Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1992, Síða 6
22
Stjömubíó:
Strákamir í hverfinu
Strákarnir í hverfmu (Boyz n the
Hood) er um unga, svarta menn sem
eru aö komast á fullorðinsárin og
gerist myndin á æskustöðvmn leik-
stjórans, John Singleton, í fátækra-
hverfum svartra, í Los Angeles. Er
myndin sögð gefa raunsæja mynd af
lífinu þar. Aðalpersónurnar eru þrír
vinir sem eru um það bil 17 ára gaml-
ir. Singleton segir að í mynd sinni
sé mikið af boðskap en aðalboðskap-
urinn er að foreldrar svartra verða
að taka á sig meiri ábyrð í uppeldi
barna sinna. Strákarnir í hverfinu
hefur fengið lofsamlega umfjöllun
hvar sem hún hefur verið sýnd en
hefur þó einnig vakið upp gremju hjá
ýmsum hópum.
John Singleton, leikstjóri Strák-
anna í hverfinu, er yngsti leikstjór-
inn sem tiinefndur hefur verið til
óskarsverðlauna, aðeins 23 ára gam-
ail. Hann byggir mynd sína á þeirri
reynslu sem hann varð fyrir í upp-
eldinu: „Þegar ég ólst upp voru ekki
miklir peningar til hjá foreldrum
mínum," segir Singleton. „Foreldrar
mínir giftust aldrei og ég sá aðeins
fóöur minn um helgar og var svo hjá
móður minni í miðri viku. Ég slapp
blessunarlega vel við hinar illræmdu
unglingaklíkur, enda fór ég eins oft
á bíó og ég gat. Árið 1977, þegar ég
sá Star Wars í fyrsta skiptið, ákvað
ég að verða kvikmyndagerðarmaður.
Þegar ég var svo í gagnfræðaskóla
sagði mér einhver að til að verða
kvikmyndagerðarmaður þyrfti ég að
geta skrifað handrit. Ég fór því i
Kaliforníuháskóla og settist þar við
nám í handritsgerð."
Singleton gekk vel í skólanum og
vann til verðlauna og fékk samning
meðan hann var enn nemandi við
háskólann sem þykir einstakt. Þessi
samningur leiddi svo til að hann fékk
sjálfur að leikstýra eftir sínu fyrsta
handriti. -HK
Rapptónlistarmaðurinn lce Cube leikur eitt aðalhlutverkið í Strákunum í
hverfinu.
Indíánar koma mikið við sögu i Kolstakki.
Regnboginn:
Kolstakkur
Eins og aðrar kvikmyndaþjóðir
halda Kanadamenn sína „óskars-
verðlaunahátíð" og fyrir stuttu var
þessi hátíð haldin og sigurvegarinn
þar var nýjasta kvikmynd Bruce
Beresford, Kolstakkur (Black Rope),
og fékk myndin sex verðlaun, þar á
meðal verðlaun sem besta kvik-
myndin. Kolstakkur er byggð á sam-
nefndri skáldsögu eftir Brian Moore
og er skáldsaga þessi væntanleg í ís-
lenskri þýðingu fljótlega. Fjallar
myndin um Föður Laforgue, metnað-
arfullan ungan jesúítaprest sem hef-
ur þá köllun að frelsa sálir „villi-
manna“ í hinum óvinveittu óbyggð-
um Nýja-Frakklands. Köllun þessi
verður brátt að örvæntingarfullri til-
raun til að haida lííi.
Kvikmyndin gerist á fyrri hluta
sautjándu aldar. Auk Laforgue kem-
ur mikið við sögu franskur iðnaðar-
maður sem veröur ástfanginn af
dóttur indíánahöfðingjans. Horium
tekst að aðlagast lifnaðarháttum
indíánanna á meðan presturinn ein-
angrast stöðugt meira og meira og
yfirgefa indíánarnir hann en höfð-
ingi þeirra fær samviskubit og fer
aftur á þær slóðir þar sem hann
skildi prestinn eftir en þá lenda þeir
í klónum á óvinveittum indána-
flokki.
