Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1992, Side 7
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1992.
Kvikmyndir
HÁSKÓLABÍÓ
Refskák ★★★
Ein af örfáum spennumyndum sem er
spennandi allt til endaloka. Óvenjusnjallt
handrit og stílhrein leikstjórn.
-GE
Steiktir grænir
tómatar ★★★'/2
Stórgóð mynd sem fjallar um mannlegar
tilfinningar, vináttu og áhrifamátt frá-
sagna. Toppleikur í öllum hlutverkum.
-ÍS
Ævintýri á
norðurslóðum ★★
Hugljúfar barnamyndir, misgóðar og mis-
vel leiknar. íslenska myndin best en sú
grænlenska einnig athyglisverð.
-HK
LAUGARÁSBÍÓ
Sími 32075
Fólkið undir stiganum ★★
Gálgahúmor ræður ríkjum í ágætri hryll-
ingsmynd með ólíklegum tortímanda í
aðalhlutverki. -GE
Mitt eigið Idaho ★★★
Hjartnæm lýsing á einsemd og hamingju-
leit. Efnið sorglegt en húmorinn hafður í
fyrirrúmi. -GE
REGNBOGINN
Sími 19000
Ógnareðli ★★★★
Siðlaus..., spennandi..., æsandi....
óbeisluð..., óklippt..., spennandi...,
ógeðsleg..., óafsökuð..., glæsileg...,
tælandi..., spennandi.. 'frábært... (nei,
égfæekki prósentur). -GE
Lostæti ★★ Vi
Skemmtileg framtíðarsýn frá tveimur
teiknimyndahöfundum. Myndin er meiri
stilæfing en nokkuð annað.
-GE
Hr. og frú Bridge ★★!4
Góð dramatísk saga um aðskilið lif vel
stæðra hjóna um miöja öldina. Leikurinn
frábær hjá Newman og Woodward.
-GE
Freejack ★ 'A
Þrátt fyrir flottar sviðsetningar og miklar
tæknibrellur nær fjarstæðukenndur sögu-
þráöur aldrei að ná athygli áhorfandans.
-HK
Kolstakkur ★★★'/2
Miklu er til kostað og úrvinnsla efnis er
af bestu gerð. Leikarar eru ekki þekktir
en standa sig með mikilli prýði.
-ÍS
Léttlynda Rósa ★★★
Mjög fagmannlega unnin mynd um alvar- legt tilfelli brókarsóttar og þau vandamál sem skapast i kringum það. Frábær leikur
góðra leikara.
-ís
Homo Faber ★★
Byrjar hressilega en fjarar fljótlega út,
gerist langdregin og tómleg. Góðir leikar-
ar og fallegt landslag hjálpa mikið.
-GE
SAGA-BÍÓ
Sími 78900
Mambó-kóngarnir ★★'/2
Glæsileg mambótónlist og mambódans
er umgjörð utan um dramatíska bræður
sem koma frá Kúbu til að leita gæfunnar
í New York. Sterkur byrjunarkafli. Gefur
aðeins eftir í lokin.
-HK
Grunaður um sekt ★★'/2
Dramatísk frásögn um kvikmyndaleik-
stjóra sem lendir í klónum á óamerísku
nefndinni á sjötta áratugnum. Vel gerð
kvikmynd en kraftmeiri leikstjóri hefði
komiö ágætlega skrifuðu handriti frá sér
á áhrifameiri hátt.
-HK
STJÖRNUBÍÓ
Sími16500
Óður til hafsins ★★'/2
Vel gerð og efnismikil með stórleik hjá
Nick Nolte. Síðasta kortérið klisjukennt
og skemmir fyrir heildaráhrifum. Atriði úr
fortíðinni geysivel tengd nútímanum.
-HK
Krókur ★★'/2
Spielberg hefur gleymt gömlu töfrafor-
múlunni en það er nóg af góðum sprett-
um til að gera allri fjölskyldunni til hæfis.
-GE
Börn náttúrunnar ★★★
Enginn ætti að verða fyrir vonbrigðum
með Börn náttúrunnar. Friðrik Þór hefur
gert góða kvikmynd þar sem mikilfeng-
legt landslag og góður leikur blandast
mannlegum söguþræði.
-HK
2. deíld:
Þróttarar
teika á
Ólafsfirði
Heil umferð verður í 2.
deildirmi um hvftasunnu-
helgina. Víðismenn og Bl frá
ísafirði ríða á vaðíð og leika
á laugardaginn í garðinum
klukkan 14.
Annan í hvítasunnu verða
fjórir leikir og hefjast þeir allir
klukkan 20. Stjarnan og Fylk-
ir leika í Garðab, Grindavík
og Selfossí Grindavík, Leiftur
og Þróttur úr Reykjavík leika
á Ólafsfirði og loks taka ÍR-
ingar á móti Kefivíkingum á
ÍR-vellinumí Mjóddinni.-JKS
3. deild
Tindastóll
sækir Ægi heim
í Þorlákshöfn
Einn leikur verður í 3. deild-
inni á laugardag þegarTinda-
stóll sækir Ægi heim í Þor-
lákshöfn kfukkan 14. Annan
í hvítasunnu ieika klukkan 20
KS og Magni á Siglufirði,
Haukar og Grótta í Hafnar-
firði, Skallagrímur og Þróttur
N í Borgarnesi og Ðalvík og
Völsungur leika á Dalvík.
