Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Blaðsíða 10
28 MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1992. Bifiöst Glæsilegur gististaður í frábæru umhveffí Bifröst í Borgarfirði er sumarhótel sem búið er öllum þeim þægindum sem ferðamaður vill njóta á góðum gististað. • Gisting fyrir alla fjölskylduna. • 26 rúmgóð herbergi og svefnpokapláss. • Vandaður matur — verð við allra hæfi. • Sérréttaseðill réttir dagsins. • Fjölbreytt hlaðborð á sunnudögum. • Fullt vínveitingaleyfi. • Einstök náttúrufegurð - óteljandi gönguleiðir. Ferðir Laugarás í Biskupstungum: Eins og lítið þorp í Mið-Evrópu Laugaráshverfi er þéttbýliskjarni með 110 íbúum, skammt frá Skál- holti. Tilvera íbúanna byggist að langmestu leyti á ylrækt. Mikið heitt vatn kemur þar úr jörðu og hefur lítið þurft að gera til þess að virkja það. Frá þeim tíma er menn uppgötvuðu aö hægt væri að nýta jarðvarma til ræktunar grænmetis hefur ylrækt- arbýlum stöðugt farið fjölgandi og eru þau nú orðin 20. Framan af var aðallega ræktað grænmeti en afskor- in blóm, pottablóm, kryddjurtir og garðplöntur er nú ræktaö í um helm- ingi garðyrkjustöðvanna. gróðursældin. Öspin er aöaleinkenn- istré staðarins og má finna þar eiri- hver hæstu tré landsins. Aðalvegur- inn í gegnum þorpið hggur í gegnum trjágöng. Stutt er til margra þekktra ferðamannastaða. Á undanfornum árum hefur þjón- usta við ferðamenn aukist talsvert. í Laugarási er verslunin Laugartorg. Þar er hægt að fá bensín og olíuvörur og auk þess íslenskt grænmeti beint úr gróðurhúsunum. Fyrir nokkrum árum var tekið í notkun tjaldstæði sem á fáa sína líka hérlendis og er það rekið í tengslum við verslunina. Tjaldstæðiö er frekar lítið en er af- girt með 10 m hárri ösp og birki. Af þessum sökum er þama alltaf gott skjól. Að sjálfsögðu er þarna öll hreinlætisaðstaða fyrir hendi, þ.á m. sturta. Þetta tjaldstæði er ein- göngu ætlað fjölskyldufólki og öðr- um þeim sem em að leita að rólegum stað til hvíldar. Fyrir nokkrum dögum var Skálinn opnaður. Þar gefst fólki færi á að setjast inn og fá sér kafíi og kökur auk þess sem þar em seld pottablóm og íslenskt grænmeti. í Laugarási er einnig garðplöntusala í garðyrkju- stööinni Engi og auðveldar það mjög sumarbústaðareigendum aðgang að ótrúlegum fjölda tegunda til að planta við sumarbústaði sína. Leitið upplýsinga og gerið pantanir á Hótel Bifröst. Hótel Bifröst, Borgarfirði, sími 93-50000. HAUTT {/ÓS^RAUTT fyÓSf y^EROAR Hvað geturferða- maðurinn gert? Laugaráshverfi er að stórum hluta falið milh tveggja ása og sést ekki langt að. Skálholt er aðeins í 2 km fjarlægð en jafnvel þaðan er ekki hægt að gera sér grein fyrir byggö- inni í Laugarási. Ef ekið er í austur frá Skálholti er engu líkara en komið sé inn í þorp í Mið-Evrópu! Shk er PAuX Dalvík er ákjósanlegur staður fyrir ferðamenn, jafnt einstaklinga sem fjölskyldufólk. Rómuð náttúrufegurð Svarfaðardals er innan seilingar og miðnætursólin er hvergi áhrifameiri en í Vámúla (Ólafsfjarðarmúla). í Böggvisstaðafjalli ofan Dalvíkur er skíðaland gott, lax- og silungsveiði er í Hrísatjörn og Svarfaðardalsá og berjalyng þekur hlíðar fjallanna. Innan Dalvíkurer9 holu golfvöllur og þar skammt frá er stærsta hesthús landsins, Hringsholt. Þar er hægt að leigja hesta og fara útreiðartúra um nágrennið. Veitinga- og gisti- aðstaða á Dalvík er fyrsta flokks og tjaldsvæðið í hjarta bæjarins er til fyrirmyndar. Á Dalvík geta allir átt ánægju- legar stundir í náinni snertingu við dalinn, fjöllin og tröllin. ÍMLI/1K Palurínn fjöllín og TröUín Tvelr eigenda Skálans, Ásta Skúladóttir, t.v., og Aðalheiður Helgadóttir. Leirubakki í Landsveit: Gisting, heitir pottar og kaffihlaðborð við rætur Heklu Jón Þórðaison, DV, Rangárþingr I glænýju gistihúsi viö rætur Heklu, nánar tiltekið að Leirubakka í Landsveit, gefst svöngum feröa- löngum kostur á að staldra við og gæða sér á veitingum af glæsilegu kafíihlaðborði. Það eru hjónin Gísh Sveinsson og Ásta B. Olafsdóttir, staðarhaldarar á Leirubakka, sem eiga veg og vanda af kafíihlaðborð- inu sem er á boðstólum á sunnudög- um mihi kl. 14 og 18. Á Leirubakka er nýbyggt stórhýsi sem ætlað er ferðamönnum. Þar er nánast allt th alls, heitir pottar, gufu- baö, eldhús, grillaðstaða og uppbúin rúm eða svefnpokapláss eftir óskum. Þar er einnig sjoppa, hensínstöð og lítil matvöruverslun verður opnuð innan skamms. Nánari upplýsingar í síma 98-76591. Nýja gistiheimilið á Leirubakka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.