Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1992, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 1992.
11
Sviðsljós
Blaðaljósmyndir
verðlaunaðar
Um helgina var opnuð í Listasafni
ASÍ sýning á helstu blaðaljósmynd-
um nýliðins árs. Þar sýna um 20 ljós-
myndarar myndir sínar sem eru hátt
í hundrað talsins.
Myndimar voru flokkaðar í sjö
flokka: spaug, portrett, daglegt lif,
myndröð, íþróttir, fréttamynd ársins
og opinn flokk og ein mynd í hveijum
flokki verðlaunuö. Einnig voru veitt
verðlaun fyrir mynd ársins og sér-
stök viðurkenning fyrir vel tekna
fréttamynd. Hvort tveggja kom í hlut
Ragnars Axelssonar á Morgunblað-
inu.
Tveir ljósmyndarar af DV, þeir
Gunnar V. Andrésson og Brynjar
Gauti Sveinsson, fengu viðurkenn-
ingu í flokkunum „spaug“ og „dag-
legt líf ‘ og eru myndir þeirra birtar
hér á síöunni.
Aðrir verðlaunahafar í flokkum
voru Gunnar Gunnarsson af Mann-
lífi, Sigurþór Hallbjömsson af Press-
unni og þeir Ragnar Axelsson, Bjarni
Eiríksson og Þorkell Þorkelsson af
Morgunblaðinu.
Sýningin er mjög áhugaverð fyrir
unga jafnt sem aldna og vel þess virði
að fara og sjá hana. Hún stendur
fram á sunnudag og er opin alla daga
frá klukkan 14-19.
„Svalandi sopi á heitu sumri“ kallar Brynjar Gauti Sveinsson þessa mynd
en hún vann í flokknum „daglegt líf“.
„Hann er vinsæll og veit af því“ heitir þessi mynd Gunnars V. Andréssonar
á DV. Hún vann i flokknum „spaug".
Lúðvik Geirsson, formaður Bl, veitir verðlaunahöfunum viðurkenningu. F.v.,
Gunnar Gunnarsson, Gunnar V. Andrésson, Brynjar Gauti Sveinsson, Ragn-
ar Axelsson, Sigurþór Hallbjörnsson og Þorkell Þorkelsson. DV-mynd JAK
Gunnar V. Andrésson, Ijósmyndari DV, ræðir hér við Ólaf Ragnar Gríms-
son og eiginkonu hans, Guðrúnu Þorbergsdóttur, á sýningunni.
DV-mynd JAK
Góðlp hlustendup!
1 d a g : í k v n l d : 1 J'y r r a m á 1 i <) :
Kl. 17:00 íslendingafélagið. Fjallað um Kl. 22:00 í lífsins ólgu sjó. IngerAnna
ísland í nútíð og framtíð. Umsjónarmaður Aikman sér um þáttinn.
Jón Ásgeirsson.
90.9
Höfuðborgarsvœðið
Suðurnes
Vesturland
93.7 103.2
Sauðárkrókur j Suðurland
Skagafjörður ’ Akureyri
F ÍVI 90.9 93. 7” ' »<•:> -1 03.2 l 0-1 ? 08
'V
l. W 150 1 70 200 230 260 1.2 3 3
L JVIW 600 /ÖOO 1 ooo 1 AOC > 1 CA ■>0
Kl. 10:00 Við vinnuna með Guðmundi
Benediktssyni. Uppáhaldslögin,
afmæliskveðjur, veður, færð, óskalögin,
flug o. fl. Opin lína í síma 626060.
n
PMí)(KffFM10:i2
AÐALSTÖÐIN
SÍMAR 62 15 20 og 62 12 13
BEIN ÚTSENDING 62 60 60