Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1992, Qupperneq 4
20
FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1992.
Sýningar
Art-Hún
Stangarhyl 7. sími 673577
Art-Hún-hópurinn sýnir skúlptúrverk, grafík
og myndir. Opið virka daga kl. 12-18. Aörir
tímar eftir samkomulagi.
Ásgrímssafn
Bergstaðastræti 74, sími 13644
Safn Ásgríms Jónssonar er opið á laugar-
dögum og sunnudögum kl. 13.30-16.00.
Hópar og einstaklingar, sem vilja koma á
öðrum tímum, geta haft samband við safn-
vörð.
i vetur er sýnina á ævintýra- og þjóðsagna-
myndum eftir Asgrím Jónsson í safni hans
að Bergstaðastræti 74 í Reykjavík. Nánari
upplýsingar veitir Þorgeir Ólafsson í síma
13644/621000.
Ásmundarsafn
Sigtúni, sími 32155
Þar stendur yfir sýning sem ber yfirskriftina
Bókmenntirnar I list Ásmundar Sveinssonar.
Jafnframt hefur verið tekin í notkun ný við-
bygging við Asmundarsafn. Safnið er opið
frá kl. 10—16 alla daga.
FÍM-salurinn,
Garðastræti 6
Jón Benediktsson myndhöggvari
sýnir eirskúlptúra 1 FÍM-salnum.
Sýningin er opin alla daga kl. 14-18
og stendur hún til 13. april.
Gallerí 11
Skólavörðustig 4a
Myndlistamaðurinn Guðmundur
Lúðvíksson (G.R. Lúðvíksson) sýnir
í Gallerí 11. í fremri sal eru 6 Elekt
III verk en í innri sal, sem er nýr
salur, sýnir hann Sjónbaug/Sjón-
deildarhring. Sýningin stendur til 9.
april og er hún opin kl. 14-18 alla
dagana.
Gallerí Borg
Pósthússtræti 9, sími 24211
Málverkauppboð í samvinnu við
Listmunauppboð Sigurðar Bene-
diktssonar á sunnudagskvöld kl.
20.30 á Hótel Sögu. Uppboðsverkin
verða sýnd í dag, á laugardag og
sunnudag kl. 14-18.
Gallerí 15
Skólavörðustig 15, sími 11505
Ragnheiður Jónsdóttir sýnir grafík. Sýning-
in er opin daglega kl. 10-18 og laugardaga
kl. 10-14. Sýningin stendur til 5. apríl.
Gallerí List
Skipholti, sími 814020
Sýning á listaverkum eftir ýmsa listamenn.
Opið daglega kl. 10.30-18.
Gallerí Port
Kolaportinu
Opið laugard. kl. 11-17 og sunnud. kl.
10-16.
Gallerí Sævars Karls
Bankastræti 9. sími 13470
Sigurbjörg Stefánsdóttir sýnir teikningar.
Hún hefur tekiö þátt íýmsum samsýningum
og haldið eina einkasýningu í Danmörku.
Síöasta einkasýning hennar var í Ásmundar-
sal 1989. Sýningin stendur til 15. apríl.
Gallerí Úmbra (Torfan)
Amtmannsstíg 1. sími 28889
Galleríið er opið þriðjudaga til föstud. kl.
12-18 og laugard. kl. 12-15.
Hafnarborg
Strandgötu 34, sími 50080
Jón Gunnarsson listmálari opnar málverka-
sýningu á morgun kl. 14. Á sýningunni
verða olíumálverk og vatnslitamyndir sem
flestar eru unnar á síðustu þremur árum.
Myndefnið sækir hann að stórum hluta til
sjávarsíöunnar. Sýningin er opin kl. 12-18
alla daga nema þriðjudaga fram til 20. apríl.
Hótel Lind
Rauðarárstíg 18
Jón K.B. Sigfússon sýnir málverk í veitinga-
sal Lindarinnar.
J. Hinriksson
Maritime Museum
Súðarvogi 4. sími 814677
Sjóminja- og vélsmiðjumunasafnið er opið
frá kl. 13-17 þriðjud.-laugard.
