Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1992, Blaðsíða 10
32
ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1992.
íþróttir
Opna franska meistaramótið í tennis:
Courierog
Selesunnu
- eftir að hafa sýnt frábæra leiki í úr slitunum
Hin 18 ára gamla Monica Seles frá
Júgóslavíu sigraði í þriðja sinn í röð
í kvennaflokki á opna franska meist-
aramótinu í tennis sem lauk í París
um helgina. Seles vann glæsilegan
sigur á þýsku tenniskonunni Steffi
Graf í æsispennandi úrslitaleik á
laugardag. Leikar fóru 6-2, 3-6 og
10-8 fyrir Seles en lokakaflinn var
ótrúlega spennandi. Graf náði að
komast inn í leikinn eftir að hafa
verið langt undir á tímabili en hin
unga og efnilega Seles náði að halda
út í lokin og sigra. Seles fékk í sinn
hlut hvorki minna né meira en sem
samsvarar 26,5 milijónum ísl. króna
fyrir sigurinn.
Leikurinn var frábærlega vel leik-
inn og einn sá allra mest spennandi
sem leikinn hefur veriö í kvenna-
flokki í tennis.
„Þetta er besti úrslitaleikur sem ég
hef nokkurn tímann leikið. Það var
slæmt að við gátum ekki báðar feng-
ið sigurlaunin því leikurinn var svo
jafn og við lékum báðar mjög vel,“
sagði Monica Seles eftir eftir leikinn,
en þetta var hennar 6. stóri sigur á
ferlinum. Seles var dyggilega studd
af rúmlega 14 þúsund áhorfendum í
París.
„Þetta var frábær leikur en hún
átti skilið að sigra,“ sagði Steffi Graf,
með tárin í augunum eftir leikinn.
Það var ekki eins mikil spenna í
karlaflokki þar sem Bandaríkjamað-
urinn Jim Courier vann yfirburða-
sigur á Tékkanum Petr Korda í úr-
slitaleik opna franska mótsins. Co-
urier hafði unnið alla leiki sína á
mótinu frekar auðveldlega og engin
breyting varð á í úrslitaleiknum þar
sem hann bókstaflega malaði Tékk-
ann. Hinn 21 árs gamli Courier lék
af mikiu öryggi og vann öruggan sig-
ur í þremur lotum 7-5, 6-2 og 6-1.
Courier lék
eins og vél
„Þetta var góður sigur og það var
virkilega gaman að þessu," sagði
Courier eftir leikinn en hann er í
efsta sæti á heimslistanum yflr tenn-
isleikara.
Courier er vanur að spila af miklu
öryggi og er af mörgum kallaður
„vélin" því hann er ekki vanur að
gera mörg mistök í leikjum sínum.
Hann hefur þann sið að leika alltaf
með hvíta baseball-húfu á mikilvæg-
um mótum og það virðist reynast
honum vel.
„Hann er frábær spilari og átti skil-
ið að vinna því hann var búinn að
slá út marga erfiða andstæðinga
þessar tvær síðustu vikur,“ sagði
Korda, sem er í 7. sæti heimslistans
um þessar mundir. Courier hafði
þegar unnið opna ástralska mótið á
þessu ári og nú bætti hann öðrum
glæsilegum verðlaunum í safniö.
Aðeins fjórir tennisleikarar hafa
unnið í karlaflokki á opna franska
mótinu síöan 1968.
-RR
Monica Seles gefur hér bikarnum léttan koss eftir
sigurinn á Graf. Seles vann sinn 3. sigur í röð á
mótinu og fékk að launum 26,5 milljónir.
Símamynd/Reuter
Jim Courier bregöur hér sigurlaununum á loft eftir
hinn glæsilegan sigur á Petr Korda i úrslitaleik á
opna franska meistaramótinu i tennis.
Simamynd/Reuter
Opna írska meistaramótið í golfi:
Faldo hafði betur
eftir brádabana
Nick Faldo frá Bretlandi sigraði á
opna írska meistaramótinu í golfl
sem lauk í Killamey á írlandi í gær.
