Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1992, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1992, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1992. Fréttir Stjómarliðar takast á um mjólkina við gerð nýs búvömsamnings: Halldór hótar afsögn vegna afstöðu krata - telur að dráttur á frágangi samnings sé orðinn sér pólitískt hættulegur Djúpstæður ágreiningur er í ríkis- stjórninni milli Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks um útfærslu á bú- vörusamningi við bændur sem taka á giidi 1. september. Samkvæmt heimildum DV hefur Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra haft á orði við samstarfsmennn að málið sé orðið sér póhtískt hættulegt og því kunni hann að segja af sér náist ekki sam- komulag á næstunni er byggi á samningi bænda og fyrri ríkisstjóm- ar. Að auki mun landbúnaðarráð- herra vera ósáttur við niðurskurð umfram önnur ráðuneyti vegna fjár- lagagerðar fyrir 1992. Samkvæmt heimildum DV verða ýmsar stofnan- ir sem heyra undir ráðuneytið að sæta tugmilljóna skerðingu. Ekki hefur náðst í Halldór vegna þessa máls en hann er nú staddur í kjör- dæmi sínu á Norðurlandi eystra. Meðal bænda og talsmanna þeirra ríkir nú mikil óvissa enda illmögu- legt að skipuleggja mjólkurfram- leiðslu næsta árs fyrr en gengið hefur verið frá samningi. Til að mynda er alls óvíst hvort beingreiðslur komi í stað niðurgreiðslna eða bætur fyrir framleiðslusamdrátt eins og sjö- mannanefnd lagði til í áfangaskýrslu nýverið. Mikill dráttur hefur orðið á máhnu vegna afstöðu krata sem vilja stór- felldan niðurskurð á framlögum rík- isins til landbúnaðarins. Samninga- nefnd ríkis og bænda hefur verið nær óstarfhæf að undanfomu þar sem kratar telja sig ekki geta samið um neitt fyrr en póUtísk samstaða hefur náðst um málið innan ríkisstjórnar- innar. Nefndin fundaði síðdegis í gær án þess að samkomulag næðist. FuUtrúi Alþýðuflokks í nefndinni er Guðmundur Ólafsson hagfræðing- ur en fyrir hönd landbúnaðarráð- herra situr Sigurgeir Þorgeirsson, aðstoðamaður hans. Að auki sitja í nefndinni fimm fulltrúar bænda, auk fuUtrúa fjármálaráðuneytis, land- búnaöarráðuneytis og viðskipta- ráðuneyds. I tíð síðustu ríkisstjómar undirrit- aði Stemgrímur J. Sigfússon, þáver- andi landbúnaðarráðherra, samning við bændur og er í honum meðal annars kveðið á um að heildarstuðn- ingur við mjólkurframleiðsluna verði svipaður og verið hefur. Sam- kvæmt því myndi ríkissjóður verða að veita mjólkurframleiðendum allt að 16 milljarða í styrki á samnings- tímanum, eða fram til ársins 1998. -kaa Það hefur ekki verið amalegt aö vinna við útistörf í góða veðrinu undan- fama daga. Þessir ungu menn létu lika vel af byggingarvinnunni þegar Ijós- myndari DV hitti þá. DV-mynd JAK Sauöflárræktin: Fjöldagjaldþrot blasir við „Búist er við 20% flötum niður- skurði á framíeiðslurétti sauðflár- bænda í haust. Slæmt efnahags- og atvinnuástand gerir aö verkum að margir bændur hafa ekki að öðru að hverfa," segir í frétt frá Upplýsinga- þjónustu landbúnaðarins. Stjórnir Búnaðarfélags íslands og Stéttarsambands bænda funduðu um þetta mál í gær og samþykktu álykt- im