Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1992, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1992.
31
íþróttir
Sport-
stúfar
Eric Gerets, fyrrum
belgískur lándsliðs-
maður í knattspymu og
leikmaður meö PSV í
Hollandi, hefur verið ráðinn þjálf-
ari belgíska liðsins FC Liege. Ger-
ets mun hætta að leika með PSV.
• Larry Holmes,
fcf fyrrum heimsmeistari
íþungavigthnefaleika,
vann um helgina mjög
óvæntan sigur í bardaga gegn
Ray Mercer í 12 lotum. Holmes
vann á stigum en hann er 42 ára
gamall.
• Argentínumaöur-
inn Ossie Ardiles, sem
/y # rekinn var frá New-
““^ castle United í síðustu
viku, verður áfram í Englandi og
vonast eftir nýju starii sem fram-
kYæmdastjóri í enska boltanum:
„Ég er ekki bitur. Ég vona að
ákvörðunin um að reka mig frá
Newcastle hafi verið tekin með
hag félagsins í huga,“ sagði Ardi-
les í gær.
* • Kevin Keegan var
ákaft hylltur á laugar-
//, dag eftir stórsigur
NewcastlegegnBristol
City í 2. deild enska boltans.
Keegan var kallaður konungur
af29.263 áhorfendum og hafa þeir
ekki verið fleiri á 2. deildar leik
í vetur. Keegan var óspart hrósað
í ensku blöðunum en eitt þeirra
sagði þó að stjóm Newcastle hefði
tekið stórkostlega áhættu með
ráðningu Keegans.
—n • Japanskir hlaup-
^ arar urðu í þremur
efstu sætunum í al-
þjóðlegu maraþon-
hlaupi sem fram fór í Tokyo um
helgina. Koichi Morishita sigraði
á 2.10,19 klst. en annar varð landi
hans Takeyuki Nakayama á
2.10,25 klst. og Toshiyuki Hayata
varð þriðji á 2.10,37 klst.
• Helena Sukova frá
Tékkóslóvakíu varð
/J sigurvegari á opna As-
^ íu-mótinu í tennis
kvenna sem lauk í Tokyo um
helgina. Hún lék til úrslita gegn
Lauru Gildemeistar frá Perú og
sigraði, 6-2, 4-6 og 6-1.
1 ■'l • Ungur sænskur
vamarmaður, Janne
//, Eriksson, er á leið í
“' vikudvöl hjá Totten-
ham Hotspur. Eriksson, sem er
24 ára gamall og leikur með IFK
Norrköping og sænska landslið-
inu, hefur alltaf verið aðdáandi
Tottenham í enska boltanum.
Samkvæmt frétt fréttastofunnar
TT er Eriksson ætlað að leika við
hlið Garry Mabbutt í vörn Tott-
enham.
• Monica Seles frá
Júgóslavíu sýndi það í
/| gær að hún er fremst
kvenna í tennis nú.
sigraði þá bandarísku
Mary-Joe Fernandez
Seles
stúlkuna
örugglega, 6-0 og 6-3, í úrslitaleik
á móti í Þýskalandi. Þessar stúlk-
ur áttust við á dögunum í úrslita-
leik á opna ástralska meistara-
mótinu og þá vann Seles einnig
ömggan sigur.
• Spánveijinn Se-
veriano Ballesteros
vann í gær 50. sigur
' sinn á stórmóti at-
vinnumanna á „Evróputúrnum".
Þá fór fram Dubai Desert Classic
og flestir bestu kylfingar Evrópu
voru með á mótinu. Ballesteros
vann Bretann Ronan Rafferty í
bráðabana á annarri holu. Báðir
léku þeir holurnar 72 á 272 högg-
um. Bretamir Mark James og
David Feherty komu næstir á 275
höggum og Nick Faldo lék á 276.
• Michel Platini,
j}\ landsliösþjálfari
//, Frakka í knattspymu,
... hefur valið Eric Can-
tona hjá Leeds United í 14 manna
landsliðshóp sinn sem mætir
Englendingum í vináttulandsleik
á Wembley þann 19. febrúar.
Þvagsýnin úr
sömu blöðru?
- Katrin Krabbe, Silke Möller og Grit Breuer ekki lengur 1 keppnisbanni
Þýska frjálsíþróttasambandiö af-
létti í gær banninu sem sambandið
hafði áður dæmt þijár af þekktustu
íþróttakonum Þjóðveija í. íþrótta-
konumar, sem hér um ræðir, em
Katrin Krabbe, Silke Möller og Grit
Breuer. Krabbe er tvöfaldur heims-
meistari, í 100 og 200 m hlaupi og var
kjörin íþróttamaður Þýskalands á
síðasta ári.
