Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1992, Qupperneq 2
24
MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1992.
Iþróttir
Bikarúrslit kvenna:
Sáfyrsta'
í Víkina
- Víkingur vann FH, 19-14
ALBERTVILLE92
Bandaríkjamenn
fjölmennastir
Flestir þátttakenda á vetrarleik-
unum í Albertville koma frá
Bandaríkjunum en Bandaríkja-
menn senda 181 íþróttamann til
leikanna aö þessu sinni. Fæstir
keppendur eru frá Hondúras og
Kólumbíu, einn frá hvoru landi.
400 bílstjórar í
víggirtu fangelsi
Gífurlegur fjöldi fréttamanna
fylgist með OL í Albertville og til
þess aö þeir komist á rétta staði
á réttum tímum eru til staðar um
400 rútubílstjórar. Þeir verða að
gera sér að góðu að búa 1 víggirtu
fangelsi 15 km fyrir utan Albert-
ville á meðan á leikunum stend-
ur. Ástæðan er einfaldlega sú að
engin gistiaöstaða fyrir svo fjöl-
mennan hóp er nær Albertville.
Alltaf fjöfgar
þátttakendunum
Stööugt fjölgar þátttakendum á
vetrarleikunum og þeim þjóðum
sem senda keppendur á leikana.
Á síðustu leikum í Calgary í
Kanada 1988 voru keppendur 1458
frá 55 löndum. í Albertville keppa
2100 íþróttamenn frá 65 þjóðum.
Bremsurnar biluðu
hjá Dan Quayle
Mörg fræg andlit mátti sjá við
hina glæsilegu opnunarhátíð í
Albertville og þeirra á meðal
varaforseta Bandaríkjanna, Dan
Quayle. Hann lenti í kröppum
dansi í frönsku Ölpunum á leiö
sinni til setningarhátíöarinnar á
laugardag er hemlamir á bíl hans
biluðu. Bílstjóri varaforsetans
sýndi mikið snarræði og tókst að
stöðva bifreiðina snarlega. Með
Quayle í bílnum var dóttir Bush
forseta.
Náði 7. sæti og
fór síðan heim
Norska stúlkan Inger-Helene Ny-
braten keppti í gær í 15 km göngu
kvenna og náöi 7. sæti. Hún
missti föður sinn á fostudaginn
og var ákveðin í að gera sitt besta
í göngunni í gær en faðir hennar
var þekktur skíðaþjálfari og
kenndi Nybraten allt sem hún
kann í dag og það virðist vera
þónokkuð. Þess má geta að Ny-
braten er farin heim til Noregs.
Lánið leikur ekki
við Norðmennina
Frændur vorir Norðmenn eiga á
brattann að sækja í Albertville.
Besti skautahlaupari Noregs, Jo-
hann-Olav Koss, hefur verið lagð-
ur inn á sjúkrahús og óvíst er
hvort hann getur keppt á leikun-
um. Koss var álitinn sigurstrang-
legur í það minnsta í þremur
greinum og mjög líklegur til að
vinna þrenn gullverðlaun fyrir
Norðmenn.
Óvenjuleg verðlaun
í Albertville
Verðlaunin, sem um er keppt á
OL í Albertville, eru sérstök fyrir
þær sakir að verðlaunapening-
amir em ekki nema að hluta til
úr góðmálmunum gulli, silfri og
bronsi. Að mestu era peningamir
úr kristal og hefur þetta ekki áður
gerst á ólympíuleikum. Verð-
launapeningamir verða þó jafn
eftirsóttir og áður.
Víkingar fógnuðu sínum
fyrsta sigri í meistara-
flokki kvenna í hand-
knattleik á laugardag en
þær unnu FH í úrslitaleik í bikar-
keppni HSÍ, 19-14.
Víkingsstúlkur komu mun ákveðn-
ari til leiks og léku þær yfirvegaðan
og skemmtilegan sóknarleik á meðan
sóknarleikur FH var í molum. Það
var aðeins í byijun sem jafnræði var
með liðunum en smám saman juku
Víkingsstúlkur á forskotið og náðu 6
marka mun fyrir leikhlé, 14-8. Annað
var uppi teningnum í síðari hálfleik
og Víkingsstúlkur virtust vera með
hugann við bikarinn því þær geröu
sig seka um mjög mikið af mistökum
en það kom ekki á sök því sóknar-
leikur FH var ekki upp á marga fiska.
FH-stúlkur náðu aðeins að rétta úr
kútnum um miðjan seinni hálfleik
en þær skoraðu þrjú mörk í röð,
17-14, en það var eldd nóg því Vík-
ingsstúlkur vora ekkert á því að gefa
eftir og gulltryggðu þær sér bikarinn
með því að skora tvö síðustu mörkin.