„Kaffi Gerði"
Gerðubergi
Laugardaginn 4. apríl kl. 14 opnar
Ásta Erlingsdóttir myndhstarsýn-
ingu í veitingabúð Gerðubergs, „Kaffi
Gerði“. Ásta vinnur öU sín verk með
jurtaUtum sem hún hefur sjálf þróað
úr lifríki náttúrunnar. Sýningin
stendur tU 29. apríl og er opin
mánud.-fimmtud. kl. 10.30-21, fóstud.
kl. 10.30-16 og laugard. kl. 13-16.
Myndlistarsýning í
Gerðubergi
Myndlistarsýningu Önnu Guöjónsdóttur í
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi lýkur
þriðjudaginn 7. apríl. Anna er búsett í Þýska-
landi og er þettj) fyrsta einkasýning hennar
hér heima. Sýningin er opin mánudaga til
fimmtudaga kl. 10-22 og föstudaga og
laugardaga kl. 13-16.
Kjarvalsstaðir
viö Miklatún
Listamaðurinn Rúrí mun opna 16. einkasýn-
ingu sína í Austursal Kjarvalsstaóa laugar-
daginn 4. apríl kl. 16, og er nafn sýningar-
innar Afstæöi. Sýningin veröuropin daglega
kl. 10-18 og verður húsiö opió alla hátíðar-
dagana. Sýningunni lýkur annan I páskum.
Helgi Gíslason opnar höggmyndasýningu I
vestursal á laugardag kl. 16. Á sýningunni
eru 17 höggmyndir, unnar á tveimur sl.
árum. Verkin á sýningunni eru flest steypt í
brons, sum þeirra hafa einnig að geyma gler
og tin. Sýningin er opin til 20. apríl og er
opin daglega kl. 10-18.
Listamaðurinn Rúrí hefur gert viðreist að undanförnu.
DV-mynd Hanna
Rúrí sýnir á
Kj arvalsstöðum
Listamaðurinn Rúri mun opna 16.
einkasýningu sína í Austursal Kjar-
valsstaða á morgun, laugardag, kl.
16 og er nafn sýningarinnar Afstæði.
Flest verkanna á sýningunni eru
unnin í blý og timbur og hafa ekki
verð sýnd opinberlega áður. Enn-
fremur sýnir Rúrí þrjár grafíkmöpp-
ur.
Rúrí er nýkomin frá Montreal í
Kanada en þar voru sýnd eftir hana
2 kvikmyndaverk í tengslum við al-
þjóðlega ráðstefnu um listir og
menningu. Þá er nýlokiö sýningu í
norrænu menningarmiðstöðinni í
Helsinki á verkum hennar og tveggja
annara norrænna listamanna sem
hún hefur starfað mikið með undan-
farin 10 ár, Hannu Siren og William
Löus Sörensen.
Að sýningunni Afstæði lokinni mun
Rúrí taka þátt í alþjóðlegri sýningu á
Nýhöfn:
Sýning Sigurbjamar
Sigurbjörn Sveinsson myndlistar-
maður.
Sigurbjörn Jónsson sýnir um þess-
ar mundi í listasalnum Nýhöfn í
Hafnarstræti 18. Á sýningunni eru
málverk unnin með olíu á striga á
síðastliðnum tveimur árum. Sigur-
björn er fæddur árið 1958 á Akur-
eyri. Hann lauk námi frá grafíkdeild
Myndlista- og handíðaskóla íslands
árið 1982. Framhaldsnám stundaði
hann við Parsons School of Design í
New York 1983 til 1985 og síðan eitt
ár við New York Studio School.
Sýningin er opin virka daga frá kl.
12 til 18 og frá klukkan 14 til 18 um
helgar. Lokað á mánudögum. Sýn-
ingunni lýkur 15. apríl.
Höggmyndir Helga
Helgi Gíslason opnar höggmynda-
sýningu í vestursal Kjarvalsstaða á
morgun, laugardag, klukkan 16.00. Á
sýningunni eru 17 höggmyndir, unn-
ar á síðustu tveimur árum. Verkin á
sýningunni eru flest steypt í brons.
í sumum þeirra er einnig gler og tin.
Helgi hefur gert ýmis útiverk á síð-
ustu árum. Má þar nefna verk í Foss-
vogskirkju, Hallargarðinum, Stykk-
ishólmi og Höfn í Homafirði.