Málið virðist vera hið mesta klúður
fyrir þýska fijálsíþróttasambandið.
Stöllumar þijár fóra í lyfjapróf í S-
Afríku fyrir um mánuði og í gær til-
kynnti þýskur prófessor, sem rann-
sakaði þvagsýnin þijú í Köln, að sýn-
in væra öll úr sömu manneskjunni,
sömu þvagblöðrunni. Líidegast úr
Grit Breuer en hann gat ekki sagt
það öragglega. Um helgina fóra þær
aftur í lyfjapróf. Ekkert fannst at-
hugavert við þvagsýnin og engin
merki um lyfjanotkun. Hátt settur
maður innan alþjóða fijálsíþrótta-
sambandsins í S-Afríku sagði í gær
að öllum reglum sambandsins hefði
verið fullnægt við lyfjaprófið í S-
Afríku og tveir læknar hefðu verið
viðstaddir. Annar þeirra meira að
segja inni á saleminu hjá stúlkunum
þremur. Það er þvi í meira lagi und-
arlegt að þýski prófessorinn skuli
hafa komist að því að þvagsýnin til-
heyrðu sömu manneskjunni.
í framhaldi af þessum fréttum af-
létti þýska frjálsíþróttasambandið
keppnisbanninu í gær en lét frá sér
fara yfirlýsingu þar sem fyrirskipuð
var ítarleg rannsókn á málinu. Þær
Krabbe, Möller og Breuer gátu því
keppt á opna þýska meistaramótinu
innanhúss um helgina en reyndar
hafði Breuer áfrýjað úrskurði þýska
sambandsins um keppnisbann og
unniö málið. Munu lögfræðingar
hennar ætla lengra með málið.
Krabbe sagði í gær að þær vissu
allar þrjár að þær væru saklausar.
Þess má geta að hlaupakonan fræga
og einn helsti keppinautur Krabbe,
Merlene Ottey frá Jamaíka, sagði um
helgina að hún tryöi því vel að
Krabbe hefði tekið inn ólögleg lyf.
Hún hefði ekki þorað að keppa gegn
sér nema einu sinni á síðasta ári.
-SK
Handknattleikur á Spáni:
„Er ekki bjartsýnn"
- sagði Júlíus Jónasson eftir tap Bidasoa gegn Granollers
Önnur umferð úrslitakeppninnar um spænska meist-
aratitilinn í handknattleik var leikin um helgina. Bida-
soa, sem Júlíus Jónasson leikur með, tapaði á heima-
velli fyrir Granollers, 17-22, og skoraði Júlíus fimm
mörk í leiknum.
Geir Sveinsson og félagar í Avidesa töpuðu á útivelli
fyrir Pontevedra, 23-22, og skoraði Geir ekki mark.
Barcelona vann öruggan sigur á Mepansa, 23-15, og
Teka sigraði Atletico Madrid, 20-14.
„Við spilum mjög illa þessa dagana. Tveir leikmenn,
sem leika stórt hlutverk í liðinu, era frá vegna meiðsla
og munar um minna. Það verður að segjast að ég er
ekki bjartsýnn á framhaldiö í úrslitakeppninni en mað-
ur vonar auðvitað það besta,“ sagði Júlíus Jónasson í
samtali við DV í gær.
Þegar tveimur umferðum er lokið eru þijú hð efst og
jöfn með fjögur stig, Granollers, Teka og Barcelona.
Avidesa, Bidasoa og Atletico hafa tapað báðum sínum
leikjum til þessa. Átta lið taka þátt í keppninni.
-JKS
Islandsmótið í ísknattleik:
Bjöminn veitti mótspyrnu
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii
Skautafélagið Bjöminn úr Reykja-
vik veitti óvænta mótspymu er liðið
mætti Skautafélagi Akureyrar í ís-
landsmótinu í íshokkí á Akureyri um
helgina, en liðið hafði fengið herfl-
lega útreið í fyrri leikjum sínum í
mótinu.
Bjöminn mætti nú með fjóra
Bandaríkjamenn til leiks og styrktu
þeir liðið mjög. Akureyringarnir
höfðu þó alltaf forastu, staðan 3-2 í
lok fyrstu lotu eftir að hún hafði ver-
ið 3-0. í annarri lotu skoraði Akur-
eyrarliðið tvívegis og í síðustu lot-
unni skoruðu bæði liðin tvívegis.
