Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1992, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1992, Blaðsíða 28
56 MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 1992. Merming Elin, Helga, Guöríður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu: Þrjár dæmdar konur sem eiga margt óuppgert við samfélagið Elín, Helga, Guöríður, eftir Þór- unni Siguröardóttur, veröur frum- sýnt á Stóra sviöi Þjóðleikhússins annað kvöld. Um er að ræöa nýtt ^ikrit og er Þórunn einnig leikstjóri verksins. Leikritiö fjallar eins og nafnið bendir til um þrjá konur sem hefur verið útskúfað. Á myrkri óveðursnótt eru konurn- ar á leið að Fljótinu. Þær eru „lausar konur og óráðvandar" enda vill eng- inn flyfja þær yfir. Við fljótið birtist Gestur ferjumaður sem rær einn. Þær biðja hann liðsinnis, en hann krefst í staðinn’að þær segi sögur sínar: „Mín saga er ekki í frásögur fær- andi,“ segir Elín, með yfirstéttar- hendumar, en hún var eitt sinn vinnukona hjá yfirdómaranum í Gufunesi. „Ég kann ekki að tala svona," segir afglapinn Guðríður, sem presturinn gatekki fermt. „Ég segi engum sögu mína,“ segir Helga úr Svartárdal. Það eru þessar þrjár konur sem leikhúsáhorfandinn kynnist, konur Olafía Hrönn Jónsdóttir og Pálmi Gestsson í hlutverkum sínum í Elin, Helga, Guöríður. DV-mynd S sem harðir hælar dómsvalds og grimmdar hafa elt í gegnum lífið. Smám saman lifna sögurnar ein af annarri, fléttast saman, kveikja minningar og persónur. Áhorfand- inn ferðast með þeim í gegnum tíma og rúm, um tún og engi, þar til kom- ið er upp í þröngan dal, þar sem áin svarta, er geymir leyndarmál Helgu, rennur á milli brattra fjalla. Sögurnar frá Svartá um þær Elínu, Helgu og Guðríði eru sögur af sam- visku. Þær eru byggðar á raunveru- legum frásögnum af formæðrum okkar, færðar í óvenjulegan leikræn- an búning sem tilheyrir hvorki ákveðnum stað né tíma. Með titilhlutverkin fara Kristbjörg Kjeld og Halldóra Bjömsdóttir (en þær leika Elínu á mismunandi aldri), Edda Heiðrún Backman og Ólafia Hrönn Jónsdóttir. Aðrir leikarar eru Egill ÓLafsson, Ingvar E. Sigurðs- son, Helgi Björnsson, Pálmi Gests- son, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir og fleiri. Leikmynd gerir Norðmaður- inn Rolf Alme og Jón Nordal semur tónlist. Þór Tulinjus, Edda Björgvinsdóttir og Baltasar Kormákur taka þátt í dag- skránni í Áhorfandinn í aðalhlutverki. DV-mynd BG Áhorfandmn í aðaMutverki: Faranddagskrá fyrir v vinnustaði og skóla i gær var frumsýnd í kaffistofu fyrirtækisins Granda faranddag- skráin Áhorfandinn í aðcdhlutverki sem er eftir þau Eddu Björgvinsdótt- ur og Gísla Rúnar Jónsson. Dagskrá þessi er samvinnuverkefni Þjóðleik- hússins, Eddu og Gísla Rúnars. Leik- listarráð rikisins styrkir verkefnið. Markmið dagskrárinnar er að kynna starf leikhússins en umfram allt að gera grein fyrir þvf mikilvæga hlutverki sem áhorfandinn gegnir í leikhúsinu. Dagskráin er um það bil þrjátíu mínútna löng og hentar vel til flutnings í skólum og í matar- og kaffihléum á vinnustööum. Flytjend- ur em Baltasar Kormákur, Edda Björgvinsdóttir og Þór Tulinius. leik- stjóri er Gísh Rúnar Jónsson. -HK Hafdís Ólafsdóttir sýnir 1 Norræna húsinu: Ein stærsta graf ík- sýning íslensks lista- manns hér á landi „Öll verkin á sýningunni era ný- leg, flest unnin á sfðasta ári. í mörg- um tilfellum er um að ræða seríur mynda. Þetta era form fjalla, jökla og eyja. Myndimar eru upplifun á landslagi án þess að ég sé að gera landslagsmyndir, heldur nýti ég mér þekkjanleg form úr landslaginu sem ég vinn síðan á óhlutlægan hátt í tré- ristur, saga út formin í spónaplötur og sker með tréskurðaráhöldum og þrykki það síðan í stórri grafík- pressu." Þetta hefur Hafdís Ólafsdóttir með- al annars að segja um verk sín á graf- íksýningu í Norræna húsinu sem hófst um síðustu helgi. Sýnir Hafdís þar sextíu verk sem unnin eru í tré og er um að ræða einhverja stærstu grafíksýningu íslensks myndlistar- manns hér á landi. Hafdís stundaði nám við Mynd- hsta- og handíðaskóla fslands og lauk prófi úr kennaradeild 1979 og grafik- deild 1980. Sýning Hafdisar er önnur einkasýning hennar. Sú fyrri var haldin í Gaherí Gangskör 1988. Haf- dís hefur tekið þátt i fjölda samsýn- inga bæöi hér heima og erlendis, auk þess sem hún hefur kennt við Mynd- hsta- og handíðaskólann frá 1985, en