þar sem bent er á leiðir til að milda áhrif þess mikla samdráttar sem fyrirsjáanlegur er í sauðflár- ræktinni. Þar er m.a. bent á þörfina á að réttur bænda til atvinnuleysis- bóta verði viðurkenndur. Auk þess er nefnt að leitað verði leiöa til aö fá það verð sem fæst erlendis fyrir kjöt sem fellur utan nýja kvótakerfisins, greiðslumarksins, og að atvinnuráð- gjöf verði stórefld í dreifbýlinu. Þá er hvatt til þess að Framleiönisjóður aðstoði við markaðsleit og vöruþró- unfyrirerlendamarkaði. ask Dregið í áskriftargetraun D V: Toyota Carina E til Reykjavikur Það var sjötíu og fimm ára Reyk- víkingur, Gunnar Gíslason, til heim- ilis að Gnoðarvogi 64, sem reyndist vera hinn heppni áskrifandi þegar dregið var úr nöfniun skuldlausra áskrifenda á miðvikudaginn en Gunnar og kona hans, Kristín Wa- age, veittu bflnum viðtöku í Kringl- unni í gær. Næst verður dregið um Opel Astra frá Jötni hf. þann 26. ágúst næstkom- andi en enn á eftír að draga út fimm bíla í getrauninni. -JR Kristinn Pétursson, fyrrverandi alþingismaður: Enginn árangur eftir tuttugu ára friðun - fiskifræðinekkertannaðenreiknilíkan „190 þúsund tonn þýða rústun á helmingi íslensks sjávarútvegs og skelfilegt upplausnarástand. Þetta er ekki framkvæmanlegt," sagði Krist- inn Pétursson, fyrrverandi alþingis- maður og fiskverkandi á Bakkafirði, þegar hann var spurður hvað honum þætti um þær hugmyndir sem væru uppi um þorskveiðar á næsta ári. „í fyrsta lagi standast þessar for- sendur ekki og það er búið að heila- þvo þjóðina eins og búið er að heila- þvo bandarísku þjóðina um að það sé verið að útrýma hval. Fiskifræðin er ekkert annað en reiknilíkan sem menn fást ekki tfl að taka augun af eitt augnablik. Þetta reiknilíkan vinnur þannig að það tekur ekkert tillit til umhverfisaöstæðna. Það tek- ur ekkert tfllit tfl fæðuframboðs í hafinu sem er grundvallaratriði í öll- um búskap. Reiknilíkanið tekur ekki tíllit til stærðar annarra stofna, flölda sjávarspendýra og sjófugla. Reiknilíkanið er afmörkuð tflgáta um vísindi. Það er verið að tilrauna- keyra þjóðimar við norðanvert Atl- antshaf með þeim árangri að eftír tuttugu ára tflraunakeyrslu með friðun á friðun ofan, stækkun möskva, útfærslu landhelgi, lokun svæða og meiri friðun standa þjóð- imar við norður Atlantshaf með þijátíu prósent af þeim afla sem þær höfðu áður en friðunin byrjaði. Þess- ir visindamenn hafa ekki sagt okkur af hverju." - Sókn hefur aukist. „Sóknin hefur ekki aukist, hún hefur snarminnkað, sérstaklega í tveggja, þriggja ára fisk. Af hverju er ekkert tfl af þessum fiski? Þeir hafa ekki vfljað svara þessu. Það er búið að stækka möskvana í botn- vörpunni um 300 prósent. Samt segja þeir að sóknin hafi aukist. Hvemig ætla þeir að rökstyðja það? íslands- metin í nýliðun þorsks hafa orðið þegar stofninn hefur verið álíka stór og hann er núna. 1973, 1983 og 1984 var stofninn álíka stór og hann er núna. Þetta var líka sagt 1973 og 1983. í fyrra tflfellinu, 1973 til 1976, veidd- um við að meðaltali 370 þúsund tonn á ári þrátt fyrir að ástandið væri sambærflegt og nú. Stofninn snar- stækkaði á eftír vegna þess hversu nýliðunin var mikfl 1973. Sama sagan endurtók sig 1983.