Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1992, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1992, Page 15
FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1992. 15 Yffir hengif lugið í tveimur stökkum? „Atvinnumál í landi má að einhverju leyti leysa mað því að stemma stigu vð gámaútflutningi," segir m.a. í greininni. Hart hefur verið deilt um áreið- anleik niðurstöðu hinna fjölmörgu vísindamanna sem mæla með 40% niðurskurði á þorskafla. Mál þessi eru margslungin en þjóð, sem á alla sína aíkomu undir fiskveiðum, ekki síst þorskveiðum, hefur ekki efni á að taka áhættu. Hrynur hrygningarstofn þorsks? Stærsta spumingin nú er: Hve mikið má veiða án þess að taka áhættu? Ýmsir hafa bundið vonir við að ekki þyrfti að taka allan skellinn í einu og tillögur Hafrann- sóknastofnunar um fiskveiðar næsta ár mátti með góðum vilja túlka á þann veg. Fulltrúar þeirrar stofnunar vöruðu þó jafnframt við því að yrði sú leið farin gæti það leitt til hruns hrygningarstofns- ins. Undir það tók síðan breski sér- fræðingurinn John Pope er hann kynnti mat sitt á tillögum Alþjóða hafrannsóknaráðsins. Hann taldi hættuna á hruni hrygningarstofns- ins svo mikla að líkja mætti henni við það að standa á brún hengi- flugs. Við þær aðstæður ráðlagði hann íslendingum að hörfa í stað þess að halda áfram Ýtrustu gætni þörf Það er einkenni veiðimannasam- félagsins að taka áhættu. í heimi ofveiði, ofneyslu og takmarkaöra náttúruauðæfa er þörf fyrir annan hugsunarhátt. Um það geta allir verið sammála. Hitt er deiluefni hvenær komið er að hættumörkum og hvemig skuli þá bregðast við. Ég tel að ekkert komi til greina annað en ýtrasta gætni við vernd- un þorskstofnsins. En þá verður líka að vera hægt að benda á úr- ræði á móti. Á það hefur nokkuð KjaUaiinn Anna Ólafsdóttir Björnsson þingkona Kvennalistans skort af hálfu stjórnvalda. Og þar sem grasið virðist grænna handan hengiflugsins er beinlínis verið að etja mönnum út í að reyna aö stökkva yfir. Gallinn er sá að leiðin er ekki fær og enginn stekkur óskaddaður yfir í mörgum stökk- um. Því tel ég nauðsynlegt að doka við og helst að stíga eitt skref til baka og minnka aflann verulega á næstu árum á meðan við erum að byggfa hrygningarstofninn upp. Hrun síldarstofnsins við ísland fyr- ir liðlega tveimur áratugum er lex- ía sem við getum lært af. Kvótaskerðing en ekki byggðahrun 40% niðurskurður á þorskveiði- heimiidum yrði sársaukafuil að- gerð sem kæmi hart niður á byggð- arlögum víðs vegar um landið. Til slíkra aðgerða verður ekki gripið nema með öflugum hiiðarráðstöf- unum. Því miður búum við ekki við þann byggðakvóta sem við kvennalistakonur lögðum til er kvótakerfinu var komið á. Þá hefði verið meiri stöðugleiki í rekstri fyr- irtækja í ýmsum byggðum lands- ins. Og þá ættum við 20% kvótans í varasjóði til ráðstöfunar í neyð- artilvikum sem þessum. Staðan er önnur nú. Mörg fyrir- tæki ramba á bjarmi gjaldþrots og sumum þeirra verður ekki bjargað. Því verður að finna úrræði til að mæta skerðingunni. í þeim efnum verða stjórnvöld, sveitarfélög, fyr- irtæki og einstaklingar að leggjast á eitt. Ljóst er að grípa verður til sérstakra ráðstafana á þeim stöð- um sem harðast verða úti. Mögu- legt er, með lagabreytingum, að færa veiðiheimildir á milli staða. Það leysir þó engan veginn allan vanda og ekki margir staðir sem væru aflögufærir. Einn vandi verður ekki leystur með því að skapa annan. Því fer fjarri að öll tiltæk ráð séu fullnýtt. Atvinnumál í landi má að ein- hverju leyti leysa mað því að stemma stigu vð gámaútflutningi. Sjálfsagt mál er að vega allan afla hér á landi og bjóða til kaups. Og