Faldo lék á 274 höggum eða á sama
höggafjölda og Suður-Afríkubúinn
Wayne Westner en Faldo hafði betur
í bráðabana á fjóröu holu. Paul Bro-
adhurst, Bretlandi, varð í þriöja sæti
á 276 höggum og jafnir í 3. sæti á 278
höggum urðu Svíinn Anders Fors-
brand og Colin Montgomerie, Bret-
landi
Þetta var fyrsti sigur Faldo á stór-
móti í eitt ár en hann lék 14 höggum
undir pari vallarins.
„Ég lék ekki svo ipjög vel á þessu
móti en ég get samt ekki annað en
verið ánægður, ég vann mótið og ég
elska írland," sagði Faldo.
Fyrsti sigur Edwards
frá árinu 1984
í Ohio í Bandaríkjunum fór fram
sterkt golfmót atvinnumanna.
Bandaríkjamaðurinn David Ed-
wards fagnaði sigri eftir að hafa unn-
ið sigur á félaga sínum Rick Fehr í
bráðabana en þeir höfðu lokið keppni
á 273 höggum. Payne Stewart, einn
besti kylflngur Bandaríkjanna, varð
í 3. sæti á 274 höggum.
Sigur Edwards var hans þriðji á
stórmóti og sá fyrsti frá árinu 1984
og aö launum fékk hann 1,3 milljónir
dollara.
Couples efstur á
heimsafrekalistanum
Staða efstu manna á heimsafrekalist-
anum eftir golfmótin er þessi:
1. Fred Couples.....Bandaríkjunum
. 2. Nick Faldo...........Bretlandi
3. Jose Olazabal...........Spáni
4. Ian Woosnam.........Bretlandi
5. Bemhard Langer.....Þýskalandi
-GH
Steffi Graf frá Þýskalandi varð aö játa sig sigraða eftír frábæran leik
gegn Monicu Seles í úrslitum á opna franska meistaramótinu í tennis.
Fyrsta stórmótið í tennis hér á landi:
Hraf nhildur og
Einar léku best
Fyrsta stórmóti sumarsins í hafa öll unnið að tennismálum hér
tennis hér á landi lauk á sunnudag á landi.
áÞróttarvelIiíReykjavik.leinliða- Aðrir sigurvegarar urðu þessir.
leik karla sigraöi Einar Sigurjóns- Hrafnhildur Hannesdóttir í telpna-
son. Hann sigraði Christian Staub flokki. Teitur Marshal í drengja og
í úrslitaleik, 6-2 og 6-2. sveinafokki. Stefania Stefánsdóttir
HrafhhildurHannesdóttirsigraði i meyjaflokkL Katrin Atladóttir i
Michel Kindel í úrslitum f einliða- hnátuflokki. Amar Sigurðsson i
leik kvenna, 6-4 og 7-5, og fekk að hnokkaflokki og og Ámi Jónsson í
launum glæsilegan bikar sem gef- sveinaflokki.
inn var af bömum Þorbjargar Þór- -GH
hallsdóttur en átta böm hennar
Danska handknattleikssambandiö gerir sér góöar vonir um að fá sæti
Júgóslava í heimsmeistarakeppninni í handknattleik sem fram fer í Svi-
þjóð í mars á næsta ári. Alþjóða handknattleikssambandið bíður eftir
ákvörðun frá Alþjóða ólympíunefhdinni vegna þátttöku Júgóslava á
ólympíuleikunum. Danir urðu í 5. sæti í B-keppninni en þau fjögur efstu
unnusérsætiíHMíSvíþjóð. -GH
Finnar og Danir unnu
íslenska karlasveitin í keilu hafnaði í 18. sæti af 21 í Evrópumóti lands-
liða sem fram fór í Álaborg í Danmörku og lauk um helgina. í kvenna-
flokki varð ísland í 14. sæti af 17 þjóðum. Finnar uröu Evrópumeistarar
f karlaflokki en dönsku stúlkumar fögnuðu sigri í kvennaflokki.
ar liðið vann liö Mechelen i úrslitaleik í Brussel, 9-8, eftir vítaspymu-
keppni. Staðan eför venjulegan leiktíma var l-l og 2-2 eftír framlengdan
mmmiismBMmimaimmmm m