Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1992, Qupperneq 1

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1992, Qupperneq 1
Dóttir B.B. tónleika á King með Púlsimim Blússöngkonan, dansarinn og skemmtikrafturinn Shirley King heldur tvenna tónleika á Púlsinum ásamt Vinum Dóra nú um helgina. Fyrri tónleikarnir veröa í kvöld og þeir næstu annaö kvöld. Shirley King er fædd 26. október 1949, dóttir eins kunnasta núlifandi blústónlistarmanns í heimi, B.B. King, en hann er oftast nefndur konungur blúsins. Blúsinn er henni þar af leiðandi í blóð borinn enda vakti hún fljótt athygli sem blússöngkona, jafnframt því sem hún hefur skapað sér nafn sem dansari og skemmtikraftur. Shirley King hefur komið fram með ýmsum þekktum blústóniist- armönnum víða í Bandaríkjunum en 1990 stofnaði hún sína eigin hljómsveit sem ber heitið Shirley King Blues Band. Á næstunni er væntanleg ný hljómplata með Shir- ley King en gestir hennar þar eru gamlar blúshetjur, svo sem Jimmy Dawkins og Pintopp Perkins, blúspíanisti og söngvari, en þeir héldu hvor um sig nokkra tónleika á Púlsinum ásamt Vinum Dóra fyr- ir nokkru. Dóttir blúskonungsins B.B. King, Shirley King, heldur tónleika á Púlsinum nú um helgina. Norræna húsið: Dagskrá um Edith Södergran Helena Solstrand-Pipping, lekt- or í sænsku við háskólann í Hels- inki, heldur fyrirlestur um ævi og störf Finnlands-sænsku skáld- konunnar Edith Södergran. Njörður P. Níarðvík rithöfundur les lj óð eftir Edith í eigin þýðingu. Brynja Guttormsdóttir píanó- leikari leikur lög milli atriða. Dagskránni lýkur með sýningu á mynd sem fmnska sjónvarpið gerði 1977 og heitir Landet som icke ár og fjallar um ævi Edith Södergran. Dagskráin hefst klukkan 16. Hesta- íþróttamót framhalds- skólanna Hestaíþróttamót íramhalds- skóianna verður haldiö helgina 4. og 5. apríl í Reiðhöllinni í Víði- dal. Keppendur koma frá 16 iram- haldsskólum. Keppt verður í þremur greinum; tölti, flórgangi og fimmgangi. Hver skóli hefur rétt til að senda þrjá keppendur í hverja grein. Kaffl- konsert í Selfoss- kirkju Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari og Símon H. ívarsson halda tónleika í Selfosskirkju á sunnudag klukkan 17. Á efnisskránni er fjölbreytt tónlist frá ólíkum tímabilum tónhstarsög- unnar en þar gefur meðal annars að heyra verk eftir Hándel, Beethoven, Paganini, Sarasate, Gunnar Reyni Sveinsson og Albeniz. Kirkjukórinn mun annast kaffi- veitingar og fjöldasöngur viðstaddra verður í lok tónleikanna í tilefni af ári söngsins. Einnig munu nemend- ur úr Tónlistarskóla Ámessýslu koma fram á tónleikunum. Arnar Jónsson í hlutverki lærimeistarans en Tinna Gunnlaugsdóttir er í hlutverki Ritu. Njarðvík og Vogar: Ríta gengur menntaveginn Leikritið Ríta gengur menntaveg- inn er eftir Willy Russell. Þetta er gamanleikrit um hárgreiðslukonuna Rítu sem er ekki fyllilega sátt við hlutskipti sitt í lífinu. Hún fer að sækja bókmenntatíma í öldungadeild háskóla. Kennarinn hennar er mið- aldra karlmaður, drykkfelldur, áhugalaus og misheppnað ljóðskáld. Honum er sárlega misboðið að þurfa að eyða tíma í þessa „menningar- snauðu snyrtidömu“. Ríta reynist hins vegar ekki öll þar sem hún er séð og þegar upp er staðið má spyija hver hafi kennt hveijum. Ríta er leikin af Tinnu Gunnlaugs- dóttur en Arnar Jónsson leikur kennarann. Þýðandi er Karl Ágúst Úlfsson. Lýsingu annast Bjöm B. Guðmundsson og Páll Ragnarsson. Leikmynd og búninga hannaði Guð- rún Sigríður Haraldsdóttir en leik- stjóri er María Kristjánsdóttir. Leikritið var frumsýnt um síðustu helgi í Samkomuhúsinu í Sandgerði í tengslum við M-hátíð á Suðurnesj- um. Næstu sýningar verða í Stapa í Njarðvík í kvöld kl. 20.30 og annað kvöld verður sýnt í Glaðheimum, Vogum, kl. 20.30. Fáksferð á skeifudegi Hlíf Sigurjónsdóttir fiöluleikari og Símon H. ívarsson píanóleikari munu leika fyrir Selfyssinga um helgina. Fáksféiagar fara í fræðsluferð tii Hvanneyrar á skeifudegi bændaskól- ans sunnudaginn 5. apríl til að fylgj- ast með árlegri sýningu hrossa sem nemendur hafa tamið. Kaffiveitingar veröa á staðnum. í leiðinni verður komið viö í tamn- Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri; „Þaö er svo geggjað - saga af sveita- balli“ er nafn á sýningu Sjallans á Akureyri sem verið hefur þar á fjöl- unum að undanfomu. Sýningin hef- ur fengið góða aðsókn og enn betri undirtektir. Nú er hver síðastur að beija þessa sýningu augum því síðasta sýningin verður annað kvöld. í henni leikur hljómsveitin „Vinir og synir“ lög frá „gullaldartíma" sveitaballanna og ingastöð Benedikts Þorbjömssonar í Staðarhúsum. Brottfor verður frá Félagsheimih Fáks kl. 10.30. Þátttöku ber að tilkynna til skrifstofu Fáks, síma 672166, ekki síðar en í dag. Fræðslunefnd Hestamannafélagsins Fáks stendur fyrir þessari hópferð. söngvaramir sem koma fram era Karl Örvarsson, Jakob Jónsson, Díana Hermannsdóttir og ekki má gleyma Rúnari Júlíussyni sem farið hefur á kostum með gömlu lögin. Hljómsveitin „Vinir og synir" leikur svo á dansleik að lokinni sýningunni og Rúnar Júlíusson sér þá um söng- inn og að skapa hina einu sönnu Sjallastemningu. í kvöld er það hljómsveitin „Loðin rotta“ sem leikur í Sjallanum. „Sveitaballssögu" að ljúka Kvikmyndir: Strák- amirí hverfinu - sjábls. 22 Myndlist: Rúrísýnir á IQarvals- stöðum - sjá bls. 18 Veitingahús: AmmaLú - sjábls. 18 Tónlist: Sigrún Eð- valdsdótt- ir leikur á Akureyri - sjábls. 20 Kvikmyndir: Kolstakkur - sjábls. 22 Skemmtanir: Tyrknesk- urdjassí Gerðubergi - sjábls. 19

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.