fleiri úrræði eru til innan veiða og vinnslu. Leggja verður fé til rann- sókna og tilraunaveiða á vannýtt- um stofnum. Einnig þarf að auka allar hafrannsóknir. Stjórnvöld fjárfesti í framtíð- inni En betur má ef duga skal. Það er hæpið að allt leysist með tilfærslu og nýsköpun innan útgerðar og fiskvinnslu. Eitt er t.d. augljóst. Niðurskurður á opinberum fram- kvæmdum er ekki hyggilegur þeg- ar svona er ástatt í atvinnumálum. Auknar opinberar framkvæmdir skapa atvinnu og margar þeirra eru þjóðhagslega arðbærar. í sam- ráði við sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklinga er nú lag að brydda upp á nýsköpun í atvinnulífi, jafn- vel þótt það kosti fé úr opinberum sjóðum á meðan verið er að stunda nauðsynlegar rannsóknir og til- raunastarfsemi. Sú stefna hefur reynst okkur dýr að fjárfesta fyrst í stað þess að kanna ítarlega markað, fram- leiðslukostnað og verðlagningu. Nægir þar að nefna rangar aöferðir ýmissa við fiskeldi. Nú er verið að gera raunsæjar tilraunir með lúðu- eldi þar sem áhersla er lögö á und- irbúning og rannsóknir áður en farið er út í framleiðslu í stórum stíl. Þörf er á ákveðnu áhættufé á meðan á rannsóknum og tilrauna- framleiðslu stendur. Mörg sam- bærileg dæmi eru til þar sem fjár er þörf áður en hægt er að tryggja arð og brýnt að jafnt einkaaðilar sem opinberir læri að fjárfesta í framtíðinni í stað þess að þurfa ei- líflega að greiða gjaldþrotaskuldir fortíðarinnar. Þær aðgerðir, sem ég bendi á, þýða sumar hveijar tímabundna útgjaldaaukningu fyrir ríkissjóð. En þær eru fjárfesting í framtíðinni og skila sér sem arður þótt síðar verði. Anna Ólafsdóttir Björnsson „Sú stefna hefur reynst okkur dýr að fjárfesta fyrst í stað þess að kanna ítar lega markað, framleiðslukostnað og verðlagningu. Nægir þar að nefna rangar aðferðir ýmissa við fiskeldi.“ Víðtækustu mótmæli í skipulagssögu Kópavogs: Hvernig bregst bæjarstjórnin við? Greinarhöfundur segir að siðastliðið sumar hafi bæjarstjórn Kópavogs samþykkt að ekki skuli byggja á utivistarsvæðinu við Vighól. Eins og flestum Kópavogsbúum er kunnugt rann frestur til að gera athugasemdir við fyrirhugaöa skipulagsbreytingu við Heiðavall- arsvæði í Kópavogi út hinn 15. júlí sl. en þar hafði bæjarstjórn Kópa- vogs fallist á að heimila kirkju- byggingu eins og frægt er orðið. Þetta var í annað sinn sem um- rædd skipulagsbreyting var kynnt bæjarbúum þar sem Skipulag rík- isins hafði sent máhð aftur til um- fjöllunar í héraði þar eð fyrirhuguð stofnanabygging samræmdist ekki áður gefnum heimildum. Mál þetta hefur ekki aðeins vakið feiknaat- hygh og umræður í Kópavogi held- ur einnig um land allt og þá ekki síst meðal kirkjunnar manna og áhugafólks um náttúruvernd al- mennt. En hví skyldi þetta mál vekja svo mikla athygli og hafa m.a. leitt til stofnunar sérstakra náttúruvemd- arsamtaka í Kópavogi, Víghóla- samtakanna, sem nú eru að verða ein fjölmennustu samtök í bænum? í stuttu máli þetta: 1. Sl. sumar samþykkti bæjar- stjórn Kópavogs með eins at- kvæðist mun (6-5) að hverfa frá stefnu bæjaryfirvalda í Kópa- vogi sl. þrjá áratugi að ekki skuli byggja á útivistarsvæðinu við Víghól en þaðan gefur að líta mesta útsýni til allra átta á höf- uðborgarsvæðinu. 