-JKS
anna, Þórs og KA. Þórsarar hafa
heldur betur byrjað mótið vel og eru
efstir í deildinni, sigruðu Fram í
fyrsta leiknum og síðan Breiðablik á
útivelli. KA hefur sömuleiðis byijað
mótiö vel þannig að Akureyringar
geta ekki annað en veriö stoltir af
Uðum sínum þessa dagana. Búast
má við miklu fjölmenni á leikinn í
kvöld.
Síðasti leikur 3. umferðar verður á
þriðjudagskvöldið þegar KR-ingar
taka á móti Breiðabliki í Frostaskjóli
klukkan 20.
-JKS
Fjórir leikir verða í 1. deild á ís-
landsmótinu í knattspymu annan í
hvltasunnu. Fyrsti leikur dagsins
verður á Akranesi þegar Skagamenn
taka á móti Fram og er þama á ferð-
inni ipjög athyglisverður leikur.
Leikir þessara liða í gegnum tíðina
hafa ætíð verið spennandi og jafnir
og má telja ömggt að sama verður
upp á teningnum að þessu sinni.
Skagamenn hafa gert jafntefli í
fyrstu tveimur leikjum í deildinni en
Framarar hafa tapaö einum og unnið
einn. Leikurinn hefst klukkan 14.
Klukkan 16 leika FH og ÍBV í Hafn-
arfirði. Eyjamenn fóm ekki vel af
stað í mótinu, léku fyrstu tvo leikina
á heimavelli og töpuðu báðum þeirra.
FH-ingar hafa hins vegar hlotið fjög-
ur stig úr tveimur leikjum og verða
öragglega erfiðir heim að sækja í
Krikann.
Tveir leikir verða um kvöldið
klukkan 20. íslandsmeistarar Vík-
ings leika gegn Val í Stjömugróf. Lið-
in standa jöfn að vígi eftir tvær um-
ferðir og er leikurinn því afar mikil-
vægur báðum hðum.
Leikurinn, sem kannski flestir bíða
eftir, er viðureign Akureyrarlið-
Þórsarar frá Akureyri eru efstir í 1. deild að loknum tveimur umferðum. Stórleikur verður á Akureyri þegar Þór og
KA eigast við annan í hvitasunnu. Myndin er frá leik Þórsara og Framara í 1, umferð en þar unnu norðanmenn
mjög óvæntan sigur
Hvítasunniiferðir Ferðafélagsins
Það verður margt að gerast hjá
Ferðafélagi íslands um helgina því
farið verður í alls íjórar langar ferð-
ir, sem standa frá fostudegi til sunnu-
dags, auk tveggja dagsferða.
Ferðimar em eftirfarandi:
1. SnæfelIsnes-SnæfellsjökuE. Farið
verður með rútu á áfangastað en gist
verður að Görðum í Staðarsveit.
Gengið verður á jökuiinn og famar
skoðunarferðir með ströndinni eins
og tíminn leyfir.
2. Öræfajökull-Kristínartindar-
Morsárjökuh. Leiðin, sem farin verð-
ur, hggur frá Virkisá v/Svínafeh, upp
Virkisjökul, utan í Fahjökh og áfram
sem leið hggur á Hvannadalshnúk.
3. Skaftafeh-Öræfasveit. Tímanum
verðm- varið til gönguferða um þjóð-
garðinn, meðal annars í Bæjarstaða-
skóg, Skaftafehsheiði og víðar. Gist
á Hofi í svefnpokaplássi.
4. Þórsmörk-Langidalur. Famar
verða gönguferðir, langar og stuttar.
Gist í Skagfjörðsskála. Bannað verð-
ur að tjalda í Þórsmörk um hvíta-
sunnuhelgina vegna þess hve gróður
á svæðinu er skammt á veg kominn.
Brottfor í hvítasunnuferðimar
verður kl. 20 í dag, fóstudag.
Dagsferðir
Dagsferðir á vegum Ferðafélagsins
verða bæði 7. og 8. júní. Sunnudaginn
7. júní verður gönguferð frá Hvals-
nesi um Stafnes að Básendum.
Mánudaginn 8. júní verður gengið
frá Höskuldarvöhum (afleggjari við
Kúagerði) um Grænavatnseggjar að
Vigdísarvöhum (í Móhálsadal).
Brottför í báðar ferðimar er kl. 13 frá
Umferðarmiðstöðinni, austanmegin,
og komið verður við í Mörkinni 6.
Bannað verður að tjalda í Þórsmörk um helgina vegna þess hve gróður þar er skammt á veg kominn.
Ferðir
Útivist:
Úrval
gönguferða
Sunnudagur 7. júní: Kl.
10.30, þriðji áfangi fjallasyrp-
unnar: Akrafjall (586 m).
Skemmtileg og fróðleg
ganga. Þátttakendur fá af-
henta fjallabók sem í er
stimplað með sérstökum
stimpli til staðfestingar á þátt-
töku í hverri ferð.
Kl. 13, landnámsgangan:
Upprifjun á 2. raðgöngu Úti-
vistar.
Annar í hvítasunnu, 8. júní:
Kl. 10.30, Vigdísarhólmi-
Húshólmi.
Kl. 13, útivistardagur fjöl-
skyldunnar: Kaldársel-Undir-
hlíðar. Farið verður í létta
gönguferð og leiki og að því
loknu verða grillaðar pylsur
og boðið upp á viðeigandi
meðlæti.
íslandsmótið í knattspyrnu:
Áhugaverðar viðureignir
í 3. umferð mótsins