Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1992, Síða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1992.
Fréttir
Gjaldþrota maður dæmdur fyrir stórfelld skjalafalsbrot:
15 mánaða fangelsi og
4 milKónir í skaðabætur
var ekki viðstaddur dómsuppkvaðningu og heldur til á Spáni
Tæplega fertugur Reykvíkingur,
Eyvindur Ólafsson, hefur verið
dæmdur í 15 mánaöa fangelsi og til
greiðslu rúmlega 4 milljóna króna
í skaðabætur til ýmissa fyrirtækja
og stofnana vegna skjalafals og
umboðssvika upp á rúmar 12 millj-
ónir króna. Brotin tengdust að
mestu leyti ýmsum bíla- og banka-
viðskiptum, t.d vegna Bílasölu Suð-
umesja.
Hér er um að ræða starfsmann
Sólarhúsa, félags sem selur sumar-
hús til Spánar. í vetur þurfti Ey-
vindur að komast í viðskiptaferðir
til Spánar en var þá úrskurðaður
í farbann frá desember fram í maí
vegna rannsóknar og dómsmeö-
ferðar sakamálsins sem þó tengdist
ekki Sólarhúsum. RLR fékk spum-
ir af þvi að Eyvindur hefði keypt
flugmiða til Spánar - aðeins aðra
leiðina. í maímánuöi kvað Hæsti-
réttur upp úrskurð sem felldi far-
bannið úr gildi. Þá var dómsyfir-
heyrslum yfir manninum lokið í
sakadómi en málflutningur veij-
anda var eftir. Sakborningurinn
gaf síðan verjanda sínum umboð
til að taka við dóminum fyrir sína
hönd. Eyvindur heldur nú til á
Spáni og annast verkefni þar.
Bú Eyvindar var tekið til gjald-
þrotaskipta með úrskurði í júlí
1991. Engar eignir fundust í búinu
og ekkert fékkst greitt upp í lýstar
kröfur sem námu samtals 10,6
milljónum króna auk vaxta og
kostnaðar.
Sakbomingurinn viðurkenndi
hin stórfelldu skjalafals- og auðg-
unarbrot sín strax við yfirheyrslur
hjá RLR. Fyrir dómi sagðist hann
hafa á ofangreiddu tímabili verið
undir miklum áhrifum áfengis og
lyfja.
Brot mannsins fólust fyrst og
fremst í nafnafólsunum á rúma tvo
tugi víxla og skuldabréfa á ámnum
frá ágúst 1989 til maímánaðar 1991.
Eyvindur notaði nöfn foreldra,
annarra skyldmenna og fleira fólks
í heimildarleysi sem útgefenda,
framseljenda og ábekinga á víxla.
Auk þess notaöi hann nöfn fólksins
í heimildarleysi sem greiðenda og
ábyrgðarmanna á skuldabréf og
falsaði nöfn vitundarvotta á nokk-
ur bréfanna. Skuldabréfin notaði
Eyvindur aðallega í bílaviðskipt-
um, til skuldbreytinga í banka, til
að greiða eldri lán, til viðskipta við
tryggingafélag og fleira. Auk þess
falsaði maðurinn nöfn í heimildar-
leysi á 1,1 milljónar króna trygg-
ingavíxil vegna Visagreiðslukorts
síns sem hann afhenti Sparisjóði
Keflavíkur.
Eyvindur var einnig dæmdur fyr-
ir að hafa falsað tilkynningu um
eigendaskipti að bifreið til skrán-
ingar í Bifreiðaskoðun íslands.
Þetta var gert í því skyni að láta
þinglýsa 600 þúsund króna skulda-
bréfi á bifreiðina til að greiða hluta
af kaupverði annarrar bifreiðar
sem tekin var í umboðssölu.