Helgi hlaut bjartsýnisverðlaun
Broste 1991. Sýningunni lýkur 20.
apríl og er hún opin daglega frá
klukkan 10.00 til 18.00.
Helgi ásamt tveimur verka sinna.
DV-mynd Hanna
útilistaverkum á listasetrinu Wans í
Svíþjóð ásamt 10 öðrum listamönnum
frá Evrópu og Bandaríkjunum. í vor
ætlar Rúrí einnig að sýna í Slunka-
ríki á ísafirði og í haust er henni boð-
iö ásamt nokkrum öðrum listamönn-
um aö gera verk fyrir útilistasýningu
í Montreal í Kanada í tilefni af 350 ára
afmæli borgarinnar.
Sýningin er opin daglega frá klukk-
an 10 til 18 en henni lýkur 20. apríl.
Jón Gunnarsson myndlistarmaöur.
Hafnarborg:
Jón Gunn-
arsson opn-
ar sýningu
Jón Gunnarsson listmálari opnar
málverkasýningu í Hafnarborg,
menningar- óg listastofnun Hafnar-
fjarðar á morgun klukkan 14.
Hann stundaði nám í Handíða- og
myndlistarskólanum á árunum 1947
til 1949. Hann hefur einnig farið í
fjölda náms- og kynningarferða til
annarra landa. Jón hefur haldið
margar einkasýningar, meðal ann-
ars á Kjarvalsstöðum, í Norræna
húsinu, Háholti og Hafnarborg.
Hann hefur einnig tekið þátt í sam-
sýningum hér heima og erlendis.
Á sýningunni í Hafnarborg verða
olíumálverk og vatnslitamyndir sem
flestar eru unnar á síðustu þremur
árum. Myndefnið sækir hann að
stórum hluta til sjávarsíðunnar en
einnig notar hann mótív hvaðanæva
af landinu.
Sýningin verður opin frá klukkan
12 til 18 alla daga nema þriðjudaga
fram til 20. apríl.
Breiðablik með málverkauppboð
Líkamsrækt og andans uppbygg-
ing hafa sjaldnast verið taldir líklegir
rekkjunautar. Þeir sem stundað hafa
íþróttir hafa ekki alltaf hlotið náð
fyrir augum listunnenda og öfugt.
Nú hefur Ungmennafélagið Breiða-
blik í Kópavogi ákveðið að sýna fram
á að þetta séu ekki eins ólikir heimar
og margir hafa af látið með því að
standa fyrir málverkauppboði. Það
fer fram í Félagsheimili Kópavogs í
kvöld og hefst klukkan 20 en húsið
verður opnað klukkan 18.
Þar munu margir af fremstu tón-
listarmönnum bæjarins troða upp og
síðan verður haldið uppboð á verk-
um þekktra listamanna úr Kópavog-
inum.
Sýningar
Nýhöfn
Hafnarstræti 18
Sigurbjörn Jónsson sýnir í Nýhöfn. Á sýn-
ingunni eru málverk, unnin með olíu á striga
á sl. tveimur árum. Sýningin, sem er sölusýn-
ing, er opin virka daga frá kl. 12-18 og frá
kl. 14-18 um helgar. Lokað á mánudögum.
Henni lýkur 15. apríl.
Nýlistasafnið
Vatnsstíg 3b
Fjöllistamaöurinn Bjarni H. Þórarinssonsýn-
ir „Sjónþing" í Nýlistasafninu. Þingið er hið
fjórða „Sjónþing" sinnar tegundar. Yfirskrift
þingsins er „Vísiakademía" og stendur yfir
til 12. apríl og er opiö alla daga kl. 14-18.
IMorræna húsið
Hafdís Ólafsdóttir sýnir grafík. Á sýningunni
eru u.þ.b. 60 tréristur og er viðfangsefnið
form og litir jökla, fjalla og eyja. Sýningin
KÍ8Íé*la 0,393 14-1 9 09 ’Ýkur 5- aPríl-
Laugavegi 20b, sími 18610
(Klapparstígsmegin)
Til sölu eru verk eftir innlenda og erlenda
listamenn, málverk, grafík og leirmunir.
Listasafn
Einars Jónssonar
Njarðargötu, sími 13797
Opið laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega kl. 11-16.
