Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1992, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1992, Síða 7
FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1992. 7 i>v Sandkom Paðcrekki bara hagfræöi semkennder viöKarlFri- edrich Hier- onymus von Muncliliausen friherra. þýska iiösforingjann semvaruppiá ádánduöldog varsögumaðm- íöfgafullum lygisögum. Ðavíð Oddsson forsætisráðherra vakti á því athygli í DV um daginn aö það væri hagfræði kennd við Miinchhausen, sem gat hafið sig upp á hárinu samkvæmt lygisögunum, að halda að hægt væri að bj arga hruni þorsksinsmeð öðrum peningum. Átti hann þá við þær skoðanir að ekki ætti að selja kvóta Hagræðingarsjóðs. Svona til gamans má geta þess að einníg er talað um munchhausen- heilkenni. Munchhausen- heilkenni Þettafyrir- brigði erskil- giæintsemþrá- iáturuppgerð- ai-kvillimoð ;í svotrúverðug- umlíkamleg- um sjúkdóms- einkennum að sjúklingurinn erítrekaðfagð- urmnásiúkra- húsogjai'nvel skorinnuppán marorsakir fmnist. Orðið heílkenni er nýleg þýð- ing á erlenda orðinu sy ndrom og hljóöar s vo: heild einkenna og teikna sem vitað eða áiitið er að auðkenni kvilia, sjúkleika eða meinsemd. Geðleysi Vestfirðinqa Leiðaráhöf- undurVest- firskafrétta- blaðsinstelur aöVestfirðing- areigiuðgefa gaumaöoriium Morgunblaðs- ins.Vitnarleið- arahöfutidur- inn í leiðara Morgunblaðs- insumvanda Bfldudalsog ástæður hans þar sem segir: „Að því er Bfldudal og Vestfirði varðar er augljóst mólað kvótakerfið hefUr tekið frá Vestfirðingum þaö forskot sem þeirhöfðu öldum saman vegna nátægðar við fengsæl fiskimið. Það geðleysi Vestfirðinga að rísa ekki upp sem einn maður gegn þessu kerfi, sem ásamt öðru er að leggja sjávarút- veg þeirra í rust, er óskilj anlegt" í leiðara Vestfirska fféttablaðsins seg- ir að seint verði þingmaðurinn Matt- hías Bjarnason vændur um geðleysi en aðrir Vestfirðingar eru eins og áður sagði hvattir til að hugleiða orð Morgunblaðsins. Skiltastríó Striöhefur herjaöumaug- iýsingaskiltiá Akureyriað undanförnu. Baejaryfirvöld hafaskipað nefndsemfalið hefurveriðað semjareglur umauglýsinga- skiltiþvínú viröist frmn- skógarlögmál vera igildiiuh þáu. Kaupmenn hafa sett upp skilti á umferðareyjar ýmist án þess að spyrja leyfis eða gert það þrátt fyrir synjun bygginganefndar. Frá þessu er greint í Degi á Akureyri sem einnig segir fiá þvi að dæmi séu um að aðilar hafi sett upp skilti i skjóli nætur en síðan hafi keppinaut- arnir tekiðþau niður ískjóli næstu nætur. Umsjön: Ingíbjörg Bára Sveinsdótlir Fréttir Akureyri: Miðstöð endur- vmnslu a Islandi „Langtímamarkmiðið er að Akur- eyri verði miðstöð endurvinnslu á íslandi. í morgun gengum við frá starfssamningi við þann mann sem mun leiða verkið í upphafi en innan skamms tíma verður fyrirtækið skráð og leitað eftir aðilum sem vilja taka þátt í stofnun hlutafélagsins," sagði Hólmsteinn Hólmsteinsson, framkvæmdastjóri Malar og sands hf. á Akureyri. Búið er að ákveða nafn á fyrirtækið en það verður skírt Úrvinnslan hf. Undanfarna mánuði hafa Hólmsteinn, Sveinn Heiöar Jónsson húsasmíðameistari og Þór- arinn Kristjánsson, framkvæmda- stjóri Gúmmívinnslunnar, kannað mögulegar nýjungar í atvinnumál- um á Akureyri. Þeir félagar stað- næmdust við endurvinnslu af ýmsu tagi en Gúmmívinnslan hefur ein- mitt verið leiðandi á því sviði. Allt frá upphafi hafa þeir unnið að þess- um málum í náinni samvinnu við atvinnumálanefnd Akureyrar og Iðnþróunarfélag