Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1992.
25
Ferðir
Laust fyrir miðjan mánuðinn var talsverður snjór við veginn upp í Siglufjarð-
arskarð. Ferð yfir skarðið verður öllum minnisstæð. DV-mynd Örn
Siglufjarðarskarð:
Fært öllum bílum
Öm Þórarinssan, DV, Fljótuin;
í byrjun þessa mánaðar var snjó
rutt af veginum um Siglufjarðar-
skarð og undanfarið hefur verið unn-
ið við lagfæringar á veginum. Má
hann nú teljast fær öllum bílum. í
fyrra var talsverð umferð um skarð-
ið enda Strákagöng lokuð vegna við-
gerða síðari hluta sumarsins.
Mörgum ferðamönnum þykir gam-
an aö fara um skarðið, ekki síst á
björtum sumardögum. Þá er víðsýnt
uppi á fjallinu og mikil náttúrufeg-
urð sem fáa lætur ósnortna. Siglu-
fjarðarbær sér um viðhald og mokst-
ur á veginum um skarðið og er það
vilji bæjaryfirvalda að halda vegin-
um akfærum svo ferðafólki gefist
kostur á að fara þessa hrikalegu leið
sem vart á sér líka hér á landi. Óhætt
er að mæla með að ferðalangar
bregði sér upp í skarð í sumar. Fólk
þarf aðeins að gefa sér rúman tíma
því vegurinn er seinfarinn. Vegurinn
var lagður fyrir nokkrum áratugum
og þótti á sínum tíma bylting í sam-
göngumálum Siglfirðinga.
Páll Pótuisson, DV, Vík í Mýidat
Síðustu tólf mánuði hefur starfað
hópur fólks á vegum Átaksverks-
verkefnis Mýrdæhnga og unnið að
merkingu gönguleiða og gerð
göngulýsinga fyrir ferðafólk. Búið
er að merkja Qórar mismunandi
langar leiðir og fyrirhugað er að
halda þessu starfi áfrani.
Hrapiö og fjaran
í nágrenni Víkur eru tvær göngu-
leiðir sem henta vel fyrir fólk á
öllum aldri og eru leiðarlýsingar
með þeim báðum. Sú fyrri er hring-
ur sem hefst vestast í þorpinu,
næst Reynisfjalli og liggur þaðan
suður með flallinu. Verið er að gera
golfvöll sunnan Víkur og er ein
flötin við upphaf gönguleiðarinnar.
Gengiö er eftir stíg og er Hrapið,
þ.e. hlíðin sunnan í Reynisfialli á
hægri hönd. Mjög sjaldgæfir
brekkusniglar eru í Hrapinu. Þeir
eru frekar stórir og hafa skrautlega
kuðunga á bakinu. Þessir sniglar
finnast eingöngu í Hrapinu. Mikið
af hvönn vex í íjaOinu og hún er
fljót að fjölga sér og hefur verið
notuð til matar. Fýll og lundi verpa
í Hrapinu og eru þeir eim veiddir
og etnir. Þegar komiö er að enda
stígsins blasir Bandasteinn við og
fyrir framan hann er önnur flöt.
Þar fyrir ofan er stuðlaberg sem
skagar fram og kallast Blánef. Þar
verpir rita. Við Blánef var reist
fyrsta verslunarhúsið í Vík árið
1998, svonefnd Blánefsbuð. Nú er
gengið fjTÍr ofan Bandastein eftir
mjóum slóða, meðfram golfvellin-
um og niöur i fjöru. Seilasteinn er
vestast í fjörunni en þar var fiskur
seilaður og fluttur á land áöur fyrr.
Vestasti hluti fiörunnar kaOast Bás
eða Víkurbás, þaðan var blómlegt
úti'æði á árunum upp úr 1880. Urð
kallast. syösti hluti ReynisQalls sem
gengur í sjó fram. Það er ógreið-
fært og hefur oft hrunið úr fjallinu,
síðast á þessu ári. Reynisdrangar
blasa við en þeir eru háir kletta-
drangar allt að 66 m. Þjóösagan
segir aö drangarnir hafi orðiö til
með þeim hætti að tvö tröll hafi
ætlaö aö draga þar þrísiglt skip að
landi en dagaö uppi og orðið aö
steini. Drangarnir heita Skessudr-
angur, Landdrangur og Langham-
ar. Nú er hægt að ganga sömu leiö
til baka eða með sjónum og síðan
eftir sandslóða sem Iiggur milli
golfbrauta og iþróttavelhnum að
Víkurþorpi.