Auk refsingar var sakbomingn-
um gert að greiða Sjóvá-Almennum
400 þúsund krónur í skaðabætur,
Samvinnusjóði íslands 1,4 milljón-
ir, Landsbanka íslands 503 þúsund
krónur og P. Samúelssyni hf. 1,6
milljónir króna, allar upphæöirnar
að viðbættum dráttarvöxtum. Við
ákvörðun fangelsisrefsingar var
hliðsjón höfð af því að um var aö
ræða síendurtekin brot og um
verulegar fjárhæðif var aö tefla.
Hins vegar var litið til þess að Ey-
vindur játaði brot sín hreinskilnis-
lega.
-ÓTT
Herra Olafur Skúlason biskup setti í gær Prestastefnu 1992.1 ræðu biskups kom meðal annars fram að ekki bæri
að láta safnaðarfólk greiða beint fyrir ýmis þjónustuverk prestsins, svo sem giftingu og skírn. Sérþjónusta kirkjunn-
ar, sem innt væri af hendi á sjúkrahúsum og stofnunum, yrði skilgreind þannig að þeir sem þörfnuöust hennar
fengju hennar sem best notið. Ábyrgð kirkjunnar væri aö fylgja mannanna bömum eftir, ailt frá því að barnið
vigðist inn f söfnuðinn með skírninni. DV-mynd JAK
Þröstur Ólafsson:
Sjálfstæðismenn
vilja ekki
sóknarstýringu
- vilji krata að taka það kerfi upp í stað kvótans
„Það er rétt að viö kynntum niður-
stöður flokksþingsins og með þeirri
ósk að við myndum ræða sérstaklega
sóknarstýringarkerfi sem grundvöll,
eins og andi mnræðnanna var mikill
á flokksþingi Alþýðuflokksins. En
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sögð-
ust ekki sjá neina ástæðu til þess og
töldu það fullreynt og að kerfið hefði
verið í gildi um allmörg ár og það
hefðu nánast allir verið sammála að
leggja það af þar sem það væri slæmt
og lélegt," sagði Þröstur Ólafsson,
aðstoðarmaður utanríkisráðherra og
annar formaður nefndar stjómar-
flokkanna sem á að fjalla um fram-
tíðarstjómun fiskveiða, en sjálfstæð-
ismenn í nefndinni vflja ekki ræða
sóknarkerfi. Á flokksþingi Alþýðu-
flokksins kom fram mikill áhugi á
slíku kerfi, sérstaklega hjá fulltrúum
af landsbyggðinni. Þingið samþykkti
ekki að fara þá leið þó áhugi fyrir
því hafi komið skýrt fram.
„Þeir sögðust ekki sjá neitt sem
hefði komiö fram síðcu- sem breytti
þeirri skoðun og þeir vom ekki
reiðubúnir að ræða nýtt stjómkerfi
á grundvelh sóknarstýringar.
Flokksþingið samþykkti ekki aö taka
sóknarstýringu en það var andi
ákveðins hóps að gera það. Ég flutti
þann anda inn á fundinn í nefndinni
og að við ræddum saman á gmnd-
velli þeirra hugmynda."
- Er það þess vegna sem nefndin
kemur ekki saman á næstu vikum?
„Nei. Það að við hittmnst ekki í
júlí er eingöngu vegna sumarfría og
hefur ekkert með málefnin að gera.
Viö ákváðum að láta fundi liggja
niðri í júiímánuði," sagði Þröstur
Ólafsson.
-sme
Jón Baldvin aftekur að EES-samningurinn feli í sér valdafr amsal:
Þarf ekki sprenglærða lög-
fræðinga til að skilja það
„Það þarf enga sprenglærða lög-
fræðinga til að skilja það að EES-
samningurinn felur ekki í sér fram-
sal á löggjafarvaldi, dómsvaldi eða
framkvæmdarvaldi. Það er tiltölu-
lega einfalt mál fyrir þá sem á annað
borð kynna sér samninginn og ræða
hann út til staðreynda," segir Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkisráð-
herra.
