Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1992, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1992, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1992. Fréttir Ármannsfell íhugar að skila umdeildum lóðum í Kópavogi: Erum að berjast upp á líf og dauða - segir Armann Öm Armannsson framkvæmdastjóri „Staðan er erfið og við erum að beijast upp á líf og dauða. Það er ekkert leyndarmál. Þjóðin er öll söm- ul á svartsýnistrippi langt umfram það sem eðlilegt getur talist. Við er- um ein ríkasta þjóð í heimi en það er eins og allir haldi að sér höndum við framkvæmdir. Þetta er þjóðinni afar óhollt,“ segir Ármann Óm Ár- mannsson, framkvæmdastjóri Ár- mannsfells. Stjóm Ármannsfells ræddi á stjómarfundi í síðustu viku þann möguleika að skila lóðum á Nónhæð sem fyrirtækið fékk úthlutað hjá Kópavogsbæ í fyrra. Úthlutun lóð- anna var mjög umdeild á sínum tíma og gagnrýnd af minnihlutanum í bæjarstjórn. Var Gunnar Birgisson, formaður bæjarráðs, meðal annars ásakaður um að hygla Ármannsfelh en hann sat um nokkurt skeið í stjóm fyrirtækisins. Fyrir fundinn höíöu bæjaryfirvöld lofað að taka við lóðunum yrði eftir því leitað. Samkvæmt skipulagi á að byggja 210 íbúðir á því svæði sem Ármannsfell hefur til umráða. Að sögn Ármanns hefur enn engin ákvörðun verið tekin um hvort lóð- unum verði skilað. Málið sé hins vegar til daglegrar skoðunar. Þreifmgar hafa átt sér stað varð- andi hugsanlega kaupendur að íbúð- um. Samtök aldraðra hafa sýnt mál- inu áhuga en lítil eftirspum mun hins vegar vera eftir íbúðum fyrir aldraða um þessar mundir. Þá hefur Búseti sýnt málinu áhuga en skortir íjármuni til kaupa. í ár hefur Búseti einungis lánsloforð fyrir 10 íbúðum í Kópavogi. Ármannsfell vinnur um þessar mundir sem verktaki við byggingu um 200 íbúða á höfuðborgarsvæðinu og á Selfossi. Fyrirhugað var að hefja framkvæmdir á Nónhæð í vor án þess að af þvi hafi orðið. Fjárhagslega hefur þrengt mjög að fyrirtækinu upp á síðkastið. Þess má geta í þessu sambandi aö sölugengi á hlutabréf- um í Armannsfelli hefur lækkað um þriðjung frá því á sama tíma í fyrra. -kaa DV Umferö vinnuvéla: Góð reynsla af banninu - 300 skilti á 170 stöðum Að sögn Guðmundar Inga Sig- urðssonar hjá umferðardeild lög- reglunnar í Reykjavík hafa engir hnökrar komið upp í utnferð vinnuvéla ura höfuðborgarsvæð- ið eftir að hún var takmörkuð 1. júli síðastliðinn. Hefur lögreglan þurft að hafa lítil sem engin af- skipti af ökumönnum vinnu- og dráttarvéla. Guðmundur sagði að eigendur vinnuvéla hefðu brugið á það ráð aö flytja tækin á vöruböspöllum eða dráttarvögnum. „Þaö var svolítið hringt til okkar með kvartanir fyrstu dagana en siðan ekki meir,“ sagði Guðmundur Ingi. Höfuöborgarbúar hafa ekki far- ið varhluta af þeim umferðar- skiltum sem sett voru upp vegna takmörkunar á umferð vinnu- véla. Þau eru nánast úti um allt Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg voru gerð rúm- lega 300 ný skílti sem fóru upp á uml70stöðum. -bjb Jón Páll Halldórsson á ísaflrði: Þetta verður erf itt - kvótinn nú um 40% af því sem hann var fyrir 12 árum „Þetta verður öllum erfitt. Ég held að það sé alveg ljóst aö þetta verður öllum erfitt," sagði Jón Páll Halldórs- son, framkvæmdastjóri Norðurtang- ans á ísafirði, um þær hugmyndir sem eru uppi um fiskveiðar á næsta ári. ^ Jón Páll sagði að auknar veiðar á öðrum tegundum kæmu ekki í stað- inn fyrir þorsk en vissulega hjálpuðu þær veiðar til. Hjá Norðurtanga hef- ur þorskur verið liðlega helmingur alls afla sem þar er unninn. „Það var mun meira áður fyrr eða 60 til 70 prósent," sagði Jón Páll. „Við höfum beinlínis gert kröfu til þess,“ sagði Jón Páll þegar hann var spurður hvort hann teldi Vestfirð- inga vilja misskiptingu á kvóta. „Það hefur verið gert áður. Loðnuskipin fengu þorsk- og rækjukvóta þegar loðnuaflinn var skertur. Þetta er ekki nýtt fordæmi sem er verið að skapa. Það er þess vegna sem rækjukvótinn er dreifður um allt land. Það var verið að hygla loðnu- skipunum með rækjukvóta. Þetta er ekkert nýtt - þetta er leið sem Hall- dór Ásgrímsson fór alltaf þannig að Þorsteinn sækir fordæmið til forvera síns. Við hefðum að sjálfsögðu viljaö fá þorsk." Jón Páll taldi ekki hægt að misskipta þorskinum á næsta fiskveiðiári nema úthluta veiðiheim- ildum Hagræðingarsjóðs. „Við áttum okkar hlutdeild úr 460 þúsund tonnum þegar Steingrímur Hermannsson var sjávarútvegsráð- herra og ef nú er verið að tala um 190 þúsund tonn sést hver skerðingin er orðin á tólf árum. Viö höfum reynt að bæta okkur þetta með öðrum fisk- tegundum," sagði Jón Páll Halldórs- son. -sme Miðskólinn verður til húsa í húsnæði Miðbæjarskólans við Tjörnina. DV-mynd EJ Miðskólinn að fara af stað: Yngsta bekkjardeildin f ullskipuð „Yngsta bekkjardeildin fyrir 9 ára böm er fullkskipuð en umsóknir um eldri deildimar, þ.e. 10.11 og 12 ára, mættu vera fleiri. Ef við fyllum þær ekki er hugsanlegt að við verðum með þrjár bekkjardeildir í staðinn fyrir fjórar," sagði Bragi Jósepsson, ritari skólanefndar hins nýja skóla, Miðskólans í Reykjavík. Bragi sagði að stefnt væri aö því að feta í fótspor ísaksskóla. Komið hefði á daginn aö umsóknir bama þaðan væm hlutfallslega fleiri held- ur en annars staðar frá. Til dæmis lægju fyrir 11 umsóknir frá bömum sem yrðu ekki 9 ára fyrr en um ára- mót 93/94. Þetta væm allt böm úr ísaksskóla „Skólagjaldið verður 15 þúsund krónur á mánuði og er rétt að taka það fram aö þetta er heilsdagsskóli,“ sagði Bragi. „Bömin em þama í samfelldu skólastarfi í 7-8 klukku- stundir á dag. Þau fá heitan mat í hádeginu og geta búið sig undir næsta kennsludag í ró og næði. Skól- inn verður einsetinn þannig að hver bekkjardeild fær sína kennslustofu. Ef allt fer sem horfir fáum við fjórar aðalstofur á neðri hæð Miðbæjar- skólans. Staðsetningin er því mjög hentug. Markmið skólans er í raun og vera aðeins eitt, að veita nemend- um góða og markvissa kennslu sem skilar árangri." Bragi sagði að nú lægju fyrir 14 um- sóknir frá kennurum. Þeir yrðu ráðnir eftir verslunarmannahelgina þegar séð yrði hvemig nemendur skiluðusér. -JSS ---42---- Hjálmar Guðjónsson, ingvar Guðjónsson og Þröstur Steindórsson hvíla lúin bein. Asamt rúmlega