Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1992, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1992, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1992. Utlönd Samviskufangar íhungurverkfalli Hundruð samviskufanga í Suð- ur-Kóreu hófu hungurverkfall S gær til að leggja áherslu á þá kröfu sina aö þeir verði látnir lausir og lögum verði breytt. Munu það vera um 800 fangar í 30 fangelsum í landinu sem eru í hungurverkfalh. Níutíu fangar hafa setið inni í rúmlega sjö ár. Er ætlað að þeir fasti fram á næsta laugardag en það getur dregist. Hefurkonanrétt tilaðdeyja? Breskir dómstólar hafa nú tekiö fyrir ósk tvítugrar konu sem vili fá aö deyja. Konan lenti í alvar- legu bilslysi og missti meöal ann- ars fóstur. Nú þjáist hún af iungnabólgu og bijósthimnu- bólgu. Hún heíur neitað allri hjálp þar sem hún tilheyrir vott- um Jehóva en hefur samt verið gefiö blóð gegn hennar viija. Mál þetta hefur vakið upp þá spumingu í Bretlandi hvort og hvenær fuiloröínn sjúkhngur getur neitað læknishjálp. Á lægra dómstigi var ákveðið að hún skyldi fá hjálp en faðir hennar er algjörlega á móti slíku. Flassaði hjá ólympíueldinum Maöur með sýningaráráttu, flassari, fór úr öllu og hljóp um allsber fyrir framan fjölda manns sem haföi safhast saman í spönsku borginni Valencia til að fylgjast með ólympíueldinum. Að sögn spænsku lögreglunnar er maðurinn 28 ára gamall og góður kunningi hennar þar sem hann hefur verið handtekinn fyr- ir svipað athæfi 13 sinnum áður. Var hann ákærður fyrir aö hafa sýnt sig beran á almannafæri og hafa fiktað viö kynfæri sín. Mað- urinn veltti mótspymu við hand- tökuna og varð að beita hann valdi. Eyðnismitast meðmóður- nyólkinni Vísindamenn frá sex löndum staðfestu í gær á eyðniráöstefn- unni i Amsterdam að sjúkdómur- inn getur borist í böm frá mæðr- um þeirra með móðurmjólkinni. Flestir halda þvi þó fram að í vanþróuðum löndum séu kostir brjóstagjafar fieiri en gallamir. Alþjóða heilbrigöisstofhunin hvatti konur í maí síðasthðnum til að halda áfram að vera með böm sín á bijósti þar sem líkum- ar á smiti í gegnum brjóstagjöf væru minni heldur en að bömin dæju af öðrum sjúkdómum sem þau fengju ef þau væru ekki höfð á bijósti. írskastjórnin frystirkaup- hækkanir írska stjómin hefur ákveðið að frysta kauphækkanir háttsettra embættismanna næstu tvö árin. Er hér um að ræöa dómara, stjómmálamenn, lögreglustjóra og þá sem lengi hafa verið i starfi. Er ástæðan fyrir frystingunni sögð vera fjármálaerfiðleikar. Mælt hafði verið með aö 650 starfsmenn fengju allt að 17 pró- sent kauphækkun. Ef af henni hefði oröið hefði kaup forsætis- ráöherra írlands hækkaö úr 6,6 milljónum í tæplega 7,8 milljónir á ári. Einnig hafði verið mælt með að þingmenn fengju 4 pró- sent hækkun á launum sínura. Reuter Aukiðatvinnu- leysiíEB Evrópubandalagið hefur varað viö auknu atvinnuleysi innan bandalagsríkjanna. Félagsmála- fultrúi bandalagsins, Vasso Pap- andreou, skýrði frá því á frétta- mannafundi aö horfur i atvinnu- málum væru ekki góöar. Búist er við að atvinnuleysi í Evrópu- bandalagslöndunum 12 verði um 9,5 prósent á þessu ári miðað viö 8,9 prósent í fyrra. Ungt fólk verður harðast úti en atvinnuleysi meðal fólks undir 25 ára aldri er 17,5 prósent. Papandreou sagði að búast mætti við auknu atvinnuleysi á þessu ári en spár herma að at- vinnuleysið muni ná jafnvægi árið 1993 og verða þá í kringum 9,7 prósent. Eiginkona biðurumfrið EiginkonaDavid Mellor, menn- ingarmálaráðherra Bretlands, hefur beöið fréttamenn um að láta sig í friöi en fjölmiðlar þar í landi hafa nú fengið nýtt hneyksl- ismál í hendurnar eftir að nýja- brumið fór af slúðursögum af hjónabandi Díönu og Karls. Fjölmiðlar grófú upp ástarsam- band Mellor og spænskrar leik- konu fyrir nokkru og varla er nú um annað rætt á síðum æsifrétta- blaðanna. „Það væri gott ef háv- aðinn í kringum þetta mál hætti svo að við David getum leyst okk- ar vandamál í einrúmi," sagði Judíth, kona Mellor. Flytjaútvodka til Rússlands Mörgum þykir sjálfsagt vodka- útfiutningur til Rússlands líkast- ur því að flytja kaffi til Brasilíu en franskt fýrirtæki skýrði frá því nýlega aö það heföi gert- satnning um að ílytja vodka til Rússlands. Það er dótturfyrirtæki Pernod- Ricard sem geröi samning um að flytja þijár milljónir lítra af vodka til Moskvu i ágúst og sept- ember. „Rússarnir eru hræddir um að anna ekki eftirspurn á vodka í sumar og hafa því leyft innflutn- ing,“ sagði talsmaöur fyrirtækis- ins. „Þaö fyndnasta er að Pemod-Ricard flytur svo Stolich- naya vodka frá Lettlandi, sem áöur var í Sovétríkjunum, inn til Frakklands," sagði talsmaður- inn. Gullgrafarar leitaað fé Marcosar Leit að gröfnu gulii viö strand- hús Ferdinand Marcosar, fyrrum einræöisherra Filippseyja, hefur engan árangur borið aö því er embættismenn skýrðu frá á mið- vikudaginn. Þaö er nefnd á veg- um filippísku rikisstjórnarinnar sem stendur fyrir gullgreftinum en þeir eru að reyna að koma höndum yfir illa fengið fé hins fyrrum einræðisherra. „Við fundum ekkert viö gröftinn nema dnúlu, mold og steina," sagði formaður nefndarinnar. Hundurdrepur bam Hundur af tegundinni pitbull terrier réðst á sex ára gamlan strók i Hollandi fyrir stuttu og varð honum að bana. Þrír menn hafa þá látið lífið af völdum þess- arar hundategundar á jafnmörg- um árum í Hollandi. Þessir hund- ar eru bannaöir í Bretlandi. Reuter Uppskipting Tékkóslóvakíu: Friðurinn er fyrir öllu Leiðtogar Tékkíu og Slóvakíu komust í gær að samkomulagi um hvemig skipta ætti landinu upp á friðsamlegan hátt. Vaclav Klaus, leiðtogi Tékka, og Vladimir Meciar, leiðtogi Slóvaka, sögöust ætla að biðja þing Tékkó- slóvakíu aö samþykkja ný stjóm- skipunarlög sem byndu enda á hið 74 ára sambandslýðveldi Tékkóslóv- akíu. „Við vonumst til að þjóðþingið samþykki lögin fyrir 30. september," sagði Klaus á sameiginlegum frétta- mannafundi þeirra Meciars í Brati- slava, höfuðborg Slóvakíu. „Við ætlum okkur ekki að endur- taka Júgóslavíu hér. Það er okkar markmiö að skiptingin fari ekki úr böndum og verði friðsamleg," sagði Meciar. Leiðtogamir hafa komist að sam- komulagi um tollabandalag og frí- verslunarsvæði á milh landanna auk frjáls flutnings vinnuafls og fjár- magns. Þeir komust hins vegar ekki að samkomulagi um hvort löndin ættu að halda áfram að vera með sameiginlegan gjaldmiöil og verður það rætt síðar ásamt þvi hvernig skipta eigi upp herafla landsins. Reuter Leiðtogafundur á Spáni: Kastró stelur senunni Óeirðalögreglan i Blackburn á Bretlandi býr sig undir átök við ungmenni. ÓlætiíBretlandi: Fidel Kastró, forseti Kúbu, stal sen- unni á fyrsta degi leiðtogafundar Spánar, Portúgals og Rómönsku Ámeríku sem hófst á Spáni í gær. Kastró gagnrýndi Bandaríkja- stjóm harðlega og sagði Bandaríkin vera „heimsveldi sem stefndi aö heimsyfirráðum“. í ræðu sinni við opnun ráðstefnunnar gagnrýndi hann úrskurð hæstaréttar Banda- ríkjanna um að leyfilegt væri að ræna fólki innan landamæra ann- arra ríkja og draga það fyrir rétt í Bandaríkjunum. Kastró, sem er umdeildasti leiðtog- inn á fundinum, fagnaði fundinum sem tækifæri sem leiðtogar Róm- önsku Ameríku hefðu til að styrkja bönd sín á milli. „Sundraðir munum viö ekki geta staðið vörð um sjálf- stæði okkar,“ sagði Kastró. Leiðtogamir ætla að nota fundinn til að ræða um lýðræðis- og efnhags- þróun landanna en kastljósinu verð- ur beint að ástandinu í Mið- og Suð- ur-Ameríku. Leiðtogar landanna 19, sem taka þátt í ráðstefnunni, lögðu áherslu á nauðsyn þess að vemda lýðræði og Simamynd Reuter Kastró kallar hér til fréttamanna umkringdur leiðtogum annarra landa i Rómönsku Ameriku. Simamynd Reuter sigrast á fátækt landa Rómönsku Ameríku. „Harðstjóm fátæktar, eiturlyfja, hryðjuverka, skæruhernaðar, stöðn- unar og gervilýðræðis er óumflýjan- leg ógn við frið,“ sagði í yfirlýsingu frá Cesar Gaviria, forseta Kólumbíu, sem lesin var upp á fundinum en hann sá sér ekki fært að mæta sökum óróleika heima fyrir. Reuter Alda of beldis í enskum borgum Rúmlega 60 manns vom handtekn- ir í gærkveldi þegar alda ofbeldis- verka hélt áfram að ganga yfir borg- irnar í norðurhluta Englands. Fjöru- tíu voru handteknir í Blackburn þeg- ar unghngum af indverskum og pak- istönskum uppruna lenti heiftarlega saman við lögregluna. Gekk mikið gijótkast yfir lögregluna. Ólæti þessi fylgdu í kjölfarið á upp- þoti sem varð á miðvikudaginn í Blackbum, Burnley og Huddersfield. Voru það rúmlega eitt þúsund ung- menni sem tóku þátt í ólátunum. Undirbýr breska lögreglan sig nú undir erfitt sumar. Vandræðin heíjast venjulega þegar tíl átaka kemur á milli lögreglunnar og „skemmtibílstjóra", þ.e. þeirra sem stela bílum og aka þeim svo sér tíl skemmtunar. Margir vhja þó halda þvi fram að vandinn sé fyrst og fremst efnahagslegs eðlis og eigi rætur sínar í mikilh óvhd mhh breskraungmenna og lögreglunnar. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.