Listinn
gallerí - innrömmun
Síðumúla 32, sími 679025
Uppsetningar eftir þekkta, íslenska málara.
Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl.
10-18 og sunnudaga kl. 14-18.
Listasafn
Háskóla íslands
i Odda, sími 26806
Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum
verkum í eigu safnsins. Opið er daglega kl.
14- 18. Aðgangur að safninu er ókeypis.
Listasafn íslands
Fríkirkjuvegi 7, sími 621000
Þar stendur yfir sýning á úrvali verka úr lista-
verkagjöf Finns Jónssonar listmálara og
Guðnýjar Elísdóttur konu hans til safnsins.
Á sýningunni eru 90 verk. Sýningunni lýkur
28. apríl. Listasafnið er opið alla daga nema
mánudaga frá kl. 12-18. Kaffistofa safnsins
er opin á sama tíma.
Listasafn Sigurjóns
Laugarnesi, sími 32906
Farandsýningin Sigurjón Ólafsson - Dan-
mörk - ísland 1991 - stendur yfir í listasafn-
inu. Hér er um að ræða yfirlitssýningu. Sýn-
ingin er opin um helgar kl. 14-17.
Listhúsið Snegla
Grettisgötu 7. sími 620426
Þar eru listmunir til sýnis og sölu, unnir af
15 listakonum sem vinna 1 textíl, keramik
og skúlptúr. Opið mánudaga til föstudaga
kl. 12-18 og laugardaga kl. 10-14.
Menningarstofnun
Bandaríkjanna
Laugavegi 26
Guðbergur Auðunsson sýnir málverk. Þetta
er 14. einkasýning hans og sýnir hann m.a.
myndir sem hann vann í Bellingham í Was-
hingtonfylki er hann dvaldi þar um skeið
árið 1990. Sýningin stendur til 5. apríl og
er opin um helgar kl. 14-17 og alla virka
daga kl. 11.30-17.45.
Mílanó
Faxafeni 11, sími 678860
Hans Christiansen sýnir vatnslitamyndir.
Þetta er 21. einkasýning listamannsins og
sýnir hann nú um 20 myndir. Flestar mynd-
anna eru nýjar og eru allar til sölu. Sýningin
er opin alla virka daga kl. 9-19, laugardaga
kl. 9-18 og sunnudaga kl. 13-18.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8
Hafnarfirði, sími 52502
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18.
Póst-
og símaminjasafnið
Austurgötu 11, sími 54321
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15- 18. Aðgangur ókeypis.
Vinnustofa Ríkeyjar
Hverfisgötu 59. sími 23218
Þar eru til sýnis og sölu postulínslágmynd-
ir, málverk og ýmsir litlir hlutir. Opið er á
verslunartíma þriðjudaga, miðvikudaga,
fimmtudaga og föstudaga og á laugardög-
um kl. 10-16.
Þjóðminjasafnið,
simi 28888
Á þriðju hæð stendur yfir sýning á tónlistar-
iðkun á íslandi í fyrri tíð, Sönglíf í heimahús-
um, og á vaxmyndasafninu. I Bogasal er
sýning á óþekktum Ijósmyndum frá fyrstu
tugum aldarinnar. Safnið er opið þriðjud.,
fimmtud., laugard. og sunnudag kl. 12-16.
Leiðsögn er um safnið alla laugard. kl. 14.
Myndlistarsýning
í Spron, Álfabakka
Sýning á verkum eftir Mattheu Jónsdóttur
myndlistarkonu. Sýningin mun standa yfir
til 30. apríl nk. og verður opin frá kl. 9.15-16,
þ.e. á afgreiöslutíma útibúsins.
Grétar sýnir í Eden
Dagana 28. mars til 12. apríl sýnir Grétar
Þ. Hjaltason vatnslita- og pastelmyndir, 45
að tölu. Myndefnið er íslenskt landslag.
Minjasafnið á Akureyri
Aðalstræti 58, sími 24162
Opið daglega kl. 11-17. Þar stendur yfir
sýning á mannamyndum Hallgríms Einars-
sonar Ijósmyndara. Möppur með Ijósmynd-
um liggja frammi og einnig eru til sýnis
munir og áhöld af Ijósmyndastofu Hallgríms.