Bruce Beresford fékk sína fyrstu
óskarstilnefningu sem besti leik-
stjóri 1980 fyrir mynd sína Breaker
Morant. Hann fékk aftur tilnefningu
1983 fyrir Tender Mercies og 1990
fyrir Driving Miss Daisy. Beresford
er ástralskur og hóf kvikmyndaferil
sinn þar. í dag er hann í hópi þeirra
áströlsku leikstjóra sem hafa verið
að gera garðinn frægan vestan hafs
og eru ábyrgir fyrir þeim fersku
straumum sem einkenndu ástralska
kvikmyndgerð á áttunda og níunda
áratugnum. Aðrar kvikmyndir sem
hann hefur leikstýrt eru meðal ann-
ars Puberty Blues, Crimes at Heart,
Her Alibi og Mr. Johnson.
-HK
FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1992.
Kvikmyndir
BÍÓBORGIN
Sími 11384
Víghöfði
Fítonskraftur Scorsese og súperleikhópur
gera samanlagt miskunnarlausan og æsi-
sþennandi sálfræðitrylli sem faltrar ein-
ungisáyfirkeyrðumformúluendi. -GE
Herra Johnson ★★
Skörp og skemmtileg ádeila um svert-
ingja sem var á undan sinni samtíð á
dálítið öðruvísi hátt en við eigum að venj-
ast. Hefði mátt vera meiri kraftur í kvik-
myndagerðinni.
-GE
BÍÓHÖLLIN
Sími 78900
Faðir brúðarinnar
Sagan er ófrumleg og frekar væmin. Leik-
ararnir hjálpa aðeins.
-GE
Síðasti skátinn ★★
Tvær nútímahetjur sjá til þess að það er
blóðugur hasar frá upphafi til enda.
Tæknideildin öll er I miklu stuði en leikar-
ar fást við innihaldsrýrt handrit. Einnig
sýnd I Bíóborginni. -HK
Óþokkinn
Mögnuð og óhugnanleg mynd sem er
fyrst og fremst eftirminnileg vegna leiks
Dennis Hoopers. -ÍS
Kroppaskipti ★★'/2
Bráðskemmtileg gamanmynd með þarf-
legri ádeilu á kynjamuninn. -GE
Thelma & Louise ★★★
Davis og Sarandon eru framúrskarandi
útlagar I magnaðri „vega-mynd" sem líð-
ur aðeins fyrir of skrautlega leikstjórn
Scotts. -GE
Svikráð ★★
Spennumynd með kunnuglegri fléttu. I
heild ágæt afþreying þótt leikstjórinn
treystiumofátæknimennina. -HK
HÁSKÓLABÍÓ
Sími 22140
Frankie ogJohnnie ★★
Raunsæ mynd um venjulegt fólk. Al Pac-
ino og Michelle Pfeiffer eru bæði mjög
góð og eru persónurnar sem þau leika
það eftirminnilegast við myndina.
-HK
New York
é i.(D
♦ 2.(2)
♦ 3.(5)
♦ 4.(4)
0 5.(3)
♦ 6.(8)
♦ 7.(7)
0 8.(6)
é 9.(9)
♦10.(23)
Save the Best for Last
Vanessa Williams
Remember the Time
Michael Jackson
Make It Happen
Mariah Carey
Masterpiece
Atlantic Starr
To Be with You
Mr. Big
Tears in Heaven
Eric Clapton
Good for Me
Amy Grant
I Love Your Smile
Shanice
Breakin' My Heart
Mint Condition
My Lovin
Envogue
Vinsældalisti íslands
\ 1.(3) Save the Best for Last
Vanessa Williams
f 2. (8) Vegbúinn
K.K.
