Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1992, Blaðsíða 28
44
MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 1992.
Menning__________
Fagursöngur
Guöbjörn Guðbjörnsson tenórsöngvari hélt ein-
söngstónleika í Norræna húsinu í gærkvöldi. Undir-
leikari á píanó var Þórarinn Stefánsson. Á efnis-
skránni voru sönglög eftir Eyþór Stefánsson, Þórarin
Guðmundsson, Árna Thorsteinsson, Sigfús Einarsson,
Edvard Grieg, Peterson-Berger, Felix Mendelsohn
Bartholdy og Joseph Haydn.
Snjókoma var og mikil hálka í borginni í gærkvöldi
og á leið sinni til Norræna hússins fóru tónleikagestir
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
fram hjá tveim bifreiðum sem skollið höfðu saman og
skemmst töluvert. Á tónleikunum kom í ljós að stjarna
kvöldsins, Guðbjöm Guðbjörnsson, hafði verið farþegi
í öðrum bílnum, en sloppið ómeiddur. Það mátti samt
heyra á söng hans framan af að honum var brugðið
og hefur áreiöanlega margur aflýst tónleikum af minna
tilefni. Guðbjörn sótti þó í sig veðrið er á leið tónleik-
ana og sýndi allar sínar bestu hhðar. Áður hafa birst
lofsamlega ummæli í pistlum þessum um þennan unga
söngvara og er gagnrýnanda ljúft að endurtaka þau.
Guðbjörn hefur óvenjulega fallega hljómandi rödd en
meira kemur til. Hann hefur einnig greinilega tónhst-
arhæfileika og síðast en ekki síst smekkvísi th að fara
vel með gáfur sínar. Útkoman er sérlega blæbrigðarík-
ur og listrænn söngur þar sem hvergi er reynt að
stytta sér leið en jafnan glímt við það sem verðugast
er. Guðbjörn hefur þegar náð langt í hst sinni en á
áreiðanlega eftir að ná enn lengra og er óhætt að spá
honum glæsilegri framtíð.
Píanóléikur Þórarins var yfirleitt vel leystur ai'hendi
á látlausan hátt. Sumt hljómaði mjög fahega. Þó voru
smá vihur fullmargar. Tónleikarnir verða endurteknir
á morgun og vonandi komast menn klakklaust til og
frá tónleikastað í það skiptið.
Laugarásbíó: - Chucky 3: ★
Erf itt að halda góðum gæja niðri
Chucky 3 kemst mjög hátt á hsta yfir óvelkomnustu
myndir hvaða árs sem er en þeir sem á annað borð
geta hugsað sér að sitja undir þriðju myndinni um
morðóðu dúkkuna Chucky verða ekki fyrir vonbrigð-
um (þeir gátu ekki búist við neinu) því hún er ekki
alslæm. Sagan er mun skárri en í tvö, leikur er í góðu
meðallagi og Chucky-brellumar eru óaðfinnanlegar.
Hvað skemmtanagildið varðar þá er það af skornum
skammti en nóg til þess að enginn þurfi að rífa hár sitt
í gremju á leiðinni út (nema af tilhugsuninni um að
það gæti komið númer 4!).
Morðinginn Charles Lee Ray (ennþá rödd Brad Dou-
Hér er Chucky á eftir einu fórnarlamba sinna.
rh) virðist ekki vera búinn að sætta sig við að hta út
eins og vondi tvíburi Bart Simpson og er sífellt að
reyna að koma sálu sinni úr góða gæja brúðunni í
Kvikmyhdir
Gísli Einarsson
mannslíkama. Hann snýr aftur átta áram eftir enda-
lokin í dúkkuverksmiðjunni furðulegu í númer tvö,
þegar ákveðið er að heíja aftur framleiðslu á dúkkun-
um. Viti menn, fyrsti gæinn af færibandinu er nýr og
endurbættur Chucky sem launar forstjóranum (eini
fullorðni sem lifði af Chucky 2) lífgjöfina eins og hon-
um einum er lagið. Chucky hefur síðan upp á Andy,
uppáhaldsfómarlambinu sínu sem er núna táningur
og nýbyrjaður í herskóla fyrir vandræðagemlinga.
Viti menn, Chucky á ekki í vandræðum með að koma
sér þangað og hefja leikinn að nýju, aðdáendum (?)
eflaust til mikihar gleði.
Vona bara að þetta sé nú í síðasta sinn.
Child’s Play 3 (Band - 1991) 89 mín.