“ - Hvað áttu við, ert þú að gefa í skyn að starfsmenn Hafrannsóknastofn- unar vití ekki hvað þeir eru að gera? „Ég sé ekki annað en þetta snúist um það eitt að sanna að þetta reikni- líkan sé rétt. Þaö gerir ráð fyrir að maturinn í hafinu bíði á lager og verði tflbúinn tfl neyslu þegar stofn- inn stækkar, þetta er grundvallar- misskflningur. Það er mikið álag á beitflöndin í hafinu. Þá er fyrsta spumingin þessi, er pláss fyrir stór- an þorskstofn? Ég tel það vera mjög hæpið. Þetta er allt misskilningur, þetta er mesti missldlningurinn í allri íslandssögunni. Þetta er tilgáta um vísindalega kenningu sem hefur ekki verið sönnuð. Fiskifræðinga greinir á. Meirihluti þeirra aðhyllist friðunarstefnuna. Það em líka tíl fiskifræðingar sem aðhyllast grisj- unarstefnu sem er algjörlega á önd- verðum meiði við hina. Efnisleg umflöllun um hvorir hafa meira tfl síns máls hefur ekki farið fram. Það er búið að ráöleggja í mörg ár að stíga skref tfl baka tfl að fara var- lega. John G. Pope segir okkur ná- lægt bjargbrún. Hann hefur samt engar visbendingar um hvar brúnin er. Það eina sem hann segir er að til öryggis skulum viö stíga skref tfl baka. Tfl öryggis stigum við afturá- bak þegar við færðum út landhelg- ina, þegar allir útlendingar fóm loks út úr landhelginni, eins þegar við stækkuðum möskvana um 300 pró- sent, úr 90 miUímetrum í 155. Tfl öryggis stigum við skref tfl baka þeg- ar við lokuðum svæðum og vemduð- um smáfisk. Eftir sem áður er það staðreynd að eftir því sem við höfum farið aftar hefur árangurinn orðið lakari. Ég og fleiri, sem erum á ann- arri skoðun, megum búa við það að það er híað á okkur,“ sagði Kristinn Pétursson, fyrrverandi alþingismað- ur og fiskverkandi á Bakkafirði. -sme lii „Viö viljum taka alvarlegt mark á visindamönnunum. Þeir em meö þær bestu upplýsingar sem við höf- um,“ sagði Jóhann Ársælsson, al- þingismaður og fulltrúi Alþýðu- bandalagsins í sjávarútvegsnefiid Alþingis. Þingflokkur Alþýðu- bandalagsins kom saman til fundar vegna ástands fiskistofnanna. Jóhann segir að á fundinum hafi aflir verið þeiirar skoðunar að ekki megi heimila meiri þorskvelðar en Hafrannsóknastoftmn leggi tfl og eins kom fram sú skoðun að afla yröi frekari gagna um hrygningar- stofninn og hrygningarsvæðin. Jó- hann benti á að John G. Pope hefði sagt aö þaö væra einu gögnin sem hann hefði ekki verið fullkomiega „Það þarf að táka á rekstrar- vanda sjávarútvegsins. Nú em menn aö éta upp sjóðinn sinn, það er sveiflujöfnunarsjóöinn. Það blasir viö enn meiri taprekstur og á því verður að taka,“ sagði.Jó- hann. Hann sagði leggja áherslu á að byggðasjónarm- íð réðu ferðinni við úthlutun Ðsk- veiðiheimilda og tók fram að sinn flokkur hefði afltaf verið á móti sölu veiðiheimilda Hagræðingar- sjóðs. Þá sagðist Jóhann vflja að þaö sem bætt yröi við í öömm teg- undum en þorski yröi reiknað í þorskígildistonnum og með þvi tryggt að enginn sketfist umfram annan. Hann sagðist og vilja aö kvóti Hagræðingarsjóös yrði not- aður til að styðja þær byggðir sem verststæðu. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.