Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLl 1992.
31
Ferðir
Þjóðhátíðin í Eyjum:
Þar sem kynslóða-
bilið þekkist ekki
Ómar Garðaissan, DV, Vestmaiuiaeyjum;
Þjóðhátíðin í Vestmannaeyjum á
sér meira en aldargamla sögu og er
orðin afar rótgróin í hugmn eyja-
skeggja. Oft hafa menn velt því fyrir
sér hvers vegna hún stendur af sér
allar aðrar útihátíðir og er ár eftir
ár ein sú íjölmennasta. Ástæðurnar
eru eflaust margar en eitt er það sem
sker sig úr og það er sú staðreynd
að á þjóðhátíð þekkist ekkert kyn-
slóðabil. í Herjólfsdal skunda allir,
ungir sem aldnir, til að að eyða þar
saman þremur dögum í gleði og söng.
Annað sem gerir sitt til að skapa
þjóðhátíðinni sérstöðu er að haldið
er fast í gamlar hefðir. Sem dæmi
má nefna brennuna á Fjósakletti,
bjargsig, íþróttakeppni og fleira sem
þykir ómissandi.
Spilað á
tveimur pöllum
Undirbúningur þjóðhátíðarinnar
er i höndum íþróttafélagins Þórs
þetta árið. Framkvæmdir eru hafnar
í Heijólfsdal og á allt að vera tilbúið
fóstudaginn 31. júlí þegar hátíðin
hefst. Sigmar Georgsson, fram-
kvæmdastjóri Þórs, sagði við DV að
reynt yrði að vanda til þjóðhátíðar-
innar eins og kostur er. Hljómsveit-
imar Sálin hans Jóns mín og Todmo-
bile skemmta á stóra sviðinu og með
verða Geiri Sæm og Pétur Kristjáns-
son. Eyjahljómsveitin Presto spilar á
minni pallinum. Meðal skemmti-
krafta eru m.a. Jóhannes Kristjáns-
son eftirherma, Dixi band, 13 manna
sönghópur úr Eyjum, Örvar Kristj-
ánsson, trúbadoramir Richard
Scobie og Siggi Kristins og trúðar
sem skemmta yngstu gestunum.
Mesta flugeldasýning
allratíma
Brennan á Fjósakletti verður á sín-
um stað í dagskránni á fostudags-
kvöldið. Á laugardagskvöldið er flug-
eldasýning sem á að vera sú stærsta
sem Islendingar hafa enn fengið að
kynnast og er það gert vegna afmæl-
is Þórs sem er á næsta ári. Á sunnu-
dagskvöldið er svo brekkusöngurinn
undir stjórn Áma Johnsen.
Sérstakarfjöl-
skyldubúðir
Sigmar segist hafa orðið var við mik-
inn áhuga fólks á fastalandinu að
koma á þjóðhátíðina. „Það er fólk á
öllum aldri sem vill koma og ekki
síst fjölskyldufólk. M.a. vegna þess
var ákveðið að koma upp sérstökum
fjölskyldubúðum utan aðaltjald-
svæðisins í dalnum. Þessi áhugi gerir
það m.a. að verkum að miðaverð er
óbreytt frá síðasta ári eða 6.500 krón-
ur og 6000 krónur í forsölu án þess
að slakað sé á gæðum.“
Sigmar segir líka áð nýr Heijólfur
og hinar nýju Fokker 50 flugvélar
Flugleiða geri sitt til að laða að fólk.
Þá er þriöji ferðamöguleikinn, með
Leiguflugi Vals, sem býður ódýrar
ferðir frá Bakkaflugvelli og Selfossi.
Sem dæmi má nefna að flug aðra leið-
ina kostar kr. 1000 frá Bakka til Eyja.
Flugleiðir bjóða pakka sem inniheld-
ur flug báðar leiðir frá öllúm við-
komustöðum félagsins og miða á
þjóðhátíðina. Sem dæmi má nefna
að frá Reykjavík kostar pakkinn kr.
10.900. Starfsmenn Heijólfs eru með
sérstaka þjóðhátíðarpakka í undir-
búningi.
Útihátíd á Eiðum:
mætir á svæðið
Frá undirbúningi þjóðhátíðar í síðustu viku. Unga fólkið var að mála þegar Ijósmyndarann bar að garði. DV-mynd ÓG
Um verslunarmannahelgina verð-
ur haldin útihátíð á Eiðum sem eru
15 km frá Egilsstöðum. ÚÍA stendur
fyrir hátíðinni sem hefst fóstudaginn
31. júlí og stendur fram á mánudag.
Fram koma hljómsveitirnar GCD,
Stjómin, Jet Black Joe, Undir tungl-
inu, Af lffi og sál, Óson, Víkingasveit-
in og Maggi og g...naglamir. Kraft-
lyftingajötuninn Magnús Ver styrkir
hátíðina og valinn verður Eiðajötunn
’92. Háð verður blautbols- og söngv-
arakeppni. Útvarp Eiðar verður
starfrækt alla helgina.
Þess má geta að GCD er að koma
fram í fyrsta skipti síðan í fyrra, en
meðlimir GCD em Bubbi Morthens,
Rúnar Júlíusson, Bergþór Morthens
og Gunnlaugur Briem.
Sætaferðir verða frá Akureyri,
Húsavík, Höfn og fleiri stöðum. Loft-
brú verður mynduð milli Egilsstaða
og Reykjavíkur. Flugleiðir bjóða
mótsgestum sérstaka afsláttarpakka.
Að sögn mótshaldara er öll aöstaða
á svæðinu til fyrirmyndar. Stutt er í
góðar snyrtingar og tjaldstæði eru í
fallegu umhverfi. Eitt stærsta og
glæsilegasta svið allra tíma hefur
verið reist á svæðinu. Auk þess sem
hijómsveitimar nota pallinn á kvöld-
in verður dagskrá frá kl. 13 til 19 á
laugardag og sunnudag.
Eins og fyrr sagði verður haldin
söngvarakeppni á Eiðum. Keppend-
ur munu syngja með Stjóminni eða
GCD. Vegleg verðlaun verða veitt
sigurvegaranum. Væntanlegir þátt-
takendur em beðnir um að skrá sig
í síma 97-11353.
Verð aðgöngumiða er kr. 6000, 14
ára og yngri fá ókeypis inn en verða
að vera í fylgd með foreldra. Á
sunnudag frá kl. 8 að morgni kostar
kr. 3000 inn á svæðið.
ÞAR SEM ALLT FÆST TIL
VEIÐINNAR m útiðtbúðið
ú ^ U NÓATÚNI 17 - SÍMI 814085 - 622702
Meiraum
útihátíðir á
bls.32og33
Fj'öldi landsfrægra
skemmtikrafta