Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1992, Side 2
32
LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1992.
Elsku amma!
Ég á í vandræðum með góða vinkonu mína.
Fyrir svona fjórum árum vorum við þrjár vin-
konur. Svo flutti hin stelpan og vinkona mín
og ég vorum þá bara tvær. Svo flutti hún innar
í bæinn þar sem allir krakkarnir búa. Þar eign-
aðist hún nokkrar vinkonur og hætti þá að
vera vinkona mín. En svo vantaði hana
„vemdarengil“ og fékk mig til þess. En svo
bara hætti hún að tala við mig. Þá byrjaði ég
að vera í nokkurs konar klíku. Þá vildi hún
tala við mig, hékk utan í mér og svoleiöis. En
svo byrjaöi hún að gera grín að mér, fotunum
mínum, hvernig ég er vaxin og var bara leiðin-
leg við mig. ÉG ÞOLI ÞAÐ EKKI! Hún hangir
utan í mér og montar sig af því að hún sé vel
vaxin og svoleiðis. Hún er orðin frekja og svo
hefur hún svo mikið sjálfsálit. Hún er hund-
leiðinleg. Ég þoli hana ekki og vil losna við
hana en ég get það ekki því að ég sakna svo gömlu vinkonu minnar.
Hvað á ég að gera, elsku amma?
Astra.
Kæra vina!
Ég ráðlegg þér að hætta sambandi við þessa stúlku, um tíma að minnsta
kosti. Eins og þú segir sjálf þá gengur svona vinskapur alls ekki. Vinir
stríða ekki og monta sig við besta vin sinn! Þú skalt segja henni hreinskiln-
islega hvemig þér líður og hvað þér finnst vera að vinskap ykkar. Þá gerist
það að annaðhvort breytir hún sér og verður aftur góð og elskuleg vinkona
eða hún heldur áfram að vera leiðinleg og frek og þá skalt þú bara ekki
vera með henni.
Vertu viss, þú munt fljótt fá fleiri vini. Svo er líka ágætt aö vera stundum
einn með sjálfum sér! Það róar hugann og getur bara verið skemmtilegt og
hollt. Þú getur þá ræktað þín áhugamál. Þú getur farið í gönguferðir, sund,
gert eitthvað í höndunum, prjónað, málað, saumað eða bara það sem þér
dettur í hug! Vonandi fer allt á besta veg.
Þín amma.
Reynir, 6 ára á Siglufirði, teiknaði þessa fallegu mynd!
Þessa mynd teiknaði frændi Reynis. Þetta er óðinshandi. Óðinshani
er einn farfuglanna okkar. Þeir fara nú að koma til okkar hver á eft-
ir öðrum. Sumir eru komnir nú þegar!
Tilkynningar
Gæti einhver lesandi Barna-DV sent text-
ann við lagið Lífsins skapalón og Gagntekin,
með Sálinni hans Jóns míns?
Kristrún M., Akranesi.
Mig langar að biöja einhvern, sem á gull-
fiska og aðra fiska, um að skrifa eitthvað
um þá og hvernig á að annast þá! Vonandi
birtist það svo í Bama-DV.
Theodór A. Tómasson
yORLEIKUR
Á vorin er gaman.
Þá leikum við saman.
Förum í leiki
og erum á kreiki.
Helga Sveinsdóttir,
Kambahrauni 49,
Hveragerði
10 villur
Geturðu fundið 10 atriði sem ekki eru eins á báðum myndunum?
Sendið lausnina til: Barna-DV.
Og
þarna
i brýst
ðólin í 0e0nh
Ö0 ðjáðu þennan
faWe^a
©KFS/Distr. BULLS