaga til föstudaga
kl. 12-18 og laugardaga kl. 10-14.
Menntamálaráðuneytið
Hólmfríður Árnadóttir sýnir pappirsverk,
Guðrún Marinósdóttir textíllágmyndir og
Anna S. Gunnlaugsdóttir akrýlmálverk.
Sýningin stendur til 19. febrúar og er opin
virka daga frá 9-17.
Mílanó
Faxafeni 11, sími 678860
Hans Christiansen sýnir vatnslitamyndir.
Þetta er 21. einkasýning listamannsins og
sýnir hann nú um 20 myndir. Flestar
myndanna eru nýjar og eru allar til sölu.
Sýningin er opin alla virka daga kl. 9-19,
iaugardaga kl. 9-18 og sunnudaga kl.
13-18.
MÍR-salurinn
Vatnsstíg 10, sími 17928
Mokkakaffi
v/Skólavörðustíg, sími 21174
Þorvaldur Þorsteinsson sýnir frummyndir
úr bókinni Openings. Hann sýnir einnig á
Nýlistasafninu.
Nýlistasafniö
Vatnsstíg 3b. sími 14350
Þorvaldur Þorsteinsson sýnir teikningar,
klippimyndir, texta og Ijósmyndir. Opið
alla daga kl. 14-18. Hann sýnir einnig á
Mokka.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8
Hafnarfirði, simi 52502
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18.
Póst-
og símaminjasafnið
Austurgötu 11, sími 54321
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15- 18. Aðgangur ókeypis.
Vinnustofa Ríkeyjar
Hverfisgötu 59, sími 23218
Þar eru til sýnis og sölu postulínslágmynd-
ir, málverk og ýmsir litlir hlutir. Opið er á
verslunartíma þriðjudaga, miðvikudaga,
fimmtudaga og föstudaga og á laugardög-
um kl. 10-16.
Þjóðminjasafnið,
sími 28888
Sýning á óþekktum Ijósmyndum og sýn-
ing á 32 vaxmyndum. Safnið er opið
þriðjud., fimmtud., laugard. og sunnudag
kl. 12-16. Sérstök leiðsögn um safnið alla
laugard. kl. 14.
Myndlistarsýning
í Spron
Sýning á verkum eftir Mattheau Jónsdótt-
ur myndlistarkonu. Sýningin mun standa
yfir til 30. apríl nk. og verður opin frá kl.
9.15-16, þ.e. á afgreiðslutíma útibúsins.
Minjasafnið á Akureyri
Aöalstræti 58. simi 24162
Opið daglega kl. 11-17. Þar stendur yfir
sýning á mannamyndum Hallgrims Einars-
sonar Ijósmyndara. Möppur með Ijós-
myndum liggja frammi og einnig eru til
sýnis munir og áhöld af Ijósmyndastofu
Hallgríms.