Handrit: Don Mancini (Child’s Play 1-2).
Leikstjóri: Jack Bender (in Love with an Older Woman).
Leikarar: Justin Whalen, Perrey Reeves, Jeremy Sylvers,
Travis Fine.
Andlát
Baldur Magnússon frá Hólabaki, til
heimhis í Hraunbæ 98, Reykjavík,
lést í Landakotsspítala að morgni 9.
mars.
Pétur Einarsson, Rauðalæk 21,
Reykjavík, lést í Landspítalanum að
morgni 10. mars.
Aðalbjörg Bjarnadóttir, Droplaugar-
stöðum, er látin.
Sigurður Sigurjónsson, Austurbrún
37a, andaðist í Landspítalanum 9.
mars.
Jarðarfarir
Herdís Kolbrún Jónsdóttir, Iðufelh
!4, Reykjavík, andaðist á heimili sínu
fimmtudaginn 5. mars. Jarðarförin
fer fram í Hvítasunnukirkju FUadelf-
íu í Hátúni 2, Reykjavík, fimmtudag-
inn 12. mars kl. 13.30.
Ásta Jónsdóttir, til heimUis á vist-
heimihnu Scljahhð, lést aðfaranótt
fimmtudagsins 27. febrúar. Útfórin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Útför Eiriks Þorleifssonar rafvirkja,
Gnoðarvogi 26, Reykjavík, fer fram
frá Fossvogskirkju föstudaginn 13.
mars kl. 10.30.
Jafet Egill Hjartarson, fyrrverandi
■ verksmiðjustjóri, verður jarðsung-
inn frá Fossvogskirkju fimmtudag-
inn 12. mars kl. 15.
Col. Charles Jordan Daly lést á heim-
ih sínu í St. Petersburg, Flórída, 3.
mars sl. Bálförin hefur farið fram.
Sigríður Þorláksdóttir lést á Hom-
brekku, Ólafsfirði, þann 9. mars. Út-
förin fer fram frá Olafsfjarðarkirkju
laugardaginn 14. mars kl. 14.
Útför Þorbjargar Þorsteinsdóttur,
Rauðhálsi, fer fram frá Skeiðflatar-
kirkju laugardaginn 14. mars kl. 16.
Sigurður Karl Gunnarsson, frá Haga
v/Selfoss, Holtagerði 32, Kópavogi,
ver-ður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 11. mars kl. 15.
Fundir
ITC-Melkorka
Opinn fundur ITC-Melkorku verður
haldinn í dag, 11. mars, kl. 20 í Menning-
armiðstöðinni í Gerðubergi í Breiðholti.
Stef fundar er: Þolinmæði hefur maður
mesta þörf fyrir þegar hún er að verða
búin. Fjölbreytt dagskrá. Upplýsingar
veitir Elin í síma 40466. Fundurinn er
öllum opinn. Mætum stundvíslega.
Silfurlínan
sími 616202. Síma- og viðvikaþjónusta
fyrir eldri borgara alla virka daga kl.
16-18. Aðstoðum við að versla og höfum
menn til viðgerða og fl.
Kvennadeild Flug-
björgunarsveitarinnar
Félagsfundur kvennadeildar Flugbjörg-
unarsveitarinnar verður haldinn í kvöld,
11. mars, kl. 20.30 í nýja félagsheimilinu
viö Flugvallaveg. Á fundinum veröur
spiluð félagsvist.
Verkfræðingar
Fundur um leikskólamál í Verkfræðinga-
húsinu að Engjateigi 9 fimmtudaginn 12.
mars kl. 20.30. Allir velkomnir.
Hestamenn og Heiðmörk
Hestamenn og Heiðmörk er efni fræðslu-
fundar sem Hestamannafélagið Fákur
efnir til í félagsheimih sínu í Víðidal
fimmtudaginn 12. mars kl. 20.30. Á fund-
inum verður m.a. fjallað um annmarka
og möguleika á umferð hestamanna um
Heiömörk í kjölfar aukinnar friðunar
hennar vegna vatnsöflunar og skógrækt-
ar. Ræðumenn verða Kristján Sæmunds-
son jarðfræðingur, Vilhjálmur Sigtryggs-
son, framkvæmdastjóri Skógræktarfé-
lags Reykjavíkur, Yngvi Loftsson, deild-
arstjóri umhveríismála hjá Borgarskipu-
laginu, Þorvaldur S. Þorvaldsson, skipu-
lagsstjóri Reykjavikur, Þóroddur Th. Sig-
urðsson vatnsveitustjóri og Þóroddur
Slsson, framkvæmdastjóri Náttúru-
irráðs. Fundurinn er haldinn á
Fræðslimefndar Fáks. Aðgangur
ypis fyrir innanfélagsfólk en aðrir
100 krónur.