Leiðsögumaður í þessari göngu-
ferö er Guðrún Árnadóttir.
."
Fram á fjall"
Önnur gönguleið í nágrenni Vík-
ur er upp á ReynisfjaO og er þar
hægt aö velja um tvær leiðir, þ.e.
„fram á fjall“ eða „inn á fjair.
Gönguleiðin fram á fjall er í raun
vegslóðinn sem liggur upp á fjalhð
en einnig er hægt að ganga með
staurum vestan vegar. Þetta er 2,5
km og tekur gangan þrjár klukku-
stundir. Rétt við fjarskiptastöðina
á HraunhóO stendur gömul land-
mælingarvarða. Þegar fram á
fjaUsbrúnina er komið blasa Reyn-
isdrangar viö og til austurs er Vík-
in og Víkurhamar austar. Stakur á
sandinum er Hjörleifshöfði. TO
vesturs sést Dyrhólaey og nokkrar
af eyjunum umhverfis hana, Dyr-
hólaós, Reynishverfi, Geitíjall, Pét-
ursey og margt fleira.
Leiðin „inn fiaU“ eða til hægri
þegar upp er komið eftir veginum
er nokkuö lengri en sú fyrri eða sex
tíl sjö km. Pjalhð hækkar til norð-
urs og er fallegt útsýni til allra átta,
t.d. vestur yfir Mýrdalinn, Vest-
mannaeyjar og norður á Mýrdals-
jökul. Gengið er niður af fiallinu í
grasbrekku í Skeifnadal yfir þjóö-
veginn og að Grafarhól, sem talhm
er vera gatnaU gostappi. Þar er far-
ið yfir ána á steinum og gengið niö-
ur með ánni sunnan undir Veður-
hálsi, áfram fram Grafargil og
beygt upp á Lindarhóla fram á
Hrygg og niður Delaskörð. Síöan
er komið að Vík.
Leiðsögumaður í þessum göngu-
ferðum er Sigrún LUja Einarsdótt-
ir. Hægt er að fá nánari upplýs-
ingar um þessar ferðir sem og þá
sem nefhd var í upphafi í Upplýs-
ingamiðstöð ferðamanna í Vik.
Síminn er 98-71395.
ÞJOÐHATIÐ I EYJUM 1992
OBREYTT VERÐ A ÞJOÐHATIÐ = 6.500 kr.
og 6.000 kr. í forsölu.
ÞJOÐBRAUT MILLI LANDS 0G EYJA
Þjóðhátíð Vestmannaeyja 1992 dagana 31.
júlí til 2. ágúst.
Pakkaferðir á Þjóðhátíð:
Flug báðar leiðir, flugvallargjald og aðgöngumiði
á Þjóðhátíð.
Reykjavík - Vestmannaeyjar
Höfn - Reykjavík - Vestmannaeyjar
Akureyri - Reykjavík - Vestmannaeyjar
Egilsstaðir - Reykjavik - Vestmannaeyjar
Húsavík - Reykjavik - Vestmannaeyjar
ísafjörður - Reykjavik - Vestmannaeyjar
Patreksf jöröur - Reykjavik - Vestmannaeyjar
Sauðárkrókur— Reykjavik - Vestmannaeyjar
Þingeyri - Reykjavik - Vestmannaeyjar
kr. 10.900,-
kr. 17.990,-
kr. 15.990,-
kr. 18.990,-
kr. 16.990,-
kr. 15.990,-
kr. 14.990,-
kr. 14.990,-
kr. 14.990,-
Sálin hans Jóns míns - Todmobile - Geiri
Sæm - Pclur Krístjánsson - Prestó -
Brekkusniglar - Vinir Óla - Richard
Scobie - Siggi Kristins - bjan*sig af Fisk-
licllancii, brennan á Fjósakletti, stærsta
ftugcldasýiimg landsins, brekkusöngur
með Árna Johnsen, gcysiöflug öryggis-
og sjiikragæsla. Gæslan verður í höndum
Björgunarfélags Vestmannaeyja, fnjöl-
skyldubuðir.
FLUGLEIÐIR
Pakkaferð á Þjóðhátíð 1992 með
m/s Herjólfi verður á kr. 9.000,-
Innifalið: Aðgangur á Þjóðhátíð, rúta
Rvík - Þhöfn - Rvík (fram og til baka),
Herjólfur fram og til baka.
Þjóðhátíðinni verður þjófstartað
fimmtudaginn 30. júií með HÚKK-
ARABALLI i Samkomuhúsinu þar
sem TODMOBILE og SÁUN HANS
JÓNS MÍNS leika fyrir dansi.