Úrslitin því 7-4 fyrir Skautafélag
Akureyrar. Akureyrarliðið er með
eitt tap í mótinu eins og Skautafélag
Reykjavíkur, en þau lið eiga eftir að
mætast tvívegis.
Mörk Akureyringa skoraðu Sigur-
geir Haraldsson 2, Sigurður Sigurðs-
son 2, Sigurbjörn Þorgeirsson, Héð-
inn Bjömsson og Heiðar Ingi Ágústs-
son 1 hver. Mörk Bjamarins skoraðu
Kenneth Sudenber 2 og Eiríkur Sig-
urösson 2.
Þessi mynd var tekin á leik Skautafélags Akureyrar og Bjarnarins á Akureyri um helgina. Þar var hart barist og
veittu leikmenn Bjarnarins óvænta mótspyrnu. DV-mynd GK
Heimsmetið i hástökki kvenna
innanhúss féi! um helgina á
þýska meistaramótinu í Karis-
rahe. Heimsmeistarinn innan- og
utanhúss, Heike Henkel, stökk
þá 2,07 metra og bætti fjögurra
ára gamalt met Stefku Kostad-
inovu frá Búlgaríu um einn sentí-
metra.
„Ég er þegar farin að hugsa um
2,10 metra og ef til vill þarf aö
stökkva svo hátt til að sigra á
ólympíuleikunum í Barcelona,"
sagði Henkel eftir að hún hafði
sett heimsmetið.
hjáKR-ingum
KR-ingar sigruðu Völsung 12.
deild klarla i handknattleik um
helgina, 20-19, og skomðu KR-
ingar sigurmarkið á síðustu sek-
öndu leiksins. Úrslit í leikjum um
helgina og siaðan:
KR-Völsungur............20-19
Fjölnir-Vöisungur.......19-25
ÍR-Afturelding..........29-24
HKN-Ármann..............23-21
IR.......13 12 0
ÞórAk....10 10 0
1 359-241 24
0 269-182 20
HKN.......13 10
Aftureld.... 12 7
ÍH........11 6
Ármann....l3 5
KR........12 4
Fjölnir...12 3
Völsungur 14 3
12 0
0 3 324-248 20
0 5 262-244 14
0 5 250-247 12
0 8 284-296 10
1 7 264 262 9
1 8 236-302 7
0 11 301-343 6
0 12 178-343 0
-SK
IRIááSkaganum
Úrslit i 1. deild karla í körfu um
helgina:
ÍA-IR............93-71
83-66
72-76
52-68
79-81
ReynirS-Höttur
Keilufélagið-Höttur
ReynirS-Vikvetji
ffi..........14 13 1 1311-983 26
Höttur.......15 10 5 1127-1036 20
UBK..........14 9 5 1248-1027 18
ÍA...........14 9 5 1084-1036 18
IS
Víkverji
Reynir
KFR.........14
13 S 8 910-939 10
13 5 8 865-1092 10
.....15 4 11 1199-1241 8
1 13 698-888 2
Mjöggotthjá
Broddi Krisíjánsson og Arni
Þór Hallgrímsson náðu mjög góö-
um árangri á opna svissneska
meistaramótinu í badminton.
Þeir félagar koroust báðir í 16
manna úrslit, Broddi með því að
sigra Svisslendinginn Laurent
Jaquen, 15-8 og 15-5, og Pascal
Kaul frá Sviss, 11-15,15-9 og 15-5.
Broddi tapaöi hins vegar í 16
manna úrslitimum fyrir Hol-
landsmeistaranum Jeroen van
Dijk, 12-15 og 2-15.
Árni Þór komst í 16manna úr-
slitin með því að sigra Þjóðverj-
aim Kai Mitteldorf, 15-5,13-15 og
15-12, og Danann Morten Bund-
gard, 15-12, 4-15, og 15-5. í 16-
manna úrslitunum tapaði hann
fyrir Hollendingnum Chris Bruil,
7-15 Og 1-15.
í tvíliðaleiknum gerðu þeir
Broddi og Árni Þór enn betur. Þar
komust þeir í 8-raanna úrslit en
töpuðu þar fyrir Þjóðverjunum
Markus Keck og Helber, 16-15,
15-12 og 16-17, í hörkuleik.
-SK