0 3. (2) l'm Doing Fine Now
Pasadenas
t 4. (5) Can't Try Hard Enough
Williams Brothers
t 5. (7) Church of Your Heart
Roxette
0 6. (1 ) Tears in Heaven
Eric Clapton
\ 7.(12) Mig dreymir
Björgvin Halldórsson
8. (4) Justified & Ancient
KLF
^ 9.(15) Everything Changes
Kathy Troccoli
010.(6) Make It Happen
Mariah Carey
Brúsi er kominn
Ekki fór það svo að Commitments
næðu efsta sæti DV-listans úr hönd-
um Nirvana og úr því sem komið er
verða það einhverjir aðrir sem vinna
það afrek. Og hver veit nema þessir
einhverjir aðrir séu innan seilingar
þar sem fer Bruce nokkur Springste-
en sem klífur inn á listann með tvær
nýjar plötur í farteskinu þessa vik-
una. Hann er líklegur til stórræða
eins og sjá má á breska listanum þar
sem hann leggur undir sig tvö efstu
sætin fyrstu viku á lista. Á smáskífu-
listum er það helst að gerast að Va-
nessa Williams á mikilli velgengni
að fagna. Hún er í efsta sæti vestan-
hafs eins og í síöustu viku en bætir
öðru toppsæti við nú á Vinsældalista
íslands auk þess að vera í mikilli
sókn í Lundúnum. Innlendu lögin
eru aftur farin að sjást á Vinsælda-
lista íslands, þessa vikuna fer Vegbúi
K.K. upp í annað sætið og Björgvin
Halldórsson í það sjöunda með Mig
dreymir.
Meiraínæstuviku. -SþS-
Bruce Springsteen - mannlegi þátturinn í lukkubæ.
London
é 1.(1 ) Stay
Shakespeare's Sister
•f 2. (6 ) Let's Get Rocked
Def Leppard
^ 3. (3) To Be With You
Mr. Big
^ 4. (4) Deeply Dippy
Right Said Fred
0 5.(2) Finally
Ce Ce Peniston
f 6.(9) Why
Annie Lennox
O 7. (5) Tears in Heaven
Eric Clapton
f 8.(12) Breath of Life
Erasure
♦ 9- (*) Joy
Soul II Soul
010. (7) I Love Your Smile
Shanice
★11. (36) Save the Best For Last
Vanessa Williams
★12. (-) (I Want to Be) Elected
Mr. Bean & Smear Campaign
013. (3) Weather With You
Crowded House
★14. (16) Do Not Pass Me by
Hammer
015.(13) MyGirl
Temptations
f-16. (17) Time to Make You Mine
Lisa Stansfield
♦17. (-) Chainsaw Charlie
W.A.S.P.
018.(8) High
Cure
■f19. (31) Money Don't Matter 2 Night
Prince
020.(15) Sweet Harmony
Liquid
Bandaríkin (LP/CD)
♦ 1. (3) Wayne's World.......................Úr kvikmynd
0 2. (1) Ropin' the Wind....................Garth Brooks
{> 3. (2) Nevermind..............................Nirvana
t 4. (5) No Fences..........................Garth Brooks
♦ 5. (9) Metallica..............................Metallica
♦ 6. (13) As Ugly as They Want to Be.........Ugly Kid Joe
♦ 7. (10) Achtung Baby...............................U2
8. (4) Unforgettable........................Natalie Cole
D 9. (6) Dangerous.......................Michael Jackson
010. (8) Time, LoveandTenderness..........Michael Bolton
ísland (LP/CD)
1. (1) Nevermind......................Nirvana
2. (2) The Commitments II........Commitments
❖ 3. (3) ♦ 4.(11) 0 5.(4) Blood After Hours Red Hot Chilly Peppers
StickaroundforJoy Sykurmolarnir
♦ 6.(7) LuckyOne K.K.
♦ 7. (-) LuckyTown
♦ 8.(16) SálinhansJónsmíns SálinhansJóns mins
0 9.(6) Greatest Hits II Queen
♦10.(-) HumanTouch BruceSpringsteen
________________Bretland (LP/CD)_______________________
f1.(-) HumanTouch...................Bruce Springsteen
i 2. (-) LuckyTown.....................BruceSpringsteen
l 3. (3) Up...............................Right Said Fred
j) 4. (4) Stars..............................Simply Red
Ó 5. (1) Divine Madness.........................Madness
0 6. (2) Tears Roll Down (Greatest Hits)...Tearsfor Fears
i 7. (8) Real Love........................Lisa Stansfield
0 8. (7) High on the Happy Side............Wet Wet Wet
$ 9. (9) Very Best of Frankie Vally/Four Seasons
.....................Frankie Vally 81 Four Seasons
010. (12) SimplytheBest.......................TinaTurner