2. Með þessu lét meirihluti hæjar-. stjórnar undan nokkrum sauð- þijóskum valdamönnum í Digranessöfnuði sem nauðað hafa í bæjarstjórninni sl. 20 ár um kirkju á þessum stað. Hér er um að ræða fólk sem byggir KjáHaiinn Árni Stefánsson ritari Víghólasamtakanna, samtaka um náttúruvernd í Kópavogi á miðaldaguðfræði, þ.e. því hærra sem kirkjan stendur því guðdómlegri er gemingurinn. í hugrnn þessa fólks víkja því náttúruverndarsjónarmið fyrir kenningunni. (Sálfræðileg við- brögð af þessu tagi eru löngu þekkt í sögunni, gjarna kallað að festast í teóríunni og á slíkt fólk bíta að sjálfsögðu engin rök.) Tvívegis hefur fjöldi safn- aðarmanna kvartað formlega við biskup yfir vinnubrögðum þessa fólks en sökum hinnar þekktu fundarleti okkar íslend- inga hafa menn ekki nennt að fjölmenna á aðalsafnaðarfundi til að gefa þessum mönnum frí og kjósa aðra í þeirra stað. Á síðasta aðalsafnaðarfundi var fundarmönnum meinað að ræða kirkjumálið, fundi shtið og mönnum vísað á dyr. í ár hefur aöalsafnaðarfundur, sem vera átti í maí, énn ekki verið hald- inn. Hluti safnaðarins hefur nú farið fram á að sameinast næstu sókn, Hjahasókn, og fært fyrir því gild rök. Bæjarstjórnarmeirihlutinn hrekst undan Vitanlega velta Kópavogsbúar þvi fyrir sér hvað olli því að fyrir- staðan í bæjarstjórninni brast, hvers vegna bijóta á upp einróma samþykkt aðalskipulags bæjarins th 20 ára til að troða stórhýsi inn á útvistarsvæði, 35-40 metrum frá víðsýnasta útsýnisstað bæjarins, gegn margítrekuðum mótmælum íbúa Heiðavaharsvæðis og almenn- ings í bænum. Menn spyrja sem svo: Er ekki líklegt að menn, sem hrekjast út í svo alvarleg skipu- lagsmistök, geri einnig alvarleg mistök víðar, völdu flokkarnir rétta menn til forystu til að fara með málefni okkar? Hvar er fylgið við kirkju- bygginguna? Til að auðvelda bæjarbúum að koma á framfæri mótmælum gegn þessu skipulagsslysi gengu nokkrir meðhmir Víghólsamtakanna í hús síðustu kvöldin áður en hinn for- mlegi frestur rann út. Þótt aðeins væri farið í hluta bæjarins og víða komið að auðum híbýlum, enda á sumarleyfistíma, urðu menn satt að segja undrandi á því að stuðn- ingur við kirkjubyggingu á þessum stað var vart finnanlegur og nánast ekki th hjá fólki undir fertugu. I lok hins thskhda frests kom svo í ljós að um 2000 manns höfðu mótmælt umræddri skipulags- breytingu. Fasteignaeigendur við Heiðavallarsvæði mótmæltu einn- ig og taka m.a. fram í greinargerð sinni að verði ekki staðið við gefin fyrirheit gagnvart þeim muni þeir leita réttar síns fyrir dómstólum. - Sl. vetur mótmæltu um 250 manns fyrirhugaðri skipulagsbreytingu við Hjahabrekku/Nýbýlaveg þar sem bæjaryfirvöld vildu reisa há- hýsi í stað lágra bygginga. í því til- fehi voru íbúar í næsta nágrenni að veija rétt sinn á grundvehi skipulagslaga. Þar höfðu íbúarnir sigur - bæjaryfirvöld hurfu rétti- lega frá áformum sínum - þar var vissulega lýðræðislega á málum tekið. Því er spurt: Hvernig hregð- ast bæjaryfirvöld og bæjarstjórn Kópavogs við nú þegar fyrir hggja víðtækustu mótmæh fyrr og síðar í skipulagssögu bæjarins? Kirkjumálið í Kópavogi er því komið á annað og alvarlegra stig. Það snýst nú í raun um það hvaða virðingu valdhafar bera fyrir þegn- um sínum og rétti þeirra th að hafa áhrif á ákvarðanatöku í lýðræðis- þjóöfélagi. Einn ágætur eldri íbúi þessa bæj- ar sagði við mig um daginn: „Hvað er eiginlega að gerast í Kópavogi? Fyrir meira en þijátíu árum var það klappað og klárt að aldrei skyldi byggt fyrir útsýnið fahega við Víghól. Nú þurfum við bæði að halda úti lögfræðingi og stofna sér- stök samtök til að veija þessa perlu okkar fyrir kirkjunni og nýgræð- ingunum í bæjarstjóminni. En þetta er þó ekki með öllu iht, þeir þurfa að taka endanlega afstöðu núna á næstunni - þá vitum við hvar viö höfum þá!“ Er annars nokkru við þetta að bæta? Árni Stefánsson „Því er spurt: Hvernig bregðast bæjar- yfirvöld og bæjarstjórn Kópavogs við nú þegar fyrir liggja víðtækustu mót- mæli fyrr og síðar í skipulagssögu bæj- arins?“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.