Jón Baldvin vísar alfarið á bug
þeirri staöhæfingu Guðmundar Al-
freðssonar þjóðháttarfræðings um
að EES-samningurinn bijóti á flöl-
mörgum sviðum í bága við stjómar-
skrána. Þessi skoðun Guðmundar
kom fram á borgarafundi Lögræð-
ingafélagsins um síðustu helgi.
„Mín niðurstaða er óbreytt. Samn-
ingurinn' brýtur ekki í bága við
stjómarskrána. Það komu engin rök
fram í máli hans sem sanna eða
styðja þá fullyrðingu að EES-samn-
ingurinn brjóti í bága við stjómar-
skrána.“
Búist er við að í byijun júlí muni
nefnd sérfróðra lögfræðinga skila
utanríkisráðherra álitsgerð um
stööu EES-samningsins gagnvart
stjómarskránni. Nefndina skipaöi
Jón Baldvih til að fá hlutlægt og laga-
legt mat á því hvort samningurinn
fæh í sér valdaframsal.
Að sögn Jóns Baldvins hefur ríkis-
stjómin ekki tekið neina afstöðu til
þess hvemig hún bregöist við áhti
nefndarinnar komist hún að sömu
niðurstöðu og Guðmundur Alfreðs-
son. Á hinn bóginn muni áht lög-
fræðinganna ekki binda hendur rík-
isstjómarinnar, hver svo sem niður-
staða þeirra veröi.
Að sögn Jóns er þaö póhtískt leik-
bragð stjómarandstöðunnar að gera
EES-samninginn tortryggilegan í
tengslum við stjómarskrána. Astæð-
an sé einfaldlega sú að hún vilji ekki
málefnalega umræðu um kosti
samningsins. Því síður vilji hún
horfast í augu viö þær afleiöingar
sem það hefði ef samningurinn
næðist ekki í gegn.
Aöspurður kveðst Jón Baldvin
vantrúaður á að þjóðaratkvæða-
greiðsla um samninginn hefði komið
í veg fyrir þá lagaþrætu sem mnræð-
an hefur leiðst út í. Stjómarandstað-
an hefði einfaldlega látíö atkvæða-
greiðsluna snúast um túlkun á
stjómarskránni. Þá segir hann enga
hefð fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu á
íslandi enda sé hér til staðar virkt
fuhtrúalýðræði.
„Ef við ákvæðum að grípa til þjóð-
aratkvæöagreiðslu þá værum við að
bijóta viðteknar hefðir á íslandi og
skapa fordæmi fyrir því að milli-
ríkjasamningar, sem Alþingi sam-
þykkir í framtíðinni, skuh fara undir
þjóðaratkvæði. Það væri stór
ákvörðun sem þyrfti að taka póh-
tíska afstöðu til alveg burtséð frá
EES-samningnum. Hvort samning-
urinn samræmist stjómarskránni
kahar ekki á shka atkvæðagreiðslu."
-kaa
-íverðlaunasæti
íslenska sveitin þarf að vinna
Tékkóslóvakíu, 3-1, í síðustu
umferð mótsins til þess að eiga
möguleika á verðlaunasæti en
endanlegt sæti ræðst einnig rajög
af úrshtum í öðrum viöureignum.
Islenska sveitin er nú í 7.-11.
sæti meö 31 vinning.
Rússar em þegar búnir að |
tryggja sér sigur á mótinu, eru
lúeð 37 vinninya. Armenar eru í
öðrti sæti með 32,5, Úsbekistan í |
þriöja með 32 en síðan koma
Bandarikjamenn, Lettar og ísra
elár með 31,5 vinning. Jóhann i
teflir á fyrsta boröi í siðustu um-
ferð gegn Ftacnik, Margeir við
Stohl á öðra boröi, Jón L. við
Mokry á því þriðja og Hannes við
Hracek.