er um einhverja breytingu að ræða á myndlist Hafdísar frá síðustu einkasýningu. „Breytingin er aðallega fólgin í að á síðustu einkasýningu minni voru myndirnar dökkar einhtar myndir, aðahega svartar, en nú hefur liturinn bæst við allhressilega." - Er eitthvað visst í landslagi sem heillar þig meira en annað? „Ég ferðast þó nokkuð um landið og meðal annars um hálendiö og era áhrifin mest af vera minni í hinu mikilfenglega landslagi hálendisins, þar sem auðnin og kuldinn ræður ríkjum." - Varstu með þessa sýningu í huga þegar þú varst að vinna verkin? „Nei, ekki beint, ég var komin með svo mikið af verkum að það var eig- inlega ekki um annað að ræða hjá mér en að að fara að sýna eitthvað af þeim, koma þessu frá mér. Það var svo fyrir ári sem ég ákvað að sýna í Norræna húsinu og þá fór ég fyrst að vinna markvisst að stærstu verk- unum með sýninguna í huga. Á sýn- ingunni era sextíu verk og er því um mjög stóra sýningu að ræða.“ Hafdis kvaðst aðspurð yfirleitt ekki þrykkja verkin í meira en sex eintök- um og sum væru í einþrykki. Sýning Hafdísar stendur til 5. apríl og er opin daglega. -HK Hafdis Ólafsdóttir er hér við eina mynd úr seriunni Dagieið á fjöllum. DV-mynd GVA verkíLondon Inga Ehn sýnir um þessar mundir glerhstaverk í Oriel Gall- ery í London. Þetta er þriðja einkasýning Ingu Ehnar en hún lauk námi í gler- og keramik- hönnun frá Skolen for brags- kunst í Kaupmannahöfn 1988. Á sýningunni era einkum gler- myndir sem Inga Elín hefur unn- ið á undanfórnum tveimur árum á vinnustofu sinni í gömlu Ála- fosshúsunum í Mosfellsbæ. Við myndgerðina hefur hún beitt tækni sem hún hefur sjálf þróað. Sýningin I London stendur til 30. apríl og er haldin að tilstuðlan Jakobs Magnússonar menning- arfulltrúa. Við opnunina laugar- daginn 21. mars léku EUen Kristj- ánsdóttir og Eyþór Gunnarsson. Hressóskáldin ogVoraldir Bókmenntafélagið Hringskugg- •ar hefur sent frá sér bækumar Voraldir og Hressóskáldin. í Vor- öldum er að finna þýðingar Lár- usar Más Bjömssonar á Finn- lands-sænsku skáldunum Solveig von Schoultz og Gösta Agren, auk formála þýðanda þar sem fjallað er um skáldin og verk þeirra. í Hressóskáldunum, 1. bindi, er að finna sýnishorn af verkum nokk- urra þeirra skálda sem ásarat ýmsum góðum mönnum dreypa gjaman á kaffitári á Hressingar- skálanum að morgni dags og leit- ast við að ráða lífsgátuna í leiö- inni. Þama er að finna smásögur eftír þá Agnar Þórðarson og Bjöm Bjarman, smásögu og ljóð eftir Þorgeir Þorgeirsson, Ijóð eftir Gunnar Dal og rímu eftir Svein- bjöm Beinteinsson. Haraldur Ól- afsson ritar formála aö bókinni sem auk þess er prýdd teikningum Ragnars Lár af skáldunum. Uppseltá Mattheusarpassíu Þrátt fyrir að tæpur mánuður sé til tónleika Kórs Langholts- kirkju þar sem flutt verður Matt- heusarpassían' eftir Bach er upp- selt á tvær fyrirhugaðar sýningar á skírdag og fóstudaginn langa. Það hefur því verið ákveðiö að hafa aukatónleika iaugardaginn fyrir páska. Að sögn Jóns Stef- ánssonar kórstjóra ganga æfing- ar vel og um næstu helgi fer kór- inn í æfingabúðir í Munaðames þar sem kórinn mun vinna fjarri borgarglaumnum að þessu mikla verki. Mattheusarpassían er eitt mesta stórvirki kirkjutónbók- menntanna. Tónskáldið Mend- elsohn gróf þaö úr gleymsku eftir að Bach hafði legið í gröf sinni í heila öld. Byggir verkið á píslar- sögu Jesús. AUs verða flytjendur á tónleikunum 160. Einsöngvarar verða Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Björk Jónsdóttir, Michael Gold- thorp, Kristinn Sigmundsson og Bergþór Pálsson. Márta Fábian með Sinfóníunni Á tónleikum Sinfóníuhfjóm- sveitar íslands annað kvöld verö- ur flutt ungversk og rúmensk tónlist og verður einleikari ung- verski simbalomleikarinn Márta Fábian, en hljómsveitarstjóri er Petri Sakari. Fábian er frá Búda- pest og er helsti fulltrúi þeirra hfjóðfæraleikara sem leika á simbalom samkvæmt ungverskri hefð. Hún hefur unnið ötullega að kynningu þessa hljóðfæris meðal tónskálda sem hafa skrifað verk sérstaklega fyrir hana. Simbalom er lítið strengjahljóð- færi og er af ætt Dulcimer hljóð- færa en þau eru til í mörgum myndum og er saga þeirra rakin til 15. aldar. Mártá Fábian hefur haldið hljómleika víða um heim og gefnir hafa verið út geisladisk- ar með hljóðfæraleik hennar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.