Aðalfundur SPOEX
(Samtaka psoriasis- og exemsjúklinga)
verður haldinn að hótel Lind, Rauðarár-
stíg 18, þriðjudaginn 24. mars kl. 20.15.
Mætum vel og stundvíslega.
Tónleikar
Tónleikar til styrktar
Finni Eydal
Eins og kunnugt er hefur Finnur Eydal
átt við mikið heilsuleysi að stríða undanf-
arið og hefur orðið að fljúga þrisvar í
viku frá Akureyri til Reykjavíkur til að
fara í gervinýra. Félagar hans og vinir
hafa undanfariö safnað fé til að kaupa
lítið gervinýra er hægt væri að hafa á
Akureyri og nú er það komið til landsins
en herslumuninn vantar til að borga tæk-
ið og það sem því fylgir. Því efna Zonta-
systur og Jazzvakning til mikilla tónleika
í Súlnasal Hótel Sögu sunnudagskvöldið
15. mars og hefjast þeir kl. 21 stundvís-
lega.
Leikhús
II ÍsjLENSKA ÓPERAN
ettir
Giuseppe Verdi
Sýning laugardaginn 14. mars
kl. 20.
Sýning laugardaginn 21. mars
kl. 20.
Miðasalan er nú opin frá kl.
15.09-19.00 daglega og tll kl.
20.00 á sýnlngardögum. Siml
11475.
Grelöslukortaþjónusta
VISA - EURO - SAMKORT
GARÐALEIKHÚSIÐ
sýnir
LUKTAR DYR
eftir J.P. Sartre
2. sýning föstudaginn 13. mars kl.
20.30.
3. sýning föstudaginn 20. mars kl.
20.30.
Þýóendur: Vigdis Finnbogadóttir
Þuriður Kvaran.
Leikmynd: Steinþór Sigurósson.
Tónlist: Össur Geirsson.
Búningar: Andrea Oddsteinsdóttir.
Lýsing: Alexander I. Ólafsson.
Leikstjóri: Erlingur Gislason.
Leikarar: Aldis Baldvinsdóttir,
Margrét Ákadóttir. Valdimar
Lárusson, Þórir Steingrimsson.
Mamma Rósa sér um veitingar
fyrir og eftir sýningar.
Húsió opnaó kl. 19.00.
Eftir sýningu heldur
Höróur Torfason
tonleika.
Mióasala i Félagsheimili Kópa-
vogs fimmtudaga kl. 17.00-19.00,
sýningardaga frá kl. 16.00.
Simi 41985.
Annars simsvari. 44425.
Allt i einni leikhúsferó
Matur - leiksýning
veitingar-tónlist.
as
iCOA r
LEIKFELAG
REYKIAVÍKUR
Sími680680
• 50% afsláttur
á síðustu sýningar, gild-
ir aðeins á Ljón í síð-
buxum.
ALLAR SYNINGAR
HEFJAST KL. 20.
LJÓN í SÍÐBUXUM
eftir Bjöm Th. Bjömsson
Aukasýning:
Föstud. 13. mars.
Allra siðasta sýning.
Á STÓRA SVIÐI:
ÞRÚGUR REIÐINNAR
Byggtá sögu
JOHNS STEINBECK
Leikgerð: FRANK GALATI
Fimmtud. 12. mars.
Hvít kort gilda. Uppselt.
Laugard. 14. mars.
Brún kort gllda. Uppselt.
Sunnud. 15. mars.
Uppselt.
Fimmtud. 19. mars.
Uppselt.
Föstud. 20. mars.
Uppselt.
Laugard. 21. mars.
Uppselt.
Fimmtud. 26. mars.
Fáeln sætl laus.
Föstud. 27. mars.
Uppselt.
Laugard. 28. mars.
Uppselt.
Fimmtud. 2. april.
Laugard. 4. apríl.
Uppselt.
Sunnud.5. april.
Kaþarsis - Leiksmiðjan
sýnir á litla sviði:
HEDDU GABLER
eftir Henrik Ibsen.
Miðvlkud. 11.mars.
Föstud. 13. mars.
Miðvlkud. 18. mars.
Sunnud. 22. mars.