þrjátíu öðrum unglingum hafa þeir verið önnum kafnir í sumarvinnu hjá Landsvirkjun í Búrfelli við garðrækt, slátt og ýmislegt viðhajd. Unglingarnir, flestir 16 til 20 ára, eru bæði úr Árnessýslu og Reykjavík. Nokkrir eru svo hrifnir af sveita- sælunni að þeir koma sumar eftir sumar. DV-mynd GVA Sjóslysið undan Noregi: Ekkert talsamband milli skipanna - sagði Bjöm Ketilsson við sjópróf Við sjópróf síðastliöinn miðviku- dag upplýsti Bjöm Ketilsson, ís- lenskur skipstjóri með danskan rík- isborgararétt, að ekkert talsamband hefði verið milli ísafoldar og norska flutningaskipsins Kamillu fyrir sjó- slysið síðasthðið sunnudagskvöld. Þá rákust skipin skyndilega saman með þeim afleiðingum að Kamilla sökk á innan við mínútu og 6 manns fómst. Einn skipveiji bjargaðist um borð í Isafold. Bjöm sagðist við sjóprófin hafa séð Kainillu nokkru áður en skipin skullu saman og engin hætta virtist vera á ferðum. Síðan hefði Kamilla skyndilega komið í veg fyrir ísafold og þrátt fyrir viðvömnarflaut hefði ekki tekist að koma í veg fyrir árekst- ur. ísafold var ekki með kveikt á al- þjóölegri ueyðarkallsrás heldur á venjulegri rás. Á alþjóðlegu rásinni heyrðist neyðarkall frá Kamillu skömmu fyrir áreksturinn. „Samstuðið við Kamillu virkaði ekki sterkt á ísafold. Ég trúði ekki mínum eigin augum þegar ég sá Kamillu hverfa með stefnið niður og var horf- iö sjónum okkar á innan við mín- útu,“ sagði Bjöm meðal annars við sjóprófin. -bjb Dómur fallinn í stóra hassmálinu á Akureyri: Dæmdir í 3 og 2 mánaða fangelsi Dómur er genginn í svokölluðu stóra hassmáli sem upp kom á Akur- eyri í vor. Tveir menn frá Akureyri, 36 og 39 ára, vom ákærðir og sak- felldir í málinu. Þeir em dæmdir fyr- ir sölu og neyslu á hassi. Annar var dæmdur í 3 mánaða fangelsi og hinn 1 2 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Hjá báðum dragast frá 5 dagar í gæsluvarðhaldi. Ákærðu er gert að greiöa málskostnaö að mestu og þau fíkniefni og áhöld sem hald var lagt á í vor vom dæmd til upptöku. Alls er um 32 grömm af hassi að ræða og þijár hasspípur. Málavextir eru þeir að síðla sumars 1991 keyptu tvímenningarnir 31 gramm af hassi á Sauðárkróki og fluttu það til Akureyrar til eigin neyslu að mestu leyti. í janúar 1992 keyptu þeir um 20 grömm af hassi fyrir 30 þúsund krónur í Reykjavík og neyttu þess. Þá er öðram þeirra gefið að sök að hafa í fyrri hluta fe- brúar 1992 keypt í Reykjavík um 20Ö grömm af hassi fyrir 240 þúsund krónur og fengið það sent til Akur- eyrar. Ákærðu er báðum gefið að sök aö hafa selt hassið á Akureyri og neytt þess. Alls seldu ákærðu um 105 grömm. Söluverðið var 1500 krónur fyrir grammið, sem þýðir alls tæp 160 þúsund króna söluvirði. í byijun mars síðastliðinn lagði lögreglan hald á alls 33 grömm á vinnustöðum þeirra ákærðu á Akureyri. Þann 20. júní síðastliðinn var dóm- urinn kveðinn upp af Ásgeiri Frið- jónssyni, áður sakadómara í ávana- og fíkniefnamálum, nú héraðsdóm- ara í Reykjavík. Mánuði síöar var dómurinn birtur og hafa ákærðu tveggja vikna frest til að áfrýja. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.