Eyjaljarðar. „I upphafi mun nýi starfsmaður- inn, Valdimar Gunnarsson umbúða- fræðingur, kanna mögulegar leiðir í endurvinnslu á pappír, plasti og timbri. Við viljum skapa verðmæti úr þessu hráefni og þar erum við t.d. með í huga húsaeinangrun úr papp- ír. Á því sviði erum viö í samvinnu við fyrirtæki á Norðurlöndunum þar sem þessi aðferð er þekkt og viður- kennd. Nú þegar erum við búnir að fá sýni frá þessum samstarfsaðilum okkar og þau hafa þegar hlotið viður- kenningu opinberra aðila. Það kann Þórarinn Kristjánsson: Auka þarf endurnýtingu „Það liggur fyrir að það verður að gera eitthvað varðandi enduryinnslu og endumýtingu úrgangs á íslandi. Þó að það sé takmarkaður skilningur á þessu í dag verður það ekki svo um ókomna framtíð," sagði Þórarinn Kristjánsson, framkvæmdastjóri Gúmmivinnslunnar. Fyrirtæki hans framleiðir ýmsar vörur úr þeim gúmmísalla sem fellur til í landinu og raunar er eftirspurnin eftir fram- leiðsluvörum Gúmmívinnslunnar slík að nauðsynlegt hefur reynst að flytja inn gúmmísaUa. Á miðvikudag komu t.d. 15 tonn af gúmmísalla að utan til Gúmmívinnslunnar. „Það er e.t.v. ekki skemmtilegt að þurfa að kaupa sorp erlendis frá þegar nóg er til af því hér heima. En við stöndum frammi fyrir því að það þarf að safna saman hjólbörðum og mala þá. Við ráðum ekki við það eins og staðan er í dag. Gangi okkur hins vegar vel að markaðssetja þær vörur sem nú eru framleiddar vonast ég til þess að inn- an fárra ára getum við fjárfest í vél- um sem mala hjólbarða í smátt.“ Þórarinn sagði að þeir sem stæðu að stofnun nýja fyrirtækisins, Úr- vinnslunnar, væru allir atvinnurek- endur og gerðu sér mæta ,vel grein fyrir hvernig ætti að standa að rekstri. „Hitt er aftur annað mál að við þurfum aukinn skilning stjóm- valda og raunar þjóðarinnar í heild. M.ö.o. þurfum við aö ná til okkar vissum tegundum úrgangs til aö geta nýtt hann og notað. Ætlunin er að framleiöa seljanlegar vörur úr úr- ganginum," sagði Þórarinn Kristj- ánsson. -ask Meðal annars verður leitað leiða til að nýta rúllubaggaplastið sem fellur til í sveitum landsins. e.t.v. að hljóma sérkennilega að hægt sé að búa til húsaeinangrun úr papp- ír en í hann er blandað ákveönum efnum sem gerir einangrunina brunaþolna. Einangruninni er blásið í holrúm og milliveggi," sagði Hólm- steinn. Til að byrja með mun nýja fyrir- tækið ílytja inn einangrun frá nor- rænu samstarfsaðilunum og kanna hvemig íslenskur byggingariðnaður tekur henni. Jafnhtiða innflutningn- um verður leitaö leiða til að nýta plastið sem fellur til í sveitum lands- ins. Hér er fyrst og fremst um að ræða rúllubaggaplastið. Hólmsteinn sagði að tii væru ákveðnar leiðir í því efni og hafa þeir félagar tekið upp samstarf við sænskan aðila sem kann til verka á þessu sviði. Ætlunin er að blanda pappírs- og trjáefnum við baggaplastið en með vélbúnaði er hægt að móta „viðarkubba" úr hráefninu. Sem dæmi um notkunar- möguieika má nefna millikubba í svonefnd Evrópubretti. „Á þetta tvennt munum við horfa í upphafi en við setjum markið hátt. Við viljum hafa forystu um endurvinnslu á gúmmíi en á því sviði hefur Gúmmí- vinnslan á Ákureyri verið fremst í flokki. Gler er líka á dagskrá hjá okkur. Viö höfum áhuga á aö endur- vinna það auk fleiri efna sem of snemmt er að nefna. í stuttu máli viljum við gera allt til að nýta það sorp sem til fellur í landlnu." ask Ástand skálarústanna að Stöng: Alvarlegt mál og nauðsynlegt að hefja f ramkvæmdir strax segir Guðmundur Magnússon, settur þjóðminjavörður Ástandið að Stöng er alveg óvlðunandi, segir Guðmundur Magnússon, settur þjóðminjavörður. Myndin sýnir skálarústirnar. DV-mynd GVA „Skyldum okkar til að sinna verk- efnunum er ekki fylgt eftir með fjár- framlögum. Ég er sammála Vilhjálmi um að það er alveg óviðunandi að ástandið að Stöng sé með þeim hætti sem nú er,“ segir Guðmundur Magn- ússon, settur þjóðminjavörður frá 1. júní síðastliðnum. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson fomleifafræðingur benti á það í viðtali viö DV í gær að skálarústimar aö Stöng lægju undir skemmdum. Ekkert hefði verið gert við skálann yfir rústunum í fjölda ára. Vilhjálmur kvaðst hafa sent þjóðminjaverði skýrslu um ástand rústanna fyrir þremur ámm. Síðan hefðu engar viðgerðir fariö fram á skálanum. Það væri beinlínis upp- blástur inni í skálanum og uppruna- legar veggjahleðslur hryndu niður vegna vatns sem ætti greiðan að- gang. „Eg frétti fyrst af þessu máli í apríl á fundi í fomteifanefnd. Þá lagði þjóðminjavörður, Þór Magnússon, fram skýrslu Vilhjálms til kynning- ar. Tilefni þess að þetta var tekið fyrir á fundinum var það að Vil- hjálmur var að sækja um leyfi til þessara rannsókna sem hann stund- ar núna. Af því tilefni vildi Þór að menn vissu af því að grípa þyrfti til ráðstafana því ástandið væri aö verða slæmt á Stöng.“ Guðmundur kveðst þá hafa spurt hvemig efitirliti með Stöng væri hátt- að. „Mér var sagt að þóðminjavörður og annað starfsfólk Þjóðminjasafns færi þangað reglulega til eftirhts á hveiju ári og reyndu að lagfæra það sem þyrfti í húsinu og hlæðu hleðsl- ur sem fallið hefðu yfir veturinn. Stærri viðgerðir fæm fram á nok- kurra ára fresti." Á fundi með þjóðminjaráði, sem er yfirstjórn Þjóðmirýasafns, í júní síð- astiiðnum kynnti Guðmundur skýrslu Vilhjálms. Hún hafði ekki áður verið kynnt fyrir ráðinu sem tók til starfa í ársbyijun 1990. „Mér þótti þetta alvarlegt mál. Ég tel nauð- synlegt að hefja framkvæmdir að einhveiju leyti strax í sumar en það em engir fjármunir á fjárveitingum til safnsins á þessu ári til að gera neitt stórt." Að sögn Guðmundar er eftirht með fomleifum eins og Stöng í höndum fomleifadeildar Þjóðminjasafns samkvæmt nýjum þjóðminjalögum frá 1990. „Það er einn starfsmaður sem á að annast allar fomleifarann- sóknir á íslandi og hafa eftirlit með öllum fornminjum og annast alla fomleifaskráningu og öll mál sem upp koma. Yfirvöld hafa ekki sýnt þessu mikinn skilning og skýrir þetta hvers vegna málið er í ólestri. Við tölum um okkur sem söguþjóð og að sögustaðir eigi að vera aðdráttarafl fyrir ferðamenn en tvískinnungur- inn kemur í ljós þegar kemur að því að setja peninga í að halda þessu við.“ Guðmundur segir fleiri staöi en Stöng liggja undir skemmdum. Mik- ill átroðningur hafi verið í Hvanna- lindum á Austfjörðum. „Það var ákveðið að minni tillögu að veita 50 þúsund krónur til að byggja útsýnis- palla. Það hefur reyndar verið uppi hugmynd að gera slíkt á Stöng. Við fengum nýléga fregnir að fornminjar að Gásum við Eyjafjörð væra eklti í nógu góðu standi og erum að senda mann norður til að athuga máhð.“ Aðspurður sagði Guðmundur að fé það sem safnaðist í söfnunarbaukinn að Stöng til viðhalds bænum væri lagt inn á reikning. Taldi Guðmund- ur að aðeins væri um að ræða nokk- ur hundmð krónur sem söfnuðust á hveiju sumri. -IBS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.