Annað Víkingslið í
síðari hálfleiknum
Víkingsstúlkur léku mjög góðan
handbolta í fyrri hálfleik bæði í vöm
og sókn og var hreint frábært að sjá
hvað liðsheildin var góð. Það var eins
og annað lið kæmi inn á í síðari hálf-
leik því ekkert gekk upp í sóknarleik
liðsins og gerðu þær aðeins 5 mörk.
Víkingar geta þakkað góðri vöm og
góöri markvörslu hjá Sigrúnu Ólafs-
dóttur að FH-stúlkur náðu ekki að
minnka muninn í seinni hálfleik.
Ekkert gekk upp hjá FH í þessum
leik, það vantaöi alla ógnun í sóknar-
leikinn.
Mörk Víkings: Halla Helgadóttir
7/2, Svava Sigurðardóttir 4, Svava
Baldursdóttir 3, Andrea Atiadóttir
2, Inga Lára Þórisdóttir 2, Hanna
Einarsdóttir 1.
Mörk FH: Jólita Klimvance 3, Mar-
ía Sigurðardóttir 3/2, Berglind
Hreinsdóttir 2, Rut Baldursdóttir 2,
Eva Baldursdóttir 2, Sigurborg Eyj-
ólfsdóttir 1, Thelma Ámadóttir 1.
-BÓ
„Stefnan að vinna
tvöf alt í ár“
- sagði Inga Lára Þórisdóttir
„Við byriuöum vel og náðum að halda dampi út fyrri hálfleikinn, hðs-
heildin var alveg frábær og voram við allar að skora. Við áttum náttúr-
lega ekki von á að þetta yrði svona létt og er skiljanlegt að það hafi ver-
ið titringur hjá okkur í seinni hálfleik og þær nýttu sér þessa leiðinlegu
feila sem við vorum að gera. Nú er stefnan að sjálfsögðu tekin á að vinna
tvöfalt í ár,“ sagði Inga Lára Þórisdóttir, fyrirliði bikarmeistara Víkings,
í samtali við DV eftir sigurinn á laugardaginn var.
Anna María Sveinsdóttir, ÍBK, átti stórleik er lið hennar sigraði ÍS f 1.
deild kvenna i gærkvöldi. DV-mynd GS
Inga Lóra Þórisdóttir, fyrirliöi Víkings, hampar bikarnum eftir sigur Víkings
gegn FH í úrslitum bikarsins, 19-14. DV-mynd GS
Körfuknattleikur kvenna:
ÍBK þokast nær
meistaratitlinum
Stúlkumar úr Keflavík mmu
sannfærandi sigur á Stúdínum,
68-47, í gærkvöldi í 1. deild kvenna í
körfuknattieik.
Björg Hafsteinsdóttir kom ÍBK á
bragðið strax á upphafsmínútunum
með tveimur þriggja stiga körfum og
áður en sex mínútur vora liðnar
hafði hún skorað fjórar þriggja stiga
körfur. Þetta var meira en Stúdínur
réðu við og þrátt fyrir góða tilburði
í síðari hálfleik var sigur ÍBK aldrei
í hættu.
Björg Hafsteinsdóttir og Anna
María Sveinsdóttir vora bestar í hði
ÍBK en hjá Stúdínum var Vigdís Þór-
isdóttir atkvæöamest.
Stig ÍS: Vigdís 16, Kristín 14, Elín-
borg 5, Ema 4, Anna 2, Unnur 2,
Þórdís 2 og Díana 2.
Stig ÍBK: Anna María Sv. 25, Björg
16, Katrín 8, Elínborg 6, Guðlaug 6,
Kristín 3, Svandís 2 og Anna María
Sig. 2.
Haukar sigruðu ÍR
• Haukar unnu nauman sigur á ÍR,
55-52, í 1. deild kvenna í gær. Hauka-
stúlkur höfðu framkvæði í fyrri hálf-
leik og höfðu 11 stiga forystu í leik-
hléi, 35-24.
ÍR-stúlkur komu mjög ákveðnar til
leiks í síðari hálfleik og náðu að jafna
um miðjan hálfleikinn, 40-40. Hauka-
stúlkumar vora hins vegar ekki á
því að gefa sigurinn eftir og sigraðu
með þriggja stiga mun, 55-52.
Stig ÍR: Linda 16, Hrönn 10, Vala
8, Ingibjörg 8, Guðrún 4, Sigrún 4,
og Hildur 2.
Stig Hauka: Hanna 16, Guöbjörg 12,
Ásta 11, Eva 8, Hafdís 5, og Sólveig 3.
-ih